Morgunblaðið - 10.10.2014, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Í krafti sannfæringar – saga lög-
manns og dómara, bók Jóns Stein-
ars Gunnlaugssonar, fyrrverandi
hæstaréttardómara, kom út í gær.
Höfundurinn hélt upp á útkomuna
með ættingjum, vinum, velunnurum
og forleggjara í Eymundsson í
Kringlunni.
„Eftir að ég hætti í Hæstarétti
haustið 2012, ákvað ég að skrifa rit-
gerð um það hvaða lagareglum ég
teldi að þyrfti að breyta um starf-
semi dómstóla á Íslandi, til þess að
koma þessu í betra horf. Þá ritgerð
skrifaði ég og hún kom út í fyrra.
Hún heitir Veikburða Hæstiréttur.
Hún er öllum aðgengileg á netinu.
Í framhaldi af því ákvað ég að
skrifa mína eigin sögu. Bókin er
þannig ekki takmörkuð við tíma
minn í Hæstarétti. Ég hafði bara
þörf fyrir að gera þetta, kannski
vegna þess að ég er búinn að lesa
svo margar vitleysur sagðar um
mig! Ég vil bara segja söguna eins
og hún horfir við mér og ef menn
kæra sig um að halda áfram að segja
einhverjar vitleysur um mig, þá
bara gera þeir það.“
Jón Steinar segist hafa byrjað að
skrifa bókina snemmsumars í fyrra
og lokið skrifunum meira og minna
um síðustu áramót. Eftir það hafi
hann lagfært, leiðrétt og fengið góða
menn til að lesa handritið yfir og
koma með ábendingar. Hún hafi svo
verið fullfrágengin í ágúst
„Ég var með heimsmeistara í um-
broti sem braut um bókina, Gunn-
laug Briem, sem búsettur er í Sviss.
Hann er ótrúlega fær og ég er mjög
stoltur af hans vinnu,“ segir Jón
Steinar. Aðspurður hvað í bókinni
hann telji að eigi eftir að vekja
sterkustu viðbrögðin, segir Jón
Steinar: „Ég býst við því að það
verði eitthvað úr lokakaflanum, þar
sem ég segi frá starfi mínu í Hæsta-
rétti. Ég held að íslenska þjóðin hafi
aldrei fengið að líta inn fyrir þrösk-
uldinn í þessari þýðingarmestu
stofnun sinni. Stofnun þar sem mál-
um sem virkilega skipta menn miklu
og ganga nærri hjarta þeirra, er
ráðið til lykta. Það er alveg ótækt,
vegna þess að menn eiga rétt á að
vita hvernig með þá er farið og
hvernig kaupin gerast á eyrinni og
með þessum lokakafla er ég að
reyna að gefa mönnum innsýn í
það.“
Jón Steinar telur að umfjöllun
hans um það hvernig tíðarandinn í
samfélaginu virðist á stundum hafa
haft afgerandi áhrif á dómstóla
muni einnig vekja eftirtekt. Þar eigi
hann fyrst og fremst við það sem
gerðist í Baugsmálum, þar sem mál-
um var vísað frá í gríð og erg og svo
það sem gerst hafi eftir hrun, þegar
öfgarnar séu alveg í hina áttina.
Þjóðin aldrei litið inn
fyrir þröskuldinn
Í krafti sannfæringar, bók Jóns Steinars, kom út í gær
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Áritun Jón Steinar Gunnlaugsson fagnaði ásamt gestum útkomu bókar sinn-
ar, Í krafti sannfæringar – saga lögmanns og dómara, í Eymundsson í gær.
Glæsilegt úrval
af náttfatnaði
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Ný sending
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur sem
felldi úr gildi úrskurð áfrýj-
unarnefndar samkeppnismála og
gerði íslenska ríkinu að greiða Víf-
ilfelli til baka 80 milljónir króna
sem fyrirtækinu var gert að greiða
vegna samkeppnisbrota. „Vífilfell
lýsir yfir ánægju sinni með dóm
Hæstaréttar og fagnar því að nið-
urstaða sé loks fengin í málið,
meira en 7 árum eftir að Sam-
keppniseftirlitið hóf að eigin frum-
kvæði athugun sína,“ sagði í til-
kynningu frá fyrirtækinu í gær.
Samkeppniseftirlitið ákvarðaði
2011 að Vífilfell hefði á árunum
2005-2008 brotið gegn samkeppn-
islögum og 54. gr. samnings um
Evrópska efnahagssvæðið með
gerð fjölda viðskiptasamninga við
endurseljendur á gosdrykkjum, og
gerði fyrirtækinu sekt að fjárhæð
260 milljónir króna. Áfrýj-
unarnefnd samkeppnismála stað-
festi ákvörðunina sama ár en
lækkaði sektarfjárhæðina. Vífilfell
höfðaði í kjölfarið mál á hendur
Samkeppniseftirlitinu og íslenska
ríkinu.
Í tilkynningu frá Samkeppn-
iseftirlitinu segir að eftirlitið muni
yfirfara forsendur dóms Hæsta-
réttar en efnisdómur hafi ekki
fengist í málinu. Til álita komi að
fram fari ný rannsókn á aðgerðum
Vífilfells.
Ríkið end-
urgreiði 80
milljónir
Ný rannsókn
kemur til greina
mbl.is
alltaf - allstaðar