Morgunblaðið - 03.10.2014, Síða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014
Það er svo skrýtið að hugsa til
þess að ég sá hann síðast í afmæl-
inu sínu 4. september síðastlið-
inn, 88 ára gamlan, svo hressan
og toppstykkið í góðu lagi. Hann
var búinn að berjast við krabba-
mein en bjó þó heima hjá sér. Ég
fór aftur til Spánar þar sem ég bý
með fjölskyldu minni og hugsaði
að afi væri í góðum höndum uppi
á spítala og gæti safnað orku. Ég
átti ekki von á því að afi færi svo
fljótt eftir að hann fór á spítalann
en þar lauk ævi hans.
Kjartan Árni Þórarinsson.
Eins og systir mín nefndi hér á
undan þá var hann Kjartan afi
minn einstaklega atorkumikill í
atvinnulífinu. Hann teiknaði
fjöldamargar byggingar í vest-
urbæ Reykjavíkur en þar bý ég
einmitt í fjölbýli sem hann teikn-
aði. Í hvert skipti sem ég lít yfir
blokkina okkar hugsa ég hlýlega
til hans. Margir myndu hugsa til
Kjartans sem höfðinglegs, ljúfs
manns og vinamargs en þegar ég
hugsa um persónu hans stendur
eitt upp úr en það var hversu mik-
ill prakkari hann gat verið. Hann
átti það til að stríða fólki í kring-
um sig en alltaf var það nú góðlát-
lega gert. Til dæmis sagði afi mér
draugasögur, þegar ég var lítill,
sem hann hafði annaðhvort heyrt
eða jafnvel sjálfur upplifað.
Mér er það mjög minnisstætt
þegar við fjölskyldan fórum sam-
an í veiðitúr í Kaldbaksvíkina sem
afi átti hlut í. Þá sá ég það á hon-
um Kjartani afa að þar liði honum
einstaklega vel. Við lentum í því
eina nóttina að svakalegt óveður
skall á og urðu flestir innan
veggja hússins skelkaðir. Hins-
vegar sást ekkert á honum afa og
grínaðist hann með það að þakið
mundi rifna af húsinu og takast á
loft. Í öllum hasarnum minntist
hann afi á draugagang sem hann
varð vitni að í húsinu og vissu
flestir að hann væri að reyna að
espa lýðinn upp.
Þó svo að afi hafi verið mikill
grallari var hann einstaklega
skapgóður og ræðinn maður. Við
spjölluðum um allt milli himins og
jarðar. Þá gaf hann mér mörg góð
ráð sem ég ætla mér að fara eftir.
Þakka þér kærlega fyrir sam-
veruna, afi minn.
Tómas Aron Þórarinsson.
Fyrir 45 árum var hurðinni að
forstofuherbergi mínu í heima-
húsum hálfhrundið upp af Kjart-
ani Sveinssyni. Gekk hann fas-
mikill að skrifborði mínu þar sem
ég var að færa bókhald fyrir lítil
fyrirtæki meðfram námi. Spurði
mig án formála hvort ég, þá tví-
tugur námsmaðurinn, gæti tekið
að mér að bókhald og uppgjör
fyrir rekstur sinn í teiknistofu og
bílaþvottastöð. Á þessum tíma
var Kjartan einn af þekktari ein-
staklingum á Íslandi og stundum
meðal hæstu skattgreiðenda. Ég
svaraði játandi. Tók þetta mínút-
ur. Upp frá þessu fór ég að kynn-
ast þessum einstaka manni og
Hrefnu, hans góðu konu. Naut ég
þess að vinna fyrir þau hjónin á
annan áratug þar til ég seldi
praksís minn og fór út hlutverki
ráðgjafa og endurskoðanda í
framkvæmdahlutverk í útgáfu og
fasteignum.
Í upphafi tókst með okkur
Kjartani vinátta, sem aldrei bar
skugga á. Þó að ég hafi lokið þjón-
ustuhlutverki fyrir þau hjónin
fyrir rúmum þrjátíu árum héld-
ust tengsl okkar með spjalli í
síma, skemmtilegum fundum yfir
kaffi og kökum heima hjá þeim
hjónum þar sem lítil lognmolla
var yfir vötnum í anda Kjartans.
Ennfremur með kærleiksríkum
jólakortum af beggja hálfu.
