Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Sameinuðu þjóðirnar ákváðuað hafa 21. mars sem al-þjóðlegan skógræktardag(worldwoodday) ár hvert,
og þessi sýning var haldin í
tengslum við þennan dag. Þarna
voru fyrirlestrar og allt sem teng-
ist timburvinnu almennt, fjölmarg-
ar sýningar, vinnustofur og fyr-
irlestrar til að vekja vitund um
skógrækt og nytjar skóga,“ segir
Jón Adolf Steinólfsson, mynd-
höggvari sem vinnur í tré, um al-
þjóðlega sýningu í Kína sem hann
tók þátt í síðastliðið vor.
„Ég hef verið mjög duglegur
að auglýsa sjálfan mig á alheims-
netinu og ég hef tvisvar haldið sýn-
ingar bæði í Japan og Ameríku. Ég
fékk póst í janúar á þessu ári þar
sem mér var boðið að koma og
taka þátt í þessari risastóru sýn-
ingu í Kína og ég hélt fyrst að
þetta væri gabb. En þegar ég
skoðaði þetta betur komst ég að
því að þetta væri í góðu lagi og að
þetta var í annað sinn sem slík
sýning er haldin, í fyrra var hún í
Tansaníu. Samtökin Woodcraft
assosiation höfðu samband við mig
og ég átti að vinna eitt verk á
staðnum með öðrum listamönnum
og vera til sýnis að störfum fyrir
gesti sýningarinnar. Þetta var
rosalega stórt dæmi, þarna var
fólk alls staðar að úr heiminum og
þarna voru 70 listamenn að störf-
um, myndhöggvarar, hús-
gagnasmiðir og rennismiðir. Þetta
var alveg magnað.“
Jón segir að þau hafi verið í
fjóra daga í borginni Xianyou en
síðan fóru þau í aðra borg,
Wenzhou, þar sem þau unnu í
skóla fyrir fötluð börn. „Við kynnt-
um tréskurðinn fyrir þeim og skól-
inn var kynntur fyrir okkur. Ég
var alveg heillaður, þetta var frá-
bær skóli þar sem mikið var gert
fyrir þessi börn. Síðan fórum við til
Beijing og unnum líka þar í skóla.“
Seldi tvö verk úti í Kína
Jón segir að hann hafi ekki
vitað hverju hann ætti von á í þess-
ari ferð. „Ég fór af stað með opinn
huga, en fyrst og fremst til að ná
sér í sambönd, sem skiptir miklu
máli. Ég tók tvö listaverk með mér
út sem ég seldi. Og ég kynntist
mörgu fólki í tréskurðarheiminum.
Þegar ég var úti kom til mín Ástr-
ali, Terry Martin, og spurði hvort
ég hefði áhuga á ef upp kæmi sú
staða að taka þátt í tréskurð-
arkeppni og ég játti því. Síðan fékk
Fór af stað með opinn huga
Hann tók þátt í tréútskurðarsýningu í Kína í vor og
nú er hann farinn aftur þangað til að taka þátt í
útskurðarkeppni. Jón Adolf Steinólfsson er duglegur
að kynna sig og verk sín á alheimsnetinu og hefur
meðal annars selt verk til Japan, Ameríku og Kína.
Sami svipur? Jón með eitt verka sinna, djúpt þenkjandi andlit.
Vandvirkni Hér er kínverskur útskurðarmaður að verki á sýningunni.
Verk Jóns Sérstakt andlit.
Hann naut lífsins í gær þessi gibbon-
api þar sem hann sat uppi í tré og
horfði yfir sviðið, en hann býr á vernd-
arsvæði villtra dýra í Jorhat á Indlandi.
Þessi litfagra tegund gibbonapa er ein
þeirra sem eru í hvað mestri útrým-
ingarhættu á Indlandi.
Dýr merkurinnar
Sjaldgæft lit-
fagurt apaskott
AFP
Sólskinsbarn Sjaldgæfur og sætur.
Sannarlega er það með miklum ólík-
indum hversu háar upphæðir fólk er
tilbúið að borga fyrir dauða hluti, en
vissulega ekki hvaða hluti sem er,
heldur sjaldgæfa hluti eftir fræga
hönnuði, suma hverju löngu dána.
Japanski „költ“-hönnuðurinn, tón-
listarframleiðandinn og athafna-
maðurinn NIGO hélt nú í október
uppboð í Hong Kong á hlutum úr
einkasafni sínu. Margt var þar um
gersemar sem safnarar sækjast eftir,
meðal annars verk eftir Andy Warhol,
annað hinna frægu Campbell’s-
súpudósaverka hans, en það seldist á
litlar fimmtíu milljónir. Demanta-
skreytt armbandsúr eftir Richard
Mille seldist á 23 milljónir og svona
mætti lengi telja. Önnur verk voru
eftir Charlotte Perriand, Jean Prouvé
og fleiri víðfræga hönnuði.
Gera má ráð fyrir að þeir sem fjár-
festu í þessum rándýru gripum hafi
ekki endilega ætlað að setja þá upp á
vegg heima hjá sér eða stilla þeim
upp í stássstofunni, heldur frekar
ætlað að höndla með þá í heimi safn-
ara og miðlara.
NIGO hinn japanski seldi og seldi
Fólk er tilbúið til að borga ótrú-
lega háar upphæðir fyrir hluti
Dýr hönnun Bekkur með „Astro Boy“-skúlptúr eftir hönnuðinn Jean Prouvé
seldist á litlar 20 milljónir á uppboðinu.
Ungfrú Bandaríkin, Nia Sanchez, lét
ekki sitt eftir liggja í baráttunni gegn
brjóstakrabbameini og mætti á við-
burð í vikunni í bleikum bol ásamt
fjölda annarra bleikklæddra kvenna
sem einnig settu upp bleika hjálma,
sem hér má sjá á bak við fegurðar-
drottninguna. Konur voru hvattar til
að fara í krabbameinsskoðun.
Bleika baráttan
AFP
Glæsileg Hér stillir Nia sér upp.
Ungfrúin legg-
ur konum lið
Skjól vegn veðri og vindum
Uglueyrnaskjólin fást líka í svörtu en líka
sem rauður eða svartur refur. Við
hönnuðum þau sjálf og þau kosta 600 kr.
Sendum í póstkröfu.
S: 528 8200
Hlý eyru
Villidýr á verði
tiger.is · facebook.com/tigericeland