Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
✝ SveinbjörgZophoníasdótt-
ir fæddist á Stóru-
býlu í Innra-Akra-
neshreppi 2. ágúst
1931. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 30. september
2014.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Ingi-
björg Gísladóttir
húsmóðir, f. 20. desember 1891
að Hvítanesi í Skilamanna-
hreppi, d. 12. mars 1993, og Zop-
honías Friðrik Sveinsson, bóndi
og trésmiður, f. 2. september
1886 að Heynesi í Innra- Akra-
neshreppi, d. 12. september
1963. Systkini Sveinbjargar eru
Hallfríður Lára, f. 17. september
1913, d. 25. apríl 1914, Ásta
Laufey, f. 1. september 1914, d.
9. apríl 1999, Soffía Friðrikka, f.
6. desember 1919, d. 5. ágúst
1985, Sigurður, f. 8. september
1922, d. 6. mars 2006, Yngvi
Magnús, f. 2. ágúst 1924, d. 31.
október 2009, og Kjartan Reyn-
ir, f. 20. júlí 1930.
Sveinbjörg eignaðist son, 1)
Baldur Svein, f. 1. ágúst 1951,
með Baldri Jónssyni, f. 23. mars
1933, d. 28. júlí 1951. Synir hans
og Rósu Valtýsdóttur eru Baldur
Ingi, sambýliskona hans er
Lára Helga, f. 1. febrúar 1953,
gift Karli Baldvinssyni. Sonur
Láru Helgu er Eyvindur Sveinn
Sólnes, kvæntur Nönnu Kristínu
Jóhannsdóttur. Börn þeirra: Jón
Ingi, Eyvindur Páll, Birkir
Snær, og Christel María. Sonur
Karls og fóstursonur Láru er
Stefán Hlynur.
Sveinbjörg ólst upp í Innra-
Akraneshreppi til 12 ára aldurs
og flutti þá í Kleppsholtið í
Reykjavík og gekk í Laugarnes-
skóla. Eftir það var hún eitt ár í
Reykholtsskóla í Borgarfirði.
Sveinbjörg vann ýmis versl-
unarstörf og starfaði lengst af í
húsgagnaversluninni Víði sem
sölumaður og síðar versl-
unarstjóri. Hún stofnaði ásamt
vinkonu sinni barnafataversl-
unina Fífu árið 1962. Þær ráku
verslunina um nokkurt skeið eða
þar til Sveinbjörg fluttist til
Akraness ásamt manni sínum
þegar hann varð útibússtjóri
Landsbankans þar. Árið 1977
flutti fjölskyldan til Hvolsvallar
þar sem Sveinn tók við sem úti-
bússtjóri Landsbankans þar og
voru þau þar í fimm ár. Árið
1982 flutti Sveinbjörg ásamt fjöl-
skyldu sinni aftur í bæinn og fór
hún þá aftur að vinna í Víði þar
til verslunin hætti og fór hún þá
að vinna í húsgagnaversluninni
Línunni. Sveinbjörg var mjög
virk í Oddfellow frá árinu 1966
og var hún í Rebekkustúku nr. 7,
Þorgerði, undanfarin ár.
Sveinbjörg verður jarðsungin
frá Fella- og Hólakirkju í
Reykjavík í dag, 10. október
2014, og hefst athöfnin kl. 13.
Gerður Wendel,
sonur þeirra Bene-
dikt Thor. Birgir,
dóttir hans Hrafn-
hildur Eva, sonur
Rósu og fóst-
ursonur Baldurs er
Kristinn Guð-
mundsson, barns-
móðir hans er Íris
Ívarsdóttir, börn
þeirra eru Ívar og
María. Dóttir Írisar
er Magnea Björg. Hinn 6. febr-
úar 1965 giftist Sveinbjörg
Sveini Elíassyni, fv. útibústjóra
Landsbanka Íslands, f. 31. des-
ember 1920. Foreldrar hans
voru Elías Jón Pálsson og Lára
Eðvarðsdóttir frá Ísafirði. Svein-
björg og Sveinn eignuðust tvö
börn saman, 2) Elías Jón, f. 16.
