Morgunblaðið - 26.09.2014, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Þessi áhugaverða kvikmyndleiðir áhorfendur umganga, geymslur og sýn-ingarsali Kunsthistor-
isches Museum í Vín. Kvikmyndað
var á tveggja ára tímabili, þegar
unnið var að endurgerð þess hluta
safnsins sem kallast Kunstkammer
en þar eru varðveitt einstök söfn
gripa sem hinir áhrifamiklu Habs-
borgarar söfnuðu á sínum tíma.
Nálgun leikstjórans, Johannesar
Holtzhausen, er áhugaverð. Enginn
sögumaður upplýsir þann sem horf-
ir, engin viðtöl eru tekin eða tónlist
lögð yfir myndefnið til að skapa
stemningu. Þess í stað líður kvik-
myndavélin um salina; stundum er
stjórnendum fylgt eftir og þá kemst
áhorfandinn að því að mikið stendur
til, enduropnun hluta safnsins, en
svo er fylgst með forvörðum hreinsa
söguleg málverk af mikilli vand-
virkni, koma flóknum gangverkum
gamalla leikfanga í lag, verðir í söl-
unum kvarta á fundi undan stétt-
skiptingunni innan safnsins, rýnt er í
nýja hönnun merkis og yfirmaður
vopna- og verjudeildarinnar er
kvaddur þegar hann fer á eftirlaun.
Að lokum kemur að opnun og forseti
og fyrirmenn mæta; safngripirnir
ljóma enda vitum við að allt hefur
verið ryksugað, lagað og fægt.
Safnið mikilvirka er að mörgu
leyti áhugaverð kvikmynd og allir
sem starfa í safnageiranum ættu
skilyrðislaust að sjá hana, þó ekki
nema væri til að bera saman vinnu-
aðstæður, geymslur og gripi. Það er
líka afar áhugavert að líta augum öll
þau fágæti sem safnið geymir; sögu-
leg málverk, myntir, útskurð og leik-
föng, svo fátt eitt sé nefnt.
Aðferð kvikmyndagerðarmann-
anna er líka að mörgu leyti áhuga-
verð og sérstaklega fá tökumenn að
njóta sín við að skapa áhugaverð
sjónarhorn á samspil gripa og fólks-
ins sem vinnur við að meðhöndla þá.
Hins vegar má velta fyrir sér hvort
frásögnin um þann áhugaverða heim
safnsins sé ekki óþarflega löng.
Forvitnilegt Forvörður með uppstoppaða froska í geymslu safnsins. Fjöl-
margir gripir frá Habsborgurum eru varðveittir í listsögusafninu í Vín.
Heimur í safni
RIFF – Bíó Paradís
Safnið mikilvirka / Das grosse
Museum bbbnn
Leikstjóri; Johannes Holtzhausen.
Handrit: Johannes Holtzhausen og Con-
stantin Wulff. Kvikmyndataka: Joerg
Burger, Attila Boa. Austurríki, 2013. 94
mínútur. Flokkur: Heimildarmyndir.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
KVIKMYNDIR
26.09.2014 - 17:30 Bíó Paradís 2
03.10.2014 - 17:30 Bíó Paradís 2
Spurt og svarað
04.10.2014 - 16:15 Bíó Paradís 3
Spurt og svarað
RIFF 2014
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Thomas er komið fyrir á hryllilegum stað ásamt fimmtíu öðrum
drengjum á unglingsaldri, eftir að minni hans hefur verið eytt.
Fljótlega komast drengirnir að þeir eru allir fastir í risastóru völ-
undarhúsi og ef þeir vilja sleppa
út verða þeir að vinna saman.
Metacritic 58/100
IMDB 7,9/10
Smárabíó 17.30, 20.00, 22.30
Laugarásbíó 17.40, 20.00, 22.20
Borgarbíó Akureyri 17.50, 20.00
The Maze Runner 12
Mia Hall þarf að ákveða hvort hún ætlar
að láta drauma sína rætast og fara í Juilli-
ard-tónlistarskólann eða vera með
draumaprinsinum, Adam. En huggulegur
fjölskyldubíltúr breytir öllu á örskots-
stundu og Mia þarf að taka eina ákvörð-
un, sem mun ekki aðeins hafa áhrif á framtíðina heldur á ör-
lög hennar.
Metacritic 47/100
IMDB 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 20.00 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00
If I Stay 12
Fyrrverandi leynilögreglumaður sviðsetur and-
lát sitt til að lifa rólegu lífi í Boston. Þegar
hann hittir stúlku sem er undir hælnum á ill-
skeyttum rússneskum glæpamönnum verður
hann að koma henni til bjargar.
IMDB: 7,9/10
Metacritic: 48/100
Sambíóin Keflavík 20.00 22.40
Smárabíó 17.00, 17.00 LÚX, 20.00 LÚX, 20.00, 22.45, 22.45
LÚX
Háskólabíó 18.00, 22.15
Laugarásbíó 20.00, 22.40
Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20
The Equalizer
A Walk Among the
Tombstones
Matthew Scudder er fyrrver-
andi lögga og einkaspæjari.
Tilveran er býsna róleg þar
til eiturlyfjasali nokkur ræð-
ur hann til að komast að því
hverjir tóku og myrtu eig-
inkonu hans.
Metacritic 51/100
IMDB 7,4/10
Laugarásbíó 17.45, 20.00,
22.20
Borgarbíó Akureyri 22.20
Teenage Mutant
Ninja Turtles 10
Mbl. bbbnn
Metacritic 34/100
IMDB 6.4/10
Sambíóin Álfabakka 16.10,
17.50
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00 3D, 22.20 3D
Afinn
Guðjón hefur lifað öruggu
lífi. Allt í einu blasir eft-
irlaunaaldurinn við honum á
sama tíma og erfiðleikar
koma upp í hjónabandinu og
við skipulagningu á brúð-
kaupi dóttur sinnar.
