Morgunblaðið - 26.09.2014, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það hrærist mjög vel saman að
skrifa sviðsverk, kvikmyndahandrit
og bækur og geta skipt þarna á milli.
Staða höfundarins er mismunandi í
þessum þremur heimum. Maður er
algjörlega í sín-
um heimi þegar
maður skrifar
bók og það getur
orðið ótrúlega
einmanalegt. Þá
er fínt að hoppa
yfir í bíóið því þar
hittir maður fullt
af fólki. Svo þeg-
ar egó kvik-
myndaleikstjór-
ans er orðið of útblásið þá er fínt að
flýja yfir í leikhúsið því þar er staða
höfundarins mikilvægari,“ segir
Huldar Breiðfjörð, en fyrsta sviðs-
verk hans, Gaukar, verður frumsýnt
á nýja sviði Borgarleikhússins í
kvöld kl. 20.
Verkið fjallar um tvo karlmenn
sem hittast á hótelherbergi á lands-
byggðinni að vetri til. „Gunnlaugur,
sem er eldri, hefur komið sér þar
fyrir ásamt páfagauk sem hann
hyggst gefa frá sér. Tómas, sem er
yngri, hefur mikinn áhuga á gælu-
dýrinu og er kominn úr borginni til
að skoða fuglinn. Gunnlaugi er um-
hugað um að finna góðan eiganda og
yfirheyrir Tómas um fjölskylduhagi
og reynslu af dýrahaldi. Þegar
Gunnlaugur er loks að verða sann-
færður um ágæti Tómasar kemur
upp ákveðið vandamál sem flestir
myndu kalla smáatriði en er þó nógu
stórt til að setja fund mannanna í
uppnám. Í kjölfarið eyða þessir tveir
ókunnugu menn saman nótt á hót-
elherberginu,“ segir Huldar um
verk sitt. Leikstjóri sýningarinnar
er Jón Páll Eyjólfsson, en með hlut-
verk Gunnlaugs og Tómasar fara Jó-
hann Sigurðarson og Hilmar Guð-
jónsson.
Langaði að dvelja
lengur með persónunum
„Hugmyndin að verkinu kom til
mín þegar ég heyrði sögu af fólki
sem eignaðist talandi páfagauk sem
talaði þó ekki sama tungumál og
nýju eigendurnir, en hann hafði lært
að tala af fyrri eiganda sínum. Nýju
eigendurnir fengu hjálp til að skilja
hvað fuglinn væri að segja og fengu
þá óvænt innlit í hjónaband fyrri eig-
anda, því fuglinn var sífellt að end-
urtaka frasa og slitrur úr gömlum
rifrildum fyrri eigenda. Í framhald-
inu fór ég að velta fyrir mér hvað
hefði komið til að þau létu fuglinn frá
sér, því þessir fuglar geta orðið mjög
gamlir. Hver lætur frá sér talandi
dýr sem búið hefur með manni í tvo
til þrjá áratugi? Og hver vill taka
slíkt dýr að sér?“
Aðspurður hvort honum finnist
mikill munur á því að skrifa fyrir
hvíta tjaldið annars vegar og leik-
sviðið hins vegar jánkar Huldar því.
„Kvikmyndahandrit er svakalega
stíft form og í raun fáránlega
knappt. Maður þarf alltaf að vera að
slá tvær flugur í einu höggi í bíó-
myndum. Öll skrifin þurfa að vera
svo ökónómísk því maður hefur bæði
lítinn tíma og lítið pláss. Svo klárar
maður handritið til þess eins að fara
að stytta það meira. Þegar ég klár-
aði að skrifa handritið að París norð-
ursins var mig farið að langa til að
dvelja lengur með persónunum,
skrifa lengri samtöl og komast und-
an stöðugum sparnaðaraðgerðum
sem fylgja kvikmyndahandritinu.
Um svipað leyti fékk ég hugmynd
sem ég sá í hendi mér að myndi
henta vel sem leikrit.“
Ekki gagngert að
skrifa um karlmennsku
Athygli vekur að bæði í París
norðursins og Gaukum eru sam-
skipti karlmanna í forgrunni. „Það
er alls ekki meðvituð ákvörðun að
skrifa um karla og ég er ekki gagn-
gert að skrifa um karlmennsku.
