Morgunblaðið - 26.09.2014, Síða 27
voru gjarnan teknar og eru þær
ómetanlegur fjársjóður í dag.
Mér þykir einstaklega vænt
um það hve vel þér leist á Friðvin
frá fyrstu stundu og minntist
reglulega á það. Ég er nokkuð
viss um að sameiginlegur kanaá-
hugi hafi eitthvað spilað inn í en
auk þess áttuð þið sama afmæl-
isdag og hittust einmitt fyrst á af-
mælisdegi ykkar árið 2010. Þú ert
stór ástæða þess að við giftum
okkur síðasta sumar í stað þess
að gifta okkur í ágúst 2015. Þó að
þú hafir ekki komist í brúðkaupið
vegna lasleika fékkstu að sjá mig
í brúðarkjólnum, fyrsta koss okk-
ar brúðhjóna og fyrsta dansinn
þó að það hafi eingöngu verið á
myndum. Þú þarft því ekki að
hafa neinar áhyggjur af mér. Þú
veist að ég er í góðum höndum.
Það ert þú nú einnig – sameinuð
afa á ný.
Ég elska þig. Þín nafna,
Fanney.
Við vinkonurnar komum sam-
an til að sauma, prjóna og spjalla í
Gullsmáranum frá því við kynnt-
umst Fanneyju. Eftir að hún fór á
Hrafnistu hittumst við þar, allt
þar til hún kvaddi nú í september.
Þessar samverustundir okkar
verða ekki eins hér eftir, en minn-
ing hennar verður með okkur
áfram.
Þegar Anna varð ein af okkur
fyrir um það bil áratug kynnt-
umst við Fanneyju móður hennar
og þau kynni urðu okkur öllum
dýrmæt. Fanney var þá orðin
nokkuð fullorðin, en gaf okkur
mikið af lífsgleði sinni og já-
kvæðni. Hún var sannkölluð
skvísa, hafði gaman af því að
klæða sig upp. Hún klæddi sig í
liti og naut þess að setja upp
skart. Heimili hennar var stíl-
hreint og fallegt og alltaf svo fínt.
Það var gaman að heimsækja
hana og hún hafði gaman af gest-
um.
Stemningin var alltaf sérstök
þegar við komum til Fanneyjar.
Við dreyptum ævinlega á léttvíni.
Fanneyju þótti það alveg til-
heyra, skálaði með blik í auga og
hló innilega. Við gerðum ævin-
lega eitthvað til að halda uppi
stemningunni og Fanney tók full-
an þátt í því. Við spiluðum, lékum
tónlist og systkinin Ellý og Vil-
hjálmur voru þá í sérstöku uppá-
haldi. Einu sinni var hundurinn
Lennon heiðursgestur þegar við
hittumst á Hrafnistu og það þótti
frú Fanneyju alveg frábært.
Það snart okkur vinkonurnar
ævinlega þegar við komum sam-
an hversu sérstakt og innilegt
samband þeirra mæðgna var,
Önnu og Fanneyjar. Við vitum
líka núna að það er hægt að vera
skvísa alla leið. Það er hægt að
halda gleði, virðingu og stíl svo
lengi sem maður vill. Fanney var
einlæg og falleg að utan sem inn-
an og gaf okkur svo mikið.
Við kveðjum Fanneyju með
þakklæti, virðingu og söknuði.
Önnu vinkonu okkar og fjölskyld-
unni allri vottum við innilegustu
samúð. Góða ferð, kæra vinkona,
takk fyrir allt og allt.
Ásta B., Björg, Ágústa,
Ingigerður og Margrét.
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
✝ Helgi Pétur El-ínarson fæddist
í Reykjavík 20.
ágúst 1987. Hann
andaðist á heimili
sínu í Basel í Sviss
14. september 2014.
Foreldrar hans
eru Fanney Elín Ás-
geirsdóttir, f. 1967,
d. 2012, og Björn
Gunnar Þorleifs-
son, f. 1967. For-
eldrar Fanneyjar Elínar eru Sig-
ríður Ingibjörg Jónsdóttir, f.
1947, d. 2001, og Ásgeir Hrein-
dal Sigurðsson, f. 1946. For-
eldrar Bjarnar Gunnars eru
Evamarie Elsa Bauer, f. 1938, og
Þorleifur Júlíus Matthíasson, f.
