Morgunblaðið - 26.09.2014, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Smáauglýsingar 569 1100
Sumarhús
NÝTT SUMARHÚS
Smíði á sumarhúsum á Suðurlandi.
Ýmsar stærðir mögulegar, hægt að
koma að hönnun húsa. Er að byrja á
55 fm húsi, einnig tilboð í aðrar teikn-
ingar. Get séð um alla verkþætti sem
snúa að framkvæmdum hússins.
Uppl. halli@hátak, simi 8940048.
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Íslensk myndlist
Til sölu myndir eftir
Engilbert, Blöndal,
Sjöfn Har., Tolla o.f.
Málverk til sölu
Síðumúla 31 – Sími 533 3331
Opið virka daga kl. 10–18.30
Gunnlaugur Schewing
Hringur Jóhannesson
Stefán Jónsson
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
Ódýr blekhylki og tónerar
Verslun í Hagkaup, Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði
Blekhylki.is, sími 815 0150
GLERFILMUR
FRÁBÆRAR BUXUR
Teg. GABE - létt aðhald, fæst í
hvítu og svörtu í stærðum M,L,XL,2X
á kr. 2.995.
Teg. ECO FI - bómullarbuxur með
blúndu í hvítu og svörtu í stærðum
M,L,XL,2X á kr. 1.995.
Teg. SHORTS - bómullarbuxur í
hvítu og svörtu í stærðum S,M,L,XL
á kr. 1.995.
Teg. MAXI - bómullarbuxur í hvítu,
húðlitu og svörtu í stærðum
S,M,L,XL,2X,3X á kr. 1.995.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
lokað verður laugardaginn 23.
ágúst.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Teg. 6023-501 Vandaðir og
þægilegir dömuskór úr mjúku leðri,
fóðraðir. Stærðir: 37-40.
Verð: 17.900.
Teg. 99560 Vandaðir dömuskór úr
leðri, skinnfóðraðir og með góðan
sóla. Stærðir. 36 - 41. Verð: 18.800.
Teg. 7322 Vandaðir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
37 - 42. Verð: 18.500.
Teg. 7278 Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, fóðraðir. Litir:
bordo og svart. Stærðir: 37 - 42.
Verð: 17.850.
Teg. 1001 Vandaðir dömuskór úr
leðri, fóðraðir. Góður sóli. Stærðir:
36 - 41. Verð: 16.500.
Teg. 7279 Vandaðir dömuskór úr
mjúku leðri, fóðraðir. Góður sóli. Góð
breidd. Stærðir: 37 -42.
Verð: 17.700.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.– fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Til sölu Toyota Prius, Plug in
Rrafmagns og hybrid bíll, árg. 2012.
Mjög vel með farið eintak.
Verð tilboð.
Upplýsingar í síma 863-7656.
JM.Benz E220 avantgarde
2014-útlit. Ekinn 13 þús. km.
Leðurklæddur lúxus-dísilbíll með nóg
afl en eyðir samt bara 4,8 í blönd-
uðum akstri.
Nýr bíll með þessum búnaði er á yfir
11 milljónir. Þessi er á 9,5 milljónir.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Til sölu Toyota Lc-90 (VX) árg. ‘97
dísil, sjálfsk., aukasæti, dráttarbeisli.
Ekinn 193 þ. Verð 1 m. Engin skipti.
Uppl. í síma 894-6562.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur,
hreinsa ryð af þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnublað
alla sunnudaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?
✝ Þorgils Stef-ánsson fæddist
á Kalastöðum á
Hvalfjarðarströnd
24. júlí 1927. Hann
lést á Landspít-
alanum Fossvogi
14. september
2014.
Foreldrar hans
voru Ásgerður
Petrína Þorgils-
dóttir, f. 1. júlí
1891, d. 21. nóvember 1984, og
Stefán Thorgrímsen, f. 27. maí
1881, d. 10. maí 1973. Bræður
Þorgils eru Magnús, látinn,
Óskar, látinn, og Stefán G.
Stefánsson.
Þorgils kynntist
sambýliskonu
sinni, Jóhönnu
Oddnýju Guð-
mundsdóttur
Waage, 1954 og
hófu þau sambúð
1956. Hanna, eins
og hún var alltaf
nefnd, lést 6. ágúst
2005.
Börn Hönnu eru
Lilja, gift Mikael
Jónssyni, Birgir, Sigríður og
Guðný, gift Einari Guðberg
Gunnarssyni.
Útför Þorgils fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag, 26.
september 2014, kl. 13.
Elsku besti afi minn er búinn
að kveðja. Hann var svo góður
maður, ljúfur og svo heill í
gegn.
Ég á margar góðar minn-
ingar um afa og við barnabörn-
in erum búin að rifja ýmislegt
upp síðastliðna daga.
Það var gaman að fara með
honum í sveitina í Hvalfirði og í
bíltúra á Peugeot-bílunum
hans. Einnig fannst mér alltaf
rosalega gaman að fá að gista
hjá ömmu og afa á Borgarvegi
og ég tala nú ekki um gæða-
stundirnar okkar í Þjórsárdaln-
um.
Einhvern tímann þegar ég
var níu eða tíu ára fór ég með
afa í Hvalfjörðinn og á leiðinni
tókum við upp tvær erlendar
konur. Sú ferð lifir í minning-
unni því að túristarnir voru
mjög ræðnir og við hálfmállaus
en við áttum skemmtileg sam-
skipti við þessar konur og
minntumst þessarar ferðar
nokkrum sinnum.
