Morgunblaðið - 26.09.2014, Side 44
Myndlistartvíeykið Libia Castro og
Ólafur Ólafsson, sem voru fulltrúar
Íslands í Feneyjum árið 2011, koma
víða við í sýningahaldi, eins og und-
anfarin ár. Í byrjun október verður
opnuð sýning með verkum þeirra í
Salon Fluchthilfe í Vínarborg, en þar
sýnir hópur fólks undir yfirskriftinni
„Utopia“.
Libia og Ólafur í
útópíusýningu í Vín
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 269. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Alvarlega slasaður á gjörgæslu
2. Vilhjálmur var talinn brjálaður
3. Mun biðja drottninguna …
4. Gera stólpagrín að Apple
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Austfirska
plötuútgáfan Wa-
rén Music leggur
land undir fót og
halda tónlistar-
menn á hennar
vegum tónleika í
dag og um
helgina. Jakútíska
söngkonan Alex-
andra Argunova Kjuregej kemur fram
í Mengi í kvöld kl. 21 ásamt Charles
Ross, Ásgeiri Ásgeirssyni og Halldóri
Warén og flytur lög frá heimalandi
sínu Jakútíu, auk íslenskra og rúss-
neskra sönglaga. Á morgun og hinn
kl. 15 mun Ekki bara fyrir börn-
flokkurinn halda tvenna fjölskyldu-
tónleika, í Mengi á morgun og Bæj-
arbíói á sunnudaginn.
Kjuregej og Ekki
bara fyrir börn
Nýjasta skáldsaga Gyrðis Elíasson-
ar, Suðurglugginn, er komin út á
norsku í þýðingu Oskars Vistdal og er
það forlagið Bokvennen
sem gefur út. Þýðingin
er á nýnorsku og
nefnist Utsyn frå
Sørglaset. Bókin er
sú fimmta eftir Gyrði
sem kemur út á
norsku.
Suðurglugginn
gefinn út á norsku
Á laugardag Austlæg átt 5-13 m/s en snýst í suðvestan
8-13 m/s sunnantil seinnipartinn. Víða rigning eða súld en þurrt
norðanlands fram eftir degi. Hiti 2 til 9 stig og mildast syðst.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 13-20 m/s norðaustan- og austantil,
rigning en mun hægari og úrkomuminna annars staðar. Lægir
síðdegis. Kólnandi og hiti 2 til 9 stig.
VEÐUR
Sara Björk Gunnarsdóttir,
landsliðsfyrirliði í knatt-
spyrnu, varð í gærkvöld
sænskur meistari í þriðja
sinn þegar lið hennar
Rosengård vann Koppar-
berg/Göteborg, 3:2. Sara
fylgdist með gangi mála af
tölvuskjá hérlendis en hún
er stödd á landinu vegna
fráfalls tengdaföður síns.
Hún mun hins vegar taka
við meistarabikarnum sem
fyrirliði í lokaumferðinni. »1
Meistari fyrir
framan tölvuskjá
Skotland, vagga golfsins, er að
þessu sinni vettvangur Ryder-
bikarkeppninnar, einhvers vinsæl-
asta íþróttaviðburðar í heiminum.
Keppnin var ævintýraleg í Banda-
ríkjunum fyrir tveimur árum þegar
Evrópa vann upp fjögurra vinninga
forskot Bandaríkjanna á
lokadeginum og sigraði í
annað skipti í
röð og í
fimmta
skipti af
síðustu
sex.
»4
Ryder-keppnin fer
fram í vöggu golfsins
FH skaust í efsta sæti Olís-deildar
karla í handknattleik í gærkvöldi þeg-
ar liðið vann granna sína og erki-
fjendur í Haukum, 25:24, í Kapla-
krika. Akureyringar lentu í kröppum
dansi í fyrsta heimaleik sínum á leik-
tíðinni gegn Stjörnunni en tókst að
lokum að vinna. Þá fögnuðu Vals-
menn sínum fyrsta sigri í deildinni á
keppnistímabilinu. »2
FH á toppinn eftir upp-
gjör í Hafnarfjarðarslag
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Háskólar um allan heim eru byrjaðir
að átta sig á því, að nemendur verði
að læra fleiri tungumál en ensku,“
segir frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti lýðveldisins, en Evr-
ópski tungumáladagurinn er haldinn
hátíðlegur í dag. Hann er að þessu
sinni helgaður fornmálunum og mun
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í
erlendum tungumálum við Háskóla
Íslands standa fyrir málþingi og há-
tíðardagskrá af því tilefni.
