Morgunblaðið - 26.09.2014, Síða 16
SKÓLI Í SKÓGI
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Tólf börn eru við nám í Hallorms-
staðarskóla í vetur. Í haust varð
skólinn að deild í Egilsstaðaskóla, en
nafnið er þó vitaskuld notað áfram.
Skólinn stendur inni í miðjum
stærsta skógi landsins og því óhætt
að segja að umhverfið sé fallegra en
þorri íslenskra barna á að venjast.
Morgunblaðið heimsótti skól-
ann í skóginum á miðvikudag í síð-
ustu viku og kennsla var hefðbundin
fram að hádegi. Hafi hún verið
skemmtileg kættust börnin enn
frekar að loknum hádegisverði því
þá var haldið í Melarétt í Fljótsdal,
spölkorn frá skóginum, þar sem
dregið var í dilka fram eftir degi.
Þótt réttað hafi verið í miðri viku að
þessu sinni, af ástæðum sem rekja
má til gossins í Holuhrauni, fengu
nemendur að sjálfsögðu leyfi til að
taka þátt eins og sum eru vön enda
réttardagur varla síður mikilvæg
kennslustund en aðrar þar sem rýnt
er í bækur.
Hefð er fyrir því að börn í átt-
unda bekk selji veitingar meðan
réttað er og hefur það oft reynst
drjúg tekjulind í sjóð nemenda.
Flestir eru í áttunda bekk í vet-
ur, einn í fyrsta bekk og annar í öðr-
um, en enginn í sumum árgöngum.
Kennt er í tveimur hópum.
Börnin góðir vinir
„Við erum með samkennslu í
hópunum. Það er mikil nánd hér,
börnin tengjast vel og eru góðir vin-
ir. Samvinna yngri og eldri árganga
er mjög góður kostur,“ segir Harpa
Höskuldsdóttir, deildarstjóri á Hall-
ormsstað, við Morgunblaðið en bæt-
ir við að börnin séu einn og hálfan
dag í viku í höfuðstöðvunum á Egils-
stöðum, þar sem kennsla í verk-
greinum, vali og sundi fer fram frá
og með þessu skólaári. „Það er líka
gott fyrir krakkana að fara þangað
og vera með jafnöldrum sínum og
vinum,“ segir Harpa.
Skólarnir tveir urðu einn í sum-
ar sem fyrr greinir, og er reksturinn
sameiginlegt verkefni Fljótsdalshér-
aðs og Fljótsdalshrepps. Sigurlaug
Jónasdóttir skólastjóri er búsett á
Egilsstöðum og líst vel á verkefnið.
„Þótt annar skólinn sé stór og hinn
mjög fámennur er kennslan svipuð,
en aðstæður þó nýttar á hvorum stað
eins og hægt er: á Hallormsstað eru
þau með sitt skapandi starf eins og
verið hefur; skógurinn fór til dæmis
ekki neitt í burtu! Í skólastarfi skipt-
ir miklu máli að nota tækifærin sem
umhverfið hefur upp á að bjóða á
hverjum stað. En valmöguleikarnir
eru vissulega miklu meiri hér út frá
og þess vegna koma krakkarnir ofan
að hingað tvisvar í viku.“
Grunnskólar á Fljótsdalshéraði
voru margir á árum áður en eru nú
þrír; auka Egilsstaðaskóla (og þar
með útibúsins á Hallormsstað) er
„Samvinna yngri og
eldri góður kostur“
Frábær tækifæri sem yndislegt umhverfi býður upp á
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Röskur Þorsteinn Ivan Bjarkason fór eins og aðrir nemendur í Melarétt og dró hvergi af sér þegar hann dró í dilka.
SÉRBLAÐ
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað um
fjölskyldu-
atvinnu-
og pallbíla,
jeppa og fleira
föstudaginn
10. október
Bílablað
Í þessu blaði verða kynntar nýjar gerðir bíla,
allt sem bíllinn þinn þarf fyrir veturinn og
margt fleira
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 6. október.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is –– Meira fyrir lesendur
Oft verður hvasst í Hvaldalnum
Hvaldalur fyrir austan þykir veðravíti. Sé hringvegurinn ekinn réttsælis er
dalverpi þetta sunnan við Hvalnesskriður hvar ekið er fyrir vík og þaðan að
Eystra-Horni þar sem beinn og breiður vegur tekur við. Í Hvaldal kveður rammt
að byljóttum vindinum samfara norð- og norðvestlægum áttum, svo upp-
græðsla þarna er talin ómöguleg.
„Þarna gerir sterka hnúta, einkum þegar vindur er norðvestanstæður. Sjálf-
sagt nær þetta 50 til 60 hnútum á sekúndu þegar verst verður,“ segir Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Bætir við að í iðuköstum, sandfoki og grjót-
kasti á þessum slóðum hendi að klæðning flettist af vegunum. Þá nær vind-
urinn að smeygja sér undir klæðninguna eins og plástur sé rifinn af sári.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Austurland Óvíða verður hvassara en í Hvaldal. Stundum slær í 60 m/sek.
Kúluleikurinn pétanque er vinsæll
víða um heim og gjarnan leikinn í al-
menningsgörðum. Hann er upprunn-
inn í Frakklandi en heldur lítið hefur
farið fyrir honum hér á landi. Engu að
síður er árlega haldið Íslandsmeist-
aramót í pétanque á Fáskrúðsfirði og
er það í tengslum við bæjarhátíðina
Franska daga þar í bæ.
Pétanque svipar til boccia, en í fyrr-
nefnda leiknum eru boltarnir úr málmi
og á stærð við appelsínu. Markmiðið
er að kasta málmboltunum þannig að
þeir komist sem næst trébolta, sem
kallast cochonnet. Leika má pétanque
bæði á malarvelli og á grasflöt.
Keppt í frönsk-
um kúluleik
Morgunblaðið/Ómar
Fáskrúðsfjörður Á Frönskum dögum
eru teknir þar upp franskir siðir.
Austfirðingar hafa eins og allir
landsmenn notið góðs af vexti ferða-
þjónustunnar. Í sumum litlum
byggðarlögum þar sem búið var að
slökkva mörg ljós, loka verslunum
og þjónustufyrirtækjum, hafa þau
verið kveikt að nýju vegna stórauk-
innar eftirspurnar eftir vörum og
þjónustu. Enn hafa Austfirðingar þó
ekki fengið nema litla sneið af „túr-
istakökunni“. Það gæti breyst ef
stórhuga áform sem nú eru uppi í
landshlutanum verða að veruleika.
Austfirðingar ætla að auka veru-
lega hlut sinn í ferðaþjónustunni
Hálendinu og
þokunni ætlað að
heilla ferðamenn
Morgunblaðið/Malín Brand
Áform Austfjarðarþokan alræmda á að gagnast ferðaþjónustunni.
AUSTURLAND2014Á FERÐ UMÍSLAND
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014