Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
✝ GestrúnSveinsdóttir
fæddist á Akranesi
22. apríl 1963 og
ólst upp í Ásgarði í
Reykholtsdal. Hún
lést 1. október 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Sveinn
Hannesson, f. 17.
nóvember 1927, d.
14. febrúar 1988, og
Geirlaug Jóns-
dóttir, f. 2. september 1927. Þau
voru bændur í Ásgarði.
Gestrún lauk skyldunámi frá
Kleppjárnsreykjaskóla og versl-
unarprófi frá Héraðsskólanum í
Reykholti auk þess sem hún
stundaði nám í Húsmæðraskól-
anum á Varmalandi í Borg-
arfirði. Eftir nám stundaði
Gestrún verslunarstörf í Ólafs-
Ösp, f. 28. júní 2004, grunn-
skólanemi. Systir Gestrúnar er
Kolbrún Sveinsdóttir, f. 30. maí
1957, gift Bjartmari Hannessyni,
f. 22. ágúst 1950, og eiga þau
börnin Unnar Þorstein og Þóru
Geirlaugu.
Gestrún og Ólafur bjuggu
lengst af á Tálknafirði en árið
2007 flutti fjölskyldan til Kefla-
víkur. Gestrún stundaði banka-
störf á Tálknafirði uns hún hóf
eigin atvinnurekstur en hún rak
um árabil verslanirnar Poka-
hornið og Jaðarkaup. Í Keflavík
vann hún hjá Íslandspósti og nú
síðast við Heiðarskóla. Gestrún
tók virkan þátt í félagsstörfum,
meðal annars leiklist og þó ekki
síst því sem sneri að íþróttaiðkun
og öðrum viðfangsefnum barna
sinna.
Gestrún greindist með
krabbamein í júlí 2013 og lést
þann 1. október síðastliðinn.
Útför Gestrúnar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag, 10. októ-
ber 2014, og hefst athöfnin kl.
13.
Meira: mbl.is/minningar
vík þar sem hún
kynntist eftirlifandi
eiginmanni sínum,
Ólafi Helga Gunn-
björnssyni, f. 25.
september 1966.
Þau hófu sambúð á
Tálknafirði,
heimabæ Ólafs, og
gengu þau í hjóna-
band 31. júlí 1999.
Foreldrar Ólafs
voru Guðný Gests-
dóttir, f. 30. ágúst 1945, d. 5.
ágúst 1983, og Gunnbjörn Ólafs-
son, f. 18. mars 1938, fóst-
urmóðir Ólafs er Björg Þórhalls-
dóttir, f. 1. júní 1949. Gestrún og
Ólafur eignuðust þrjú börn, elst
er Sveinbjörg Erla, f. 14. október
1988, innanhússhönnuður, næst-
ur er Gunnbjörn, f. 28. júní 1992,
flugmaður, og yngst er Guðný
Að setjast niður til að skrifa
minningargrein um Rúnu
frænku, móðursystur mína, er
eitthvað sem ég ætlaði mér ekki
að gera næstu áratugina. En al-
mættið hafði önnur plön og eft-
ir sitjum við reið og sár, hvers
vegna hún, hvers vegna núna?
Það hefur verið hoggið stórt
skarð í hópinn okkar þar sem
Rúna stóð, alltaf jákvæð og hlý
með óbilandi æðruleysi kryddað
með eitruðum svörtum húmor.
Æðruleysið kom ekki hvað síst í
gegn núna síðustu mánuði, enda
var það Rúna sem reif mann
upp úr vonleysinu og eymdinni
þegar hver meðferðin á fætur
annarri gekk ekki eins og við
vildum að hún gengi. En það
væri ekki í anda Rúnu að velta
sér upp úr þessum síðustu vik-
um og mánuðum. Þeir voru ekki
einkennandi fyrir allar góðu
minningarnar sem við eigum
svo mikið af.
Þegar þær systur, mamma
og Rúna hentu upp ferming-
arveislum eða afmælisveislum,
sýndist manni það yfirleitt vera
gert með annarri hendinni. Ef
eitthvað klúðraðist var því snar-
lega reddað, eins og þegar þær
laumuðust úr langt kominni af-
mælisveislu móður sinnar til að
ná í nokkrar tertur sem
gleymdust, það var jú stundum
verið að flýta sér. Flýtirinn ein-
kenndi líka árlegan Sörubakst-
ur okkar kvenleggsins. Þá kom-
um við saman og stóðum við
Sveinbjörg í þeirri meiningu að
nú ætti að taka því rólega og
dunda sér við að búa til Sörur.
Annað kom á daginn, því syst-
urnar höfðu þá þegar bakað alla
botnana og lítið eftir nema setja
súkkulaði utan á, ekki að okkur
hafi þótt það leiðinlegt.
Þó svo að lengst af hafi verið
landfræðilega langt á milli
systranna, Rúnu og mömmu,
liðu sjaldnast margir dagar á
milli þess sem þær heyrðu hvor
í annarri.
Þegar númerið hennar Rúnu
birtist á símanum vissi maður
líka að nú yrði síminn upptek-
inn næsta klukkutímann að
minnsta kosti. Þetta þótti ekki
tiltökumál fyrr en internet með
upphringitengingu komst á. Í
seinni tíð fór ég svo að hringja í
Rúnu frænku til skrafs og ráða-
gerða. Hún hafði oft annan
vinkil á aðstæður sem upp
komu og þrátt fyrir að ég efist
um að hún hafi alltaf verið sam-
mála mér fann ég aldrei fyrir
öðru en að við værum á ná-
kvæmlega sömu blaðsíðu.
Elsku Rúna, takk fyrir að
hafa alltaf verið til í að fíflast,
jafnvel þó að aðstæður hafi þótt
afskaplega óviðeigandi til að
láta eins og fífl, takk fyrir að
hlusta, takk fyrir ráðin, takk
fyrir að segja mér að kýla á
hluti sem var ekkert víst að
gengju upp og takk fyrir tím-
ann sem við þó fengum, hann
var vel nýttur.
Við fylgjum þér síðasta spöl-
inn í dag, elsku Rúna, og
sjáumst seinna í sumarlandinu.
Líttu sérhvert sólarlag
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag,
enginn gengur vísum að
(Bragi Valdimar Skúlason)
Þín systurdóttir,
Þóra Geirlaug.
Það var heilmikil eftirvænt-
ing í systkinahópnum á Felli
þegar von var á Óla Gunn-
björns heim með kærustu. Óli
sem hefur alltaf verið eins og
einn af okkur systkinunum,
hafði kynnst henni Rúnu í
Ólafsvík um veturinn og var nú
að koma heim til Tálknafjarðar
til að kynna hana fyrir fólkinu
sínu. Það er skemmst frá því að
segja að kynni okkar af Rúnu
voru eins og best varð á kosið
og hefur svo verið alla tíð. Hún
og Óli urðu óaðskiljanlegur
hluti af Fellsfjölskyldunni og
Rúna reyndist okkur öllum hinn
besti vinur.
Það er því stórt skarð höggv-
ið í hópinn þegar við þurfum nú
að kveðja Rúnu svo alltof
snemma. Baráttu sína við
krabbameinið háði Rúna á sama
hátt og allt annað sem hún
fékkst við, af festu og ákveðni
en með bros á vör og hlýleg orð
til allra í kringum sig. Að þessu
sinni dugði það ekki til. Við sitj-
um eftir og skiljum ekki til-
ganginn með því að taka Rúnu
frá eiginmanni og þremur börn-
um sem nú syrgja sárt eigin-
konu og móður.
Rúna var alltaf hress og kát,
með sitt fallega bros og hlýja
framkomu. Hún var samt
ákveðin og fékk sitt fram þó
það gerðist ekki með látum og
hávaða heldur stilltu og
ákveðnu fasi sem allir sem
kynntust báru virðingu fyrir.
