Morgunblaðið - 03.10.2014, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þegar þú hefur ekki efni á einhverju
sem þig langar í skaltu ekki sannfæra sjálfa
þig um að þú þarfnist þess hvort eð er
ekki. Hafðu ekki áhyggjur af því að þú sért
of bjartsýn.
20. apríl - 20. maí
Naut Heimurinn er leikherbergið þitt og þar
eru öll leikföngin sem þig hefur nokkru
sinni langað í. Hugsaðu þig vandlega um
áður en þú vekur slíkan áhuga hjá almenn-
ingi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vandamálin hverfa ekki þótt þú
stingir þeim undir stól. Mundu að ekki hafa
allir sömu skoðanir á hlutunum og það ber
líka að virða. Um hjartað gegnir öðru máli.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hugsanlegt er að þú biðjir kolranga
manneskju að hjálpa þér við eitthvað. En
veldu þá viðfangsefnin af kostgæfni, þannig
að hjálpin skili sér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er sú staða uppi að þér er betra
að leita þér samstarfsmanna en leysa málin
upp á eigin spýtur. Verkefni sem krefjast
einbeitingar og úthalds liggja vel fyrir þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að hrekjast ekki til þess að
taka ákvarðanir áður en þú hefur hugsað
málin til hlítar. Taktu það ekki nærri þér
þótt einhverjir fetti fingur út í verk þín.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur úr fjölmörgum tækifærum að
velja og þarft hvergi að óttast að þú ráðir
ekki við hlutina. Farðu vel yfir stöðuna og
þá finnurðu hvað vantar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur mikla trú á peningum,
og þeim mun meira sem þú treystir þeim,
þeim mun meira eignastu af þeim. Gættu
þess að ganga ekki á hlut annarra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einhver fyrrverandi gæti eyði-
lagt fyrir þér rómantískt ráðabrugg. Mundu
að sjaldan veldur einn þá tveir deila.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hafðu opin augu fyrir því hvað
kemur þér í varnarstöðu. Stundum skiptir
það ekki öllu máli að hafa rétt fyrir sér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt gott sé að láta sig dreyma
má ekki láta draumana ná yfirhöndinni.
Sestu niður, taktu þér tak og veldu úr það
sem þú vilt vinna.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Taktu til hendinni og losaðu þig við
það sem þú telur þig ekki hafa þörf á. Vilj-
irðu vinna þig í álit skaltu samt reyna aðrar
og betri aðferðir.
Á laugardaginn skrifaði BjarkiKarlsson: „Á „Kristsdegi“ í
dag var fólk beðið að biðja fyrir
mér (villuráfandi sauð í kristinni
hjörð), en líka fyrir forseta, ríkis-
stjórn, Alþingi, embættismönnum,
starfsfólki ráðuneyta og ríkisstofn-
ana, borgar- og sveitastjórnum,
dómstólum, lögreglu og Tollstjóra-
embættinu – svo dæmi séu tekin úr
erindisbréfi samkomunnar.
Þó öfgasveitir ekki beint ég styðji
og aldrei lepji te úr þeirra bolla
þá finnst mér sætt að farísear biðji
fyrir þeim sem heimta af okkur tolla.“
Á þriðjudag hafði DavíðHjálmar
Haraldsson orð á því á Leirnum að
illa horfði með snjó og skíðaferðir í
Hlíðarfjalli því að báðir snjógerðar-
mennirnir hefðu hætt störfum. –
Yfirmenn bæjarins verða að grípa
til fyrri vinnubragða, segir hann,
svo að skíðavertíðin fari ekki for-
görðum.
Skaflar í fjallinu fylla öll gil
uns fannirnar bráðna með vori og hlýju.
Nú hættu þeir báðir sem búa snjó til
og Bærinn minn ákallar Drottin að nýju.
Fía á Sandi varpar því fram á
Leirnum hvort ekki verði að yrkja
um eldgosið?
Í jöklum gerir, hrynur harðar
hristist ís og skelfur grjót.
Eins og blóð úr iðrum jarðar
eldur spýtist himni mót.
Og skýrir síðan frá því í kjölfarið
að hún hafi farið til Ítalíu með
Landssambandi harmonikuunn-
enda og sjaldan skemmt sér betur.
– „Fyrir utan að sjá margt og heyra
í því landi var spilað, dansað og
sungið fram á nótt og engar
áhyggjur hafðar af gosi, fésbók eða
leir. En nú er ég semsé komin heim
með tollinn og að tölvunni.
Yfir landið lægðir streyma
lognið er á hraðri ferð.
Ligg ég inni og læt mig dreyma
liðna Ítalíuferð.
Lengi má nú finna flösku
fer ég senn að bragða á þeim.
