Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Stuttar fréttir ...
● Englandsbanki
ákvað í gær að
halda stýrivöxtum
bankans óbreytt-
um í 0,5%. Hafa
vextirnir núna verið
óbreyttir frá því í
mars árið 2009.
Tveir af níu með-
limum peninga-
stefnunefndar
töldu réttast að
hækka vexti bankans um 0,25 prósent-
ur í ljósi uppgangs í raunhagkerfinu.
Meirihlutinn vísaði hins vegar til þess
að iðnaðarframleiðsla færi minnkandi.
Englandsbanki heldur
stýrivöxtum óbreyttum
Seðlabankastjóri
Mark Carney.
verslun um 3% af öllum viðskiptum á
Íslandi í dag en í nágrannalöndum
okkar sé þessi tala 50% hærri. „Net-
verslun er sú verslun sem vex mest.
Þó svo að því sé ekki spáð að hún
verði meiri en 10% af allri verslun á
Íslandi á næstu fimm árum eru 10%
af heildarverslun gífurlega mikið.“
Verðum að grípa til aðgerða
Jón Diðrik kallar eftir því að grip-
ið sé í taumana sem fyrst. „Ef við
bregðumst ekki nógu hratt við mun
ekki byggjast upp sterk íslensk net-
verslun til að keppa við þá erlendu..“
Aðspurður hvernig hægt sé að
færa tekjur af netverslun til Íslands,
svarar hann: „Við þurfum að beita
þrýstingi á aðila eins og Netflix og
gera kröfu um að þeir starfi löglega
hér á landi en ekki óbeint eins og
þeir eru að gera. Það geta stjórnvöld
gert og hafa gert í öðrum löndum.“
Hann bendir á að Netflix starfi eðli-
lega annars staðar á Norðurlöndum.
Jón Diðrik er þeirrar skoðunar að
setja eigi lög um netverslun, að er-
lendri fyrirmynd. „Við eigum að
fylgja stefnum og straumum í kring-
um okkur. Í Evrópu og Bandaríkj-
unum eru mjög sterk lög þannig að
við þurfum ekki að finna upp hjólið.“
Netverslun færir
tekjur úr landi
Fjárfestir óttast að Ísland njóti ekki góðs af netverslun
Morgunblaðið/Rósa
Netverslun Íslendingar kaupa í ríkum mæli vörur á netinu og láta senda heim.
BAKSVIÐ
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
„Verði regluverkið ekki virkjað
þannig að íslenskum lögum sé fylgt í
raun, munu Íslendingar í takmörk-
uðum mæli njóta tekna, viðskipta og
skatttekna af aukinni netverslun,“
segir Jón Diðrik
Jónsson, fjárfest-
ir og fram-
kvæmdastjóri
Draupnis fjár-
festingafélags.
Hann hélt erindi
á fundi Lands-
bankans um fjár-
festingartækifæri
í verslun og þjón-
ustu í gær.
Að sögn Jóns
Diðriks koma tvær leiðir til greina í
framtíðinni eigi að takast að sporna
við því að verslunin færist úr landi.
Annars vegar óbreytt umhverfi þar
sem lögum sé fylgt en nokkur van-
höld eru á eftirfylgni með lögum.
Hins vegar sér hann fyrir sér leið
þar sem farið sé að evrópskum
reglum um netverslun, þar sem sam-
keppni innlendra og erlendra fyrir-
tækja sé sterk. „Þá spila fyrirtæki
eftir sömu leikreglum, óháð upp-
runa. Í því felast gífurleg tækifæri
fyrir neytendur og íslensk fyrirtæki
sem og erlend.“
Jón Diðrik telur að hvor leiðin sem
verði valin, verði verslun umbylt.
„Netverslun umbyltir bæði neyt-
endahegðun og þörfum. Neytendur
vilja fá ríkari upplýsingar um verð,
gæði og innihald.“
Samkeppnisstaðan skökk
Hann segir mikilvægt að íslensk
og erlend fyrirtæki sitji við sama
borð. „Ef við viðhöldum óbreyttu
ástandi, þar sem erlend fyrirtæki
lúta ekki sömu reglum og íslensk, þá
verður verslunin utan hagkerfisins.
