Morgunblaðið - 26.09.2014, Síða 17
skóli í Fellabæ, handan Lagarfljóts-
ins, og á Brúarási á Jökuldal. Sveit-
arfélagið er mjög víðfeðmt, raunar
stærst allra á Íslandi og foreldrar
geta valið um það hvert börnin
sækja nám.
Mörgum þykir Hallormsstaður
dásamlegur og ekki að ósekju.
Harpa Höskuld Höskuldsdóttir er
ein þeirra. „Krakkarnir hafa mjög
gaman af því þegar við förum út í
skóg; þar erum við til dæmis með
eldstæði í rjóðri og leiktæki, svo eitt-
hvað sé nefnt; náttúran tengist
skólastarfinu mjög enda allt um
kring,“ segir Harpa. „Við erum rétt
að byrja að fóta okkur í nýju skipu-
lagi, sem við vonum að muni ganga
vel. Krakkarnir virðast mjög glaðir,“
segir Harpa, en bætir við að segja
megi að sum séu enn ánægðir en
önnur: „Þeim sem líkar vel í fá-
menni, í kyrrð og ró, líður af-
skaplega vel hér.
Fjáröflun Nemendur áttunda bekkjar Hallormsstaðarskóla seldu veitingar í Melarétt. Frá vinstri: Ragnhildur Elín
Skúladóttir, Soffía Mjöll Sæmundsdóttir Tandrup, Anna Birna Jakobsdóttir og Hafsteinn Máni Hallgrímsson.
Í skólanum, í skólanum … Sif Kjartansdóttir kennari og Jón Atli Við-
arsson. Hann er sjö ára og býr á bænum Ásgarði á Völlum.
Ólafía Sigmarsdóttir situr ein og
saumar á vinnustofu sinni á
Skjöldólfsstöðum á Jökuldal. Þar
verður til nytjalist af ýmsu tagi
úr hreindýraleðri. Ólafía var
lengi bóndi á Klausturseli ásamt
eiginmanni sínum, Aðalsteini
Jónssyni, en þau færðu sig um
set fyrr á árinu og sonur þeirra
er tekinn við búinu.
„Við rekum ferðaþjónustuna
hér á Skjöldólfsstöðum og
ákváðum að flytja. Það er upp-
lagt að vera með vinnustofuna
hér,“ segir Ólafía. Hún saumar
aðallega töskur og veski en einn-
ig forláta hatta, eins og sjá má á
myndinni, og hefur gert bæði
svuntur og púða. „Ég byrjaði á
þessu fyrir rúmum 20 árum. Að-
alsteinn Aðalsteinsson, bóndi á
Vaðbrekku, var þá nýbyrjaður
að láta súta hreindýraskinn; hon-
um fannst ekki hægt að henda
því eins og alla tíð hafði verið
gert og mér bauðst að prófa.“
Ólafía segir hreindýraleðrið
strax hafa slegið í gegn, „enda
mjög sterkt en samt létt í sér“.
Vörur Ólafíu eru bara til sölu
hjá henni sjálfri. „Framleiðslan
er svo sem engin ósköp.“
skapti@mbl.is
Situr og saumar á Skjöldólfsstöðum
Falleg nytjalist úr
hreindýraleðri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nytjalist Ólafía gekk frá þessum forláta hatti í síðustu viku.
Leður Taska úr smiðju Ólafíu.
Stækki sneiðin eykur það atvinnu og
tekjur íbúanna.
Til dæmis um þetta má nefna hug-
myndir um að gera út á Austfjarða-
þokuna alræmdu, norðurljósin og
óbyggðirnar á hálendinu. Markvisst
er nú unnið að þessum þremur verk-
efnum og hafa þau hlotið ýmsa
styrki til að hjólin geti rúllað.
Á Stöðvarfirði undirbúa þrír ung-
ir menn stofnun þokuseturs. Þar er
ætlunin að verði miðstöð ferðalaga á
vit þokunnar og fræðslu um sér-
kenni hennar og áhrif. Á Fáskrúðs-
firði er ætlunin að koma á fót norð-
urljósasetri, kynna mönnum dulúð
og eðli þessa náttúrufyrirbæris og
gefa þeim tækifæri til að skoða það.
Á Egilsstöðum stendur til að opna
svokallað óbyggðasetur næsta vor
og er Fljótsdalshreppur samstarfs-
aðili frumkvöðlanna. Er hugmyndin
að setrið verði á innsta byggða bóli í
dalnum, Egilsstöðum. Það stendur á
landamerkjum Vatnajökuls-
þjóðgarðs og við stærstu óbyggðir
Evrópu. Markmið Óbyggðasetursins
er „að bjóða upp á hágæðamenning-
arferðaþjónustu sem byggist á
menningararfi og náttúru óbyggð-
anna og jaðarbyggða þeirra“, eins
og það er orðað. Þá segir að auk lif-
andi sýninga þar sem gesturinn sé
virkur þátttakandi verði boðið upp á
safnagistingu, söguferðir um
óbyggðirnar á hestum og tveim jafn-
fljótum, ýmsa viðburði og sérsniðnar
vörur fyrir hópa og fyrirtæki.
gudmundur@mbl.is
Morgunblaðið/Malín Brand
Óbyggðir Hálendið heillar marga.
Lítið, dásamlegt samfélag
HALLORMSSTAÐUR
Börnin eru flutt í tveimur bílum í skólann að
morgni; annar sækir nemendur á bæi í Fljótsdal
en hinn leggur af stað frá Egilsstöðum og kem-
ur við á bæjum á leiðinni. „Bílstjórarnir sem
koma með börnin stoppa gjarnan hérna hjá okk-
ur, spjalla og fá sér kaffisopa. Þetta er lítið,
dásamlegt samfélag,“ segir Harpa Höskulds-
dóttir. Tvö börn sem búa á Egilsstöðum, en eiga
rætur í Fljótsdalnum, eru í skólanum. Sá eini í
dalnum sem átti að vera í 10. bekk ákvað
hins vegar að læra á Egilsstöðum í vetur.
VITINN 2014
Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni
leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu
lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda
blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014