Morgunblaðið - 26.09.2014, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það eru ýmsir möguleikar opnir í
stöðunni og þú þarft að gefa þér tíma til að
gaumgæfa málin vandlega. En það merki-
lega er að þú vilt líka gjarna kenna öðrum.
20. apríl - 20. maí
Naut Einföldun á þínu nánasta umhverfi
hefur í för með sér ýmsa möguleika – eins
og frið, skipulag og fegurð dag eftir dag. En
þér tekst að gera hana skemmtilega.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú þarft þú að taka þér tak og
byggja þig vandlega upp því að krefjandi
tímar eru framundan. Opin spurning sem
byrjar á vandamáli gæti hjálpað boltanum
að rúlla af stað aftur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú færð snilldarlega hugmynd á
meðan þú ert úti að ganga. Skrifaðu hana
niður og meltu hana næstu vikurnar áður
en þú vinnur úr henni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú átt ótrúlega auðvelt með samskipti
við alls konar fólk. Kröfurnar eru ósagðar en
eru engu að síður jafnraunverulegar og hvað
annað.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Látið ekki hugfallast þótt góðir vinir
láti einhver orð falla um ykkur sem þið eigið
bágt með að kyngja. Leyfðu þeim líka að
umvefja þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ágætt að eiga sér draum en
hann getur aldrei leyst veruleikann af hólmi.
Ef þið komust í gegnum síðasta ár þá kom-
ist þið í gegnum allt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þetta gæti orðið svolítið erfiður
dagur í vinnunni en það er þó ekkert sem
þú ræður ekki við. Ef þú kemst hins vegar
ekki hjá því skaltu vera vel á verði.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vinir þínir skipta þig miklu máli
svo þú skalt njóta návista þeirra svo oft
sem þú hefur tækifæri til. Reyndu að hafa
hemil á þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sum verkefni kalla á skrýtnar
lausnir svo þú skalt ekki útiloka neitt í þeim
efnum. Nú þegar þú þarfnast hennar réttir
enginn fram hönd.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nýttu kraftana í að gera þitt
nánasta umhverfi meira aðlaðandi núna.
Hugsaðu upp 10 leiðir til þess og notaðu
þær.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekki á hreinu hvort þú velur
út frá því hver þú ert eða öfugt. Reyndu að
komast að niðurstöðu sem allir geta sætt
sig við.
Þetta skemmtilega kvæði kallarDavíð Hjálmar Haraldsson
„Blámóðu frá Holuhrauni“:
Ég fór út að skokka í sólskini
og suðlægri átt,
þó sýndist mér rokkið af móðu
og allt var svo blátt.
Heiðin var öldungis horfin
í mistur og ryk
og hrævarljós skinu
með áleitnum brennisteinsfnyk.
Ég andaði djúpt,
fékk þá innvortis leiðinda tak,
í augu kom sviði,
úr vinstri nös hortaumur lak,
tungan varð aum
og í eyrum meir drundi og söng
og útvortis var ég sem klipinn
með glóandi töng.
Ég heimleiðis sneri því hrelldur
og kom mér í skjól,
helaum og sár voru utanáliggjandi tól.
Ég kíkti í spegil –
á karli var andlitið blátt –
og kjamsaði á harðfiski og smjöri –
og náði mér brátt.
Ég fann samt að ennþá var eitthvað
það niðri í mér
sem ólgaði líkt og ég væri
að strokka þar smér.
Á meinfýsna flugu ég blés
er hún hlakkandi hló,
hún hlunkaðist samstundis
niður á gólfið – og dó.
En einnig ég þurfti –
sem auðvitað varla er synd
og aðstæður kröfðust þess núna –
ég leysti því vind
og fann að mér létti til muna,
það segi ég satt.
Í sömu mund köttur að baki mér
örendur datt.
Ég skildi þá loksins að óloftið
innan í mér
er eitrað og stórhættulegt
þeim sem kemur við hér.
Dyrbjöllu hringir nú hálfvitinn
nágranni minn.
Ég heilsa með virktum
og fagnandi býð honum inn.
Eysteinn Pétursson hefur vakið
athygli mína á því að vísa Sigur-
línar Hermannsdóttur, sem hér
birtist í gær, er sléttubönd. Og það
sem meira er fágætlega vel kveðin
sléttubönd, sem verða öndverðrar
merkingar eftir því á hvorum end-
anum er byrjað.
Sólin brosir. Aldrei er
úrugt veður sveita.
Skjólin friðsæl. Hvergi hér
hvessir milli leita.
Eða:
Leita milli hvessir hér
hvergi friðsæl skjólin.
Sveita veður úrigt er
aldrei brosir sólin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Blámóða frá Holuhrauni
og sléttubönd
Í klípu
BUBBA FANNST ÁNÆGJULEGT AÐ GERA
MIKIÐ MÁL ÚR ÞVÍ AÐ HANN ÞYRFTI NÝ
GLERAUGU.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG SAGÐI: „ÉG VIL GIFTAST DÓTTUR
ÞINNI ÞEGAR ÉG EIGNAST PENINGA“
OG HANN RÉTTI MÉR 2000 KR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...að þrífa fingraförin
þeirra af ísskápnum.
ÉG HELD ÉG EIGI
ENGAN
OF ERFITT AÐ
VELJA, HA?
KINKAÐU
BARA KOLLI
OG BAKKAÐU
HÆGT Í
BURTU
ÉG VAR AÐ KVARTA UNDAN ÞVÍ VIÐ HRÓLF AÐ ÉG
ÆTTI ENGANN ALMENNILEGAN KJÓL TIL ÞESS AÐ
FARA Í Í VEISLUR...
HANN SPURÐI MIG: „HVAÐ ER AÐ ÞESSUM HVÍTA
SEM ÞÚ VARST Í Í BRÚÐKAUPINU OKKAR?“
ÉG ER MEÐ SLÆMAR
FRÉTTIR, ERTU
SITJANDI?
HVER ER UPPÁHALDS
POLKINN ÞINN?
UHH...
Víkverji veltir því stundum fyrirsér hvort eggið sé farið að kenna
hænunni. Ég skal hundur heita, er
þekkt áminning, en er það svo slæmt
að vera borinn saman við hund og
lifa hundalífi?
x x x
Heimilishundur Víkverja var ekkigamall þegar hann byrjaði að
tæta salernisrúllur í smæstu parta.
Þetta var á þeim tíma þegar Reykja-
víkurborg tók upp bláu tunnurnar
og hótaði að tæma ekki gráu tunn-
urnar ef pappír fyndist í ruslinu.
Halda mátti að hundurinn væri að
stríða borgarfulltrúum með þessu og
því var honum gjarnan fyrirgefið um
leið og pappírnum var sópað upp og
honum hent í ruslið sem síðan fór í
gráu tunnurnar.
x x x
Í Velvakanda var vakin athygli á þvífyrir skömmu að þegar íslenskir
fjölmiðlar litu inn til fallega, fína og
fræga fólksins sæist hvergi bók á
heimilunum. Ekki menningunni fyr-
ir að fara hjá þessu fólki. Aðra sögu
er að segja af heimilishundi Vík-
verja, sem hefur alla tíð verið umvaf-
inn bókum og lætur sitt ekki eftir
liggja, komist hann í feitt. Í stuttu
máli „les“ hann bækurnar upp til
agna í orðsins fyllstu merkingu.
x x x
Heimilishundur Víkverja þoldiekki fráfarandi ríkisstjórn og
fann á sér hvar þingmenn og ráð-
herrar þáverandi ríkisstjórnar
bjuggu í nágrenninu. Hann sýndi
hug sinn til dæmis með því að skíta
fyrir utan heimili ákveðins ráðherra,
alltaf á sama stað, en við stjórn-
arskiptin hætti hann því.
x x x
Heimilishundur Víkverja rífur í sigskó sem hann nær í og kann
ekki að meta og upp á síðkastið hef-
ur hann tekið upp á því að gelta árla
morguns. Víkverji þarf sinn átta
tíma svefn og er allt annað en sáttur
við að vakna of snemma, en fær þó
að sofa út fyrir hundinum á sunnu-
dögum. Það eru blaðberarnir sem
pirra hundinn aðra morgna og þá
verður ekki við neitt ráðið. Þetta er
hundalíf. víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég er ljós í heiminn komið svo að eng-
inn, sem á mig trúir, sé áfram í
myrkri. (Jóhannesarguðspjall 12:46)
Meira úrval
Meiri gæði
Íslensk
framleiðsla
eftir máli
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
Sími 588 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
MYRKVAGLUGGATJÖLD