apríl 1966, sambýliskona Harpa
Einarsdóttir. Sonur Elíasar:
Sveinn Elías, kvæntur Ósk Norð-
fjörð. Börn þeirra eru Baldur
Elías og Ósk. Börn Óskar: Brynj-
ar Logi, Bjartur Freyr, Bekan
Máni, Freyja og Brimir Snær. 3)
Ingibjörg Soffía, f. 8. desember
1969, gift Baldri Jóhanni Bald-
urssyni. Börn þeirra eru Svein-
björg Sara, Kristófer Darri og
Elías Andri. Sonur Baldurs er
Davíð. Fósturdóttir Svein-
bjargar, dóttir Sveins, eftirlif-
andi eiginmanns hennar, er
Hinn merki og djúpvitri maður
Mark Twain var eitt sinn spurður
að því hvernig maður ætti að ala
upp börn. Hann svaraði: „Í fyrsta
lagi er maður fyrirmynd, í öðru
lagi er maður fyrirmynd og í
þriðja lagi er maður fyrirmynd.“
Ég held að þetta sé satt og ég held
að ég gæti ekki hafa haft betri fyr-
irmynd en hana Sveinbjörgu móð-
ur mína sem kvaddi þennan heim
þann 30. september síðastliðinn.
Hún skilur eftir margar góðar
minningar sem reynst hafa mér
gott veganesti í lífsins ólgusjó. En
hvaða gildi skyldu vera mér efst í
huga nú þegar ég horfi á eftir
henni inn í Sumarlandið, eins og
hún nefndi þann stað sem hún var
sannfærð um að fara á að loknu
þessu jarðlífi. Gjafmildi og hjálp-
semi koma sterkt upp í hugann.
Já, hún mamma var alltaf tilbúin
að aðstoða mig, bæði tilfinninga-
lega og fjárhagslega. Einnig sýndi
mamma mér mikið umburðar-
lyndi og þolinmæði sem áreiðan-
lega var ekki létt verk því ég átti
það til að vera mjög fyrirferða-
mikill og erfiður. Hún gaf mér
mikinn kærleika, hvatti mig alltaf
til dáða og hjálpaði mér með hann
Svenna minn en fyrir það verð ég
henni ævinlega þakklátur.
Elías Jón Sveinsson.
Elsku mamma mín.
Þá er víst komið að kveðju-
stund. Ekki óraði mig fyrir því að
þú myndir kveðja okkur svona
fljótt eftir að þú greindist með
krabbamein, aðeins tveimur mán-
uðum og einni viku síðar. Reyndar
óraði mig ekki fyrir því að þú feng-
ir svona krabbamein þar sem þú
hugsaðir alltaf svo vel um heilsuna
og mataræðið hjá ykkur pabba og
okkur öllum þegar ég var að alast
upp. Þú varst dugleg að fara út að
ganga og synda og áttum við góð-
ar stundir saman í nuddpottinum í
Breiðholtslauginni eftir að við vor-
um búnar að fá okkur sundsprett.
Þá spjölluðum við um lífið og
tilveruna og nutum þess að vera
saman. Meðan börnin mín voru lít-
il fóru þau oft með okkur og líka
stundum pabbi og nutum við þess
að leika okkur þar saman. Við átt-
um einstakt samband elsku
mamma mín og hefur þú alltaf
verið mín besta vinkona. Þú hefur
alltaf verið til staðar fyrir mig og
mína og finnst mér gott að ég gat
verið til staðar fyrir ykkur pabba
þegar þið þurfuð á því að halda.
Margs er að minnast og margs er
að þakka og yndislegar minningar
um þig, elsku mamma mín, ylja
mér og okkur öllum nú þegar þú
hefur kvatt þennan heim. Ég efast
ekki um að það hefur verið tekið
vel á móti þér í Sumarlandinu sem
við töluðum svo oft um. Þú varst
einstök kona, hugsaðir svo vel um
alla í kringum þig. Þú tókst Elías
afa inn á heimilið ykkar pabba og
hugsaðir um hann þar til hann dó.
Þú fluttir til Ingibjargar ömmu til
að hugsa um hana síðustu ár
hennar sem varð til þess að við
fengum að hafa hana lengur hjá
okkur. Þú hugsaðir svo vel um
hann pabba þegar hann fór að eld-
ast. Þú hugsaðir svo vel um okkur
systkinin, tengdabörnin og barna-
börnin þín. Þú varst dugleg að
rækta samband þitt við vinkonur
þínar enda varstu traustur vinur
og lagðir þú á það áherslu að halda
góðu sambandi við fólkið þitt. Þín-
ar elstu vinkonur hafa fylgt þér í
yfir 60-70 ár og er slík vinátta van-
fundin. Fyrir hálfu ári fluttuð þið
pabbi í Árbæinn til að vera nær
okkur og fá þjónustu niðri í hús-
inu. Við fylgdumst með hvor ann-
arri út um gluggann og drógum
upp gluggatjöldin til að láta vita að
við værum vaknaðar og þá gátum
við hringst á. Við áttum mjög
notalegar stundir, en allt of stutt-
an tíma, saman í fallegu íbúðinni
ykkar í Hraunbænum og þótti þér
svo gott að geta farið niður í mat-
inn og þurfa ekki að elda. Þú sagð-
ir svo oft við mig í gengum tíðina,
þriðjudagur til þrautar, og mikið
getur lífið nú verið skrýtið því þú
greinist á þriðjudegi, ferð á líkn-
ardeildina á þriðjudegi og deyrð á
þriðjudegi.
Elsku mamma mín ég sakna
þín og mun ég reyna að hugsa vel
um hann pabba þar til hann mætir
til þín í Sumarlandið.
Þín dóttir,
Ingibjörg Soffía.
Elsku amma.
Þú varst alltaf svo hlý og nota-
leg. Það var alltaf gott að koma til
ykkar afa. Okkur fannst best að
vera hjá þér þegar við vorum veik.
Það var svo góður andi hjá ykkur
afa. Stundum þegar við vorum
veik settir þú bjöllu á náttborðið
hjá okkur og sagðir okkur að
hringja ef okkur vantaði eitthvað.
Þetta lýsir þér svo vel og sýnir
hversu góð þú varst alltaf við okk-
ur. Það var svo gaman að fara með
ykkur afa í sumarbústað við Álfta-
vatn og koma inn eftir langa úti-
veru og finna vöffluilminn um all-
an bústaðinn. Það var svo
þægilegt eftir að þið afi fluttuð í
Árbæinn því þá var svo stutt fyrir
okkur að labba til ykkar og alltaf
passaðir þú upp á að eiga gott
bakkelsi handa okkur.
Guð blessi þig, elsku amma, við
söknum þín.
Sveinbjörg Sara, Kristófer
Darri og Elías Andri.
Mig langar að minnast móður-
systur minnar Sveinbjargar Zóp-
haníasardóttur sem lést 30. sept-
ember sl. á Líknardeild
Landspítalans í Kópavogi, eða
Dennu frænku eins og hún var
alltaf kölluð innan fjölskyldunnar.
Elsku Denna. Ég vil þakka þér
allan þann kærleika og vináttu
sem þú sýndir mér og okkur öllum
í fjölskyldunni. Þegar ég fer í hug-
anum í gegnum lífshlaup mitt þá
kemur þú ansi oft upp í huga mér
og þá sérstaklega árin 1964-1966,
en þá var ég tíður gestur á heimili
ykkar Sveins bæði í stuttan og
langan tíma bæði að Krókatúni 4
og í Landsbankahúsinu á Akra-
nesi þar sem þið bjugguð um
nokkurra ára skeið. Alltaf var ég
velkominn til ykkar hjóna. Þegar
ég kom fyrst þá bjugguð þið
Sveinn og dóttir Sveins, Lára
Helga, svo bættist í hópinn Elías
og Ingibjörg, en Baldur sonur
þinn var hjá ömmu á Kambsvegi
11 í Reykjavík. Einnig er mér
minnisstætt þegar þú varst að
heimsækja systur þína og okkur
út í Eyjar.
Þá var yfirleitt fjör og mér er
sérstaklega minnistætt þegar þú
komst með Svein í fyrsta skiptið út
í Eyjar. Okkur systkinum fannst
það hálf skrýtið að Denna frænka
ætti orðið mann. Þú varst alltaf
hörkudugleg, varst lengi verslun-
arstjóri í Trésmiðjunni Víði á
Laugavegi 166 (RSK í dag). Síðan
rakst þú þitt eigið fyrirtæki ásamt
vinkonu þinni Ninnu, Verslunina
Fífu, og ég held að ég fari rétt með
að alltaf þegar maður var í Reykja-
víkinni þá var litið við í þessum
tveim fyrirtækjum. Þú varst alltaf
mikill Akurnesingur, fædd að
Stórubýlu í Innri Akraneshreppi
og þar voru þínar æskuslóðir með
afa og ömmu og systkinum.
Þegar ég lít til baka þá eru nú
þegar búin að kveðja þetta líf
Ásta, sem var elst, mamma, Soffía
næstelst, Siggi og Yngvi og nú þú
sem varst yngst. Aðeins Kjartan
er eftir sem er næstyngstur og
orðinn frekar slappur til heilsunn-
ar. Þið systkinin voruð alin upp í
trú og kærleika og þannig var eins
hjá ykkur Sveini. Trú, von og kær-
leikur.