Ég sá fyrir mér sand og ösku
suðurfrá, er kæmi ég heim.
En svo var allt með kjörum kyrrum
kyrrt mitt hús á sinni lóð
eins og nú og ætíð fyrrum
engin mengun hvergi flóð.
„Þetta er bara svona,“ segir Ár-
mann Þorgrímsson:
Nú er ég að verða vitlaus
veldur sjálfsagt aldur minn
andinn sljógvast, orðinn bitlaus
opnast varla kjafturinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af faríseum, Ítalíuför og
snjógerðarmönnum
Í klípu
Ó NEI, ÞESSI FLÍS HEFUR SKOTIÐ
RÓTUM. ÞÚ ÆTTIR AÐ RÁÐFÆRA ÞIG
VIÐ SKÓGFRÆÐING.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞAÐ MUN TAKA ÞIG NOKKRA DAGA AÐ
VENJAST ÞEIM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ...að horfa alltaf á
björtu hliðarnar.
AAAA, ÁRBÓKIN MÍN ÚR
MENNTÓ
„RÓN
RÓNSSON.“
ÉG MINNIST ÞESS ENN
ÞEGAR NAFNIÐ MITT
VAR LESIÐ UPP
„TAKK FYRIR
SÖGUNA,
RÓN.“
„ERT ÞETTA
ÞÚ,
HRÓLFUR?“
„JÁ“ „AF HVERJU ERTU
Í ÞESSARI
BRYNJU?“
„ÉG ER FJÓRUM
TÍMUM OF SEINN Í
KVÖLDMATINN“
Helsta afrek Íslendinga á íþrótta-sviðinu er gull í íshokkíi á Ól-
ympíuleikunum í Antwerpen í Belg-
íu 1920. Fálkarnir frá Winnipeg
kepptu þá fyrir hönd Kanada og
sigruðu með glæsibrag, en allir leik-
mennirnir fyrir utan einn voru af ís-
lenskum ættum.
x x x
Fálkarnir voru fyrstu ólympíu-meistarar sögunnar í íshokkíi.
Eins og aðrir afreksíþróttamenn
lögðu þeir mikið á sig til þess að ná
árangri og voru einfaldlega betri en
mótherjarnir. Þeir beittu hvorki
bellibrögðum né slagsmálum til að
ná settu marki heldur voru skipu-
lagðir í leik sínum og unnu vel sam-
an auk þess sem einstaklings-
framtak ein stakra manna kom
mótherjunum í opna skjöldu.
x x x
Slagsmál hafa stundum loðað viðíþróttina en það er mikill mis-
skilningur að þau séu hluti hennar.
Til fellið er að vanstilltir menn hafa
stundum brugðið á það ráð að beita
valdi í keppni og athygli hefur beinst
að þeim fyrir vikið. Sektir og leik-
bönn viðkomandi hafa yfirleitt ekki
fengið eins mikla umfjöllun.
x x x
Það er þó ekki algilt. Hörð viður-lög eru við ofbeldi í amerísku
NHL-deildinni í íshokkíi og þess eru
dæmi að leikmaður hafi fengið lífs-
tíðarbann vegna framkomu sinnar. Í
sumum tilvikum hafa árásir í leik
leitt til opinberra dómsmála og of-
beldi innan vallar hefur gert það að
verkum að leikmenn, sem hafa orðið
fyrir árásum hafa orðið að hætta að
spila vegna meiðslanna.
x x x
Víkverji sá í sjónvarpi frá leik í Ís-landsmótinu í íshokkíi fyrir
skömmu. Í stuttu myndskeiði var
sjónum fyrst og fremst beint að
slagsmálum og brosandi upphafs-
manni þeirra eftir að honum var vik-
ið af velli. Þetta er slæmt fordæmi,
bæði hjá ofbeldisseggjunum og einn-
ig hjá sjónvarpinu en vonandi læra
menn af mistökunum. Það yrði þess-
ari göfugu og skemmtilegu íþrótt til
heilla. víkverji@mbl.is
Víkverji
Allt sem faðirinn gefur mér mun
koma til mín og þann sem til mín
kemur mun ég alls eigi brott reka.
(Jóhannesarguðspjall 6:37)
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00
F
A
S
TU
S
_E
_3
1.
08
.1
4
Muna að drekka vatn
Veit á vandaða lausn
• Venjulegt vatn + sódavatn
• Tengist beint við vatnslögn
• Sparar pláss þar sem ekki þarf vatnsdunk
• Hægt að stilla hitastig vatns frá 5-20°C
• Ljós kemur þegar þrífa þarf vél eða skipta um filter
Frábær vatnsvél fyrir fyrirtæki