Morgunblaðið - 26.09.2014, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
VINNINGASKRÁ
21. útdráttur 25. september 2014
668 11299 20640 34136 43565 51803 60352 71062
985 11362 20986 34415 43700 51966 60471 71077
1584 11886 21276 34462 43836 52624 60993 71905
1804 12425 22078 34532 44170 53094 61062 72795
2055 12620 22238 34563 45753 53346 61294 72894
2064 13171 22428 34698 45839 54341 61872 74070
2212 13486 23425 34986 45902 54618 62270 74497
3173 13600 23589 36004 45994 54982 62500 74656
3445 13647 24287 36323 46172 55430 62646 74807
3542 14258 24615 36501 46529 55520 63043 75856
4425 14568 24811 36909 46781 55657 63433 75939
4476 14908 25064 37058 46962 56284 64303 76381
4718 14964 25790 37260 47088 56304 64562 76524
4831 14985 25975 37352 47823 56382 64913 76763
5069 15017 26149 37547 48132 56453 65423 77114
5684 16322 26838 37657 48811 56565 65740 77230
5802 16667 26947 38132 48895 56706 66373 77269
6024 16871 27067 39022 48946 56784 66814 78212
6070 16990 27228 39386 48967 57340 66884 78586
6393 17039 27985 39486 49121 57413 66960 78689
6578 17344 28421 40210 49200 57522 67742 78811
7293 17784 29504 40217 49242 57560 68267 79112
7507 18483 29541 40352 49695 57989 68286 79156
8302 18888 30219 40735 49741 58152 69087 79199
8377 19190 30364 40767 50056 58188 69169 79225
8485 19281 30706 40825 50391 58303 69635 79604
9102 19310 31781 41063 50494 58628 69911
9119 19750 31924 41137 50515 58775 70080
10045 20139 32134 41329 50819 59056 70390
10157 20158 32945 41518 50833 59689 70406
10958 20168 33746 42692 51246 60014 70467
11216 20375 33944 42982 51346 60016 70705
124 9422 17623 28975 37312 49905 64245 75133
170 9855 18302 29450 37616 53512 65760 76631
1748 10083 18750 30124 37938 54544 66905 76691
2151 10541 19775 30821 38691 54568 66915 76746
2908 11822 20701 31094 39695 54690 66917 77204
2920 12985 22358 31987 39875 54811 68423 77411
4290 13306 22667 32737 41204 60708 71943 77738
4741 14143 24623 33035 42389 60753 72592 78011
4841 15372 25606 34569 43286 62158 72744 79490
5511 16110 26439 34865 43849 62384 73600
7318 16556 27204 34957 46155 62785 73724
7514 17306 27439 36621 46851 63881 74089
9415 17307 27893 36781 48745 64182 75057
Næsti útdráttur fer fram 2. október 2014
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
19436 59324 71461 71902
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1595 15468 36554 56689 67753 76580
8055 23506 39045 62375 70650 77127
8236 26551 40168 62708 71412 77384
11484 34252 40593 67270 72256 78012
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
3 4 3 3 8
Fyrr á þessi ári stóð
ISAVIA ohf., sem sér
um rekstur Leifs-
stöðvar, fyrir útboði á
aðstöðu fyrir rekstur
verslunar- og veit-
ingaþjónustu á fríhafn-
arsvæði flugstöðv-
arinnar. Velta á
fríhafnarsvæðinu er um
12 milljarðar á ári.
Mjög mörg fyrirtæki
sýndu útboðinu áhuga, enda hafa árs-
reikningar margra félaga sem þar
starfa sýnt afkomu á undanförnum
árum sem nemur tugum og hundr-
uðum milljóna. Ein stór undantekn-
ing er þar á. Dótturfélag ISAVIA
(Fríhöfnin ehf.) sem rekur verslanir í
meira en helmingi alls rýmis sem fer
undir verslanir, á besta stað í flug-
stöðinni, skilaði 61 milljónar króna
tapi á fyrstu 6 mánuðum þessa árs. Á
þessum 6 mánuðum var veltan 3,9
milljarðar og er mikið afrek út af fyr-
ir sig að skila svo lélegum árangri.
Ekki væri óeðlilegt að gera þá kröfu,
að verslun í fríhöfninni í þessari stöðu
með um 8 milljarða í veltu á ári skilaði
800-1.200 milljónum í hagnað, sem á
endanum gengi til eigandans, þ.e. rík-
isins. Til að setja þessa tölu í sam-
hengi þá er hún um það bil sú sama
og Landspítalinn fær til tækjakaupa
samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir
2015.