Auðvitað hlýtur hún þó að vera til
umfjöllunar, en vonandi á nýjan hátt
og í nýju ljósi.“ Spurður hvort karl-
menn eigi erfitt með að tala um til-
finningar sínar svarar Huldar:
„Lengi vel var í leikritinu setning
sem er þar reyndar ekki lengur er
hljómaði eitthvað á þessa leið: „Þótt
þið konur talið meira þá þarf það
ekki að þýða að þið séuð með allar
tilfinningarnar.“ Þessi setning á vel
við þessa tvo karlmenn. Mér fannst
þessi setning alltaf svolítið góð, en
hún var tekin út af því að hún þurfti
ekki að vera þarna þar sem skila-
boðin reyndust innbyggð í sjálft
verkið,“ segir Huldar og bætir að
lokum við: „Mig langar tvímælalaust
til að skrifa fleiri sviðsverk og er
þegar kominn með hugmynd að
næsta verki.“
„Slitrur úr göml-
um rifrildum“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Herbergisfélagar Hilmar Guðjónsson og Jóhann Sigurðarson í hlutverkum sínum sem Tómas og Gunnlaugur.
Borgarleikhúsið frumsýnir Gauka
eftir Huldar Breiðfjörð í kvöld kl. 20
Huldar
Breiðfjörð
Ein mesta rokkgítarhetja sög-
unnar, Slash, leikur á tónleikum í
Laugardalshöll 6. desember nk.
með söngvaranum Myles Kennedy
og hljómsveitinni The Con-
spirators.
Slash þarf vart að kynna fyrir
rokkunnendum, margfaldan
Grammyverðlaunahafa og gít-
arleikara Guns N’ Roses og Velvet
Revolver. Yfir 100 milljónir platna
sem Slash hefur leikið á hafa verið
seldar á heimsvísu og þá bæði með
hljómsveitum sem hann hefur leikið
með og sólóplötur.
Slash og félagar munu enda Evr-
óputónleikaferð sína með tónleik-
unum á Íslandi.
Slash spilar í Laugardalshöll með
Myles Kennedy og The Conspirators
Rokkarar Myles Kennedy og Slash ætla
að rokka í Laugardalshöll í desember.
Tvær kvikmyndir verða frum-
sýndar í kvikmyndahúsum landsins
í dag, til viðbótar við þær sem sýnd-
ar verða á Alþjóðlegri kvikmynda-
hátíð í Reykjavík, RIFF.
The Equalizer
Denzel Washington leikur Robert
MacCall, fyrrverandi leynilögreglu-
mann sem sviðsetti andlát sitt til að
lifa rólegu lífi í Boston. Þegar hann
hittir Teri, stúlku sem er undir
hælnum á illskeyttum rússneskum
glæpamönnum, finnur hann sig
knúinn til að koma henni til bjargar
og ráðast til atlögu við glæpamenn-
ina. Auk Washington fara með
helstu hlutverk Bill Pullman, Chloë
Grace Moretz, Chloe Moretz, David
Harbour, Haley Bennett, Marton
Csokas og Melissa Leo. Leikstjóri
er Antoine Fuqua.
Metacritic: 48/100
Afinn
Gaman-drama eftir Bjarna Þór
Hauksson með Sigurði Sigurjóns-
syni í aðalhlutverki. Sigurður leik-
ur Guðjón sem er að komast á eftir-
launaaldur. Hann þarf að glíma við
ýmis vandamál, er beðinn að láta
fyrr af störfum en til stóð, brestir
koma í hjónabandið og að auki ætl-
ar dóttir hans að giftast náunga
sem honum er meinilla við. Handrit
myndarinnar er byggt á samnefndu
leikriti Bjarna. Með önnur helstu
hlutverk í myndinni fara Þorsteinn
Bachmann, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Steinþór Hróar Steinþórsson
(Steindi jr.), Tinna Sverrisdóttir og
Jón Gnarr Jónsson.
Bíófrumsýningar
Grjótharður
Washington,
afi og RIFF
Hörkutól Denzel Washington tekst
á við glæpamenn í The Equalizer.
EIN ÓVÆNTASTA
SPENNUMYND
ÁRSINS
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND UM
EINKASPÆJARA SEM FLÆKIST INN Í
HEIM EITURLYFJASALA
LIAM NEESON
ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON
L
L
L
12
EQUALIZER Sýnd kl. 8 - 10:40
TOMBSTONES Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:20
MAZE RUNNER Sýnd kl. 5:40 - 8 - 10:20
PÓSTURINN PÁLL 2D Sýnd kl. 3:50
LUCY Sýnd kl. 6
TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 3:50
DINO TIME Sýnd kl. 3:50
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar