Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Óraunhæfar hugmyndir slitabúa
föllnu bankanna um undanþágu fyr-
ir útgreiðslu til almennra kröfuhafa
framhjá höftum verða ekki látnar
standa í vegi fyrir því að brátt verði
stigin skref til að losa um höft á ís-
lensk fyrirtæki, lífeyrissjóði og
heimili. Ekki verður fallist á tillögur
frá kröfuhöfum sem fela í sér að
raungengi krónunnar þurfi að lækka
og ganga ennfremur í berhögg við
það grundvallaratriði að jafnræði
allra sé tryggt undir höftum.
Þetta kom fram í ræðu Bjarna
Benediktssonar fjármálaráðherra á
ráðstefnu til heiðurs Jónasi H. Ha-
ralz, hagfræðingi og fyrrverandi
bankastjóra Landsbankans, á veg-
um Hagfræðistofnunar Háskóla Ís-
lands og Landsbankans í fyrradag.
Ræða Bjarna, sem bar heitið Fyrstu
skrefin til afnáms hafta, markar
tímamót. Þar gaf hann í fyrsta skipti
til kynna þau þjóðhagslegu skilyrði
sem þarf að hafa til hliðarsjónar við
veitingu undanþágna frá höftum.
Bjarni nefndi í ræðunni að „allir
sem áhuga hafa á þessu máli og hafa
reynt að skilja það til botns“ átti sig
á því að einn vandasamasti þáttur
þess sé að búa svo um hnútana að
eftir afnám hafta muni gengi krón-
unnar endurspegla raunhagkerfið.
„Þannig þarf greiðslujöfnuður að
taka tillit til raungengismarkmiða.“
Ráðstafað til innlendra aðila
Með öðrum orðum mun íslenskt
efnahagslíf ekki taka á sig meiri að-
lögun en það hefur nú þegar gert.
„Meginatriði í mínum huga er að við
höfum þegar tekið út þá erfiðu en
nauðsynlegu aðlögun sem efnahags-
lífið – heimilin og fyrirtækið –
þurftu að fara í gegnum. […] Raun-
gengið lækkaði verulega og við
þekkjum öll afleiðingarnar,“ sagði
Bjarni, og bætti við: „Því segi ég:
Við höfum þegar tekið á okkur veru-
legan skell og lausn á haftamálum
þarf að taka mið af því.“ Ekki skipti
aðeins máli í þeim efnum að þær
lausnir séu efnahagslega raunhæfar
heldur þurfi þær einnig að „uppfylla
sanngjarnar samfélagslegar vænt-
ingar um að ekki sé von á nýrri koll-
steypu“.
Aðlögun íslenska þjóðarbúsins á
síðustu árum – gríðarlegur sam-
dráttur í fjárfestingu og innlendri
eftirspurn samtímis þungri endur-
greiðslubyrði erlendra lána – á sér
nánast engin fordæmi hjá öðru ríki í
kjölfar fjármálakreppu. Á árunum
2009 til 2013 nam uppsafnaður und-
irliggjandi viðskiptaafgangur Ís-
lands 380 milljörðum. Slíkur við-
skiptaafgangur er fordæmalaus í
hagsögu Íslands. Hefur þetta gerst í
umhverfi þar sem innflutningur hef-
ur verið í lágmarki og raungengið
haldist 20-30% undir sögulegu með-
altali. Þrátt fyrir þessar óvenjulegu
aðstæður tókst Seðlabankanum ekki
að byggja upp neinn óskuldsettan
gjaldeyrisforða að ráði. Rann gjald-
eyrissköpun þjóðarbúsins að mestu
til afborgana og vaxtagreiðslna
slitabúa föllnu bankanna.
Ljóst er að tillögur stjórnvalda að
losun hafta taka mið af þessu. Ekki
verði gengið lengra í að ráðstafa af-
gangi á viðskipajöfnuði einungis til
erlendra kröfuhafa. Þess í stað verði
gjaldeyrissköpunin nýtt til að skapa
svigrúm til erlendra fjárfestinga
innlendra aðila – sem hafa verið
fastir undir höftum í sex ár.
Bjarni sagðist gera þá kröfu að
mikilvægum spurningum varðandi
næstu skref yrði svarað á þessu ári.
Þær lúta meðal annars að því hvort
hægt sé að leysa málefni slitabú-
anna án beinnar aðkomu stjórn-
valda. Ítrekaði hann að heildstæð
lausn þyrfti að fást. „Um leið og
þjóðarhagsmunir verða lagðir til
grundvallar þarf að sama skapi […]
að virða lög, alþjóðlegar skuldbind-
ingar og tryggja jafnræði.“ Þar
horfa stjórnvöld til þess, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, að ekki
sé forsvaranlegt að veita undanþág-
ur til erlendra kröfuhafa nema að
því gefnu að hægt yrði að veita sam-
bærilegar undanþágur fyrir aðra í
hagkerfinu.
Ekki verður beðið eftir slitabúum
Morgunblaðið/Kristinn
Bjarni Slitabúin fara aftast í röðina komi þau ekki með raunhæfar tillögur.
Fjármálaráðherra boðaði þau þjóðhagslegu skilyrði sem þarf að uppfylla við undanþágur Raun-
gengið lækki ekki frekar Komi ekki raunhæfar tillögur frá slitabúunum fara þau aftast í röðina
Heildstæð lausn
» Bjarni kynnti í fyrsta skipti
þau þjóðhagslegu skilyrði sem
þarf að uppfylla við undan-
þágubeiðnir frá höftum.
» Ísland tekur ekki á sig meiri
aðlögun í þjóðarbúskapnum.
Raungengið má ekki frekar
lækka við afnám hafta.
» Komi ekki fram raunhæfar
hugmyndir frá slitabúum bank-
anna fara þau aftast í röðina.
» Forgangsraðað í þágu ís-
lenskra fyrirtækja og heimila.
Hrein
akstursgleði
BMW X5
www.bmw.is
AKTU FRAMFÖRUM.
#BMWstories
Við kynnum þriðju kynslóðina af BMW X5 með eina sparneytnustu dísilvélina í sínum flokki.
Nýi BMW X5 er léttari og með minni loftmótstöðu en keppinautarnir. Hann kostar frá 10.490 þús. kr.
með 218 hestafla dísilvél og 8 gíra sjálfskiptingu og notar einungis 5,8 l/100 km í blönduðum akstri.
Aktu framförum – kynntu þér nýjan BMW X5!
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
BMW X5, verð frá:10.490.000 kr.
5,8 l/100 km er viðmiðunartala framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
X5 sDrive25d