Kjartan var eiginlega rammís-
lenskt náttúruafl. Slíkur var
krafturinn í honum og kringum
hann. Hann var góður maður með
stórt hjarta og sterkar tilfinning-
ar. Þótti honum ógnarvænt um
Hrefnu sína, börn og barnabörn
og vildi velferð þeirra og ham-
ingju sem allra mesta. Kjartan
var án efa afkastamesti starfandi
arkitekt, sem Ísland hefur átt.
Teiknaði hann á löngum ferli sín-
um nálega 18.000 íbúðir af öllum
tegundum íbúðarhúsnæðis og
meira en milljón fermetra í at-
vinnuhúsnæði. Styrkleiki hans
sem arkitekts fólst meðal annars í
að átta sig fljótt á og sinna vel
þörfum viðskiptavina fyrir hús-
næði að teknu tilliti til fjárhags-
legra möguleika þeirra. Þá fólst
styrkleiki hans sem arkitekts
einnig í hagkvæmum planlausn-
um, sem leikir og lærðir áttu auð-
velt með að útfæra og vinna út frá
í byggingum sínum. Verðlagði
hann vinnu sína alla tíð lágt og
stundum afar lágt, ef fjárhagur
fólks var takmarkaður.
Með Kjartani er að mínu viti
farinn einn af merkari mönnum
Íslands á 20. öld. Maður, sem
setti mark sitt mjög á þjóðfélag
okkar með verkum sínum, þegar
vöxtur og viðgangur var sem
mestur eftir seinni heimsstyrjöld;
fólk var að flytja úr sveitum til
bæja og komast úr fátækt til álna.
Héldu áhrif hans fram yfir síð-
ustu aldamót. Kjartan var dreng-
ur góður, laus við gerviframkomu
og hégóma að frátöldum stórum
og vönduðum bílum. Þar kyllilá
hann. Á eftir fjölskyldunni voru
stórir og vandaðir bílar hans aðal-
áhugamál. Þar áttum við meðal
annars samleið.
Ég er sannfærður um að
Kjartan Sveinsson fer á góðan
stað eftir heilladrjúga vegferð í
jarðvist okkar. Um leið og ég
þakka honum vináttuna og sam-
leiðina, þakka ég forsjóninni fyrir
að hafa leitt okkur saman. Bið ég
Guð almáttugan að blessa minn-
ingu hans og styrkja Hrefnu,
börn þeirra og fjölskyldur í sorg-
inni.
Magnús Hreggviðsson.
Kæri vinur. Svona er gangur
lífsins og ekkert meira um það að
segja nema þín verður sárlega
saknað. Menn koma og fara og
aðeins einn stjórnar því. En tím-
inn frá A til Z er mismunandi góð-
ur og hvað mig og mína fjölskyldu
snertir var vinátta þín sérstök
birta inn í líf okkar. Þú varst jú
einn allra besti vinur foreldra
minna og var sú vinátta sannar-
lega gagnkvæm. Vinátta ykkar,
þín og föður míns hófst um 1965
er þið fóruð að stunda laxveiðar
saman og þá sérstaklega að veið-
ar á „sardínum“ að Alviðru í Sog-
inu (sardínur voru laxar undir 20
pd.) og voru þetta nokkrir góðir
veiðitúrar hvert sumar. Um 1970
fór ég að fá að fara með og varð
fullgildur félagi upp úr því. 1975
féll faðir minn frá en við héldum
áfram að veiða saman í mörg ár
eftir það. En þó að veiðitúrum
okkar fækkaði héldum við alltaf
sambandi í gegnum síma eða yfir
kaffibolla, oftast heima hjá mér.
Núna fyrir skemmstu áttum við
eitt af okkar mörgu góðu símtöl-
um og var það í tilefni af 88 ára af-
mæli þínu. Því miður fór ekki á
milli mála að mjög var af þér
dregið. Eitt af því sem þú sagðir
þá og markaðist varanlega í huga
minn var ég væri einn þeirra sem
þú flokkaðir í hóp þinna allra
bestu vina sem ég sagði gagn-
kvæmt en get ekki neitað að þá
hvarflaði að mér að þetta gæti
verið okkar kveðjustund sem og
reyndist vera.
