Morgunblaðið - 26.09.2014, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Morgunblaðið/Ómar
Blikur Deilt er um kjarasamninga
bæjarstarfsmanna í Kópavogi.
„Verkfallið myndi lama margar
stofnanir bæjarins auk þess sem
sundlaugunum yrði lokað. Leik-
skólar munu lamast, það sama
gildir um grunnskólana,“ segir
Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, for-
maður Starfsmannafélags Kópa-
vogsbæjar, en félagið hefur sam-
þykkt verkfallsboðun. Náist ekki
samningar leggja félagsmenn nið-
ur störf dagana 14., 15., 21. og
22. október. Þá hefst ótímabundið
verkfall 1. nóvember.
„Stuðningsfulltrúar, húsverðir
og fleiri í grunnskólum koma til
með að fara í verkfall. Í leikskól-
unum eru það ófaglærðir starfs-
menn, auk þeirra er sjá um elda-
mennsku og annað, sem fara í
verkfall. Þetta gæti orðið mikið
uppnám,“ segir hún. Jófríður
bætir auk þess við að velferðar-
svið Kópavogsbæjar muni einnig
bíða hnekki.
Deilt um háskólabókun
í kjarasamningi
„Við skrifuðum undir kjara-
samning í byrjun júlí á skrifstofu
Sambands íslenskra sveitarfé-
laga. Þar komu fulltrúar frá
kjarasviði og fulltrúar frá starfs-
mannafélaginu að máli. Þegar bú-
ið var að undirrita samninga
komu upplýsingar frá fram-
kvæmdastjóra kjarasviðs þess
efnis að Kópavogsbær vildi há-
skólabókun út úr kjarasam-
ingnum okkar. Ég lét rífa samn-
inginn. Ég sel ekkert út úr
samningnum, ég hef ekki heimild
til þess,“ segir Jófríður.
Næsti fundur hjá ríkissátta-
semjara er boðaður 1. október.
davidmar@mbl.is
Mikil áhrif komi til verkfalls
Starfsmannafélag Kópavogsbæjar boðar til vinnustöðvana
„Þegar kemur að
endanlegri út-
færslu verður
þetta gert þann-
ig að það skaði
ekki höfnina og
minnki ekki at-
hafnasvæði
hennar um of,“
segir Hjálmar
Sveinsson, for-
maður umhverf-
is- og skipulagsráðs Reykjavíkur.
Stjórnendur Faxaflóahafna hafa
lýst áhyggjum af að auknar kröfur
um rými bygginga við Austurbakka
þrengi mjög að afnotum af hafnar-
mannvirkjunum í Austurhöfn.
Hjálmar segir að endanleg útfærsla
á svæðinu verði gerð í samkomu-
lagi og ekki megi þrengja um of að
athafnasvæði hafnarinnar. „Ég lít á
þetta sem ágæta ábendingu og
finnst gott að höfnin haldi utan um
þessa hagsmuni, því við viljum hafa
þetta áfram alvöruhöfn.“
omfr@mbl.is
Athafnasvæði hafn-
arinnar í Austurhöfn
minnki ekki um of
Hjálmar
Sveinsson
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 108 • Reykjavík • Sími 560 1010 www.heilsuborg.is
Eitthvað fyrir alla!
Upplýsingar í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is
Morgunþrek
Kvennaleikfimi
Karlaleikfimi
60 ára og eldri
(nýr tími 17:30)
Í formi fyrir golfið
HL klúbburinn
•
•
•
•
• Jóga
• Zumba
•
•
Lausnina finnur þú í Heilsuborg
Heilsuborg er líkamsrækt þar sem boðið er upp á
heildstæða þjónustu í átt að betri heilsu og líðan.
Komdu og svitnaðu
með okkur
Innanríkisráðu-
neytið hefur aug-
lýst laust til um-
sóknar embætti
hæstaréttardóm-
ara til setningar
meðan á leyfi
skipaðs dómara
stendur.
Um er að ræða
stöðu dr. Páls
Hreinssonar hæstaréttardómara
sem var skipaður til að vera dómari
við EFTA-dómstólinn frá 15. sept-
ember 2011. Hann hefur gegnt því
embætti síðan. Miðað er við að sett
verði í embætti hæstaréttardóm-
arans frá og með 1. janúar 2015 til
og með 15. september 2017, eða hið
fyrsta eftir að nefnd um hæfi dóm-
ara hefur lokið starfi sínu, að því er
segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Þegar Páll fór í leyfi frá störfum
2011 var Benedikt Bogason settur
hæstaréttardómari. Síðan var Bene-
dikt skipaður hæstaréttardómari.
Þá var Ingveldur Einarsdóttir, dóm-
ari við Héraðsdóm Reykjavíkur, sett
í embætti hæstaréttardómara til
tveggja ára frá 1. janúar 2013. Setn-
ing Ingveldar rennur því út um
næstu áramót. gudni@mbl.is
Laust sæti
í Hæsta-
rétti
Páll Hreinsson
Dómari í leyfi og
annar settur í staðinn
Ástir konu er yfirskrift tónleika
sem haldnir verða laugardaginn 27.
september kl. 15 í Guðríðarkirkju.
Þar munu Elsa Waage kontraalt,
Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran,
Margrét Einarsdóttir sópran og
Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó-
leikari koma fram og flytja fjöl-
breytta dagskrá.
Umfjöllunarefnið er, eins og
kemur fram í yfirskriftinni, ást-
fangnar konur og það sem konur
elska. Sungið verður um ást til
barna í vögguvísu, um brostna ást,
ást til almættisins og til ættjarð-
arinnar svo eitthvað sé nefnt. Allir
eru hjartanlega velkomnir, miða-
verð er 2.500 krónur, en 2.000 kr.
fyrir eldri borgara
Ástir konu
í Guðríðarkirkju