Hún vann lengst af við þjón-
ustustörf hér á Tálknafirði,
fyrst í Landsbankanum og
seinna Eyrasparisjóði og síðar í
eigin verslun, Pokahorninu og
svo í Jaðarkaupum, matvöru-
verslun þeirra hjóna. Alls stað-
ar var sama sagan, Rúna naut
virðingar viðskiptavina og sam-
starfsfólks fyrir góða framkomu
og fallega nærveru, þjónustu-
lund og vönduð vinnubrögð.
Við sem þekktum Rúnu sem
eina af fjölskyldu okkar þykir
endalaust vænt um hana. Hún
og Óli voru óaðskiljanlegur
hluti af fjölskyldu okkar alla
tíð. Þau voru með okkur í því
sem að höndum bar í gegnum
tíðina, sjálfsagðir gestir í öllum
jólaboðum og veislum meðan
þau bjuggu hér fyrir vestan og
það eru margir sunnudagarnir
þegar setið var við eldhúsborðið
á Felli og málin rædd. Þau
Sveinbjörg og Bjössi og svo síð-
ar Guðný voru eins og barna-
börnin hjá pabba og mömmu og
mamma fylgdist með þeim eins
og sínum eigin barnabörnum.
Þegar Óli og Rúna fluttu síð-
an til Keflavíkur varð lengra á
milli en það þótti alveg sjálfsagt
að kíkja í kaffi að Felli þegar
þau komu vestur og þeim var
fagnað vel.
Við kveðjum okkar kæru vin-
konu með sorg í hjarta en erum
þakklát fyrir allar mörgu og
góðu minningarnar sem við eig-
um um hana í gegnum árin. Við
biðjum góðan guð að styrkja
Óla, Sveinbjörgu, Bjössa og
Guðnýju í sorg þeirra og vott-
um öllum aðstandendum ein-
læga samúð okkar.
Systkinin frá Kvígindisfelli,
Lilja, Hugrún, Bjarni,
Aðalsteinn og fjölskyldur
þeirra.
Hvað er ljós
ef ekki er myrkur?
Hvað er mótlæti
ef ekki er styrkur?
Hvað er gleði
ef ekki er sorg?
Hvað er söknuður
ef ekki er minning?
(höf. ók.)
Haustið skellur á með mikl-
um þunga og myrkri þetta árið.
Í dag kveð ég góða vinkonu
með miklum trega og söknuði.
Eftir erfiða baráttu við illvígan
sjúkdóm sem hún háði með
æðruleysi eins og henni var
einni lagið varð hún að lokum
að játa sig sigraða.
Rúnu sá ég fyrst í Ólafsvík
árið 1983 en hún starfaði í
Hannabúð. Í Ólafsvík kynnist
Rúna honum Óla sínum sem
þar var á vertíð. Seinna áttum
við eftir að kynnast betur þegar
ég flutti með mínum manni til
Tálknafjarðar árið 1989 en þar
áttum við eftir að bralla margt
skemmtilegt saman bæði í leik
og starfi. Við vorum saman í
saumaklúbb en þar naut Rúna
sín því allt lék í höndunum á
henni og hafa margir notið góðs
af hannyrðum hennar. Við eign-
uðumst yndislegar vinkonur í
þessum klúbb og eftir að hluti
hópsins fluttist frá Tálknafirði
létum við ekki þar við sitja
heldur tókum við upp þráðinn
að nýju og höfðum það fyrir
reglu að hittast formlega eina
heilsuhelgi á ári þar sem við
nærðum bæði líkama og sál
með hinu ýmsa móti.
Rúna var gleðipinni mikill,
hrókur alls fagnaðar og því kom
ekki á óvart að hún ásamt
nokkrum öðrum stofnuðu Leik-
félag á Tálknafirði, það var góð-
ur og gefandi félagskapur sem
átti vel við Rúnu. Hún tók þátt í
fjölda uppsetninga ásamt ýmsu
öðru sem leikfélagið stóð að.
