Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Efnt verður til októberhátíðar í
miðborg Reykjavíkur frá kl. 14 á
laugardag.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg verður hátíðin í
anda íslenskra töðugjalda, gestrisni
og uppskeruhátíðar en með þýsk-
íslensku ívafi, harmonikkutónlist,
lúðrablæstri og söng, munngát og
léttum veitingum.
Hafa verslanir og veitingahús
sameinast um að bjóða sértilboð og
léttar veitingar.
Þetta er í fyrsta sinn sem októ-
berhátíð af þessum toga er haldin í
miðborginni. Nánar er hægt að
skoða dagskrána á vefnum mid-
borgin.is.
Október-
hátíð í
Reykjavík
Hátíðin verður í
anda töðugjalda
Morgunblaðið/Golli
Í miðborginni Októberhátíð verður
í miðborg Reykjavíkur á laugardag.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Mikil umskipti urðu í rekstri Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
milli ára 2012 og 2013.
Þetta kemur fram í útdrætti úr
ársreikningi VG sem birtur hefur
verið á vef Ríkisendurskoðunar. Út-
drættir sex flokka birtust fyrir síð-
ustu helgi og var sagt frá þeim í
Morgunblaðinu. Þrír flokkar höfðu
þá ekki skilað útdrætti og er sagt frá
fjármálum þeirra hér. Tekjur VG
minnkuðu milli ára, fóru úr 92,4
milljónum 2012 í 88,5 milljónir 2013.
Rekstrargjöldin nær tvöfölduðust,
fóru úr 66,93 milljónum 2012 í 123,88
milljónir 2013. Hagnaður upp á 22,7
milljónir varð á rekstrinum 2012 en í
fyrra varð 42,73 milljóna króna tap.
Gjöld aukast meira en tekjur
Tekjur Framsóknarflokksins voru
rúmar 88,5 milljónir 2012, borið sam-
an við 110,716 milljónir króna í fyrra.
2012. Rekstrargjöldin aukast hins
vegar mun meira, fara úr 66,3 millj-
ónum 2012 í 135,2 milljónir 2013.
Fyrir vikið verða umskipti í rekstr-
inum. Hagnaður upp á 9,43 milljónir
2012 breytist í 19,12 milljóna króna
tap 2013.
Píratar buðu fyrst fram til Alþing-
is í fyrra. Tekjur flokksins á árinu
2013 voru 12,37 milljónir króna.
Rekstrargjöldin voru 8,1 milljón
króna. Hagnaður var á árinu 2013 að
fjárhæð 3,88 milljónir króna.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu sl. laugardag tapaði Sjálf-
stæðisflokkurinn 126,9 milljónum
2013. Samfylkingin tapaði 55,3 millj-
ónum og Björt framtíð tapaði 10,87
milljónum króna. Þá tapaði Hreyf-
ingin 257 þúsund krónum.
Besti flokkurinn hagnaðist hins
vegar um 852 þús. og hagnaður varð
hjá Lýðræðisvaktinni upp á 428 þús.
Besti flokkurinn var lagður niður
fyrir sveitarstjórnarkosningarnnar í
fyrra og rann inn í Bjarta framtíð.
VG tapaði 43 milljónum í fyrra
Morgunblaðið/Ómar
2013 Margir flokkar töpuðu fé.
Ríkisendurskoðun birtir útdrætti úr ársreikningum stjórnmálaflokkanna 2013
Reykjavíkurborg
biður nú borg-
arbúa í fjórða
sinn um að leggja
til hugmyndir að
verkefnum í
hverfum borg-
arinnar. Kosið
verður á milli
hugmynda borg-
arbúa í hverfa-
kosningum á næsta ári. Íbúar geta
nú farið inn á samráðsvefinn betr-
ireykjavik.is og lagt þar inn hug-
myndir sem fegra umhverfið og
bæta ýmsa aðstöðu í hverfunum. Op-
ið verður fyrir innsetningu hug-
mynda til 7. nóvember næstkom-
andi.
Reykjavíkurborg mun leggja 300
milljónir króna til hverfapotta á
næsta ári. Þessir peningar fara í að
framkvæma hugmyndir sem borg-
arbúar leggja sjálfir til. Að auki
sinnir borgin ýmsum nauðsynlegum
viðhaldsverkefnum í hverfunum,
segir í tilkynningu frá borginni.
Nú er verið að leggja lokahönd á
78 verkefni sem kosin voru á þessu
ári í hverfum borgarinnar.
Biður um hug-
myndir frá
borgarbúum
Reykjavíkurborg.
Byltingarkennd
vetrar- og heilsársdekk
UMBOÐSMENNUMLANDALLT
Mikil gæði á afar
sanngjörnu verði!
Margir af þekktustu
bílaframleiðendum
í heimi kjósa að búa
nýja bíla sína dekkjum
frá Hankook.
Ástæðurnar eru mikil
gæði, frábært verð og
öryggi. Meðal þeirra
eru BMW, Audi, VW
og Ford.
Nýjasta kynslóð korna-
dekksins frá Hankook.
Frábært heilsárs
dekk. Dekkið er með
sérstaklega hertum
trefjanálum í gúmmí-
blöndunni sem grípa
í svellið og gefa aukið
grip í hálku. Mjúkt dekk
sem endist gríðalega
vel og vetrargripið
er framúrskarandi
12
mánaða
V
A
X
TALAUSA
R
A
F
B O R G A N
I R
Korna
dekk
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj
Fitjabraut 12, Njarðvík Austurvegi 52, Self. solning.is
W419 W606
– Síðan 1941 –
Skútuvogi 2 Sími 568 3080 www.bardinn.is 544-5000