Sambíóin Álfabakka 15.20
15.20 17.40 17.40 18.30
20.00 20.00 21.00 22.20
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40
20.00 22.20
Sambíóin Kringlunni 17.40
20.00 22.20
Sambíóin Akureyri 17.40
20.00 22.20
Sambíóin Keflavík 17.40
20.00 22.20
The November Man16
Fyrrverandi fulltrúi banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA,
þarf tilneyddur að mæta
fyrrverandi nemanda sínum í
banvænum leik. Í þann leik
fléttast háttsettir leyniþjón-
ustumenn og rússneskur
forsetaframbjóðandi.
Metacritic 38/100
IMDB: 6,7/10
Smárabíó 22.15
The Hundred-Foot
Journey
Indversk fjölskylda opnar
veitingastað í Suður-
Frakklandi. Keppinautarnir
eru lítt hrifnir og hefst at-
burðarás og barátta sem
þróast í óvænta átt. Bönnuð
innan 7 ára.
Metacritic 55/100
IMDB 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 18.20,
21.00
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 22.20
París norðursins Hugi hefur fundið skjól frá
flækjum lífsins í litlu þorpi
úti á landi en þegar hann fær
símhringingu frá föður
sínum sem boðar komu sína
er hið einfalda líf í uppnámi.
Mbl. bbbnn
IMDB 7.4/10
Smárabíó 17.45, 20.00
Háskólabíó 17.20, 20.00,
22.15
Borgarbíó Akureyri 17.50
Sin City: A Dame to
Kill For 16
Framhald spennumyndar-
innar Sin City frá 2005.
Harðsoðnustu íbúar bæjar-
ins mæta nokkrum af þeim
mest hötuðu.
Metacritic 45/100
IMDB 7.1/10
Sambíóin Álfabakka 22.30
Sambíóin Egilshöll 22.30
Guardians of
the Galaxy 12
Mbl. bbbbn
Metacritic 75/100
IMDB 9.0/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Let’s Be Cops 12
Metacritic 27/100
IMDB 6.8/10
Smárabíó 17.45, 20.00,
22.20
Töfrahúsið Kettlingur endar á vergangi
þegar vondur eigandi hans
ákveður að losa sig við hann
og kemst í kynni við gamlan
töframann. Með íslensku
tali.
Sambíóin Álfabakka 16.00,
18.00
Sambíóin Egilshöll 17.50
Sambíóin Kringlunni 18.00
Sambíóin Akureyri 18.00
Sambíóin Keflavík 18.00
Pósturinn Páll Pósturinn Páll er loksins
mættur á hvíta tjaldið ásamt
trausta kettinum Njáli.
Metacritic 44/100
Smárabíó 15.30 Ísl.
Laugarásbíó 15.50
Lucy 16
Mbl. bbmnn
Metacritic 61/100
IMDB 6.6/10
Laugarásbíó 18.00
Flugvélar:
Björgunarsveitin IMDB 5.8/10
Sambíóin Álfabakka 15.50
Vonarstræti 14
Mbl. bbbbm
IMDB 8.1/10
Háskólabíó 21.00
Að temja
drekann sinn 2 Mbl. bbbnn
Metacritic 77/100
IMDB 8,6/10
Smárabíó 15.30
Laugarásbíó 15.50
Tarzan
Bönnuð innan 7 ára.
Sambíóin Álfabakka 16.10
Dino Time: Týnd í
tíma
Laugarásbíó 15.50
RIFF-hátíðin
Agnarsmátt Bíó Paradís
13.30
Skrifaðu: Ég er arabi
Bíó Paradís 13.30
Í gleymskunnar dá
Bíó Paradís 14.00
Lifi frelsið
Bíó Paradís 15.30
Óljós mörk
Bíó Paradís 15.30
Lokamark
Bíó Paradís 16.00
Ósjálfrátt
Bíó Paradís 17.30
Safnið mikilvirka Bíó Para-
dís 17.30
Ég get hætt þegar ég vil
Háskólabíó 18.00
Ástarhreiðrið
Bíó Paradís 18.00
Erlendar stuttmyndir A
Tjarnarbíó 18.00
Balletstrákar
Háskólabíó 22.00
Skorturinn
Bíó Paradís 19.30
Áður en ég hverf
Norræna húsið 20.00
Snúið aftur til Íþöku
Háskólabíó 20.00
Leikur
Bíó Paradís 20.00
Draumurinn um fjölskyldu
Bíó Paradís 20.00
Þakíbúð til norðurs
Háskólabíó 20.00
Íslenskar stuttmyndir
Tjarnarbíó 20.00
Leyndardómar vörðunnar í
norðri
Bíó Paradís 21.30
Mannætuöldin
Bíó paradís 22.00
Undrin
Háskólabíó 22.00
Difret
Háskólabíó 22.00
Dulið stríð
Tjarnarbíó 22.00
Nakin
Bíó Paradís 22.15
Gengið neðansjávar
Bíó Paradís 23.30
Örlög
Bíó Paradís 23.45
Óværan
Háskólabíó 23.45
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað um
tísku og förðun
föstudaginn
3. október
Í blaðinu verður fjallað um tískuna haust/vetur 2014 í
förðun, snyrtingu, fatnaði og fylgihlutum auk umhirðu
húðarinnar, dekur og fleira.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 29. september.
SÉRBLAÐ
TÍSKA & FÖRÐUN
-Meira fyrir lesendur