Við Rúna stofnuðum rit-
fanga- og gjafavöruverslunina
Pokahornið. Þar unnum við allt
í sameiningu og bókhaldið líka
en það var fært á gamla mát-
ann, handskrifað í dagbækur.
Við sameinuðum ekki bara
krafta okkar í rekstri heldur
skiptumst við á að sinna annað
hvort versluninni eða börnunum
heima til skiptis því synir okkar
Rúnu voru ekki komnir á leiks-
skólaaldur þegar við byrjuðum
rekstur.
Eftir að ég ákvað að taka að
mér önnur verkefni, hélt Rúna
áfram þeim rekstri og síðar tók
hún að sér rekstur matvöru-
verslunar á Tálknafirði sem hún
gerði ásamt Óla af miklum dug-
aði og elju.
Rúna var einstök, hún var
hjartahlý góð manneskja sem
hallmælti ekki öðrum og var
góð fyrirmynd. Hún var talna-
glögg með eindæmum og mundi
hún bæði símanúmer og kenni-
tölur „flestra“ viðskiptavina frá
því hún vann hjá Eyrarspari-
sjóði. Það var gott að koma til
Rúnu hún var ávallt í góðu
skapi, yfirveguð án fordóma.
Hún var góð móðir og stolt af
börnum sínum enda mátti hún
vera það.
Þegar við hittumst síðast gat
ég næstum því ímyndað mér að
allt væri eins og það ætti að
vera gleði, grín, og væntum-
þykja eins og ekkert hefði
breyst… Ég og allir þeim sem
þekktu Rúnu munu eiga dýr-
mætar minningar sem munu
verma þegar haustar á ný. Mik-
ið á ég eftir að sakna þín elsku
vinkona, börn þín munu vera
lifandi eftirmynd þín og þú
munt ávallt verða í hjarta mínu.
Óli, Sveinbjörg, Bjössi,
Guðný og fjölskylda, mínar
innilegustu samúðarkveðjur. Ég
bið góðan Guð að vera með ykk-
ur á þessari erfiðu stundu og í
framtíðinni.
Helga Karlsdóttir.
Í síðasta mánuði átti ég sam-
tal við dóttir mína um vináttu,
að við mannfólkið leituðum vin-
áttu sem hentaði okkur á mis-
munandi aldurskeiðum. Að sum
vinátta ætti sér sinn tíma og
önnur héldist alla ævi. Að
stundum værum við það heppin
að eignast vináttu sem væri ei-
líf. Nokkrum dögum eftir þetta
samtal féll vinkona mín frá, vin-
kona sem var mín besta vin-
kona í nokkur ár og eilífðarvin-
kona síðar. Að hitta Rúnu eða
að tala við hana í síma var eins
og við hefðum sést síðast í gær.
Fyrir 34 árum sáumst við í
fyrsta sinn er við byrjuðum í
húsmæðraskóla. Faðir hennar
og fósturfaðir minn þekktust og
tóku spjall saman, við Rúna
vorum kynntar. Upphaf að
mjög góðri vináttu sem bar ekki
skugga á. Síðar urðu langar
vegalengdir á milli þannig að
hittingur fjaraði út en alltaf var
jafngaman að hitta hana eða
heyra í henni.
Við áttum síðast samtal í
byrjun september, töluðum
hreint út um veikindi okkar
beggja. Hún peppaði mig upp
og sagði mér að óttast ekkert.
Þegar kom síðar í ljós að ég
hafði ekkert að óttast, góðkynja
meinið, gladdist hún með mér
af heilum hug. Hún sjálf var
orðin þreytt í sinni baráttu,
ekkert hafði virkað til þessa en
hún vonaði að síðasta törnin
myndi virka. Bjartsýn í barátt-
unni en samt skynsöm, vissi að
gæti farið á báða vegu.