1931. Fanney Elín og Björn
Gunnar slitu samvistir á vormán-
uðum 1988 og hefur Björn Gunn-
ar búið nánast óslitið erlendis
síðan. Skömmu síðar tók Fanney
Elín saman við Þorstein Hall-
dórsson, f. 1960. Þau gengu í
hjónaband 1989 en þau skildu
voginum að mestu leyti, eða þar
til hann stofnaði ungur eigið
heimili. Helgi Pétur lauk grunn-
skólaprófi frá Digranesskóla og
fór þaðan í iðnskóla. Sem ung-
lingur vann hann um skeið á
sumrin í vinnslusal og heildsölu
bakarísins Kornsins í Kópavogi.
Þá starfaði Helgi Pétur heilt
sumar á Hótel Eldborg á Snæ-
fellssnesi. Þar sá hann um sund-
laugina og almenn störf á sjálfu
hótelinu. Hann hóf síðan störf
hjá verktakafyrirtækinu Arn-
arverki þegar skólagöngu hans
lauk. Það fyrirtæki sá um jarð-
vinnu og lagnir í jörð. Þar var
hann fyrst í almennum störfum
en síðan sem stjórnandi vinnu-
véla. Þegar störfum Helga Pét-
urs lauk hjá Arnarverki fór hann
í nám til að öðlast aukin ökurétt-
indi, en fyrr hafði hann tekið
vinnuvélapróf. Fyrir ríflega fjór-
um árum síðan hóf Helgi Pétur
störf á virtu veitingahúsi í Basel
í Sviss og starfaði þar sem mat-
reiðslumaður þegar hann lést.
Camilla Guðbjörg og Helgi Pét-
ur héldu heimili sitt í Basel í öll
þau ár.
Útför Helga Péturs fer fram
frá Dómkirkjunni í dag, 26. sept-
ember 2014, og hefst athöfnin kl.
15.
um árslok 2002.
Foreldrar Þorsteins
eru Halldór Jóns-
son, f. 1937, og
Steinunn Helga Sig-
urðardóttir, f. 1937.
Systkini Helga
Péturs, sem móðir
hans Fanney Elín
eignaðist með Þor-
steini, eru Ágúst
Ólafur, f. 16. sept-
ember 1990, Krist-
jana Ragnheiður, f. 20. mars
1992 og Steinunn Ingibjörg, f. 1.
febrúar 1998.
Sambýliskona Helga Péturs
er Camilla Guðbjörg Thim, f. 15.
janúar 1991. Foreldrar Camillu
Guðbjargar eru Margrét Jóns-
dóttir, f. 1959, og Nicolai Jesper
Thim, f. 1966, og fósturfaðir
hennar er Gunnar Magnús Andr-
ésson, f. 1959. Sonur Helga Pét-
urs og Camillu Guðbjargar er
Arnar Breki, sem er fæddur 8.
janúar 2013.
Helgi Pétur ólst upp í Kópa-
Yndislegur uppeldissonur
minn, Helgi Pétur, er fallinn í val-
inn í blóma lífsins einungis réttum
tveimur árum frá því móðir hans
féll frá.
Orð geta vart lýst þeim hugs-
unum sem fóru í gegnum huga
fjölskyldu hans þegar óttast var
um hann og síðan þegar ljóst var
að hann hefði andast í íbúð sinni í
Basel.
Enn finn ég fyrir faðmlagi hans
og kossum á kinn þegar við
kvöddumst í síðustu heimsókn
hans. Helgi Pétur hafði innilegt
og gott faðmlag sem hæfði lynd-
iseinkunn hans vel. Hann var eitt-
hvert ljúfasta og brosmildasta
barn sem og ungur maður sem ég
veit. Alltaf kátur og í bland við það
þróaðist fljótt kímni og mikil
stríðni. Hann var oft hvatvís í
glettni sinni og fengu systkini
hans iðulega að finna fyrir því
þegar hann danglaði til þeirra eða
annað í þeim dúr. Ávallt var svar
hans hið sama, að hann hefði gert
þetta óvart. Svo rammt kvað að
þessu, að við foreldrar hans vor-
um farin að kalla hann Óvart
stundum í Helga Péturs stað. Allt
var þetta honum auðvitað fyrir-
gefið þar sem allir vissu að það
var ekki til neitt illt í þessum ynd-
islega dreng. Hann mátti ekkert
aumt sjá og var ávallt reiðubúinn
að aðstoða eða létta öðrum lífið og
greiðvikinn var hann með albesta
móti.
