Morgunblaðið - 26.09.2014, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Sjávarútvegsfyrirtækið Síldar-
vinnslan í Neskaupstað hagnaðist
um 46 milljónir Bandaríkjadala,
jafnvirði 5,5 milljarða króna, á síð-
asta ári. Dróst hagnaður félagsins
saman um 10 milljónir dala frá fyrra
ári.
Fram kemur í ársreikningi Síld-
arvinnslunnar, sem var nýlega skilað
til fyrirtækjaskráar, að stjórn fyrir-
tækisins leggi til að greiddur verði
arður að fjárhæð 18 milljónir dala til
hluthafa á þessu ári. Borgaði félagið
jafnvirði 1,3 milljarða króna í tekju-
skatt vegna afkomu síðasta árs.
Stærstu hluthafar Síldarvinnsl-
unnar eru Samherji (45%), Gjögur
hf. (34%), og Samvinnufélag útgerð-
armanna (11%). Samtals voru 294
hluthafar í félaginu í árslok 2013.
Fyrirtækið er eitt það stærsta á
Íslandi í veiðum og vinnslu á upp-
sjávarfiski og jafnframt stærsti
framleiðandi á fiskimjöli og lýsi hér-
lendis. Samkvæmt nýjum tölum frá
Fiskistofu er Síldarvinnslan með
þriðju mestu aflahlutdeild útgerðar-
félaga, með samtals 5,2% af öllum út-
hlutuðum afla.
Samkvæmt rekstrarreikningi
námu rekstrartekjur Síldarvinnsl-
unnar, að meðtöldum innlögðum eig-
in afla, 232 milljónum dala og stóðu
nánast í stað á milli ára. Rekstrar-
tekjur í landvinnslu minnkuðu um 14
milljónir dala á meðan þær jukust
um svipaða fjárhæð í útgerð.
Eignir samstæðunnar eru um 372
milljónir dala og eigið fé ríflega 200
milljónir dala. Fjárhagsstaða fyrir-
tækisins er því sterk og nam eigin-
fjárhlutfallið 54% í lok árs 2013.
Handbært fé jókst um liðlega 30
milljónir dala og nam tæplega 64
milljónum dala í árslok 2013.
Á meðal dótturfélaga Síldar-
vinnslunnar er útgerðarfyrirtækið
Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum
sem Síldarvinnslan keypti 2012.
Fyrr á árinu ógilti Héraðsdómur
Suðurlands hins vegar kaupin.
hordur@mbl.is
Síldarvinnslan hagn-
ast um 5,5 milljarða
Hagnaður minnkar milli ára 2,2 milljarðar í arð til eigenda
SVN Keypti uppsjávarveiðiskipið Malene S sem fékk nafnið Börkur NK 122.
Opið: 8
:00-18
:00
mánud
. til fim
mtud.
8:00-1
7:00
föstud
aga
Er bílrúðan
brotin eða
skemmd?
Við erum sérfræðingar í
bílrúðuskiptum og viðgerðum
á minni rúðutjónum.
Erum í samvinnu við öll
tryggingafélög landsins.
Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is
Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta
Gott rval blaleigubla til slu.
Komdu heimskn eða skoðaðu heimasðuna;
www.hyundai.is og smellir flipann notaðir blar
Smi 575 1200
ALLT AÐ 80% FJRMGNUN
HYUNDAI i30 COMFORT
Nýskr 06/2013, ekinn 49 þús.
bensín, sjálfskiptur
HYUNDAI I30 CLASSIC II
Nýskr 05/2013, ekinn 44 þús.
dísil, beinskiptur
HYUNDAI I20 CLASSIC
Nýskr 09/2013, ekinn 39 þús.
bensín, beinskiptur
HYUNDAI I20 CLASSIC
Nýskr 06/2013, ekinn 52 þús.
dísil, beinskiptur. verð kr. 2.190.000
HYUNDAI I20 CLASSIC
Nýskr 06/2013, ekinn 45 þús.
dísil, beinskiptur
HYUNDAI I20 CLASSIC
Nýskr 07/2013, ekinn 49 þús.
bensín, beinskiptur. verð kr. 1.990.000
HYUNDAI I30 CLASSIC II
Nýskr 05/2013, ekinn 53 þús.
dísil, beinskiptur, verð kr. 2.690.000
VERÐ:
2.690.000 kr.
VERÐ:
1.990.000 kr.
TILBOÐSVERÐ:
1.990.000 kr.
VERÐ:
2.190.000 kr.
TILBOÐSVERÐ:
1.790.000 kr.
TILBOÐSVERÐ:
2.440.000 kr.
HYUNDAI
VERÐ
3.290 þús.
BLALEIGUBLAR
HYUNDAI
Kauptni 1
Kauptni 1- (Beint mti IKEA)
Nr. 120475
Nr. 120481
Nr. 120479
Nr. 120477
Nr. 170374
Nr. 120458
Nr. 120473
Vanskil útlána Íbúðalánasjóðs (ÍLS) til einstaklinga
héldu áfram að minnka í ágúst síðastliðnum en sam-
tals voru tæplega 9% allra útlána sjóðsins í van-
skilum. Á sama tíma fyrir ári var hlutfallið hins veg-
ar 12,4%, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu
Íbúðalánasjóðs. Sé aðeins litið til heimila, þá voru lið-
lega 6% þeirra með fasteignalán sín hjá sjóðnum í
vanskilum.
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í ágúst á þessu ári
námu 316 milljónum, en þar af voru 297 milljónir
króna vegna almennra útlána. Hafa útlán sjóðsins
minnkað umtalsvert á milli ára en á sama tíma árið
2013 námu almenn útlán 902 milljónum. Uppgreiðslur
halda áfram að aukast hjá sjóðnum og námu þær 3,5
milljörðum króna í ágúst og jukust um 800 milljónir
króna frá fyrra mánuði.
Í lok ágúst átti Íbúðalánasjóður 2.040 fulln-
ustueignir um allt land. Frá áramótum hafa 285 eign-
ir bæst við eignasafn sjóðsins. Mikil aukning hefur
orðið í sölu á eignum ÍLS en frá áramótum hefur
sjóðurinn selt 819 eignir en á sama tímabili 2013
seldi hann aðeins 142 eignir.
Íbúðalánasjóður leigir nú um stundir 920 eignir
beint út og aðrar 450 eru í útleigu á vegum Leigu-
félagsins Kletts. Því er umtalsverður meirihluti fulln-
ustueigna ÍLS þegar í útleigu.
Vanskil minnka enn hjá ÍLS