Kæri vinur, ég vil þakka þér
allt og allt og ekki síst þá ómet-
anlegu aðstoð sem þú veittir okk-
ur Ellu við skipulagningu á nýja
húsinu okkar svo og þá vináttu
sem þú hefur sýnt mér og mínu
fólki í gegnum, ekki bara árin,
heldur áratugina.
Góða ferð, kæri vinur, sjáumst
síðar.
Elsku Hrefna, votta þér og
börnunum ykkar mína innileg-
ustu samúð.
Ásgeir Halldórsson.
Kjartan Sveinsson var stór
maður í öllum skilningi þess orðs.
Hann var myndarlegur, hafði
stóra sál, hugsaði stórt – teiknaði
stærstu einbýlishús á Íslandi og
afkastaði meira en nokkur annar
húsahönnuður hér á landi og þótt
víðar væri leitað.
Fyrir meira en hálfri öld fór
hann að koma í heimsóknir með
Hrefnu sem hann hafði heillast
af. Litli drengurinn á heimilinu
horfði upp til hans og var agndofa
af að hlusta á allar sögurnar.
Kjartan talaði við börnin eins og
þau væru fullorðið fólk og var
þeim einnig gjafmildur. Var eins
við alla, háa sem lága. Iðulega
fyllti hann fínu bílana sína af fólki
sem hann bauð í bíltúr, renndi
Þingvallahringinn rétt til þess
eins að horfa um stund yfir vatn-
ið. Og hann ók hratt á amerísku
drossíunum sínum. Kaus helst
tvennra dyra stóra kagga sem
voru auðþekktir á götum Reykja-
víkur, glansandi og alltaf tandur-
hreinir enda átti hann heila bíla-
þvottastöð. Og þegar hann var
rúmlega fimmtugur eignaðist
hann dýrasta fólksbíl sem keypt-
ur hafði verið til landsins. Þær
hneyksluðust Gróurnar á þessu,
að kaupa bíl sem kostaði heilt
íbúðarverð. Löngu seinna sagði
hann kíminn frá því að bíllinn
hefði verið miklu dýrari en al-
mennt var talið.
Kjartan Sveinsson hafði unnið
sem trésmiður þegar hann hélt á
vit ævintýra erlendis. Hann lauk
námi í tæknifræði, kom heim og
fór að hanna íbúðir. Þar fann
hann fjölina sína og hann hóf
rekstur eigin teiknistofu. Við-
skiptavinirnir streymdu til hans.
Hann varð fljótt vinsælastur allra
hönnuða. Sjálfur sagði hann að
það væri vegna þess að hann leit-
aðist við að uppfylla þarfir þeirra.
Stór hluti borgarhverfa voru hús
sem hann teiknaði. Hann mótaði
sinn eiginn stíl og húsin hans
Kjartans fóru að skera sig úr.
Kjartanshúsin voru þau kölluð og
þóttu falleg, hentug og stundum
voru þau eins og litlar hallir.
Hann teiknaði meira en 5.000 sér-
býlishús og 10.000 aðrar íbúðir
auk fjölda annarra bygginga af
ýmsu tagi. Þvílík afköst. Við sölu
íbúða er það gjarnan tekið fram í
fasteignaauglýsingum að húsið sé
teiknað af Kjartani Sveinssyni.
Það er hans arfleifð og segir allt
sem segja þarf.
Það var gaman að ræða við
Kjartan enda var hann gæddur
miklum persónutöfrum. Gríðar-
lega fróður um menn og málefni,
var einstaklega áheyrilegur með
skemmtilega frásagnargáfu.
Hlýja handtakið, viðkunnanlega
röddin, einlægnin og glaðværa
framkoman með brosið í augun-
um gerði að verkum að hann hafði
góða og heillandi nærveru. Af-
skaplega skemmtilegur maður
sem öllum þótti vænt um. Heil-
steyptur og vandvirkur sem
leysti vanda fólks sem átti þá ósk
heitasta að koma yfir sig eigin
þaki. Reikningar fyrir þjónustu
hans voru hófstilltir og hann
auðgaðist ekki, en hafði nóg fyrir
sig. Og sama fólkið kom til hans
aftur og aftur, enda lagði hann
metnað sinn í að vanda til verka.
Nú er hann skyndilega horfinn
á braut, sögurnar hljóðnaðar. Það
á einhver eftir að skrá hans ævi
og segja frá þessari óvenjulegu
elju. Hafi hann þökk fyrir áratug-
ina alla, vinsemdina og velvildina.