Helgi Pétur hafði ótrúlega mik-
ið þol og er þess nú minnst þegar
hann gekk á fjöll og hæðir sem
unglingur og barn var hann
venjulega búinn að fara 4-5 ferðir
upp og niður þegar samferða-
menn komust loks á toppinn, eftir
eina ferð!
Margt rifjast upp við ferðalok,
t.d. þar sem ég hef ávallt sofið svo
laust, þá kom það oftast í minn
hlut að vakna til barnanna. Þegar
hann var kominn með þurra bleiu
tók Helgi Pétur það aldrei í mál að
fara í rimlarúmið og sofna á ný
heldur varð aldrei við annað kom-
ið en að hann lægi í fanginu á mér
og sofnuðum við því jafnan þann-
ig. Þá áttum við einnig yndislegar
stundir í Digranesskóla þar sem
sunnudagaskóli þá óbyggðrar
Hjallakirkju var haldinn.
Helgi Pétur sótti um 7 ára ald-
urinn nám heilan vetur í ballett-
skóla. Að vori hélt hann ásamt
öðrum ballettnemum sýningu í
Borgarleikhúsinu á afrakstri
námsins. Ég er þess fullviss, mið-
að við það sem hann sýndi þarna,
að hann hefði átt sér framtíð í
ballett hefði hann ætlað sér það.
Þannig var það ávallt með hann,
það lék allt í höndunum á honum
og meiri dugnaðarfork var ekki
hægt að hugsa sér. Ósérhlífinn
var hann þar að auki. Menn hafa
oft verið að þakka dr. Gunnari
uppbygginguna í Vatnsenda-
hverfinu í Kópavogi – þar hefði
hann mátt sín lítils hefði Helga
Péturs ekki notið við og annarra
slíkra.
Það er ljóst að fjölskylda og
vinir eiga mikið verk fyrir hönd-
um að jafna sig á og sætta sig við
fráfall slíks yndislegs öndveg-
ispilts sem Helgi Pétur var. En
við verðum að bíta á jaxlinn og
þreyja þorrann með Guðs hjálp.
Við eigum fyrirheit Frelsarans
um að slíkir sem Helgi Pétur
munu vakna af svefni sínum í
gröfunum við lúður Guðs á efsta
degi. Því munum við hin verða að
bíða þess að hitta yndislega
drenginn okkar á ný, í himneskum
heimkynnum eilífðarinnar. Megi
algóður Guð blessa og styrkja
syrgjendur dáðadrengsins míns.
Þorsteinn Halldórsson.
Elsku Helgi minn, elsku bróðir
minn, ég trúi ekki að þú sért far-
inn frá mér. Það er svo stutt síðan
ég var hjá þér út í Sviss og við átt-
um góðar stundir saman. Að það
hafi verið síðasta skiptið sem ég
hitti þig finnst mér alveg ótrúlegt
og hjartað mitt brestur. Það var
svo yndislegt að sjá þig í pabba-
hlutverkinu, Arnar Breki hefði
ekki getað fengið betri pabba en
þig og ég ekki betri bróður, þótt
þú hafir strítt mér alveg enda-
laust. Það var allt óvart hjá þér.
Þú bast mig við stól inni í eldhúsi í
Hlíðarhjallanum og seinna inni í
skápnum og ef þú meiddir mig við
þessi stríðnisverk þín sagðirðu
alltaf: „Þetta var óvart.“ Þegar ég
var að fara að hitta „vin“ minn
þegar mamma var ekki heima í
Kóngsbakkanum, þá hélst þú nú
ekki og hélst mér í örugglega hálf-
tíma þangað til þú varðst þreyttur
og gekkst með mér út til að ganga
úr skugga um að þessi strákur
væri pottþéttur, held nú að þú
hafir gert það aðallega til að
hræða hann í burtu.
Þú varst tilbúinn að gera allt
fyrir mig, sama hvað það var og
sama þótt þú lentir í veseni yfir
því. Þú vildir leyfa mér að fá nýtt
upphaf og styðja mig í gengum
það, þú bauðst mér að búa hjá þér
og sjá um mig í gegnum skóla. Þú
varst mér yndislegur stóri bróðir
og vildi ég óska að þú værir hér
enn hjá okkur. Ég er þakklát fyrir
stundir okkar saman og ómetan-
legar minningar. Ég er alveg viss
um að þið mamma eruð sameinuð
á ný og eruð að drekka kastala-
bjór saman sem mömmu fannst
svo góður. Þín systir,
Kristjana (Randý).