Þið Sveinn voruð í Oddfellow-
reglunni og voruð eins og oft er
sagt miklir Oddfellowar. Þú varst
svo stolt þegar ég var hjá þér
fimmtudaginn 25. september sl. á
Líknardeildinni sem var gjöf Odd-
fellowa, og þú sagðir við mig:
þetta gáfum við Oddfellowar, hér
hellti ég upp á kaffi þegar verið
var að vinna í þessari byggingu.
Elsku Denna frænka, ég er svo
þakklátur fyrir öll árin sem ég hef
þekkt þig og sérstaklega fyrir
bænastundina sem við áttum sam-
an bara tvö í kyrrðinni á Líknar-
deildinni þann 25. september,
þeirri bæn mun ég aldrei gleyma,
þar sem við þökkuðum Guði fyrir
lífið og alla hans blessun og náð.
Ég heimsótti þig aftur morgun-
inn 30. september en þá var þessu
lífi að ljúka hjá þér og þar kvaddi
ég þig. En ég veit líka að þú ert
komin heim í dýrðina og það var
örugglega tekið vel á móti þér af
afa og ömmu og systkinum og í
trausti trúar minnar á þann sem
öllu ræður og stjórnar, drottin
vorn Jesú Krist, veit ég að við hitt-
umst síðar.
Elsku Sveinn, Lára Helga,
Baldur, Elías, Ingibjörg, tengda-
börn og barnabörn, ég veit að
söknuður ykkar er mikilli og ég
bið góðan Guð um að styrkja ykk-
ur og varðveita.
Friðrik Ingi Óskarsson.
Í dag er ég að kveðja frænku
mína, hana Dennu, eins og hún var
alltaf kölluð. Ég ber ómælda virð-
ingu fyrir henni, hún var og verður
mín fyrirmynd. Ég hugsaði svo oft
að ég vildi vera eins og Denna,
æðrulaus, alltaf til staðar fyrir
aðra, hjartahlý og góð. Denna mín,
þú varst alltaf tilbúin að veita öðr-
um aðstoð sem sannaðist best á því
hvernig þú hugsaðir um ömmu til
dauðadags og hvernig þú annaðist
Svein, eftirlifandi mann þinn, þar
sinntir þú óeigingjörnu starfi.
Ég á svo góðar minningar frá
liðnum sumrum þegar þið hjónin
komuð upp í sumarbústað og
dvölduð hjá okkur daglangt. Eitt
skiptið komst þú og varst hjá mér
á afmælisdeginum þínum. Það var
mér mikill heiður.
Síðustu daga hefur hugurinn
verið fullur af minningum. Það er
svo ótalmargt sem ég get sagt um
samverustundir okkar, elsku
Denna mín. Ég er svo óendanlega
þakklát fyrir stundina sem við átt-
um saman áður en þú kvaddir
þennan heim. Við vorum svo glaðar
og hlógum að endurminningum
okkar en ég ætla að eiga það fyrir
mig.
Í bókinni um kærleikann er lítið
vers sem fær mig til að hugsa um
þig.
Dýrð lífsins
er að elska, ekki að vera elskuð,
Að þjóna, ekki að láta þjóna okkur.
að vera öðrum styrk hönd í myrkri
þegar neyðin kallar,
vera náunganum stoð og stytta
þegar kjarkurinn bilar,
það er að þekkja dýrð lífsins.
(Michael Ramsey erkibiskup)
Stórt er skarðið fyrir eigin-
mann þinn og börn, að þú skulir
ekki lengur vera þátttakandi í
þeirra daglega lífi. Eins og fyrir
þig, Ingibjörg mín, þið áttuð svo
margar einlægar stundir.
Ég og fjölskylda mín vottum
ykkur öllum okkar dýpstu samúð.
Sigfríður I. Sigurðardóttir
(Siffa).
Elsku Denna. Við kveðjum þig
með þessu ljóði sem lýsir þér svo
vel.
Við kveðjum þig með tregans þunga tár
sem tryggð og kærleik veittir liðin ár.
Þín fórnarlund var fagurt ævistarf
og frá þér eigum við hinn dýra arf.
Móðir, dóttir, minningin um þig
er mynd af því sem ástin lagði á sig.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Saknaðarkveðjur,
Ingibjörg Sigurþórsdóttir
(Bugga), Ágúst Ingi Eyjólfs-
son og fjölskylda.
Sveinbjörg
Zophoníasdóttir
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGURLÍNA G. STEFÁNSDÓTTIR,
Víðilundi 24,
Akureyri,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
mánudaginn 6. október.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 13. október kl. 13.30.
