Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 0. O K T Ó B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 237. tölublað 102. árgangur
BÍLAR
NÝSKÖPUN
BLÓMSTRAR OG
STÖRF SKAPAST
40 SÍÐNA AUKA-
BLAÐ UM ÖKUTÆKI SUÐURNES 16
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Uppsafnaður rekstrarhalli af þjón-
ustu sveitarfélaganna við fatlað fólk,
frá því þau tóku við þjónustunni af
ríkinu 2011, verður líklega orðinn
um tveir milljarðar í lok þessa árs.
Þetta kom fram í erindi Karls
Björnssonar, framkvæmdastjóra
Sambands íslenskra sveitarfélaga, á
fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í
gær. Karl sagði að tekjur sveitarfé-
laga vegna þjónustunnar hefðu
hækkað umfram verðlagsþróun um
3,7 milljarða á fjögurra ára tímabili.
Engu að síður hefði safnast upp halli.
Aðalástæðan er að þeim sem njóta
þjónustunnar hefur fjölgað mikið frá
ársbyrjun 2011. Skýrsla Félagsvís-
indastofnunar bendir til þess að hóp-
urinn sem þiggur þessa þjónustu
hafi stækkað um 30% frá yfirfærsl-
unni frá ríki til sveitarfélaga og fram
á mitt þetta ár.
Þjónustuþáttum við fatlað fólk
hefur fjölgað og magn þjónustunnar
vaxið frá því að sveitarfélögin tóku
við henni. Karl taldi þetta benda til
þess að þörf hefði verið fyrir þjón-
ustu við fatlað fólk sem ríkið ekki
sinnti en sveitarfélögin sinna nú.
„Það þarf að endurskoða kostnað-
inn við þennan málaflokk og semja
við ríkið um að sveitarfélögin fái
meira en nú. Auk þess þurfa ríki og
sveitarfélög að semja áætlun um
hvernig eigi að svara nýjum kröfum
um búsetu sem eru gerðar í fram-
kvæmdaáætlun í málefnum fatl-
aðra,“ sagði Karl. Þar er m.a. gerð sú
krafa að í stað herbergjasambýla
komi sjálfstæð búseta, eða einka-
rými. Gert er ráð fyrir að þessar
breytingar kosti sveitarfélögin um
1,3 milljarða á ári til ársins 2020.
Þessar breytingar þarf að fjármagna
sérstaklega, að mati Karls.
Uppsafnaður halli tveir milljarðar
Þjónusta við fatlaða hefur aukist mikið frá því sveitarfélögin tóku við af ríkinu
Ljósmynd/Samband íslenskra sveitarfélaga
Fjármálaráðstefna Karl Björnsson.
Sólin braust í gegnum eldgosamóðuna úr Holu-
hrauni sem lá yfir höfuðborgarsvæðinu í gærmorg-
un. Gosmóðan olli því að sólin varð rauð sem blóð.
Þegar sólin reis hærra á himni varð hún jafn skín-
andi björt og alla jafna. Því er spáð að í dag muni-
gosmóðan breiðast yfir nær allt Suðurland.
Morgunblaðið/Golli
Blóðrauð sólarupprás
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íbúðalánasjóður hefur hækkað hámark
íbúðaláns úr 20 milljónum í 24 milljónir.
Sjóðurinn býður aðeins verðtryggð lán.
Sigurður Erlingsson, forstjóri sjóðsins,
segir að sjóðurinn
hafi verið „hættur
að vera eðlilegur
þátttakandi á lána-
markaði“ og því
hafi verið brýnt að
hækka hámarks-
lán. ÍLS hefur hins
vegar hætt við að
bjóða óverðtryggð
lán. „Þau eru ekki
lengur til skoðunar
vegna breytinga á
framtíðarhlutverki
sjóðsins. Það er
ekki talið tímabært
að fara að veita slík
lán meðan framtíðarhlutverkið og umfang
ríkisábyrgða á skuldum sjóðsins er í mót-
un,“ segir Sigurður um þessa ákvörðun.
Breytir samkeppnishæfninni lítið
Yngvi Harðarson, framkvæmdastjóri
Analytica, telur að hækkun hámarksláns
hjá ÍLS muni ekki hafa mikil áhrif á sam-
keppnishæfni sjóðsins gagnvart almennum
lántökum. Hún geti hins vegar batnað
gagnvart tekjulægri hópum sem ekki kaupa
eins dýrar eignir. Sjóðurinn muni eftir sem
áður aðeins lána verðtryggt á föstum vöxt-
um til 40 ára. Lántakar sýni nú öðrum lána-
formum áhuga. Þá m.a. lánum með styttri
vaxtabinditíma og á lægri vöxtum.
Oddgeir Á. Ottesen, framkvæmdastjóri
hjá Integra ráðgjöf, segir minnkandi mark-
aðshlutdeild Íbúðalánasjóðs benda til að
lántakar telji bankana bjóða betri kjör.
MHámarkið hækkað »4
Hækka
íbúða-
lánin
ÍLS mun ekki bjóða
óverðtryggð íbúðalán
40 milljarðar
» Laust fé ÍLS er
nú um 40 millj-
arðar króna.
» Það hefur
safnast upp
vegna hlutafjár-
aukningar og
uppgreiðslna af
lánum sjóðsins.
Landsvirkjun hefur uppfært við-
bragðsáætlanir sínar vegna rofs á
stíflu Hágöngulóns í kjölfar eldgoss
í Köldukvíslarjökli.
Talið er ólíklegt að eldgosið í
Holuhrauni teygi sig inn á vatna-
svið Þjórsár. Komi til þess að
bræðsluvatn flæði inn í Hágöngulón
mun hjástífla þess rofna og vatnið
renna í Kvíslaveitu. Í áætlunum er
gert ráð fyrir að Svartárstífla verði
rofin handvirkt og hlaupvatninu
stýrt niður í farveg Þjórsár. Sultar-
tangalón getur dempað flóð af
ákveðinni stærð en ef það verður
stærra en yfirfallið ræður við verð-
ur að tappa af lóninu áður en flóðið
kemur til að draga úr flóðtoppnum
og dreifa honum á lengri tíma. Til-
gangurinn er að draga úr skemmd-
um á virkjunum og flóðum í Þjórsá
neðan virkjana. »12
Áætlanir vegna
flóða uppfærðar
Flóð Þjórsá mun breiða töluvert úr sér, of-
an og neðan virkjana Landsvirkjunar.
Hjúkrunar-
heimili á höfuð-
borgarsvæðinu
bjóða flest upp á
hársnyrtiþjón-
ustu fyrir heim-
ilisfólk sitt. Í lít-
illi könnun
Morgunblaðsins
á verðskrám
heimilanna fyrir þjónustuna kom á
daginn að í öllum tilvikum var hún
ódýrust á Grund.
Hársnyrtar eru í starfi hjá
Grund, en á öðrum heimilum er að-
staðan leigð út til verktaka.
agnes@mbl.is »4
Hársnyrtingin er
ódýrust á Grund