Að fá aðstöðu til að reka verslun í
Leifsstöð er eins og að fá úthlutaðan
fiskkvóta. Mjög mikil verðmæti eru í
húfi og eru fyrirtæki tilbúin að greiða
mikið fyrir að fá aðstöðu, allt að 23%
af veltu. Hvers vegna ISAVIA
ákveður að reka sjálft verslanir í
meirihluta rýmisins er óskiljanlegt,
þegar óvenju slæmur árangur þess er
hafður í huga.
Í útboði ISAVIA var áhugasömum
aðilum um rekstur verslunar- og veit-
ingaþjónustu gefinn kostur á að
senda inn ítarlega um-
sókn, þar sem hug-
myndinni var lýst
ásamt áætlunum um
reksturinn, svo sem
hversu hátt hlutfall af
veltu menn treystu sér
til að greiða fyrir að-
stöðuna. Sérstök fimm
manna nefnd fór yfir
umsóknirnar og lagði
mat á hversu raunhæf-
ar þær voru og hversu
vel þær féllu að þeirri
hugmynd sem ISAVIA
hefur um hvaða rekstur eigi heima í
flughöfninni. Í nefndinni sátu fjórir
starfsmenn ISAVIA og flugstöðv-
arinnar, og einn erlendur ráðgjafi.
Fyrirtæki mitt, Nordic Store ehf.,
var eitt af þeim fyrirtækjum sem skil-
uðu inn ítarlegri umsókn en var hafn-
að af nefndinni. Félagið hefur árum
saman rekið verslanir fyrir ferða-
menn og ávallt skilað mjög góðum og
vaxandi hagnaði, hvort sem mælt er
sem hlutfall af veltu eða á fermetra
verslunarrýmis. Mörgum öðrum
gamalgrónum fyrirtækjum var hafn-
að, fyrirtækjum með langa og farsæla
rekstrarsögu. Ekki er ljóst hvaða fé-
lög hlutu náð fyrir nefndinni, enda
hvílir mikil leynd yfir öllu ferlinu.
Ég geri alvarlegar athugasemdir
við framkvæmd útboðsins, einkum og
sér í lagi hvernig umsóknir voru
metnar. Helstu athugasemdir eru
þessar:
1. Skipan matsnefndar. Fjórir af
fimm nefndarmönnum eru starfs-
menn ISAVIA og aðeins einn nefnd-
armaður er erlendur ráðgjafi. Ekki
er ljóst hvaða rök eru að baki þessari
skiptingu, en ætla má að vænlegra
hefði verið að óháðir utanaðkomandi
aðilar, með sérþekkingu á verslunar-
og veitingarekstri flughafna, skipuðu
meirihluta nefndarinnar.
2. Hæfni nefndarmanna. Mér vit-
anlega hefur enginn starfsmanna
ISAVIA í nefndinni reynslu af versl-
unar- eða veitingarekstri, ef frá er
talinn rekstur verslana ISAVIA í
Leifsstöð sjálfri. Sá óskiljanlegi og
gríðarlegi taprekstur sem sá rekstur
skilar afhjúpar getu- og kunn-
áttuleysi þeirra á þessu sviði. Um er-
lenda ráðgjafann veit ég ekkert, en
geri ráð fyrir að hann hafi sérþekk-
ingu og reynslu á þessu sviði.
3. Hæfi nefndarmanna. Í okkar
litla samfélagi má ætla að starfsmenn
ISAVIA í nefndinni hafi vina- og/eða
fjölskyldutengsl við einhverja af þeim
fjölmörgu aðilum sem tóku þátt í út-
boðinu, en þeir skipta líklega hundr-
uðum. Einnig má gera ráð fyrir að
vinskapur í gegnum dagleg samskipti
hafi myndast milli þeirra og rekstr-
araðila sem fyrir eru í flughöfninni og
sóttu flestir aftur um aðstöðu. Er haf-
ið yfir grun að slík tengsl, ef þau eru á
annað borð fyrir hendi, hafi truflað
dómgreind nefndarmanna? Einnig
má spyrja hvort ISAVIA hafi virkt
eftirlit með hvort nefndarmenn hafi
þegið gjafir í einhverju formi frá að-
ilum sem beint eða óbeint tengjast
umsækjendum.
