Morgunblaðið - 26.09.2014, Side 18
BAKSVIÐ
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
„Ég sé ekkert í framlögðum tillögum
sem tekur á aðalvandamálinu,“ segir
Ari Skúlason, hagfræðingur hjá
Landsbankanum, um tillögur verk-
efnisstjórnar um framtíðarskipan
húsnæðismála. „Stærsta vandamálið
er einfaldlega staða unga fólksins,
þeirra sem hyggjast kaupa sína
fyrstu íbúð.“
Ari var einn frummælenda á fundi
Landsbankans í gær um „dönsku
leiðina“ svokölluðu í húsnæðislána-
málum. Eins og kunnugt er lagði
Verkefnisstjórn um framtíðarskipan
húsnæðismála til upptöku húsnæðis-
lánakerfis að danskri fyrirmynd þar
sem lánveitingar til húsnæðiskaupa
fara í gegnum sérstök og sérhæfð
húsnæðislánafélög.
Ari telur húsnæðismarkaðinn nú í
nokkuð eðlilegu horfi en að kaup-
endahópurinn sé orðinn annar en
hann áður var. Fyrirtæki kaupi hús-
næði í ríkari mæli og ungt fólk eigi
mjög erfitt með að kaupa sína fyrstu
íbúð. „Sá hópur sem er að koma nýr
inn á fasteignamarkaðinn þarf sér-
staklega á lánsfjármagni að halda,
þar sem hann er ungur og eiginfjár-
staða hans ekki sterk,“ segir Ari.
„Þessi hópur á í erfiðleikum og það
er lítið gert til að bæta stöðu hans og
gera hann virkari á markaðnum.“
Danska kerfið gott fyrir 2007
Spurður um viðhorf sín til danska
kerfisins svokallaða svarar Ari:
„Danska kerfið eins og það var fyrir
árið 2007 var mjög fínt kerfi.“ Hins
vegar hafi sífellt fleiri lántakendur
valið að taka lán sem bjóða upp á af-
borgunarleysi til allt að tíu ára. „Það
gefur augaleið að ef menn borga
bara vexti af láni árum saman, verð-
ur greiðslubyrðin síðustu árin þeim
mun þyngri. Ekki er víst að allir geti
staðið undir því.“ Ari telur marga
Dani geta staðið frammi fyrir
greiðsluvanda í kjölfarið.
„Þó svo að danska kerfið hafi stað-
ið af sér ýmis áföll, er ekki víst að það
standi óhaggað til frambúðar. Það er
vissulega mikil innbyggð áhætta í
kerfinu.“
Ari kveðst ekki sjá sérstaka
ástæðu til þess að taka upp danska
kerfið. „Eins og tillögurnar eru sett-
ar upp þyrfti að minnsta kosti fimm
nýja banka.“ Hann segir slíkt fyrir-
komulag mundu hafa mikinn kostn-
að í för með sér og bendir á, að hús-
næðislánadeildir gætu starfað innan
þriggja stærstu bankanna.
Þá segir Ari að þau vandamál sem
íslenskur húsnæðislánamarkaður er
sagður standa fyrir séu stundum
„blásin upp“ af stjórnvöldum. Hann
bendir á að kaupmáttur launa hafi
haldist í hendur við fasteignaverð og
byggingarkostnað. „Miðað við þessa
mælikvarða og þróun þeirra síðast-
liðin 10-20 ár erum við nokkuð ná-
lægt langtímameðaltali.“
Þurfum áhættulítið lánakerfi
Meðal frummælenda á ráðstefnu
Landsbankans var Jens Lunde, pró-
fessor við Viðskiptaháskólann í
Kaupmannahöfn. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Jens danska
kerfið ekki augljóslega besta kerfið
fyrir Ísland en að hlutar þess gætu
reynst mjög gagnlegir. „Þið getið
tekið upp kerfi í íslenskum krónum
sem er nokkuð líkt því danska, þó
svo að þið getið ekki boðið sömu
vexti og Danir.“
Jens varar við að taka upp lán sem
eru afborgunarlaus fyrstu ár láns-
tímans, þar sem í þeim sé mikil inn-
byggð áhætta. Hann leggur áherslu
á að Íslendingar byggi upp áhættu-
lítið húsnæðislánakerfi sem veiti að-
eins lán í íslenskum krónum, auk
þess sem forðast ætti afborgunar-
laus lán og lán með lága breytilega
vexti. Loks mælir hann með því að
notkun verðtryggðra lána verði tek-
in til endurskoðunar.
Kerfið ráði við áföll
Gylfi Arnbjörnsson, formaður
ASÍ, er hlynntur upptöku danska
kerfisins og bendir á, að á sama tíma
og húsnæðislánakerfi Íslands og
Bandaríkjanna hafi hrunið hafi það
danska staðið af sér storminn. „Þó
svo að innbyggðar áhættur séu inni í
kerfinu, hefur því hingað til tekist að
vinna úr vandanum,“ segir Gylfi.
„Kerfið virðist standa af sér ýmis
áföll og þess vegna finnst okkur það
áhugavert.“
Hann telur þó mikla opna áhættu
fyrir danska lántakendur í tengslum
við endurfjármögnun og endur-
ákvörðun vaxta. „Þannig getur
greiðslubyrði lána í framtíðinni vaxið
mjög mikið og mjög hratt. Það gæti
kallað fram efnahagsþrengingar,“
segir Gylfi.