„Þá er bara að panta
kistuna,“ svaraði Rúna, er ég
spurði hvað væri hægt að gera
ef meðferðin virkaði ekki. Þótt
ég hrykki við áttaði ég mig á að
þetta tilsvar var bara ekta
Rúna. Ekkert að blekkja sjálfa
sig. Já, hún Rúna mín vílaði
ekki neitt fyrir sér, að minnsta
fannst mér það. Alltaf kát.
Hláturinn ómaði langar leiðir,
brosið alltaf á vörunum. Hún
gat látið í sér heyra og brást
illa við ósanngirni, það gat verið
skap í henni ef þess var þörf að
hennar mati.
Þegar ég rifjaði upp hvaða
atvik gæti lýst henni best held
ég að ég velji eitt. Við vorum
eitt sinn boðnar á leiksýningu á
Bændaskólanum á Hvanneyri.
Það var fljúgandi hálka alla
leiðina og við á litlum pallbíl,
gott ef hann var ekki enn á
sumardekkjunum, góðum
reyndar. En við komumst.
Þegar vinir okkar fylgdu
okkur út á bílaplan eftir sýn-
inguna horfðu strákarnir á bíl-
inn: „Komuð þið í alvöru á þess-
um?“ spurðu þeir. „Já,“ svaraði
Rúna alvösk, „haldið þið að við
séum einhverjir aumingjar?“
Þessu fylgdi skellihlátur hjá
henni.
Mikið var ég stolt af vinkonu
minni á þessari stundu og
mörgum fleiri reyndar. Já, það
var aldrei leiðinlegt með Rúnu,
alltaf séður húmorinn við alla
hluti. Held að við höfum aldrei
rifist, ekki einu sinni farið í
fýlu. Það var bara ekki hrein-
lega hægt þegar Rúna var ann-
ars vegar.
Falleg, hlý, kát, hláturmild,
skarpgreind, ákveðin og úr-
ræðagóð, smá af því sem ein-
kenndi Rúnu. Við ætluðum að
tala saman í síma síðar í sept-
ember, þegar til kom treysti
Rúna sér ekki í það samtal
vegna vanlíðunar. Til stóð svo
að þegar hún jafnaði sig mynd-
um við tala saman, það símtal
varð aldrei. Söknuður fyllir
hjarta mitt, nú er of seint að
gleðjast með henni. En ég
hlakka til er við hittumst hinu-
megin.
Þar til næst, ljósið veri með
þér, Rúna mín.
Vigdís Guðrún
Sigvaldadóttir (Dísa).
Maður skilur ekki allt í til-
verunni, er ekki alltaf sáttur og
finnst réttlætið ekki alltaf vera
til staðar. Þetta á tvímælalaust
við núna þegar þú færð ekki
lengur að vera hér á þessu jarð-
ríki með okkur. Rétt eins og þú
sagðir sjálf, þú áttir eftir að
gera svo margt. Eftir sitja þeir
sem þekktu þig og ylja sér við
minningarnar sem þeir eiga um
þig. Við systkinin erum svo lán-
söm að vera í þeim hópi. Við
eigum endalausar minningar
um það sem við gerðum með
þér á æskuárum okkar. Stutt
var á milli heimila okkar, Ás-
garðs og Hamra, og við hálf-
gerðir heimalningar heima hjá
þér.
Þangað hlupum við eftir
hentugleikum. Flæktumst
stundum fyrir, en oftar en ekki
hjálpuðum við til. Nokkur sum-
ur var Ásgarður svo okkar ann-
að heimili þar sem við vorum
þar í sveit og annað okkar í níu
sumur.