Alvarleiki þessa máls er sá að
nefnd sem tekur ákvarðanir um
hverjir fá að reka verslanir og veit-
ingaþjónustu í framtíðinni í Leifsstöð,
hafa mikil áhrif á hversu vel þetta
tekjuöflunartæki gagnast ríkissjóði.
Hér eru milljarðatekjur í húfi fyrir
ríkissjóð. Það er undarlegt að mönn-
um með jafn lítið vit á rekstri og
reynslan bendir til skuli vera falið að
taka ákvarðanir um hverjir fá að
stunda slíkan rekstur, og jafnframt
að þeir sjálfir beri ábyrgð á meira en
helmingi allrar verslunar í Leifsstöð.
Eftir Bjarna
Jónsson » Sérstök fimm
manna nefnd fór
yfir umsóknirnar og
lagði mat á hversu
raunhæfar þær voru.
Bjarni Jónsson
Höfundur er fjárfestir og stjórn-
arformaður Nordic Store ehf.
Ríkið verður af hundruðum millj-
óna króna í tekjur af Leifsstöð
Í fréttum var fjallað um endur-
menntun rútubílstjóra og mátti
skilja á forsvarsmanni þeirra að
það gæti ekki verið mikið sem þeir
gætu lært miðað við þá miklu
reynslu sem margir þeirra hafa.
Eitt eiga þeir þó langflestir alveg
ólært en það er að drepa á bílum
sínum þegar þeir eru ekki í akstri.
Það væri mikið framfaraskref ef
þeim yrði kennt þetta einfalda at-
riði. Jafnvel þó að þeir séu beðnir
um að drepa á vélinni þegar púst-
fýlan er að kæfa fólk þá neita þeir
og segja að það taki því ekki. Hér í
miðbænum leggur pústfýluna
stundum inn um opna glugga þegar
vélin er látin mala lon og don á
meðan þeir bíða eftir farþegum og
veldur íbúum miklum óþægindum.
Þetta er eitraður útblástur sem
veldur mörgum miklum óþægindum
og veldur einnig almennri loft-
mengun. Þetta þyrftu rútubílstjórar
að læra.
Húsmóðir í miðbænum.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Rútur og mengun
Morgunblaðið/Kristinn
Rútur Bréfritari kvartar yfir mengun frá hópferðabílum.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Pétur og Guðlaugur
unnu Hannesarmótið
Spilað var á 11 borðum í Gull-
smára mánudaginn 22. september.
Úrslit í N/S:
Guðlaugur Nielsen – Pétur Antonss. 200
Jón Bjarnar – Katarínus Jónsson 199
Vigdís Sigurjónsd. – Þorl. Þórarinss. 186
Þórður Jörundss. – Jörundur Þórðarson 181
A/V
Lúðvík Ólafss. – Guðm. Pétursson 242
Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 198
Guðbjörg Gíslad. – Sigurður Sigurðss. 187
Ormarr Snæbjss. – Sturla Snæbjörnss. 185
Skor þeirra Lúðvíks og Guðmund-
ar er liðlega 72%, en öruggir sigur-
vegarar í Hannesarmótinu urðu
Guðlaugur Nielsen og Pétur Antons-
son. Röð efstu para varð annars
þessi (3 bestu skiptin af 4):
Guðlaugur Nielsen – Pétur Antonsson 660
Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 619
Jón Bjarnar – Katarínus Jónsson 613
Vigdís Sigurjónsd. – Þorl. Þórarinss. 567
Birgir Ísleifsson – Jóhann Ólafsson 536
Spilaður verður tvímenningur
næstu spiladaga.
Sextíu spilarar hjá eldri
borgurum í Reykjavík
Mánudaginn 22. september var
spilaður tvímenningur á 15 borðum
hjá bridsdeild Félags eldri borgara í
Reykjavík. Efstu pör í N/S
Björn Árnason – Auðunn Guðmss. 401
Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 360
Kristín Guðbjd.–Friðgerður Benediktsd. 353
Jóhannes Guðmannss. – Friðrik Jónss. 345
A/V
Bjarni Guðnason – Guðm. Steinbach 419
Gunnar Jónsson – Magnús Jónsson 398
Björn E. Péturss. – Valdimar Ásmundss.385
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 372
Spilað er í Síðumúla 37.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is