Morgunblaðið - 10.10.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Viðskiptaráðog BSRB
hafa síðustu
daga deilt um
hver fjölgun op-
inberra starfs-
manna hefur
verið hér á landi
það sem af er
öldinni. Við-
skiptaráð hefur talið fjölgunina
mikla en BSRB virðist telja hana
mjög hóflega. Hvorirtveggju saka
hinn um að fara rangt með tölur.
Inn í deiluna spilar meðal annarshvort ákveðinn hópur var á til-
teknum tíma inni í launavinnslu-
kerfi ríkisins eða ekki og hvernig
telja á áhrifin af flutningum verk-
efna á milli ríkis og sveitarfélaga,
en hluti deilunnar snýst um að
stundum er talað um ríkisstarfs-
menn og stundum um opinbera
starfsmenn.
Viðskiptaráð og BSRB hafa ekkienn náð saman um tölurnar,
en þó er það svo að samkvæmt Við-
skiptaráði (sem segist hafa það eft-
ir fjármálaráðuneytinu og Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga, og
BSRB hefur ekki mótmælt) eru op-
inber stöðugildi nú 36.880 en voru
28.700 um aldamótin. Þetta er
fjölgun upp á 29% en á sama tíma
segir Viðskiptaráð að fjölgun á al-
mennum markaði hafi verið 10%.
Séu þessar tölur nærri lagi erljóst að þróunin er áhyggju-
efni. Með því er ekki gert lítið úr
störfum opinberra starfsmanna, að-
eins bent á að opinberi geirinn má
ekki vaxa umfram hinn án þess að
illa fari.
Því miður er tilhneigingin oft tilþess að auka við hjá ríki og
sveitarfélögum, það er vel þekkt úr
opinberri umræðu. Þess vegna er
sú áminning sem felst í deilu Við-
skiptaráðs og BSRB af hinu góða.
Opinber
starfsmannadeila
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 9.10., kl. 18.00
Reykjavík 9 léttskýjað
Bolungarvík 6 alskýjað
Akureyri 7 rigning
Nuuk 7 skúrir
Þórshöfn 10 þoka
Ósló 10 skúrir
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Helsinki 11 skúrir
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 12 skýjað
London 13 skúrir
París 17 léttskýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 heiðskírt
Berlín 21 heiðskírt
Vín 21 léttskýjað
Moskva 10 heiðskírt
Algarve 22 skúrir
Madríd 18 skýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 26 heiðskírt
Róm 22 heiðskírt
Aþena 20 heiðskírt
Winnipeg 3 skýjað
Montreal 11 skúrir
New York 17 heiðskírt
Chicago 13 skýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:04 18:27
ÍSAFJÖRÐUR 8:13 18:27
SIGLUFJÖRÐUR 7:56 18:10
DJÚPIVOGUR 7:34 17:55
Hæstiréttur hefur snúið við dómi
Héraðsdóms Norðurlands vestra og
dæmt skólastýru Blönduskóla á
Blönduósi til að greiða tvítugri
konu, fyrrverandi nemanda skól-
ans, hálfa milljón króna fyrir að
hafa brotið gegn friðhelgi hennar.
Skólastýran afhenti ríkissaksókn-
ara dagbók stúlkunnar án leyfis
hennar.
Málavextir voru þeir að eftir for-
varnafyrirlestur í skólanum í jan-
úar 2010 ræddi stúlkan við fyrirles-
arann og skólastýruna og sendi í
kjölfarið fyrirlesaranum dagbók
sína. Hann sendi dagbókina til
skólastýrunnar. Fjórum mánuðum
síðar kærði stúlkan eiginmann
skólastýrunnar fyrir kynferðisbrot
en hæstiréttur sýknaði manninn og
spilaði dagbók stúlkunnar þar stór-
an þátt.
Í samtali upplýsti skólastýran
ríkissaksóknara um að hún hefði
dagbók stúlkunnar í sinni vörslu og
afhenti ríkissaksóknara bókina að
hans ósk. Hæstiréttur taldi að af-
hending skólastýrunnar á dagbók
stúlkunnar til ríkissaksóknara
hefði ekki falið í sér ólögmæta og
saknæma háttsemi. Á hinn bóginn
var talið að með því að upplýsa sak-
sóknara um tilvist dagbókarinnar,
að því er virðist að eigin frumkvæði
og í því skyni að styðja við vörn eig-
inmanns síns í sakamálinu á hendur
honum, hefði skólastýran vísvitandi
brotið gegn þagnar- og trún-
aðarskyldu sem á henni hvíldi sem
skólastjóra.
Braut gegn
friðhelgi
nemanda
Afhenti dagbók
stúlkunnar án leyfis
Morgunblaðið/Ómar
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins til að berjast
gegn krabbameinum hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum
og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Styrkjum starfsemi
Krabbameinsfélagsins
Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Tökum
bleikan bíl!