Börnin mín minnast afa á
Suðurgötunni og þess að í
hvert skipti sem þau komu
bauð afi upp á ís og ef hann
hefði fengið að ráða hefðu þeir
alltaf verið fleiri en einn því
honum fannst svo gaman og
gott að gleðja börnin. Eftir að
hann fór á hjúkrunarheimili þá
átti hann alltaf súkkulaðimola
eða kex til að bjóða börnunum.
Ég er mjög þakklát fyrir að
hafa getað verið mikið með afa
síðustu dagana hans. Það gaf
mér svo mikið að geta verið hjá
honum, rifjað upp ýmislegt
gamalt og gott, þakkað honum
fyrir allt sem hann hefur gert
fyrir mig og óskað honum vel-
farnaðar á nýjum stað. Ég fann
það að afi hafði gaman af því að
rifja upp góðar stundir og ég sá
glampa koma í augun hans þeg-
ar við rifjuðum upp gamla tíma.
Sólarhring áður en afi lést
sagði hann við mig, þar sem ég
sat hjá honum og hélt í höndina
á honum, að hann væri þakk-
látur fyrir að ég væri hjá hon-
um. Hjartað hoppaði í mér og
ég hugsaði: Nei, afi, ég er
þakklát þér fyrir allt.
Anna Birgitta.
Nú er afi farinn í ferðina
löngu. Við eigum margar góðar
minningar; afi að dunda sér í
skúrnum á Borgarveginum,
hann átti ýmsa fjársjóði þar,
enda var það þannig að þegar
amma og afi fluttu þaðan var
meiri vinna að tína úr skúrnum
en íbúðarhúsinu.
Afi að fara í sveitina sína;
Siggi fór ófáar ferðirnar þang-
að með honum í gegnum árin.
Sögurnar hans; afi gat alltaf
sagt sögur, bæði úr sveitinni,
ferðalögum sínum og úr
vinnunni. Skötuboðin á Þor-
láksmessu, gamlárskvöldin og
öll hin tilefnin eru minningar
sem við geymum í hjörtum okk-
ar. Takk afi fyrir allt.
Sigurður og Hrefna.
Jæja, afi minn, þá hefur þú
fengið hvíldina og ert farinn
heim eins og sagt er. Kominn
til ömmu sem ég veit að þú
varst farinn að bíða eftir að
hitta aftur og búinn að hitta
allt fólkið þitt sem var farið og
hefur án efa verið tekið fagn-
andi á móti þér. Það voru for-
réttindi að fá að eiga þig fyrir
afa og alltaf hafðir þú tíma fyr-
ir mann hvort sem þú varst að
dunda þér í garðinum, vinna í
skúrnum eða lást á dívaninum
og hlustaðir á útvarpið, alltaf
var tími til að svara spurn-
ingum sem ekki þoldu neina
bið því að þolinmæði var
kannski ekki sterkasta hlið
mín þegar ég var gutti.
Að fá að vera með þér að
taka upp úr kartöflugarðinum
á haustin og þegar þú kenndir
mér mannganginn, þetta eru
allt ljúfar minningar sem ég á
heiman frá þér og ömmu á
Borgarveginum. En upp úr
standa líklegast ferðirnar með
þér upp í Hvalfjörð þar sem
við fórum á þínar æskuslóðir
og heimsóttum æskuheimilið
þitt á Kalastöðum. Þar leið
tíminn hratt fyrir tápmikla
stráka við útiveru og góðan
viðurgjörning og allt í einu var
bara kominn sunnudagur og
tími kominn að halda heim.
Eitt sinn fórum við í göngu-
túr um þessar slóðir þar sem
þú lékst þér sjálfur sem lítill
drengur og þú sagðir mér frá
landnámsmanninum Kala,
ýmsum kennileitum á Kala-
staðajörðinni, fjöllunum í kring
og hvar þú festist þegar þú
varst gutti og fórst að reka
kindur af skeri og sást ekki
þegar flæddi að, þá kom sagan
af hestinum sem bjargaði þér
og bar af öllum öðrum hestum.
Einn fyrrverandi vinnufélagi
þinn kallaði þig jaxl og lýsti
því svo fyrir mér að hann hefði
séð þig eitt sinn vinna við að
koma saman belti á jarðýtu
sem er svo sem ekki í frásögur
færandi en þetta var í slyddu
og kaldadrullu og þarna
stóðstu víst bæði berhentur og
berhöfðaður og hættir ekki
fyrr en verkinu var lokið og
það er svo einkennandi fyrir
þig, að gefast aldrei upp og
hætta aldrei við hálfklárað
verk.
Afi minn, þú varst ekki mað-
ur margra orða en maður sá í
svip þínum hversu vænt þér
þótti um okkur og aldrei
kvöddumst við öðruvísi en með
kossi, enda tók Lilja Ósk mín
það upp líka og kyssti langafa
sinn alltaf bless þegar hann
var búinn að traktera litlu vin-
konu sína á smásúkkulaði.
Að fá að vera hjá þér og
halda í höndina á þér þegar þú
skildir við að kvöldi 14. sept-
ember er mér mikils virði og
vitneskjan góð um að nú sértu
kominn á betri stað og að búið
sé að skipta þessum lúna lík-
ama út.
Elsku afi og langafi, takk
fyrir að vera til staðar fyrir
okkur og takk fyrir að vera þú.
Knúsaðu ömmu frá okkur. Guð
blessi þig.
Víðir og Lilja Ósk
Víðisdóttir.
Þorgils Stefánsson