Morgunblaðið - 10.10.2014, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þrír til viðbótar voru settir í sóttkví á
Carlos III-sjúkrahúsinu í Madríd í
varúðarskyni í gær eftir að hjúkr-
unarfræðingur smitaðist af ebólu og
var lögð inn á sjúkrahúsið. Læknar
hjúkrunarfræðingsins, Teresu Rom-
ero, sögðu að heilsu hennar hefði
hrakað og hún væri í mikilli lífs-
hættu.
Romero er fyrsti ebólusjúklingur-
inn sem smitaðist af sjúkdómnum ut-
an Afríku. Nokkrir aðrir hafa verið
fluttir á sjúkrahús í Evrópu eftir að
hafa smitast í Vestur-Afríku.
Spurningar hafa vaknað um hvort
viðbúnaði spænska heilbrigðiskerfis-
ins og þjálfun starfsfólks hafi verið
ábótavant eftir að skýrt var frá því
að Romero hefði líklega smitast þeg-
ar hún snerti andlitið með hanska
þegar hún fór úr hlífðarbúningi sín-
um. Hún hafði þá hjúkrað presti sem
var fluttur til Spánar eftir að hafa
smitast af ebólu í Síerra Leóne.
Ennfremur hefur verið skýrt frá
því að Romero fór í frí eftir að
presturinn lést 25. september. Kon-
an veiktist 29. september þegar hún
var á ferðalagi en var ekki lögð inn á
sjúkrahús fyrr en sjö dögum síðar.
Romero var fyrst lögð inn á
sjúkrahús í úthverfi Madrídar. Einn
af læknunum sem önnuðust hana
þar, Juan Manuel Parra, gagnrýndi
viðbúnaðinn við sjúkdómnum í grein
sem birt var í dagblöðunum El País
og El Mundo í gær. Þar kemur með-
al annars fram að hann fékk hlífðar-
búning sem var með „of stuttar erm-
ar“.
Læknirinn segist ekki hafa vitað
að hjúkrunarkonan hefði greinst
með ebólu fyrr en skýrt var frá því í
fjölmiðlunum. Hún hafi þurft að bíða
klukkustundum saman á sjúkrahús-
inu þar til hún var flutt á Carlos III-
sjúkrahúsið þar sem hún starfaði og
aðstaða er til að hlynna að ebólu-
sjúklingum. Læknirinn segir að líð-
an Romero á þessum tíma hafi verið
„óstöðug. Mikil hætta var á fylgi-
kvillum og við þurftum að fylgjast
grannt með henni allan sólarhring-
inn, vegna niðurgangs, seytingar,
uppkasta og blæðinga,“ hefur frétta-
vefurinn AFP eftir lækninum.
Parra er nú undir eftirliti lækna á
Carlos III-sjúkrahúsinu ásamt öðr-
um lækni og hjúkrunarfræðingi. Alls
eru sex í sóttkví á sjúkrahúsinu, að
Romero meðtalinni, en hún ein hefur
greinst með ebólu.
Lítil hætta á faraldri í Evrópu
Spænsk heilbrigðisyfirvöld
ákváðu að lóga hundi Romero vegna
hættu á að hann gæti dreift ebólu-
veirunni. Dýraverndarsamtök mót-
mæltu þeirri ákvörðun og til rysk-
inga kom þegar mótmælendur
reyndu að bjarga hundinum í fyrra-
dag. Tveir þeirra slösuðust þegar
tugir mótmælenda voru bornir í
burtu frá íbúð Romero í úhverfi
Madrídar. Tveimur klukkustundum
eftir að hundurinn var tekinn úr
íbúðinni var birt tilkynning um að
honum hefði verið lógað.
Frederic Vincent, sem fer með
heilbrigðismál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, sagði í gær að-
ildarríkin þyrftu að vera á varðbergi
í baráttunni við útbreiðslu ebóluveir-
unnar en hættan á ebólufaraldri í
Evrópu væri mjög lítil. Nathan Clu-
meck, faraldursfræðingur í Belgíu,
sagði að hættan væri mest í löndum
á borð við Grikkland og Spán þar
sem ríkisútgjöld til heilbrigðismála
hafa verið skert vegna efnahagssam-
dráttar.
Thomas Frieden, yfirmaður sótt-
varnastofnunar Bandaríkjanna,
sagði í gær að ebólufaraldurinn væri
alvarlegasta farsótt sem komið hefði
upp á síðustu 30 árum að alnæmis-
faraldrinum einum undanskildum.
„Þetta verður löng barátta,“ sagði
hann á fundi í Washington með yfir-
mönnum Sameinuðu þjóðanna, Al-
þjóðabankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. „Við þurfum að afstýra því
núna að þetta verði næsti alnæmis-
faraldur heimsins.“
Viðbúnaður
vegna ebólu
gagnrýndur
Lögð inn á sjúkrahús í Madríd sjö
dögum eftir að hún veiktist af ebólu
Madríd
SPÁNN
Hjúkrunarfræðingur
12. ágúst7. ágúst
lést Presturinn
Manuel
García Viejo
fluttur til Spánar frá Síerra Leóne
22. sept. 25. september
Lést 5 aðrir í sóttkví, m.a.
eiginmaður
hjúkrunarfræðingsins
Sjúklingnum hjúkrað
Fær einkenni
Lagður inn á
sjúkrahús í
úthverfi Madrídar
7. október
Fluttur á
sjúkrahúsið
í Madríd
30. september 5. okt.