Hrefnu, börnum og fjölskyldunni
allri er vottuð innileg samúð.
Skúli Eggert Þórðarson.
Ég kynntist þeim Kjartani og
Hrefnu, þegar ég fluttist inn á
Hringbraut 75, þar sem Erna,
systir Hrefnu, bjó á efri hæðinni,
en þá var ég búin að uppgötva, að
þetta voru frænkur mínar, sem
varð til þess að kynni mín af þeim
urðu meiri, en ella hefði orðið, þar
sem þau hjónin komu oft í heim-
sókn til hennar, ekki bara á hátíð-
um, heldur við mörg önnur tæki-
færi, stór sem smá, og þá hitti ég
þau oft og talaði við þau í gang-
inum.
Þar sem Erna var oft í Banda-
ríkjunum í heimsóknum hjá son-
um sínum, þá kom það í hlut
þeirra Kjartans og Hrefnu að sjá
um íbúð hennar á meðan sem
gerði það að verkum að ef eitt-
hvað bjátaði á í húsinu, þurfti ég
að hafa samband við þau. Við það
kynntist ég þeim allvel. Málaleit-
unum var líka alltaf jafn ljúflega
tekið af þeirra hálfu. Þau komu á
Hringbrautina og málin leyst í
sameiningu. Ef eitthvað þurfti
lagfæringar við þá sá Kjartan um
að svo yrði gert, enda þekkti hann
marga iðnaðarmenn og gat alltaf
fengið einhvern þeirra til að líta
við á Hringbrautinni og vinna
verkin.
Hvenær sem við Kjartan tók-
um tal saman fór það ekki
framhjá manni hvað hann hafði
góða þekkingu á öllu sem að
byggingum húsa laut og fær í
sínu fagi. Hann jós af viskubrunni
sínum yfir mig um þau efni og
sagði oft sínar skoðanir um
vinnubrögð iðnaðarmanna um-
búðalaust. Það var aldrei komið
að tómum kofunum í þeim efnum.
Hann var afar víðsýnn og vel les-
inn, ekki bara á sínu sviði heldur
einnig á ýmsum sviðum öðrum.
Eftir að ég fór af Hringbraut-
inni reyndi ég að halda sambandi
við þau, einnig til að spyrja frétta
af Ernu, sem þá var flutt til Am-
eríku. Þá vildi viðtalið oft fara um
víðar lendur þegar Kjartan svar-
aði í símann. Hann minntist lið-
inna tíma á Reyðarfirði og hafði
líka ákveðnar skoðanir á þjóðlíf-
inu og pólitíkinni. Oftast vorum
við sammála í þeim efnum. Ég
hafði gaman af að tala við hann og
var alltaf ríkari á eftir.
Svo er lífið furðulegt að nokkr-
um dögum áður en ég frétti and-
lát hans hugsaði ég að ég þyrfti að
fara að tala við þau Hrefnu til að
athuga hvernig þeim liði og hvað
væri að frétta, spjalla við þau í
leiðinni. Nú verður það ekki leng-
ur Kjartan sem svarar símanum
og ég veit að ég mun sakna þess.
Þegar ég kveð hann nú hinstu
kveðju, þá er efst í huga mér inni-
legt þakklæti fyrir góða viðkynn-
ingu og skemmtileg og fróðleg
viðtöl, um leið og ég bið honum
allrar blessunar Guðs í nýjum
heimkynnum.
Hrefnu, frænku minni, og öðr-
um aðstandendum votta ég inni-
lega samúð mína. Blessuð sé
minning Kjartans Sveinssonar.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir.
Mér finnst ekki langt síðan ég
sá hávaxinn myndarlegan mann
með grásprengt hár standa á
pallinum við húsið við hliðina á
mér, og virða það fyrir sér. Ekki
hafði ég hugmynd um hver þessi
maður var fyrr en mér varð litið
út um gluggann og sá ökutækið
sem hann hafði komið á. Þetta var
umtalaðasta bifreið bæjarins
þegar ég var að alast upp og bar
skráningarnúmerið R 1961. Þá
vissi ég að þetta var Kjartan
Sveinsson byggingatæknifræð-
ingur. Þau hjón Hrefna og Kjart-
an keyptu svo þetta hús og urðum
við nágrannar.