Ég vil minnast Helga Péturs,
bróðursonar míns, í örfáum orð-
um. Mín fyrsta minning um þenn-
an litla ljóshærða snáða er þegar
Þorsteinn bróðir minn bauð mig
fram sem barnfóstru eitt kvöldið
svo að hann gæti boðið Fanneyju
út að borða til að heilla hana upp
úr skónum. Ég var nú ekki mikið
fyrir að passa einhverja krakka-
orma, þá um 14 ára gömul, en mér
leist vel á Helga og okkur samdi
strax vel. Síðan liðu árin og Helgi
eignaðist þrjú systkini (sem ég
þurfti auðvitað að passa af og til
líka). Helgi var orkumikill ein-
staklingur sem gat hlaupið upp og
niður fjallshlíðar án þess að blása
úr nös og vildi helst ekki vera í
settlegum jakkafötum í jólaboð-
um ömmu Steinu sem að hans
mati heftu hreyfigetuna til muna.
Hann var bæði kátur og hrekkj-
óttur.
Lífið varð honum ekki alltaf
auðvelt og í raun oft á köflum
mjög erfitt. Hann þurfti að takast
á við margar áskoranir og erfiðar
breytingar ásamt systkinum sín-
um Ágústi, Randý og Steinunni á
sinni stuttu ævi. Móðurmissirinn
fyrir tveimur árum var systkinun-
um afar þungbær og breytti sýn
þeirra og trausti á tilveruna var-
anlega. Í gegnum þessa erfiðleika
eignuðust Camilla og Helgi litla
gleðigjafann Arnar Breka sem
gat plástrað ákveðinn sársauka og
tómarúm.
Svo hverfur Helgi okkar á
braut þegar lífið virtist ætla að
greiða honum leið. Hann gat ekki
meir, einhverra hluta vegna. Ekk-
ert okkar getur sett sig í hans
spor eða reynt að skilja ástæð-
urnar. Hins vegar ber okkur
skylda til að hjálpa þeim sem eftir
sitja með spurningar og söknuð
sem nístir hjartað og kvelur.
Brotthvarf Helga mun skilja eftir
sig ör og tómarúm sem aldrei
hverfur en minning hans mun lifa
í brosinu hans Arnars og í hjarta
okkar allra.
Karen Elísabet
Halldórsdóttir.
Mikið svakalega finnst mér
óraunverulegt að liggja hér upp í
rúmi og skrifa minningargrein um
þig, Helgi minn. Þessu átti ég ekki
von á. Ég man þegar við vorum að
kynnast og þú áttir heima í Engi-
hjallanum. Þú varst mikið einn og
ég var strax farinn að koma heim
til þín daglega með stelpunum.
Við kynntumst í Digranesskóla
þegar ég var í áttunda bekk og þú
í þeim níunda. Vináttan hélt eftir
að þú fórst í framhaldsskólann á
undan okkur.
Eftir að þú fluttir í Þverbrekk-
una varð hún mitt annað heimili.
Það var ekki oft sem þú borðaðir
heima, þú hélst 11-11 uppi á þess-
um tíma og á rauðum dögum þeg-
ar búðin var lokuð smurði pabbi
nesti svo ég gæti gefið þér að
borða. Ég bar mikla umhyggju
fyrir þér.
Leið þín lá í Iðnskólann í Hafn-
arfirði eftir grunnskólann en þar
fannst þú þig ekki svo ég hjálpaði
þér að fá vinnu. Þú fórst að vinna
hjá fjölskyldunni minni, þar
fannstu þig. Fjölskyldan mín varð
fjölskyldan þín, Helgi minn
Við vorum saman öll áramót og
öll jól. Þegar ég var búinn að opna
pakkana var ég mætt heim til þín.
Ég var rosalega rík að eiga þig
sem vin. Í gegnum okkar vináttu
hef ég alltaf getað talað við þig og
þú hefur alltaf verið til staðar.
Ég man eitt skiptið þegar mér
leið illa þá dróstu mig út á rúntinn
og þessi blessaði rúntur endaði í
marga tíma ökuferð. Það var um
haust, það var svalt úti og sólin
skein. Við keyrðum út á land,
heimsóttum frændfólk þitt í sum-
arbústað og þú sýndir mér staði
sem þér þótti vænt um. Við stopp-
uðum í bústaðnum, fengum kaffi
og ég man að frændfólkið þitt hélt
að ég væri kærastan þín. Við vor-
um að reyna að útskýra að við
værum bara vinir. Við hlógum
mikið að þessu á leiðinni heim. Við
höfum alltaf verið rosalega góðir
vinir nánast eins og systkini.
Flestallir mínir vinir eru vinir sem
ég hef kynnst í gegnum þig, Helgi.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
heimsótt þig til Sviss. Það var
rosalega gaman, við áttum góðar
stundir og bjuggum til fullt að
skemmtilegum minningum. Ég
var þriðja hjólið í 10 daga með
ykkur Camillu. Æðislegur tími og
gaman að kynnast lífinu ykkar úti.
Það eru tvö ár síðan elskulega
mamma þín fór úr okkar lífi og ég
fann hversu erfitt það var fyrir
þig og fjölskyldu þína. Hugur
minn er búinn að vera hjá systk-
inum þínum síðan þú fórst. Ég
vona að þið mamma þín séuð sam-
einuð og séuð hamingjusamir
englar sem munu vaka yfir okkur.
Síðasta skiptið sem ég hitti þig
var þegar þú komst síðast heim til
Íslands. Það var í pitsu heima hjá
Randy. Ég vildi óska þess að við
hefðum getað átt fleiri stundir
með þér, Helgi minn. Þú átt eftir
að lifa alla ævi í mínu hjarta og ég
á eftir að segja mörgum frá minn-
ingum um þig. Þú ferð allt of ung-
ur og þetta er svo allt of sárt.
Ég er svo þakklát fyrir að son-
ur þinn hann Arnar Breki og Ca-
milla séu inni í mínu lífi og ég
hlakka til að fylgjast með Arnari
Breka þroskast og stækka. Hann
er alveg eins og þú.
Þú áttir góða að og það eru
margir sem eiga eftir að varðveita
minningar þínar.
Kveðja, þín vínkona
Ágústa.
Þegar ég hugsa til þess að
Helgi sé farinn þá fyllist hjarta
mitt af söknuði og sorg. Hann var
og verður ávallt minn besti vinur.
Ég kynntist Helga Pétri þegar ég
var þrettán ára og síðan þá hefur
hann alltaf verið til staðar fyrir
mig. Hann tók á móti mér opnum
örmum í hvert skipti sem ég hitti
hann, kyssti mig og knúsaði.
Ég mun aldrei gleyma því þeg-
ar ég og Hrafn komum að heim-
sækja Helga og Camillu til Sviss.
Þau voru búin að skipuleggja alla
ferðina og sáu til þess að við
myndum skemmta okkur konung-
lega. Helgi var algjör spennufíkill
og í byrjun ferðarinnar fór hann
með okkur í svakalegan tívolí-
garð. Þegar við komum í garðinn
fékk Helgi okkur til þess að byrja
á því að fara í stærsta rússíban-
ann í garðinum. Ég man hvað ég
var hrædd, en Helgi sagði mér að
þetta væri bara sjúklega gaman
og nennti ekkert að hlusta á tuðið
í mér um að byrja á því að fara í
eitthvert minna tæki.
Helga þótti alltaf svo gaman að
keyra og tók okkur með sér í
besta ferðalag sem ég hef upplif-
að. Við keyrðum í gegnum margar
borgir í Sviss, skoðuðum þær
helstu og enduðum á því að gista í
tvær nætur í Lyon í Frakklandi.
Þegar við komum til baka til Basel
fór hann svo með okkur á æðis-
lega tónlistarhátíð auk þess sem
við slökuðum á við Rínarfljótið,
elduðum góðan mat, versluðum
og nutum lífsins.
Þegar ég var unglingur var ég
mikið heima hjá Helga. Það lifa
með mér svo margar góðar minn-
ingar frá þeim tíma. Ég var ávallt
velkomin á heimili Helga og
kynntist ég fjölskyldu hans vel á
þessum tíma. Jólin verða ekki
söm án Helga Péturs. Síðan á
unglingsárum hefur verið hefð að
hitta Helga Pétur þegar ég hafði
lokið við það að opna pakkana. Þá
hittumst við vinirnir, spjölluðum
saman og spiluðum eitthvert
skemmtilegt nýtt spil.
