Morgunblaðið - 10.10.2014, Side 17
Ljósmynd/Sigfús Már
Nýsköpun Heilsukoddi Huldu Sveins er eitt verkefnanna sem styrk fengu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bláa lónið Það laðar að og kveikir nýjar hugmyndir í ferðaþjónustu.
skammstafað SKASS, segir Þór-
anna nafngiftina vera afrakstur
heilmikillar hugmyndavinnu fjölda
félagskvenna. Samkvæmt íslenskri
orðabók hefur orðið skass ekkert
sérlega jákvæða merkingu, það
merkir ýmist kvenvargur eða frek
kona. „Ég held að nafnið fæli síður
en svo frá. Reyndar hafa allt of
mörg orð sem tákna sterkar konur
yfir sér neikvæðan blæ. Því miður
er búið að eyðileggja þessi orð. Það
er ekkert að því að vera skass,
sköss fá nefnilega heilmiklu áork-
að,“ segir Þóranna. „Við erum al-
veg meira en til í að bera þetta
nafn.“
Strákarnir mega vera með
En hvers vegna sérstakt félag
fyrir konur? „Hugmyndin er að
efla sérstaklega tengslanet kvenna,
það hefur sýnt sig að þar er þörf á.
En það er enginn sem segir að
strákarnir megi ekki koma, ef þeir
hafa áhuga á því.“
Þeir sem vilja vita meira um
samtökin geta kynnt sér þau á vef-
síðu þeirra: skass.org. „Skassið
orgar. Það ætti að vera auðvelt að
muna,“ segir Þóranna.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Suðurnes Atvinnuástandið þar hef-
ur verið verra en annars staðar.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Saga orkunnar, allt frá miklahvelli að nútímanum er rakin á sýn-
ingunni Orkuverið jörð á Reykjanesi, sem sett var upp árið 2008 í
stöðvarhúsi Reykjanesvirkjunar af HS-orku í samstarfi við fleiri
aðila. Ríkharður Ibsen er framkvæmdastjóri Bláa demantsins, sem
rekur sýninguna, sem er að hluta til gagnvirk. „Hingað kemur
mikið af fólki frá erlendum háskólum og stofnunum,“ segir Rík-
harður, spurður hverjir sæki sýninguna, og nefnir í því sambandi
hópa frá Hvíta húsinu og vatnsnefnd kínverska kommúnistaflokks-
ins. Yfirleitt hafi fólk hug á að kynna sér nýtingu jarðvarma, vatn
og fjölnýtingu orku. „En við vinnum líka í samstarfi við grunn- og
leikskóla hér á svæðinu.“
Yfir vetrartímann er eingöngu tekið á móti hópum á sýninguna,
en hluti hennar er utandyra og öllum opinn. Þar má m.a.finna líkön
af öllum plánetunum í sólkerfinu. Sólin sjálf er við inngang sýning-
arhúsnæðisins og síðan eru reikistjörnurnar staðsettar í í hlutfalls-
lega réttri fjarlægð og afstöðu þaðan. „Það gæti t.d. verið mjög
skemmtilegt fyrir fjölskyldur að fara í ratleik, leita að plánetunum
og fræðast um þær í leiðinni,“ segir Ríkharður. annalilja@mbl.is
Orkuverið jörð og sólkerfið eins og það leggur sig eru á Reykjanesi
Frá miklahvelli
til dagsins í dag
Ljósmynd/Orkuverið jörð
Plánetur Gagnvirkur skjár leiðir gesti sýningarinnar í gegnum allar reikistjörnurnar í sólkerfi okkar.
Einstein Honum og kenningum hans eru
gerð skil á sýningunni Orkuverinu jörð.
Mikil ásókn í vaxtarstyrkina
STYRKIR HJÁLPA FRUMKVÖÐLUM VIÐ NÝSKÖPUN
Mun fleiri sækja jafnan um styrki til ný-
sköpunar en hægt er að verða við. Þegar
vaxtarsamningur Suðurnesja auglýsti
aukaúthutun í ár bárust 23 umsóknir að
upphæð 38 milljónir. Úthlutað var 8 millj-
ónum til 8 verkefna. Eitt þeirra snýst um
aukna sjálfvirkni og bætta nýtingu við
skelvinnslu. Það hlaut 950 þúsund króna
styrk. Verkefnið er unnið af nemendum í
Keili á Ásbrú. Þar er gróska og þar hafa
fleiri hugmyndir orðið til að undanförnu.
Keilir Hugmyndir kvikna oft í
náminu á Ásbrú.
VITINN 2014
Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni
leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu-
lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda
blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is.
TIL SÖLU
Allar nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali
Sími: 480-2901 • Fax: 482 2801 steindor@log.is • www.log.is
Óskað er eftir tilboðum í Gistiheimilið Iðufell, Bláskógabyggð.
Miklir möguleikar á uppbyggingu ferðaþjónustu.
Um er að ræða 2,8 ha. eignarlóð, á glæsilegum stað rétt við bakka Hvítár, í þéttbýliskjarnanum
Laugarási, Bláskógabyggð. Á lóðinni er 2.003,1m² húsnæði. Húsið er skráð sem gistihús, byggt 1964.
Húsið er á tveimur hæðum. Neðri hæð hússins er innréttuð að hluta sem gistiheimili. Efri hæðinni er
skipt niður í þrjá sali. Húsið þarfnast viðhalds og endurbóta, bæði að innan sem utan. Fyrir liggur sam-
þykkt deiliskipulag
þar sem m.a. er gert
ráð fyrir núverandi
húsi, fimm ein-
býlishúsa- þremur
parhúsa- og fimm
raðhúsalóðum.