Tekist á við ebóluveiruna í Evrópu
Ebólusjúklingar í Evrópu
52 aðrir undir eftirliti
lækna í varúðarskyni
sjúkdómsins, m.a. hita
Fyrsta ebólusmitið utan Afríku
á sjúkrahúsinu
La Paz-Carlos III
Dagsetning innlagnar á sjúkrahús
Er enn í
sóttkví Læknaður Látinn
Nokkrir ebólusjúklingar hafa verið fluttir frá Vestur-Afríku til heimalanda sinna í Evrópu. Á Spáni smitaðist
hjúkrunarfræðingur sem hjúkraði tveimur trúboðum eftir að þeir voru fluttir á sjúkrahús í Madríd.
Heimild: Stjórnvöld í Evrópulöndunum,WHO
ÞÝSKALAND
FRAKKLAND
BRETLAND
London
Seint í ágúst
NOREGUR
Ósló
7. október
París
19. september
Frankfurt
Hamborg
Lok ágúst
3. október
NÍGERÍA
GÍNEA
SÍERRA
LEÓNE
LÍBERÍA
látnir
Skv. fréttum í gær
smitaðir
8.033
Fjöldi smitaðra og látinna
(1 smitaðist, læknaðist)SENEGAL
Trúboðinn
Miguel Pajares
smitaðist
í Líberíu
Sjúklingnum hjúkrað
3.865
Hátt í 3.900 látnir
» Alls hafa 3.865 dáið og
8.033 smitast af ebóluveirunni
í Vestur-Afríku, flestir þeirra í
Gíneu, Síerra Leóne og Líberíu.
» Þar af hafa um 250 heil-
brigðisstarfsmenn í Vestur-
Afríku dáið í ebólufaraldrinum.
Heilbrigðisstarfsfólkið starfar
við mjög erfiðar aðstæður og
leggur sig í mikla hættu í bar-
áttunni við ebólu.
AFP
Sorg Kona fellur í yfirlið þegar sjálfboðaliðar sækja lík ebólusjúklings í ná-
lægu húsi í Freetown, höfuðborg Vestur-Afríkuríkisins Síerra Leóne.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Vígasveitir „Ríkis íslams“, samtaka
íslamista, náðu um þriðjungi bæjar-
ins Kobane á sitt vald í gær eftir
harða bardaga við sveitir Kúrda.
Stjórnvöld í Tyrklandi sögðu að ekki
kæmi til greina að Tyrkir einir hæfu
landhernað gegn samtökunum.
Vígasveitir íslamistanna héldu
áfram árásum á Kúrda í Kobane,
sem er við landamærin að Tyrklandi,
þrátt fyrir loftárásir Bandaríkjanna
og arabaríkja. Fast hefur verið lagt
að tyrkneskum stjórnvöldum að
senda hersveitir yfir landamærin til
að hrinda sókn íslamistanna.
Óttast að íhlutun verði vatn
á myllu aðskilnaðarsinna
Utanríkisráðherra Tyrklands,
Mevlut Cavusoglu, sagði eftir fund
með Jens Stoltenberg, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins, að ekki væri „raunhæft“ að
ætlast til þess að Tyrkir einir hæfu
landhernað gegn vígasveitum íslam-
istanna. Utanríkisráðherrann árétt-
aði einnig tillögu tyrkneskra stjórn-
valda um að flug yrði bannað yfir
landamærasvæðinu til að halda flug-
her einræðisstjórnarinnar í Sýrlandi
í skefjum.
Tyrkir hafa verið tregir til að að-
stoða sýrlenska Kúrda í baráttunni
við samtök íslamistanna af ótta við
að það yrði vatn á myllu aðskilnaðar-
sinna í Tyrklandi. Óeirðir hafa bloss-
að upp í byggðum Kúrda víða í Tyrk-
landi og kostað að minnsta kosti 22
lífið, að sögn fréttaveitunnar AFP.
Komið hefur til átaka milli kúrdískra
mótmælenda og tyrkneskra lög-
reglumanna og einnig milli félaga í
íslömskum samtökum, sem styðja
Tyrkir hafna
hernaðaríhlutun
Blóðugar óeirðir blossa upp í Tyrklandi
AFP
Óeirðir Kúrdar í átökum við lög-
reglumenn í Istanbúl.
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 11 - 18 I laugardaga 11 - 16
UPEND kr. 179.500 Svefnbreidd 140x190
TRYM kr. 198.900 Svefnbreidd140x200
RECAST kr. 129.900 Svefnbreidd 140x200
SVEFNSÓFARGóðir að nóttu
sem degi...
...
...
...