Morgunblaðið - 26.09.2014, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Þungarokkshátíðin Rokkjötnar 2.1
verður haldin í Vodafonehöllinni á
morgun, hátíð sem fyrst var haldin
fyrir tveimur árum en þurfti að af-
lýsa í fyrra, rokkurum til sárra von-
brigða. Hátíðin snýr aftur með lát-
um, átta þungarokkssveitir munu
troða upp og þær ekki af verri end-
anum: Melrakkar, In memoriam,
Strigaskór nr. 42, Beneath, Brain
Police, Sólstafir, Dimma og Skálm-
öld. Hljómsveitirnar koma fram í
þessari röð, Melrakkar hefja leik kl.
16 og Skálmöld lokar dagskránni,
leikur frá kl. 23 til miðnættis.
Íslenska þungarokkssenan hefur
verið afar lífleg síðasta árið eða þar
um bil, fimm hljómsveitanna sem
koma fram á Rokkjötnum hafa ým-
ist gefið út plötur á þeim tíma eða
senda frá sér plötur á næstu mán-
uðum. Strigaskór nr. 42 gáfu út
Armadillo fyrir ári, Beneath sendu
frá sér The Barren Throne í apríl
sl., Dimma færði rokkurum Vélráð í
október í fyrra og Sólstafir sendu
frá sér Óttu nú í sumar. Þá er þriðja
hljóðversskífa Skálmaldar, Með
vættum, væntanleg í lok október og
Brain Police ætlar að gefa út skífu í
byrjun næsta árs . Það verða því
væntanlega flutt mörg ný og níð-
þung lög á Rokkjötnum 2.1.
Múrinn brotinn
„Rokkjötnar leggja áherslu á að
gera íslensku þungarokki hátt undir
höfði og hafa að leiðarljósi að sem
allra flestir geti notið. Þannig er
miðaverði stillt í hóf og fólk sem
ekki hefur náð 18 ára aldri er vel-
komið með forráðamönnum. Þessu
er svo pakkað inn í glæsilega um-
gjörð, risasvið og kraftmesta tækja-
kost sem völ er á. Rokkjötnar vilja
sjá íslenskt þungarokk vaxa og
dafna enn frekar og eiga þá ósk
heitasta að sem flestir taki þátt í
þeirri uppbyggingu,“ segir í tilkynn-
ingu um Rokkjötna.
Snæbjörn Ragnarsson, kallaður
Bibbi, bassaleikari Skálmaldar og
einn skipuleggjenda Rokkjötna,
segir það mikilvægan hluta af hátíð-
inni að setja íslenskt þungarokk í þá
umgjörð sem það eigi skilið. Ís-
lenskt þungarokk sé á heims-
mælikvarða. „Þetta á að vera risa-
stórt, í stóru húsi, á besta sviðinu
með besta kerfið og ljósin og alla
helstu tæknimennina sem allt
kunna,“ segir Bibbi.
– Er svona mikil gróska í íslensku
þungarokki?
„Það er nefnilega málið og stað-
reynd sem fólk áttar sig kannski
ekki endilega á. Þetta er skörinni
ofar en það var, það eru allir farnir
að gefa út alvöruplötur. Menn voru
að gefa út styttri plötur og demó en
núna er senan loksins orðin þannig
að þetta er orðið alvöru. Allar þess-
ar plötur sem eru komnar út núna
gætu keppt við hvaða plötur sem er
úti í heimi,“ segir Bibbi.
Hættulausir og fara í sturtu
– Hverju er það að þakka?
„Kannski svolítið þessum hugs-
unarhætti sem við erum að reyna að
halda á lofti, að fá viðurkenningu á
því að þetta sé músík sem allir geta
hlustað á. Ég held að þetta sé að-
eins að breytast og þá hugsanlega
með nýrri kynslóð. Við ólumst upp
við að hlusta á þungarokk og finnst
það bara eðlilegt. Okkur sem erum
orðin fullorðin, innan gæsalappa,
finnst þetta ekki skrítið lengur
þannig að þetta er ekki eins mikið
bílskúrs-baktjaldamakk og það
var,“ segir Bibbi. Skálmöld hafi
t.a.m. lagt sig fram um að kynna
þungarokkið og sýna fram á að það
sé fyrir alla. „Að þetta sé ekki
hættulegt fólk sem fer ekki í
sturtu,“ útskýrir Bibbi og á þar við
þungarokkara.
Og Skálmöld hefur tekist vel að
breiða út fagnaðarerindið, á tón-
leikum hennar í Eldborg með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og kórum í
fyrra mátti sjá gesti allt frá leik-
skólaaldri upp í eftirlaunaþega.
„Okkur hefur tekist að brjóta þenn-
an múr og fleiri hafa náð þar í gegn,
Sólstafir og Dimma eru komnar á
þennan stað.“
Bibbi segir það skemmtilegt við
tónleika á borð við Rokkjötna að
þeir séu um leið dálítil keppni. „Það
vilja að sjálfsögðu allir vera besta
bandið þannig að það koma allir
stífæfðir og einhverjir verða örugg-
lega með fulla vasa af sprengjum,“
segir hann og hlær.
Vodafonehöllin verður opnuð kl.
15 á́ morgun og miðasala á Rokk-
jötna 2.1 fer fram á midi.is.
Með fulla vasa af sprengjum
Þungarokkshátíðin Rokkjötnar verður haldin öðru sinni á morgun Íslenskt
þungarokk sett í þá umgjörð sem það á skilið, segir Skálmeldingurinn Bibbi
Melrakkar Félagarnir í hljómsveitinni Melrökkum verða fyrstir á svið á Rokkjötnum 2.1 á morgun. Frá vinstri:
Björn Stefánsson, Bibbi, Aðalbjörn Tryggvason, Flosi Þorgeirsson og Bjarni M. Sigurðarson.
Fyrstu tónleikar haustsins í tón-
leikaröðinni Á ljúfum nótum í
Laugarneskirkju verða í dag, föstu-
dag klukkan 12 og taka þeir um
hálfa klukkustund í flutningi. Flutt
verða sönglög og píanóverk eftir
Edvard Grieg.
Flytjendur eru Þórunn Elín Pét-
ursdóttir sópran og Magnús Ragn-
arsson píanóleikari.
Listrænn stjórnandi tónleikarað-
arinnar er sem fyrr Lilja Eggerts-
dóttir.
Sönglög og píanó-
verk eftir Grieg
Dúó Þórunn Elín Pétursdóttir sópran og
Magnús Ragnarsson píanóleikari.
Stafrænn Hákon
heldur í kvöld kl.
21 útgáfu-
tónleika vegna
Kælir varðhund,
áttundu útgáfu
Stafræns Hákons
sem flokkast
mætti sem afurð
í fullri lengd,
eins og segir í til-
kynningu. Afurðin inniheldur átta
spræk og rokkskotin lög. Í kvöld
mun Loji einnig spila með hljóm-
sveit sinni og Markús Bjarnason
kemur fram með nýrri hljómsveit
sinni, Strong Connection, og munu
þeir auk þess slást í hópinn á sviði
með Stafrænum Hákoni.
Útgáfunni Kælir
varðhund fagnað
Ólafur Josephsson
„Framandi fuglar á haustnæt-
urhimni“ er yfirskrift hádegistón-
leika Íslenska flautukórsins og
Listasafns Íslands sem fram fara í
dag í safninu kl. 12.10. Flytjendur
eru flautuleikararnir Áshildur Har-
aldsdóttir, Margrét Stefánsdóttir
og Þuríður Jónsdóttir.
Framandi fuglar
Flaututríó Áshildur, Margrét og Þuríður.
Hildigunnur
Rúnarsdóttir
tónskáld fjallar
um tónsmíðar
sínar og feril í
Sölvhóli í dag
milli kl. 13.30 og
15.30. Fyrirlest-
urinn er öllum
opinn.
Hildigunnur
lauk prófi frá
tónfræðadeild Tónlistarskólans í
Reykjavík 1989 með tónsmíðar sem
aðalgrein og nam síðan tónsmíðar
hjá Günter Friedrichs í Hamborg
og Svend Hvidtfelt Nielsen í Kaup-
mannahöfn.
Verk hennar hafa verið flutt í
Evrópu, Ameríku, Eyjaálfu og víð-
ar. Hún situr nú í stjórn Íslenskrar
tónverkamiðstöðvar og Tónskálda-
félags Íslands og kennir við
Listaháskóla Íslands, Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar og Suzuki-
tónlistarskólann í Reykjavík.
Fjallar um
tónverk sín
Hildigunnur
Rúnarsdóttir
fi p y j g p
C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa
mauki Bruchetta eykmeð tvír
ðlahangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu hetBruc
ta með hráskinku, balsam
nmgrill uðu Miðjarðar- hafsgræ
K r a b b a - salat f
ðboskum kryddjurtum í brau
B r u c h e t t a Mimeð
jarðarhafs-tapende aR i s
rækja á spjóti með peppadew Silunga hrogn ónmeð japönsku maj
sinnepsrjóma-osti á bruchettuBirkireykt-ur lax alioá bruchettu með
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
MöndluMix og KasjúKurl
er ekki bara hollt snakk.
Líka gott á salatið.
Hollt oggott frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni,
Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum,
Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna
Akureyri.