Morgunblaðið - 10.10.2014, Síða 11
Engin smásmíði Í Kína finnast risavaxin útskurðarverk. Hér er Jón við ofvaxna skepnu, skorna út í tré.
ég póst í júní þar sem mér var
boðið aftur til Kína, núna til að
taka þátt í þessari keppni sem
verður núna í október í
borginni Dongyang sem
er rétt hjá Sjanghæ.“ Jón
segir að það sé rótgróin
hefð fyrir þessari keppni en
hingað til hafi hún einvörð-
ungu verið fyrir Kínverja,
svo þetta er í fyrsta sinn
sem öðrum þjóðum er boðið
að taka þátt. „Tuttugu Kín-
verjar taka þátt og jafn-
margir erlendir gestir.
Þetta verður sex daga
vinna, frá átta á
morgnana til fimm á
daginn, en síðan verða
hátíðahöld í tíu daga á
eftir. Þetta verður rosa-
lega gaman og ég ætla að sjálf-
sögðu að gera mitt besta, ein-
hver verður að vinna þessi
verðlaun,“ segir
Jón og hlær, en
bætir við að þetta
sé stórt tækifæri fyrir
hann og allt sé borgað
fyrir hann, rétt eins og
þegar hann tók þátt í sýn-
ingunni í vor.
Vilja ný áhrif
Jón segir að Kínverjar
hampi sínum tréskurð-
armönnum mjög, því
þar sé útskurður
ævaforn hefð og list-
grein sem nýtur
mikillar virðingar.
„Oft er talað um að allt
sé stórt í Ameríku en þarna í Kína
er þetta risavaxið, útskurðarverk
sem þekja heilu veggina og ekkert
til sparað. Ég fór til dæmis í moll
sem var á sjö hæðum og nokkur
þúsund fermetrar, allt undir út-
skurð. Kínverjarnir vilja fá erlent
útskurðarfólk til að víkka út þessa
listgrein, því hefðin er svo inn-
stimpluð í þá, þeir vilja að heima-
menn brjótist út úr ákveðnum
munstrum.“ Þar sem einungis 20
alþjóðlegum listamönnum er boðið
að taka þátt í útskurðarkeppninni,
er Jón að vonum ánægður og stolt-
ur að keppa fyrir Íslands hönd.
Dómari Eitt
verka Jóns.
Heimasíða Jóns: jonadolf.com
Nánar um alþjóðlega skógrækt-
ardaginn: worldwoodday.org
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Sólin gægist inn umgluggann. Ég heyri ílæknum trítla niðurbrekkuna við hlið hússins.
Fuglarnir syngja sína fegurstu
tóna. Ilmurinn af grasinu fyllir öll
mín vit. Já, svona leið mér þegar
ég vaknaði í morgun. Þið gætuð
haldið að ég hefði vaknað úti í
sveit um hásumar. Raunin er hins
vegar sú að ég vaknaði í Breiðholt-
inu um miðjan október.
Nýlega flutti ég aftur í Selja-
hverfið þar sem ég ólst upp. Ég
var að vísu ekki búin að búa nema
í 1 ár á öðrum stað, og það í
miðbæ Reykjavíkur. Fyrir út-
hverfatúttu eins og mig fylgdi því
ákveðin tortryggni að flytja í
miðbæinn. Ég var búin að ímynda
mér svefnleysi sökum hávaða,
stanslausa bílatraffík og
dauðadrukkið fólk í bak-
garðinum. Ári síðar var
ég hins vegar dregin
nauðug út úr íbúðinni á
Ásvallagötu því mér var
farið að líka svo vel við
miðbæinn.
Fyrir skemmstu
fengum við kærastan
mín svo boð um það að
sleppa við að borga
himinháa leigu og búa
frekar í húsi móður
minnar sem annars
stendur autt. Þar sem
við vorum farnar að sjá
fram á að vera fastar á
leigumarkaðnum að eilífu
stukkum við á tækifærið
með gróðaglott á andlit-
inu. Sjö ára gamli snáð-
inn á heimilinu var al-
sæll með ákvörðunina
og fannst stórmerkilegt
að vera að flytja í Breið-
holtið.
Til að byrja með var það
frekar stór biti að kyngja
að við gætum ekki labbað í
bæinn. Við sáum fram á rándýrar
leigubílaferðir mörgum sinnum í
mánuði og vorum farnar að end-
urmeta allan gróðann sem við
hlytum út úr flutningunum. Við er-
um þó ekki meiri djammarar en
það að við höfum einu sinni tekið
leigubíl heim síðan við fluttum inn
fyrir næstum því tveimur mán-
uðum.
Það er nefnilega eitthvað sem
gerist þegar maður flytur
(aftur) í úthverfi. Ein-
hvers konar ró leggst
yfir mann og skyndi-
lega vill maður eyða
öllum sínum frítíma
heima hjá sér. Á
síðustu tveimur
mánuðum hef ég
til dæmis horft á
7 seríur af Fri-
ends og kúrt
meira en ég
hélt að væri eðli-
legt fyrir mann-
eskju. Snáðinn
fer út með vinum
sínum, veiðir síli
í læknum og
elskar frelsið
sem því fylgir að
búa ekki við hlið-
ina á Hringbraut-
inni. Enginn hefur
áhyggjur af neinu
og allir eru ham-
ingjusamir.
»Það er nefnilega eitt-hvað sem gerist þegar
maður flytur í úthverfi. Ein-
hvers konar ró leggst yfir
mann.
HeimurIngileifar
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
www.volkswagen.is
Snjall-Caddy kostar aðeins frá
3.250.000 kr.
(2.589.641 kr. án vsk)
Volkswagen Caddy
Snjallari kynslóð atvinnubíla
Atvinnubílar
Söluaðilar: HEKLA Reykjavík · Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
VW SNJALL-BÍLL
Aukabúnaður Snjall-Caddy
• Þráðlaust símkerfi
• Fjarlægðarskynjarar að aftan
• Stigalúga*
• Tveir fjarstýringarlyklar
• Fjarstýrð Webasto olíumiðstöð
með snjallsímabúnaði
• Sjúkrapúði
• Hraðastillir (Cruise Control)
Íslenskir atvinnurekendur vita að þegar þarf að kljást við misjafnar íslenskar aðstæður er þýskt
hugvit snjallasti mótleikurinn. Það er því engin furða að Volkswagen Caddy hefur verið mest seldi
atvinnubíll á Íslandi undanfarin ár.
Nýjasta útfærslan af Caddy er sú snjallasta til þessa. Með snjallsímanum þínum getur þú til
dæmis tíma- og fjarstýrt olíumiðstöðinni og tryggt þér hlýja og notalega byrjun á vinnudeginum.
Þetta er bara einn af nýjum eiginleikum í Caddy, vinnuþjarkinum þýska, sem er nú snjallari en
nokkru sinni fyrr.
Staðalbúnaður í Caddy
• Rennihurðir á báðum hliðum
• 15“ stálfelgur og heilkoppar
• Lokað skilrúm með glugga
• Fullkomin stöðugleikastýring og spólvörn
• Hæðarstillanlegt ökumannssæti
• Loftpúðar fyrir ökumann
• Útvarp með geislaspilara
• Klukka
• Fullkomin aksturstölva
• Glasahaldari
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Rafstýrðir upphitaðir hliðarspeglar
• Hæðarstillanlegt öryggisbelti
• Velti- og aðdráttarstýri
• Viðarklæðning í lofti og hliðum og
gúmmídúkur á gólfi flutningsrýmis
*Ekki mögulegur aukabúnaður í Caddy Maxi