Hann segir Íslendinga þurfa að
ákveða hvers konar húsnæðislána-
kerfi þeir vilji hafa. „Að mínu mati
skiptir máli hvort lánakerfi getur
staðið af sér efnahagssveiflur án
þess að hrynja.“
Gylfi telur mikilvægt að breyting-
ar á húsnæðislánakerfinu ráðist ekki
af hagsmunum lánastofnana. „Lána-
kerfið á að mótast út frá langtíma-
hagsmunum lántakenda, það er
heimilanna, annars vegar og svo
fjárfesta hins vegar. Lærdómurinn
af danska kerfinu er að Dönum hefur
tekist betur að feta þetta einstigi á
milli hagsmuna lántakenda og lán-
veitenda.“
Skiptar skoðanir
um dönsku leiðina
Morgunblaðið/Ómar
Húsnæðismarkaðurinn Menn eru ekki á eitt sáttir um upptöku húsnæðislánakerfisins að danskri fyrirmynd.
Umtalsverð innbyggð áhætta í danska húsnæðiskerfinu
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
!""
#"
!
##
!$$
! "
%$
$ !
%%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
"#
$#
"#
#$
!!
!"
$%
$#
"
!
#%
"
#$!
!!#
!
$ #
##
$"!$
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Vísitala neysluverðs lækkaði um
0,12% í septembermánuði en grein-
endur höfðu hins vegar spáð 0,2-0,3%
hækkun vísitölunnar. Mælist tólf mánaða
verðbólga nú 1,8% og er það áttundi
mánuðurinn í röð sem verðbólga er inn-
an 2,5% markmiðs Seðlabankans.
Fram kemur í markaðspunktum Arion
banka að það sem vó þyngst í lækkun
vísitölunnar – og kom greinendum mest
á óvart – var að flugfargjöld til útlanda
lækkuðu um 29% milli mánaða. Hafði
það 0,53% áhrif til lækkunar.
Tólf mánaða verðbólga
mælist nú aðeins 1,8%
STUTTAR FRÉTTIR ...
Verkefnastjórn um framtíðar-
skipan húsnæðismála lagði til
upptöku húsnæðislánakerfis að
danskri fyrirmynd, þar sem lán-
veitingar til húsnæðiskaupa
færu í gegnum sérstök og sér-
hæfð húsnæðislánafélög, þar
sem lán væru óverðtryggð til
framtíðar. Þó er gerður sá fyr-
irvari að nauðsynlegar kerf-
isbreytingar og mótvæg-
isaðgerðir geri það kleift.
Verkefnastjórnin mælist til
þess að húsnæðislánafélög megi
eingöngu lána til húsnæðiskaupa
og fjármagna útlán með útgáfu
sértryggðra húsnæðisveð-
skuldabréfa og að alþjónustu-
kvöð verði sett sem skilyrði fyrir
starfsleyfi slíkra félaga, þannig
að þau bjóði þjónustu sína öllum
íbúum landsins óháð búsetu.
Vill kerfi að danskri fyrirmynd
TILLÖGUR VERKEFNASTJÓRNARINNAR
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Frystikistur á
tilboðsverði
25% afsláttur
Tilboð gildir meðan birgðir
endast.
FR205 190L B74xD70xH95
1 karfa, læsing á loki
hjól undir kistu
FR305 278L B98xD70xH95
2 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR405 385L B128xD70xH95
2 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR505 463L B150xD70xH95
3 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR605 567L B180xD70xH95
3 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
Verð áður kr. 89.369
Verð nú kr. 67.026 m. vsk.
Verð áður kr. 102.742
Verð nú kr. 77.056 m. vsk.
Verð áður kr. 111.615
Verð nú kr. 83.711 m. vsk.
Verð áður kr. 124.537
Verð nú kr. 93.403 m. vsk.
Verð áður kr. 152.698
Verð nú kr. 114.524 m. vsk.
Öll upplýs-
ingatækni Sím-
ans hefur verið
sameinuð upplýs-
ingatækni dótt-
urfélags fyr-
irtækisins,
Sensa. Eftir sam-
eininguna verður
Sensa eitt öfl-
ugasta upplýs-
ingatæknifyr-
irtæki landsins með um 120
sérfræðinga, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Símanum.
Sensa var stofnað árið 2002 og
keypti Síminn rekstur þess árið
2007. Félagið mun nú taka yfir
þann rekstur, þjónustu, vöruþróun
og sölu á upplýsingatæknilausnum
sem hafa verið hjá Símanum.
Að sögn Orra Haukssonar, for-
stjóra Símans, eru þessar breyt-
ingar rökrétt framhald á áherslu-
breytingum sem unnið hefur verið
að á undanförnum mánuðum. „Eftir
þessa breytingu samanstendur
þjónusta við viðskiptavini af rekstri
grunnfjarskipa hjá Mílu, fjar-
skipalausna hjá Símanum, upplýs-
ingatækniþjónustu hjá Sensa og
efnisveitu hjá Skjánum.“
Sameinað
inn í Sensa
Orri
Hauksson