Morgunblaðið - 26.09.2014, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
um í Kúrdistan byr undir báða vængi
þegar fram líða stundir.
„Þurfum okkar eigið land“
Segja má að sókn samtaka íslam-
ista, sem kalla sig Ríki íslams, hafi
styrkt stöðu sjálfstæðissinna í Kúr-
distan, þótt níðingsverk samtakanna
hafi haft hörmulegar afleiðingar fyr-
ir kúrdíska íbúa svæða sem íslamist-
arnir lögðu undir sig.
Stórsókn íslamistanna í júní varð
til þess að her Íraks flúði af svæðum
sem Kúrdar og stjórn landsins höfðu
deilt um. Herlið Kúrda notfærði sér
glundroðann og náði nokkrum af
umdeildu svæðunum á sitt vald.
Kúrdar kappkosta nú að ná fleiri
svæðum af íslamistunum, m.a.
Mosul, þriðju stærstu borg Íraks.
Stjórn Bandaríkjanna hefur
ákveðið að vopna íraska Kúrda til að
efla þá í baráttunni við íslamistana.
Afstaða stjórnarinnar er þó tvíbent
því hún vill ekki að Kúrdarnir verði
svo öflugir að þeir geti látið sjálf-
stæðisdrauminn rætast, að því er
fram kemur í grein í The New York-
er. Tímaritið bendir á að bandarísk
stjórnvöld hafa lagt mikið fé í upp-
bygginguna í Írak eftir innrásina og
hafa ekki léð máls á því að landinu
verði skipt upp í tvö eða fleiri ríki.
Kúrdar sjá sér þó lítinn hag í því
að vera í ríki með gömlum fjendum
sínum. „Írak er bara til í huga fólks í
Hvíta húsinu,“ hefur The New York-
er eftir Masrour Barzani, yfirmanni
leyniþjónustu Kúrda og syni forseta
Kúrdistans. „Við þurfum okkar eigin
lög, okkar eigið land, og við fáum
þau.“
AFP
Árásir á olíuvinnslu-
stöðvar
» Herþotur Bandaríkjanna og
arabískra bandamanna þeirra
gerðu í gær sprengjuárásir á ol-
íuvinnslustöðvar sem eru á valdi
samtaka íslamista, Ríkis íslams.
Talið er að tekjur samtakanna af
olíuvinnslu nemi jafnvirði 250
milljóna króna á dag.
» Um 140 liðsmenn vígasveita
íslamistanna hafa fallið í loft-
árásunum í Írak og mikill meiri-
hluti þeirra kom frá öðrum lönd-
um, m.a. arabaríkjum og
Evrópulöndum.
Forseti Síerra Leóne, Ernest Bai
Koroma, fyrirskipaði í gær að héruð
með um milljón íbúa yrðu sett í
sóttkví til að reyna að stöðva út-
breiðslu ebólufaraldursins.
Fyrirmælin náðu til tveggja hér-
aða í norðurhluta landsins og eins í
suðurhlutanum. Tvö héruð í austan-
verðu landinu hafa verið í sóttkví frá
því í ágúst. Með nýju fyrirmælunum
er nú um þriðjungur allra íbúa
Síerra Leóne í sóttkví.
Nær 600 manns hafa dáið af völd-
um ebóluveirunnar í Síerra Leóne.
Samkvæmt upplýsingum frá Al-
þjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO)
hefur ebólufaraldurinn kostað alls
2.917 manns lífið. Sjúkdómurinn hef-
ur verið skæðastur í Líberíu og
Gíneu, auk Síerra Leóne.
Mikill skortur er á læknum og
hjúkrunarfræðingum í löndunum. Í
Síerra Leóne eru t.a.m. aðeins 136
læknar og 1.017 hjúkrunarfræð-
ingar, að sögn fréttavefjar BBC.
Íbúar landsins eru 6,1 milljón.
AFP
Sorg Stúlka grætur fyrir utan sjúkrahús í Monróvíu í Líberíu eftir að foreldrar
hennar dóu úr ebólu. Líbería er með 4,2 milljónir íbúa en aðeins 51 lækni.
Þriðjungur allra íbúa
Síerra Leóne í sóttkví
Reynt að stöðva útbreiðslu ebólu
570 8600 / 472 1111
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Frábært verð
til Færeyja og Danmerkur í haust!
Netverð frá23.600á mann
Danmörk verðdæmi:
Til Danmerkur og til baka 2 fullorðnir, fólksbíll
og gista í 2m innklefa verð á mann frá 71.000
Aðra leið til Danmerkur 1 fullorðinnn, bíll og
gisting í 4m innklefa inn verð frá 48.550
Færeyjar verðdæmi:
Til Færeyja og til baka 2 fullorðnir, fólksbíll og
gist í 2m innklefa verð á mann frá 36.300
Aðra leið til Færeyja 1 fullorðinn, fólksbíll og
gist í 4m innklefa verð frá 23.600