Verslunin mun stjórnast af erlend-
um fyrirtækjum og vöruúrvalið
verður erlent. Þá verður mjög erfitt
fyrir íslensk félög að keppa við þau,
þar sem þau verða að bjóða upp á
innihaldslýsingar, þýðingar á þeim
og skýringarmyndir eins og EES-
reglur kveða á um. Þau borga líka
virðisaukaskatt og tolla af vörum,
sem erlendu fyrirtækin mörg hver
gera ekki á Íslandi.“
Aðspurður hvort breyta þurfi ís-
lenskum lögum, svarar Jón Diðrik að
helsta vandamálið sé skortur á eftir-
fylgni laga. „Í raun er annað hag-
kerfi utan við hið almenna hagkerfi.
Þó svo að netverslun sé lítill hluti af
verslun í dag, getur hún haft gríðar-
leg áhrif á umhverfi verslunar,
skattaumhverfi og samkeppnisstöðu
íslenskra fyrirtækja. “
Jón Diðrik varar við því að Íslend-
ingar muni ekki njóta ágóðans af
aukinni netverslun. „Ef regluverkið
verður ekki virkjað þannig að alþjóð-
legum lögum verði fylgt í raun mun-
um við njóta í takmörkuðum mæli
tekna, viðskipta og skatttekna.“
Menn hafi sætt sig við að villta vestr-
ið ríki í netverslun á Íslandi.
Að sögn Jóns Diðriks nemur net-
Jón Diðrik
Jónsson
!
" #
!$%
" %#
$ "
$ !
"
%
!# !
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
# !
% !
!$
" $#
$ %#
! %!
"
%" $
!
%
# "
% "
!$
" $$"
$ %!
$
$
%" !
! %
$ %"
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn varar
við nýrri fjár-
málakreppu í
skýrslu sinni um
fjármálastöð-
ugleika sem kynnt
var í fyrradag. Ótt-
ast sjóðurinn að
viðvarandi lágir
stýrivextir helstu
seðlabanka heims
ýti undir áhættusamar fjárfestingar á
alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
Þrátt fyrir að lágir vextir hafi stuðl-
að að aukinni heildareftirspurn þá
ítrekar AGS að þeir hafi einnig óæski-
legar aukaverkanir á fjármálamörk-
uðum.
AGS varar við nýrri fjár-
málakreppu
AGS Christine
Lagarde.
● Kaupsamningum fasteigna á höfuð-
borgarsvæðinu fjölgaði um 7,2% í sept-
ember frá fyrra mánuði. Fjöldi þing-
lýstra kaupsamninga var 534.
Samtals nam veltan í mánuðinum
18,9 milljörðum króna og var með-
alupphæð á hvern kaupsamning um
35,4 milljónir króna. Mest viðskipti
voru með eignir í fjölbýli, samtals 12,1
milljarður króna, en viðskipti með eignir
í sérbýli voru 4,7 milljarðar. Viðskipti
með aðrar eignir námu 2 milljörðum.
Á milli ára fjölgaði samningum um
3,5% og velta jókst um 16,2%.
Velta á fasteignamark-
aði var 19 milljarðar
Glæsileg vefverslun
www.avon.is
Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Fjöldi
tilboða
Opið á Dalvegi
á laugardögum
frá kl. 11-15
Áttu fullt af græjum sem liggja ótengdar?
Leyfðu okkur að aðstoða!
S: 444 9911 – hjalp@taeknisveitin.is – www.taeknisveitin.is
Tengjum heimabíóið
Setjum upp þráðlaust net
Standsetjum nýju tölvuna
Tengjum saman ólíkar græjur
Sjónvarpsmerki í öll sjónvörpin
Lagnavinna á heimilinu
...og margt, margt fleira!
Hvað gerum við?
TÆKNISVEITIN
til þjónustu reiðubúin!
Við komum til þín, veitum ráðgjöf, setjum tækin
upp, gerum við, leggjum lagnir, tengjum tækin
saman við önnur og fáum allt til að virka.
Svo færðu kennslu líka ef þörf er á því.