Ég man þegar Helgi sagði mér
frá því að hann væri að verða fað-
ir. Hann var svo stoltur og hlakk-
aði svo mikið til nýja hlutverksins.
Helgi sagði mér reglulega fréttir
af Arnari Breka og gaf mér þar af
leiðandi tækifæri til þess að kynn-
ast honum þrátt fyrir að búa í
öðru landi. Hann var svo ánægður
þegar Arnar Breki sagði pabbi í
fyrsta skiptið. Helgi var ekki bara
góður faðir heldur var hann einn-
ig mjög góður vinur og talaði allt-
af svo fallega um systkini sín og
fjölskyldu.
Ég man hvað ég varð alltaf
spennt þegar Helgi lét mig vita að
hann væri á leiðinni til Íslands. Ég
hlakkaði svo mikið til að hitta
hann og búa til skemmtilegar
minningar með honum. Ég hlakk-
aði svo mikið til þess að hann
myndi flytja til Íslands. Ég get
ekki ímyndað mér framtíð mína
án Helga Péturs, hláturs hans,
stríðninnar og vinátturnar. Ég er
mjög þakklát fyrir það að hafa tal-
að mikið við Helga vikuna áður en
hann féll frá. Samt sem áður
myndi ég gefa allt fyrir það að fá
að tala við hann að minnsta kosti
einu sinni enn.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
(Bubbi Morthens.)
Harpa Ýr Ómarsdóttir.
Elsku besti Helgi Pétur. Mér
finnst svo ósanngjarnt að ég sé að
skrifa þessi orð því þau eru svo
alls ekki tímabær en stundum er
lífið bara rosalega ósanngjarnt.
Ég veit heldur ekki alveg hvað ég
á að skrifa en langaði að senda þér
kveðju. Ég vona að þér líði vel
núna og að þú sért að gera eitt-
hvað skemmtilegt með mömmu
þinni og ömmu Siggu, ég veit alla-
vega að þær hafa tekið vel á móti
þér með opinn faðminn.
Svo veit ég að þú horfir niður
og fylgist með Arnari Breka þín-
um, þið voruð svo flottir saman og
gaman að sjá allar fallegu mynd-
irnar af ykkur. Ætli þú eigir ekki
eftir að vera með honum í mörg-
um prakkarastrikunum.
Þegar ég hugsa um þig koma
upp margar góðar minningar.
Takk fyrir allar skemmtilegu
stundirnar í Rósarimanum þegar
við vorum litlir krakkar, eltinga-
leikina, Tomma og Jenna-vídeó-
stundirnar og þegar við tókum
alla seglana af ísskápnum og röð-
uðum aftur. Takk fyrir allar
stundir sem við áttum saman þeg-
ar við vorum unglingar og þú
komst norður til mín. Þegar við
fórum saman í Sjallann á Pallaball
og dönsuðum eins og við hefðum
aldrei gert neitt annað. Takk fyrir
öll samtölin í tölvunni, þó svo að
það væri langt á milli okkar var
alltaf eins og við værum saman
þegar við vorum að spjalla. Ég
ætla að passa vel upp á þessar
minningar.
Viltu knúsa mömmu þína og
ömmu Siggu frá mér og biðja þær
að knúsa þig fast frá mér. Það
verður erfitt að kveðja þig í dag en
við sjáumst aftur seinna og tökum
þá saman nokkur dansspor og
skálum. Þangað til heimsæki ég
þig í garðinn þegar ég kem suður.
Mér þykir vænt um þig,
Þín frænka
Ásrún Þóra.
Helgi Pétur
Elínarson
HINSTA KVEÐJA
Helgi okkar. Okkur
langar að þakka þér fyrir
svo margt.
Takk fyrir að hafa verið
kærastinn hennar Camillu.
Takk fyrir að hafa valið
hana sem barnsmóður þína.
Takk fyrir að hafa gefið
okkur Arnar Breka. Takk
fyrir að hafa ávallt tekið á
móti okkur með opnum
örmum. Takk fyrir að hafa
komið inn í líf okkar. Þú
verður alltaf í huga okkar.
Hvíl í friði.
Nicolai, Bryndis, Ásbjörn,
Viggo, Jette, Bolette,
Lars, Per og Bente.