Einar Þ. Hjaltalín Árnason,
Ásgerður Jónsdóttir, Kjartan Hauksson,
Jóhanna Rósa Jónsdóttir, Ríkarður Guðjónsson,
Þórlaug Einarsdóttir,
Jón Stefán Hjaltalín Einarsson, Lorena Nicoleta Zamfir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar,
JÓHANNA JÓHANNESDÓTTIR
frá Brekkum í Mýrdal,
lést að kvöldi mánudagsins 6. október á
dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík.
Jarðsett verður frá Skeiðflatarkirkju í Mýrdal
laugardaginn 18. október kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Skeiðflatarkirkju.
Fyrir hönd aðstandenda,
Auðbert Vigfússon.
✝
Faðir minn og bróðir okkar,
PÉTUR ÞORVALDSSON,
Bakkavegi 5,
Hnífsdal,
lést mánudaginn 6. október.
Hann verður jarðsunginn frá Hnífsdalskapellu
laugardaginn 11. október kl. 14.00.
Hulda Pétursdóttir,
systkini og aðrir aðstandendur.
✝ SigurbjörgNielsen fæddist
í Reykjavík 18.
febrúar 1930. Hún
lést á Landspít-
alanum viðHring-
braut 5. október
2014.
Foreldrar henn-
ar voru Dagmar
Kristín Nielsen,
fædd Hansen 6.8.
1908, d. 9.3. 1966,
og Olaf Peter Nielsen, f. 24.1.
1895, d. 24.4. 1973. Sigurbjörg
átti einn bróður, Aage, f. 1927,
d. 1992, kvæntur Stellu Magn-
úsdóttur. Sigurbjörg giftist
Braga Jakobssyni, f. 7.5. 1931,
d. 21.6. 1996, 10.5. 1952. For-
eldrar hans voru Guðveig Magn-
urbæ Reykjavíkur og bjó í
Reykjavík allt til ársins 1966, en
þá fluttu þau Bragi á Seltjarn-
arnes og hefur hún búið þar alla
tíð síðan. Sigurbjörg tók þátt í
ýmsu félagsstarfi. Hún var virk í
skátastarfi á sínum yngri árum
og þau hjónin höfðu gaman af
útivist og ferðalögum, bæði inn-
anlands og utan og hélt hún
þeim áfram að eftir að Bragi féll
frá. Hún stundaði alla tíð lík-
amsrækt, svo sem leikfimi og
sund og einnig golf á seinni ár-
um. Sigurbjörg hóf starfsferil
sinn hjá breska sendiráðinu en
vann lengstan sinn starfsaldur
hjá sendiráði Bandaríkjanna,
eða í yfir 40 ár, og þar eignaðist
hún góða vini og félaga bæði ís-
lenska og bandaríska.
Útför Sigurbjargar fer fram
frá Fossvogskirkju í dag, 10.
október 2014, og hefst athöfnin
kl. 13.
úsdóttir, f. 1899, d.
1990, og Jakob
Magnússon, f. 1899,
d. 1982. Sigurbjörg
og Bragi eignuðust
eina dóttur, Mar-
gréti, f. 1952, gift
Hjalta Val Helga-
syni, f. 1949, og
eiga þau þrjár dæt-
ur, en þær eru: 1)
Sigurbjörg Dag-
mar Hjaltadóttir,
gift Jóni Sigurði Ingasyni. Sig-
urbjörg á tvo syni, Braga Þór og
Kára Frey. 2) Ingunn Anna
Hjaltadóttir, gift Tryggva Steini
Helgasyni. 3) Hildur Vala
Hjaltadóttir, unnusti hennar er
Einar Örn Hannesson.
Sigurbjörg ólst upp í Vest-
Megi lífsins vegur von þér gefa,
hver varða sýna þér
að þú munt rata ljóssins leið án efa,
þá leið sem fegurst er.
Megi dagsins birta frið þér færa
og faðma hvert eitt sinn,
megi ávallt lífsins ljósið skæra
leiða huga þinn.
Megi sólin eilíft á þig skína,
sem ást um himingeim.
Megi innra ljós þér lífið sýna
og lýsa veginn heim.
(Kristján Hreinsson)
Okkar elsku Sibba. Með inni-
legu þakklæti fyrir samfylgdina á
lífsleiðinni og hjartahlýjar minn-
ingar frá jólahátíðum barnæsk-
unnar. Okkar innilegustu samúð-
arkveðjur til Margrétar, Hjalta
og fjölskyldu.
Vertu guði falin.
Stella, Ólafur Pétur,
Agnar Þór, Díana María
og fjölskyldur.
Sigurbjörg Nielsen