Með okkur Kjartani tókst fljót-
lega góður vinskapur, og betri ná-
granna gátum við ekki fengið, því
að þau voru einstök hjón, Hrefna
og Kjartan. Við Kjartan ræddum
oft saman og bar þá ýmislegt á
góma. Kjartan var bráðskarpur
og hafði skoðanir á öllum hlutum.
Hann var prinsippmaður af
gamla skólanum. Ég hafði mjög
gaman af að ræða við hann þó að
tuttugu ára aldursmunur væri á
okkur. Ég spurði hann einu sinni
af hverju hann hefði ekki keypt
hús sem hann hefði teiknað sjálf-
ur, en eins og flestir vita vildi fólk
búa í húsum sem Kjartan Sveins-
son teiknaði, og hefur sennilega
enginn teiknað eins mörg hús fyr-
ir venjulegt fólk og hann. Hann
svaraði að bragði, ég vil heldur
horfa á þau hús sem ég hef teikn-
að en búa í þeim. Mér er sagt að
hann hafi verið fljótur, vandvirk-
ur og heiðarlegur þegar kom að
því að teikna hús.
Kjartan og Hrefna fluttu úr
Vesturbænum og upp í Selja-
hverfið í Breiðholti, og þegar ég
reyndi að stríða honum á því, að
nú væri hann að fara úr fína
hverfinu og upp í Breiðholt,
horfði hann á mig og sagði: Stef-
án, Seljahverfið er eitt best varð-
veitta leyndarmálið í Reykjavík
og þar vil ég búa.
Þegar heilsan fór að bila fluttu
þau hjón í eldriborgaraíbúð í
Hafnarfirði. Kjartan kom oft í
heimsókn í Skagaselið til dóttur
sinnar og barnabarna. Eitt það
síðasta sem hann sagði við mig
þegar veikindi hans bar á góma,
var að hann væri ekki sú mann-
gerð sem gæti legið lengi á spít-
ala. Kjartan andaðist eftir stutta
legu á sjúkrahúsi.
Fallinn er í valinn góður
drengur og það voru forréttindi
að kynnast honum og skoðunum
þeirrar kynslóðar sem nú er að
kveðja.
Við Svandís vottum Hrefnu og
öllum ættingjum Kjartans okkar
dýpstu samúð.
Stefán Benediktsson.
Hugurinn reikar víða þegar
komið er að kveðjustund. Fyrir
rétt um 20 árum var ég svo lán-
samur að kynnast þeim öndveg-
ishjónum Kjartani og Hrefnu,
þegar ég byrjaði að vinna hjá
þeim á Bón- og þvottastöðinni í
Sigtúni og starfaði ég þar í tæp 10
ár. Yfir vetrartímann var mikið
að gera og oft mikið fjör, þeir
voru margir bílarnir sem runnu
þarna í gegn.
Þau Kjartan og Hrefna ráku
þessa stöð af miklum myndar-
brag með dyggri aðstoð Arndísar
dóttur sinnar. Kjartan kom á
hverjum degi og oft kvölds og
morgna til að fylgjast með að allt
gengi vel fyrir sig, segja sögur og
bulla í okkur strákunum. Á þess-
um tíma var mikill snillingur að
stjórna stöðinni, Trausti Árna-
son, sem var verkstjóri hjá Kjart-
ani í rúm 30 ár.
Það er ansi magnað að kveðja
báða þessa mætu menn á sama
árinu.
Í fyrstu var ég aðeins smeykur
við Kjartan. Hann gat verið fljót-
ur upp eins og maður segir en
hann var fljótur niður aftur og
þegar ég kynntist honum betur
var þarna undir mikill öðlingur,
virkilega blíður maður og á ég
margar góðar minningar með
þeim báðum, honum og Trausta
þegar við lokuðum á kvöldin og
500 bíla dagur var að baki . Kjart-
an kenndi mér margt sem ég hef
sjálfur nýtt mér í mínu lífi, eins og
t.d. það að þó vel gengi eina vik-
una, þá gæti næsta vika verið
mögur. Hann hamraði oft á þessu
við mig og seinna þegar ég fór
sjálfur í fyrirtækjarekstur þá
hugsaði ég oft um þessi orð
Kjartans.