Vigdís segir að erlendis hafi menn
áhyggjur af því að þrengt hafi verið
að tungumálanámi. Nefnir hún Bret-
land sem dæmi, þar sem nær allt
tungumálanám að ensku undanskil-
inni hafi verið tekið af námskrá fyrir
nokkrum árum. „Það er alltaf í þeim
tilgangi að spara, en sparnaðurinn er
svo dýr,“ segir Vigdís og bætir við að
meintur sparnaður muni aldrei skila
sér, því að tapið við að glata tungu-
málaþekkingunni sé meira, hvað þá
þegar síðar er reynt að snúa dæminu
við, því að þá skorti kennara.
„Menn verða að átta sig á því að
vestræn menning er byggð á forn-
málunum og allir sem ætla sér í
lengra nám munu þurfa að kynna sér
einhver latnesk hugtök og fræði,“
segir Vigdís.
Latína líkist stærðfræðinni
Atli Freyr Steinþórsson, dagskrár-
gerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu og
einn af framsögumönnum á mál-
þinginu, tekur undir þau orð. Hann
lærði latínu á sínum tíma í Mennta-
skólanum í Reykjavík, og segir þá
kunnáttu hafa nýst sér einstaklega
vel í leik og starfi. „Þetta er erfið
námsgrein, það þarf að leggja mikið á
sig til þess að læra hana,“ segir Atli
Freyr og bætir við að hann telji latínu
í raun vera svipaða stærðfræði. „Allir
sem læra raunvísindi þurfa að hafa
grunn í stærðfræði, þó að þeir beiti
henni ekki endilega daglega,“ segir
Atli Freyr og bætir við að á líkan hátt
sé nánast ómögulegt að fást við vest-
ræna menningu og tungumál án þess
að rekast á latínuna eða áhrif hennar.
Latína er nú einungis kennd á
framhaldsskólastigi við forn-
máladeild í Menntaskólanum í
Reykjavík. Linda Rós Michaelsdóttir,
enskukennari við MR og starfandi
rektor skólaárið 2012-2013, segir að
það hafi verið mikill styrkur fyrir
skólann þegar Vigdís gerðist vernd-
ari fornmáladeildar vorið 2013. Linda
segir skólann á þeim tíma hafa verið
undir þrýstingi um að breyta tungu-
málabrautum skólans í félagsfræði-
brautir, og að stuðningur Vigdísar
hafi verið ómetanlegur.
„Skólasaga Íslands tengist forn-
máladeildinni miklum böndum og það
væri galið að mínu viti að skera hana
niður og rjúfa þessi tengsl,“ segir
Linda. Þær Linda Rós og Vigdís eru
ánægðar með þau miklu viðbrögð
sem þær hafa fengið við baráttu sinni
til þess að halda latínunni á lífi innan
MR. „Fólk kemur enn til mín í þeim
tilgangi að þakka mér fyrir það að
hafa bjargað latínunni,“ segir Vigdís
að lokum.
Latínan er lifandi mál
Sparnaður í
tungumálanámi
getur verið dýr
Morgunblaðið/RAX
Tungumáladagurinn Þau Linda Rós Michaelsdóttir, enskukennari við MR, frú Vigdís Finnbogadóttir og Atli Freyr
Steinþórsson dagskrárgerðarmaður segja mikilvægt að halda í tungumálakennslu. Latína sé þar góður grunnur.
Á málþingi því sem stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir í dag
vegna Evrópska tungumáladagsins verður áherslan lögð á gildi fornmál-
anna, einkum latínu, og gildi almennrar tungumálakunnáttu í víðasta
samhengi.
Á meðal þeirra sem flytja erindi eru Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, latínu-
kennari við MR og Háskóla Íslands, Hjalti Snær Ægisson, stundakennari í
almennri bókmenntafræði, Guðbjörg Þórisdóttir, meistaranemi í heim-
speki, Viðar Pálsson, lektor í sagnfræði og réttarsögu, Adda Guðrún
Gylfadóttir, nemi af fornmálabraut í MR, Reynir Tómas Geirsson, prófess-
or og yfirlæknir, og Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona. Málþingið verður
haldið í stofu 101 í Lögbergi og stendur dagskráin frá kl. 15 til 17.30. Að-
gangur er öllum opinn og ókeypis.
Gildi tungumálakunnáttu
HÁTÍÐARDAGSKRÁ EVRÓPSKA TUNGUMÁLADAGSINS