Morgunblaðið - 26.09.2014, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Það er ekki oft sem glæpa-myndir koma þægilega áóvart, en það á við ummyndina Spígsporað.
Reyndar væri nær að segja að hún
kæmi óþægilega á óvart. Leikstjór-
inn tekur sér góðan tíma í uppbygg-
ingu, en undir niðri kraumar spenna.
Varmennið í myndinni er sér á parti,
fullt af hömlulausu ofbeldi, sem brýst
fram eins og sprengigos, snöggt og
ofsafengið.
Myndin gerist í Austin í Texas og
er mikill smábæjarbragur á henni.
Webb situr í fangelsi. Þar stundar
hann þá iðju að hringja í aldrað fólk,
segjast vera löngu horfið barnabarn í
vandræðum og véla út úr því peninga.
Þegar hann er látinn laus úr fangelsi
byrjar hann á að fara til kærustu
sinnar, sem greinilega er full tor-
tryggni enda lyktaði síðustu við-
skiptum þeirra á því að hann nef-
braut hana. Webb segir að það hafi
verið slys, en því trúir enginn nema
hann. Webb skuldar (smá)glæpafor-
ingjanum í bænum peninga og nú
þarf hann að borga eða hypja sig.
James hefur flosnað upp úr há-
skóla og er kominn til Austin til að
búa hjá ömmu sinni. Hann er ekki
fyrr kominn en hún fellur frá og
James erfir allar hennar eignir.
James sér undarlegar millifærslur af
reikningum hennar og hrekkur við
þegar skilaboð eru skilin eftir á sím-
svara ömmu heitinnar þar sem rödd
kynnir sig sem hann og segist vanta
meiri peninga.
Alex R. Johnson stígur í þessari
fyrstu leiknu kvikmynd sinni vart
feilspor. Hann kynnir persónur til
sögunnar af alúð. Samband James við
fyrrverandi ballettdansara, sem nú er
danskennari, er vel útfært. Beth Bro-
derick á frábæran leik í hlutverki
hins lífsreynda dansara, sem verst
ágangi kvæntra manna og fyllist
móðurtilfinningum í garð hins unga
manns.
Reyndar standa allir leikarar í
myndinni sig með prýði. James
Landry Hébert stelur hins vegar sen-
unni í hlutverki glæpamannsins
Webbs. Hébert er ekkert vöðvabúnt,
frekar hálfgert stöngulmenni, en af
honum stafar afgerandi ógn frá upp-
hafi. Hann er svo óútreiknanlegur að
glæpaforinginn getur ekki einu sinni
notað hann og vill losna við hann úr
bænum. Þar spilar reyndar einnig inn
í að hann er búinn að ná frá Webb
kærustunni.
Einu senurnar þar sem Webb er
undirgefinn er þegar hann reynir að
halda sig í náðinni hjá glæpaforingj-
anum. Valdajafnvægið á hins vegar
eftir að breytast þegar Webb kemst
að því hvernig í pottinn er búið.
Áhorfandinn veit að leiðir Webbs
og James eiga eftir að skarast og
þegar það gerist tekur myndin á rás.
Ofbeldið er alltaf handan við hornið
og maður vill helst snúa sér undan
þegar Hébert birtist. Oft fer leik-
stjórinn þó þá leið að sýna ekki það
sem fram fer og hefur það ekkert
minni áhrif en það sem sést.
Spígsporað (myndin heitir Two-
Step á ensku, sem er heiti á sveita-
dansi, Texas Two-Step, sem dans-
kennarinn hefur á námskrá sinni og
kennir James) er glæsileg frumraun
og kom fyrsta mynd Coen-bræðra,
Blood Simple, upp í hugann. Unn-
endur rökkurmynda ættu ekki að láta
Spígsporað fram hjá sér fara og það
kæmi ekki á óvart þótt þessi mynd
myndi eignast dyggan aðdáendahóp.
Viðskotaillt varmenni James Landry Hébert er sérlega ógnvekjandi í
hlutverki Webbs í Two-Step og er engu síðri í túlkun fúlmenna en leikarar
á borð við Robert Mitchum og Robert De Niro.
Varmenni af verstu gerð
RIFF-Bíó Paradís
Spígsporað/Two-Step bbbbn
Leikstjóri: Alex R. Johnson. Leikarar:
Skyy Moore, James Landry Hébert,
Beth Broderick, Jason Douglas, Ashley
Spillers og Brady Coleman. Bandaríkin,
2014. 93 mín. Flokkur: Vitranir.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
27.9.2014 - 17:30 Bíó Paradís 2
Spurt og svarað
28.9.2014 - 20:00 Bíó Paradís 3
Spurt og svarað
30.9.2014 - 22:00 Bíó Paradís 3
1.10.2014 - 13:30 Bíó Paradís 2
RIFF 2014
Mótettukór Hallgrímskirkju fagnar verð-
launum sem kórinn hlaut í kórakeppni á
Spáni í liðinni viku með tónleikum í kirkj-
unni á sunnudag. Hefjast þeir klukkan 17
og er aðgangur ókeypis.
Mótettukórinn vann til þrennra gull-
verðlauna og Grand prix-verðlauna í al-
þjóðlegu kórakeppninni Cancó Mediterr-
ania, sem haldin er á hverju ári í Lloret de
Mar hjá Barcelona. Tuttugu og tveir kórar
með um átta hundruð kórsöngvurum voru
skráðir til keppni, en keppt var í þremur
aldursflokkum og fimm efnisflokkum.
Mótettukórinn keppti í flokkunum
„trúarleg tónlist“ og „þjóðleg tónlist“, auk
þess sem kórinn keppti um besta flutning-
inn á tónverki eftir Pablo Casals. Í ljós kom
að kórinn varð hlutskarpastur í öllum þess-
um keppnisflokkum. Á öllum tónleikunum
í ferðinni hlaut hann afar góðar viðtökur.Verðlaunakór Mótettukórinn stillti sér upp með verðlaunagripina á Spáni.
Fagna gullverðlaunum
Furðulegt háttalag –★★★★★- HA, DV
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 27/9 kl. 13:00 7.k. Lau 18/10 kl. 13:00 15.k. Lau 8/11 kl. 13:00 Aukas.
Sun 28/9 kl. 13:00 8.k. Lau 18/10 kl. 16:30 Aukas. Lau 8/11 kl. 16:00 Aukas.
Sun 28/9 kl. 16:30 9.k. Sun 19/10 kl. 13:00 16.k. Sun 9/11 kl. 13:00 21.k.
Lau 4/10 kl. 13:00 10.k. Sun 19/10 kl. 16:30 Aukas. Lau 15/11 kl. 13:00 22.k.
Sun 5/10 kl. 13:00 11.k. Lau 25/10 kl. 13:00 17.k. Sun 16/11 kl. 13:00 Aukas.
Sun 5/10 kl. 16:30 12.k. Lau 25/10 kl. 16:30 18.k. Lau 22/11 kl. 13:00 23.k.
Lau 11/10 kl. 13:00 13.k. Sun 26/10 kl. 13:00 19.k. Sun 23/11 kl. 13:00 24.k.
Sun 12/10 kl. 13:00 14.k. Lau 1/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 29/11 kl. 13:00 25.k.
Sun 12/10 kl. 16:30 Aukas. Sun 2/11 kl. 13:00 20.k. Sun 30/11 kl. 13:00 26.k.
http://www.borgarleikhus.is/syningar/lina-langsokkur/
Bláskjár (Litla sviðið)
Fim 2/10 kl. 20:00 5.k. Sun 12/10 kl. 20:00 6.k. Sun 9/11 kl. 20:30 8.k.
Þri 7/10 kl. 20:00 aukas. Sun 19/10 kl. 20:00 7.k. Mið 12/11 kl. 20:30 9.k.
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson. Aðeins þessar sýningar!
Gullna hliðið (Stóra sviðið)
Fös 26/9 kl. 20:00 4.k. Fös 10/10 kl. 20:00 7.k. Fös 24/10 kl. 20:00 10.k.
Fös 3/10 kl. 20:00 5.k. Fim 16/10 kl. 20:00 8.k.
Fim 9/10 kl. 20:00 6.k. Fös 17/10 kl. 20:00 9.k.
http://www.borgarleikhus.is/syningar/gullna-hlidid/
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 26/9 kl. 20:00 2.k. Fös 10/10 kl. 20:00 10.k. Fim 6/11 kl. 20:00 18.k.
Sun 28/9 kl. 20:00 3.k. Fim 23/10 kl. 20:00 11.k. Fös 7/11 kl. 20:00 19.k.
Þri 30/9 kl. 20:00 4.k. Fös 24/10 kl. 20:00 12.k. Lau 8/11 kl. 20:00 20.k.
Mið 1/10 kl. 20:00 5.k. Lau 25/10 kl. 20:00 13.k. Fim 13/11 kl. 20:00 21.k.
Fös 3/10 kl. 20:00 6.k. Sun 26/10 kl. 20:00 14.k. Fös 14/11 kl. 20:00 22.k.
Sun 5/10 kl. 20:00 7.k. Fim 30/10 kl. 20:00 15.k. Lau 15/11 kl. 20:00 23.k.
Mið 8/10 kl. 20:00 8.k. Fös 31/10 kl. 20:00 16.k.
Fim 9/10 kl. 20:00 9.k. Lau 1/11 kl. 20:00 17.k.
http://www.borgarleikhus.is/syningar/kenneth-mani/
Skálmöld: Baldur (Stóra sviðið)
Lau 27/9 kl. 20:00 1.k. Lau 4/10 kl. 20:00 2.k. Lau 11/10 kl. 20:00 2.k.
Epískir tónleikar með leikhúsívafi. Aðeins þessar sýningar!
Gaukar (Nýja sviðið)
Fös 26/9 kl. 20:00 frumsýn. Sun 12/10 kl. 20:00 6.k. Fös 31/10 kl. 20:00 11.k.
Sun 28/9 kl. 20:00 2.k. Fös 17/10 kl. 20:00 7.k. Lau 1/11 kl. 20:00 12.k.
Fim 2/10 kl. 20:00 3.k. Lau 18/10 kl. 20:00 8.k. Sun 9/11 kl. 20:00 13.k.
Sun 5/10 kl. 20:00 4.k. Fim 23/10 kl. 20:00 9.k. Fös 14/11 kl. 20:00 14.k.
Fös 10/10 kl. 20:00 5.k. Sun 26/10 kl. 20:00 10.k.
http://www.borgarleikhus.is/syningar/gaukar/
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Róðarí (Aðalsalur)
Sun 28/9 kl. 20:00 Sun 12/10 kl. 20:00 Lau 25/10 kl. 20:00
Lau 4/10 kl. 20:00 Fös 17/10 kl. 20:00
Eldklerkurinn (Aðalsalur)
Fim 9/10 kl. 20:00 Sun 19/10 kl. 20:00
Trúðleikur (Aðalsalur)
Sun 28/9 kl. 14:00 Sun 12/10 kl. 14:00
Kameljón (Aðalsalur)
Lau 27/9 kl. 20:00 Sun 5/10 kl. 20:00
Lífið (Aðalsalur)
Lau 18/10 kl. 14:00 Sun 2/11 kl. 13:00 Sun 9/11 kl. 13:00
Sun 26/10 kl. 13:00 Sun 2/11 kl. 15:00 Sun 9/11 kl. 15:00
Sun 26/10 kl. 15:00 Lau 8/11 kl. 14:00
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
REDKENONLY SALON
SALONVEH
HÁRSNYRTING: RÁÐGJÖF, KLIPPING OG MÓTUN, HÁRLITUN, HÁRÞVOTTUR MEÐ NUDDI EÐA DJÚPNÆRINGU
VÖRUR Í VERSLUN: ALLT Í HÁRIÐ, HÁRLENGINGAR OG -KOLLUR, GREIÐUR, BURSTAR, BLÁSARAR
HÚSI VERSLUNARINNAR, KRINGLUNNI
S. 568 7305 • SALONVEH.IS
TÍMAPANTANIR HJÁ SALON VEH Í SÍMA 568-7305
Velkomin til SALON VEH
VERTU VINUR OKKAR Á FACEBOOK
Simbi Hildur Róbert Alda Sigurveig Bjarki StefánSalóme
Aukablað alla
þriðjudaga