Hann var mikill bíladellukall
og átti afar fallegan Ford Lincoln
sem hann keypti nýjan 1978. Oft
fórum við í bíltúr á þessum bíl og
hann kom líka austur á Selfoss til
okkar í heimsókn. Ég mun alltaf
búa að því að hafa kynnst Kjart-
ani, hann hafði mikil áhrif á mig
og þau hjón reyndust mér og fjöl-
skyldu minni vel á þessum árum
og á milli okkar hefur haldist góð
vinátta.
Kjartan var maður miklum
hæfileikum gæddur, teiknaði
fjöldann allan af fallegum húsum
auk þess að standa í rekstri bón-
stöðvarinnar. Sterkur karakter
og gott að eiga hann að. Það er
mér mikill heiður að fá að bera
hann síðasta spölinn. Takk fyrir
samfylgdina, kæri vinur, og það
veganesti sem þú gafst mér.
Rögnvaldur Jóhannesson.
✝ Guðrún Magn-úsdóttir fædd-
ist 4. maí 1916 á
Heinabergi í
Skarðsstrand-
arhreppi. Hún lést
á heimili sínu að
Gilsbakka 9, Laug-
arbakka, 22. sept-
ember 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Magnús
Jónsson, f. 23.10.
1876, d. 12.5. 1964, og Matt-
hildur Sigurðardóttir, f. 2.12.
1884, d. 11.4. 1968.
Systkini Guðrúnar voru:
Magnea, f. 19.9. 1904, d. 25.6.
1943, Grímur Norðkvist, f.
23.7. 1906, d. 13.5. 1985, Jón
Hall, f. 11.11. 1907, d. 27.12.
1907, Guðfinna Jökulrós, f.
12.8. 1909, d. 29.3. 1976, Jón
Hall, f. 25.8. 1910, d. 26.11.
2000, Halldóra Elín, f. 5.9.
1912, d. 27.5. 1996, Ísleifur
Kristberg, f. 19.7. 1914, d. 2.10.
1983, Karitas, f. 1.5. 1918, d.
16.4. 1998, Hallgrímur Sveinn,
f. 23.4. 1921, d. 26.3. 1973, og
Elísabet Guðrún, f. 2.6. 1923, d.
5.3. 2004. Hinn 15.
október 1959 gift-
ist Guðrún Jóhanni
Matthíasi Jóhanns-
syni, f. 15.10. 1911,
d. 28.3. 1998. Þau
eignuðust átta
börn og eru sex á
lífi. Þau eru: 1) Jó-
hanna, f. 5.8. 1939,
og á hún fimm
syni. 2) Hildigunn-
ur, f. 7.8. 1940, d.
1.1. 1996, og átti hún þrjú
börn. 3) Hafsteinn, f. 23.11.
1944, á hann tvö börn. 4) Elísa-
bet, f. 18.12. 1949, d. 15.1.
1996. 5) Bergsveinn, f. 16.6.
1951, á hann fjögur börn. 6)
Hörður, f. 29.1. 1955, á hann
þrjú börn. 7) Erna, f. 2.3. 1958,
á hún þrjú börn. 8) Ragnheið-
ur, f. 1.6. 1959, á hún þrjú
börn. Guðrún og Jóhann
bjuggu fyrstu árin í Reykjavík
en fluttust seinna að Bálkastöð-
um og bjuggu þar allan sinn
búskap og eftir búskap fluttu
þau að Laugarbakka.
Útför Guðrúnar fór fram í
kyrrþey.
Elsku Guðrún amma mín er
nú fallin frá. Það er sárt að sitja
hér og skrifa þessi orð til þín en
á sama tíma er það gleði og
þakklæti sem er mér efst í huga.
Að fá að þekkja þig svona lengi
eins og raunin varð er mér svo
dýrmætt. Þú varst svo ótrúlega
sterk kona, skemmtileg og hlý,
og alltaf var stutt í húmorinn.
Mér þykir svo vænt um þig, hef-
ur alltaf gert og mun alltaf gera.
Það verður skrítið að keyra vest-
ur eða norður og koma ekki við á
Laugarbakka, fá faðmlag frá
þér, sitja með þér, spjalla og
hlæja. Mér fannst alltaf svo ynd-
islegt að koma til þín, koma við
mjúku hendurnar þínar og sitja
með þér. Ég elska þig, elsku
yndislega amma mín og geymi
þig ávallt í minningunum. Hvíldu
í friði.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Guðrún Kristín.
Guðrún
Magnúsdóttir