Morgunblaðið - 26.09.2014, Qupperneq 35
„Nei, ég hef aldrei verið gefinn
fyrir svokallaðar tómstundir. Hef þó
gaman af að rækta birkiplöntur og
pota þeim niður á landi fjölskyld-
unnar austur í Tungum. Annars er ég
vinnusamur, hef ætíð haft áhuga á
starfi mínu og dró ekkert úr vinnu
eftir að ég lét af störfum. Ég flutti
bara vinnuna heim.
Þegar ég hætti uppi í háskóla tók
ég heim með mér drög að handbók í
íslenskri miðaldasögu. Af því verki
eru komin út tvö bindi en nú er ég að
vinna að bindi um landnám Íslands.
Það er ólíklegt að mér endist starfs-
þrek og heilsa til að ljúka þessari
handbók. En ég nýt þess hverja
stund að vinna með sagnfræðitexta.“
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 29.7. 1967 Silju
Aðalsteinsdóttur, f. 3.10. 1943, bók-
menntafræðingi og rithöfundi. For-
eldrar Silju voru Aðalsteinn Gunn-
arsson, f. 20.10. 1909, d. 21.6. 1988,
verkamaður, og Valgerður Stefáns-
dóttir, f. 1.2. 1919, d. 26.5. 1994, hús-
freyja.
Dætur Gunnars og Silju eru Sif, f.
25.5. 1965, forstöðumaður Norður-
landahússins í Færeyjum en maður
hennar er Ómar Sigurbergsson inn-
anhússarkitekt; Sigþrúður, f. 8.6.
1971, ritstjóri en maður hennar er
Jón Yngvi Jóhannsson bókmennta-
fræðingur. Dóttir Gunnars og Ragn-
heiðar Þorláksdóttur er Elísabet, f.
21.12. 1982, félagsráðgjafi en maður
hennar er Sighvatur Arnmundsson
stjórnmálafræðingur.
Systkini Gunnars eru Helga Karls-
dóttir, f. 9.7. 1928, d. 15.6. 1997, hús-
freyja á Gýgjarhóli; Jón Karlsson, f.
8.10. 1929, áður bóndi í Gýgjarhóls-
koti; Guðrún Karlsdóttir, f. 10.1.
1931, d. 2.2. 2014, áður húsfreyja í
Miðdalskoti; Ingimar Karlsson, f. 1.6.
1932, d. 8.5. 1987, rafvirki og deild-
arstjóri í Reykjavík; Guðni Karlsson,
f. 2.10. 1933, fyrrv. forstöðumaður og
deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu;
Arnór Karlsson, f. 9.7. 1935, d. 25.2.
2009, bóndi í Arnarholti í Bisk-
upstungum; Margrét Karlsdóttir, f.
10.11. 1936, d. 22.8. 2006, húsfreyja á
Skipholti í Hrunamannahreppi; Ólöf
Karlsdóttir, f. 17.6. 1943, skrif-
stofumaður á Selfossi.
Foreldrar Gunnars voru Karl
Jónsson, f. 1.7. 1904, d. 4.6. 1979,
bóndi í Efstadal og í Gýgjarhólskoti,
og k.h., Sigþrúður Guðnadóttir, f.
8.10. 1896, d. 29.4. 1967, húsfreyja.
Úr frændgarði Gunnars Karlssonar
Gunnar
Karlsson
Guðlaug Snorradóttir
húsfr. í Vatnsholti, bróðurdóttir Helgu Hall-
dórsdóttur, ömmu Einars Jónssonar mynd-
höggvara og langömmu Harðar Bjarnasonar
húsameistara ríkisins
Gísli Helgason
hreppstj. í Forsæti og
Vatnsholti í Flóa, af
Kópvatnsætt
Helga Gísladóttir
húsfr. á Gýgjarhóli
Guðni Diðriksson
b. á Gýgjarhóli
Sigþrúður Guðnadóttir
húsfr. í Efstadal og í
Gýgjarhólskoti
Úlfhildur Eiríksdóttir
húsfr.
Diðrik Diðriksson
b. í Kálfhaga, af ætt
Presta-Högna og
Kópsvatnsætt
Ásgrímur Jónsson
listmálari
Guðlaug Gísladóttir, húsfr. á
Rútsstaða-Suðurkoti í Flóa
Halldór E. Laxness
leikstjóri
Einar Laxness
sagnfræðingur
Einar Arnórsson
ráðherra,
hæstaréttar-
dómari og
prófessor
Guðrún Þorgilsdóttir
húsfr. á Minna-Mosfelli
Arnór Jónsson
b. á Minna-Mosfelli
Guðný Arnórsdóttir
húsfr. á Ketilvöllum og í
Efstadal
Jón Grímsson
b. á Ketilvöllum og í Efstadal
Karl Jónsson
b. í Efstadal og í
Gýgjarhólskoti
Hildur Gunnarsdóttir
húsfr. á Laugardalshólum
Grímur Jónssson
b. á Laugardalshóllum, af
ætt Fjalla-Eyvindar
Logi Einarsson
hæstaréttardómari
Inga Einarsdóttir
húsfr. og leikkona
í Rvík.
Í afahlutverkinu Með Arnmundi.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Ólafur Jóhann fæddist í Hlíð íGarðahreppi 26.9. 1918 enflutti fimm ára með for-
eldrum sínum að Litla-Hálsi í Grafn-
ingi og fjórum árum síðar að Torfa-
stöðum í sömu sveit. Foreldrar hans
voru Sigurður Jónsson, búfræð-
ingur, kennari og hreppstjóri, og
k.h., Ingibjörg Þóra Jónsdóttir hús-
freyja.
Eiginkona Ólafs Jóhanns var
Anna Jónsdóttir og eignuðust þau
tvo syni, Jón Ólafsson haffræðing og
Ólaf Jóhann Ólafsson, rithöfund og
forstjóra.
Ólafur Jóhann Sigurðsson sótti
fyrirlestra um nútímabókmenntir og
skáldsagnaritun hjá Dorothy
Brewster og Manuel Komroff í Col-
umbia University í New York vet-
urinn 1943-44. Hann stundaði verka-
mannavinnu og almenn sveitastörf
1934-40, var búsettur í Reykjavík frá
1939, var þar blaðmaður og síðan
starfsmaður Helgafellsútgáfunnar
1940-44, og vann um árabil við hand-
rita- og prófarkalestur til 1975.
Ólafur var í hópi virtustu rithöf-
unda hér á landi. Eftir hann liggja
fimm smásögur, sex skáldsögur,
tvær smáskáldsögur, fjórar barna-
bækur og fjögur ljóðasöfn. Hann
vakti strax athygli á sér 16 ára með
annarri bók sinni, Við Álftavatn,
1934, en skáldsagan Fjallið og
draumurinn, sem kom út 1944, er af
mörgum talin hans höfuðverk.
Meðal þekktari verka hans eru
Liggur vegurinn þangað?, 1940; Lit-
brigði jarðarinnar, 1947, sem er ein
þekktasta skáldsaga hans, Vorköld
jörð, 1951, Nokkrar vísur um veðrið
og fleira, 1952, Gangvirkið, 1955;
Hreiðrið, 1972, Seint á ferð, 1972; Að
laufferjum, 1972: Að brunnum, 1974;
Seiður og hélog, 1977, Virki og vötn,
1978, og Drekar og smáfuglar, 1983.
Ritsafn Ólafs Jóhanns hefur komið
út hjá Máli og menningu. Auk þess
þýddi hann Mýs og menn eftir Stein-
beck og samnefnt leikrit.
Ólafur Jóhann hlaut Silfurhestinn,
1972, og bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs 1976 fyrir ljóðabæk-
urnar Að laufferjum og Að brunn-
um.
Ólafur Jóhann lést 30.7. 1988.
Merkir Íslendingar
Ólafur Jóhann Sigurðsson
90 ára
Gísli Jóhannesson
Gunnar Bergur Árnason
85 ára
Brynja Borgþórsdóttir
Kristín S. Magnúsdóttir
Rósa Guðmundsdóttir
80 ára
Halldór Jóhannsson
Hilmir Þorvarðarson
Kristín Guðmundsdóttir
Kristján Árnason
Loftur Jórmann Hafliðason
Magdalena M. Sigurð-
ardóttir
Sigurður Hreinn Egilsson
75 ára
Gísli Einarsson
Halla G. Gísladóttir
Hanne Alm
Inga Vibekka Bang
70 ára
Ágúst Hjálmarsson
Bragi Finnbogason
Erna Ágústsdóttir
Hulda Snorradóttir
Ingi Þór Jóhannsson
Jóna Guðjónsdóttir
Lúther Ástvaldsson
Sigrún Gísladóttir
Sigurdóra Kristinsdóttir
Snorri Hansson
60 ára
Adam Zbigniew Jaskólski
Einar Þór Gíslason
Fríða Friðgeirsdóttir
Laura Raagas Landayan
Magnús Ingimundarson
Qingxian Xia
Ragnheiður G. Þorgeirs-
dóttir
50 ára
Eiríkur Sigbjörnsson
Erla Sigurðardóttir
Eyjólfur Jóhannsson
Hildur Valsdóttir
John Michael Doak
Kara Arngrímsdóttir
Magnús Þór Haraldsson
Zikret Þór Mehic
Þórhalla Guðrún Gísladóttir
40 ára
Atli Þór Þorgeirsson
Bylgja Shwaiki Haralds-
dóttir
Daniel Piotr Senenko
Ester B. Bjargmundsdóttir
Esther Jökulsdóttir
Gestur Þór Óskarsson
Ingibjörg S. Árnadóttir
Jóna Sigríður Scheving
Kári Róman Svavarsson
Kristján Ingi Sigurðsson
Line Lindum Christensen
María Hlín Birgisdóttir
Mercy Aniamai
Óskar Kristjánsson
Svanlaug J. Auðunsdóttir
Svanur Kjartansson
Þórður Guðlaugsson
30 ára
Adil Rouabhia
Arkadiusz Obrycki
Eliza Dantes Kristjansson
Emily Ann Baldwin Bryan
Fáfnir Þorsteinsson
Hjördís E. Vilhjálmsdóttir
Krzysztof G. Nawrocki
Martina Ceolin
Robert James Noble
Skarphéðinn Grétarsson
Sóley Gunnvör Jónsdóttir
Sverrir Haraldsson
Viktoría Sigurðardóttir
Wioleta Marta Gorecka
Til hamingju með daginn
30 ára Svanhildur ólst
upp í Þorlákshöfn, hefur
búið þar alla tíð og starfar
hjá Almari bakara í Þor-
lákshöfn.
Dætur: Elísabet Bjarney,
f. 2005, og Aníta Rakel, f.
2009.
Foreldrar: Guðmundur
Garðarsson, f. 1949,
starfar við bifvélaverk-
stæði Strætó í Reykjavík,
og Ingibjörg Jónsdóttir, f.
1965, húsfreyja í Þorláks-
höfn.
Svanhildur Ósk
Guðmundsdóttir
30 ára Guðrún er búsett í
Hveragerði og er þar
garðyrkjumaður.
Maki: Gunnar Ingi Wid-
nes Friðriksson, f. 1981,
hugbúnaðarverkfræð-
ingur.
Dóttir: Stefanía Dís, f.
2004.
Foreldrar: Fanney Magn-
úsdóttir, f. 1966, síma-
vörður hjá Jötunvélum
ehf. á Selfossi, og Hólmar
Guðmundsson, f. 1966,
skrúðgarðyrkjumeistari.
Guðrún Rósa
Hólmarsdóttir
30 ára Hjörleifur ólst upp
í Hafnarfirði, er að flytja til
Kaupmannahafnar, lauk
MA-prófi í markaðsfræði
og alþjóðaviðskiptum við
HÍ og er verkefnastjóri hjá
Þróunarfélagi Keflavík-
urflugvallar.
Maki: Hildur Björg Harð-
ardóttir, f. 1989, nemi í
læknisfræði.
Foreldrar: Þórður H.
Hilmarsson, f. 1951, og
Hjördís Kristinsdóttir, f.
1950.
Hjörleifur
Þórðarson
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
ÚTSÖLULOK UM HELGINA
ALLT AÐ
50%
AFSLÁTTUR
SÍÐASTI
SÉNS!
VAXTALAUS STAÐGREIÐSLULÁN BORGUNAR Í ALLT AÐ 6 MÁNUÐI
EF VERSLAÐ FYRIR 50.000 EÐA MEIRA