Þú varst aðdráttaraflið í ferð-
um okkar í Ásgarð og okkar
stóri klettur þar. Leiddir ávallt
hópinn og vinnuna enda ótrú-
lega kraftmikil og dugleg. Þó
svo oft hafi verið langur vinnu-
dagur var gleði og prakkara-
skapur alltaf til staðar. Sama
hvort við vorum syngjandi há-
stöfum í traktornum, sitjandi
efst uppi á heyhleðsluvagninum,
mokandi í súrheysturninum,
sækjandi kýrnar, hjálpandi
lömbum í heiminn eða að smíða
þá vorum við alltaf sömu vin-
irnir sem ekkert náði að stía í
sundur. Hápunktur sumarsins
voru réttirnar og allt stússið í
kringum þær. Pabbi þinn réð
ferðinni og við hlupum í verkin
sem okkur var úthlutað. Eftir
því sem meira var að gera,
þeim betur nutum við okkar.
Á þessum árum vorum við
ekki mikið að velta fyrir okkur
sumarfríi. Vorum bara ánægð
með að fá að gera skemmtilega
hluti saman. Fórum einu sinni í
frí norður í land með foreldrum
okkar systkina og auðvitað
komst þú með í þá ferð enda
stór partur af okkar tilveru.
Okkur dugðu gæðastundir eins
og útreiðatúrarnir sem við fór-
um í eftir fjós á kvöldin á
Bangsa, Þumalínu og Jarpi.
Þess á milli stríddum við veiði-
mönnunum með því að synda í
Reykjadalsánni, köstuðum
hrossaskít og púðurkellingum í
hvert annað eða fórum í vatns-
og mjólkurslag í mjólkurhúsinu.
Ekki vorum við alltaf sam-
mála mömmu þinni í því að fisk-
ur væri svo hollur að hann ætti
að vera í matinn fimm sinnum í
viku. Það skipti þó ekki öllu
máli. Máltíðirnar voru sex á
dag þannig að ekki vantaði okk-
ur orkuna. Búin að fleyta
rjómann ofan af mjólkinni í
tönkunum í mjólkurhúsinu og
ávallt var nóg af „hundakexi“ til
sem við vorum aldrei skömmuð
fyrir að brjóta í gríð og erg er
við vorum að keppa um hver
ætti flottasta brotið.
Eftir því sem árin liðu
breyttust áhugamálin okkar og
sveitaböllin tikkuðu inn. Þar
nutum við systkinin góðs af ald-
ursmuninum þar sem við feng-
um að fara fyrr á böllin en
margir jafnaldrar þar sem þú
lofaðir að líta eftir okkur.
Það voru forréttindi að fá að
alast upp með þér, Rúna, for-
réttindi sem við munum ávallt
búa að og þakka fyrir.
Elsku Óli, Sveinbjörg, Bjössi,
Guðný, Geirlaug og Kolla. Við
vottum ykkur, fjölskyldum ykk-
ar og vinum okkar dýpstu sam-
úð og megi ljósið lýsa ykkur og
veita ykkur stuðning.
Skúli og Sigrún
Þorsteinsbörn.
Mig setur hljóða. Rúna, sem
alltaf var svo jákvæð og bros-
andi, boðin og búin að hjálpa
öðrum, hefur verið kölluð á
brott, laut í lægra haldi fyrir ill-
vígum sjúkdómi, þrátt fyrir
hetjulega baráttu sem hún háði
vel studd af fjölskyldu og vin-
um.
Ég kynntist Rúnu á Tálkna-
firði, menn okkar beggja Tálkn-
firðingar í húð og hár og þá elt-
um við vestur á firði. Rúna var
ein af þeim sem tóku mér opn-
um örmum þegar ég var að
setja mig niður á Tálknafirði og
á ég henni margt að þakka.
Rúna var einstaklega jákvæð
manneskja, alltaf tilbúin að
rétta út hjálparhönd, var
óþreytandi í sjálfboðastarfi ým-
iskonar og við áttum góð ár
saman í stjórn Ungmennafélags
Tálknafjarðar og var hún ein af
aðalkanónum leiklistardeildar
þess, LUMFT. Rúna hafði
mikla unun af því að stíga á
svið og fórst það einstaklega vel
úr hendi sem og svo margt ann-
að.
Gestrún
Sveinsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar