Morgunblaðið - 10.10.2014, Qupperneq 35
KR í öllum aldursflokkum, lék með
m.fl. KR um árabil, var Íslandsmeist-
ari með m.fl. KR 1959, 1961, 1963,
1965 og 1968, og bikarmeistari 1960,
1961, 1962, 1963, 1964, 1966 og 1967,
er markahæsti KR-ingur frá stofnun
félagsins, lék 23 landsleiki 1959-70,
var sæmdur titlinum knattspyrnu-
maður ársins, 1965, 1969, 1970 og
1971, sat í stjórn knattspyrnudeildar
KR 1960-69 og var formaður síðustu
tvö árin. Hann var sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu, er
heiðursformaður KSÍ og heiðurs-
forseti ÍSÍ.
En hvernig tekur Ellert því að
vera orðinn 75 ára?
„Ég tek aldrinum og framtíðinni
opnum örmum á meðan ég er hraust-
ur og umvafinn fólkinu mínu. Ég á
sjö börn, ellefu barnabörn og eitt
langafabarn sem öll eru heilbrigð og
atorkusöm. Svo er Ágústa mín ynd-
isleg eiginkona og félagi. Ég segi
stundum að lífið sé sífelldur kapp-
leikur og ég nýt leiksins til fulls - líka
í seinni hálfleik.“
En hvað ertu að bardúsa núna?
„Núna er ég að lesa heimspeki við
HÍ og er sprækur í golfinu og gimm-
inu. Á afmælisdaginn ætla ég að fara
18 holu hring í sól og blíðu erlendis.
Það verður mín afmælisveisla.“
Fjölskylda
Eiginkona Ellerts er Ágústa Jó-
hannsdóttir, f. 25.10. 1957, fram-
haldsskólakennari, ljósmóðir og
hjúkrunarfræðingur.
Börn Ellerts og fyrri konu hans,
Önnu Guðlaugar Ásgeirsdóttur, eru
Ásdís Björg, f. 30.5. 1963, kennari og
flugfreyja; Arna, f. 15.3. 1968, félags-
fræðingur og framkvæmdastjóri; Al-
dís Brynja, f. 5.5. 1969, leiðsögu-
maður, og Höskuldur Kári, f. 21.2.
1972, fréttamaður á Stöð 2.
Sonur Ellerts og Ásdísar Þórðar-
dóttur, er Arnar Þór Jónsson, f. 2.5.
1971, lögfræðingur.
Börn Ellerts og Ágústu eru Eva
Þorbjörg, f. 23.3. 1990, nemi við HÍ,
og Ellert Björgvin, f. 5.12. 1991, nemi
við HÍ.
Systkini Ellerts: Bryndís, f. 9.7.
1938, fyrrverandi sendiherrafrú;
Margrét, f. 18.1. 1943, sjúkraliði;
Björgvin, f. 6.6. 1945, kerfisfræð-
ingur; Magdalena, f. 11.8. 1948, d.
10.7. 1993, heimspekingur og blaða-
kona; Ólafur Magnús, f. 25.5. 1950,
framkvæmdastjóri, og Anna Helga, f.
25.9. 1957, vinnur í veitingaþjónstu.
Foreldrar Ellerts voru Björgvin
Ellertsson Schram, f. 3.10. 1912, d.
24.3. 2001, stórkaupmaður og for-
maður KSÍ, og Aldís Þorbjörg Brynj-
ólfsdóttir, f. 23.3. 1918, d. 5.5. 1991,
húsfreyja.
Úr frændgarði Ellerts B. Schram
Ellert B. Schram
Aldís Helgadóttir
húsfr. í Litlalandi, af
Bergsætt
Margrét Magnúsdóttir
húsfreyja í Rvík
Brynjólfur Jónsson
sjóm. í Rvík
Aldís Þorbjörg
Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Rvík
Þorbjörg
Nikulásdóttir
húsfr. í Klauf, systir
Jóns, langafa Magn-
úsar L. Sveinssonar,
fyrrv. form. VR
Jón Brynjólfsson
b. í Klauf í Landeyjum
Grímur
Valdimarsson
forstj.
Valdimar Grímsson
fyrrv.
handboltakempa
Herdís Maja
Brynjólfsdóttir
húsfr. í Rvík
Herdís Magnúsdóttir
kennari í Rvík
Magnús Helgason
gjaldkeri í Rvík
Magnús H.
Magnússon
ráðherra
Páll Magnússon
fyrrv. útvarpsstjóri
Jónína Vigdís
Schram
læknaritari í Rvík
Kristján Schram
skipstj. í Rvík
Karl Schram
verslunarm. í Rvík
Hrafnhildur Schram
listfræðingur
Gunnar Schram
símstöðvarstj. á
Akureyri
Margrét Gestsdóttir
húsfreyja í Rvík
Árni Hannesson
fræðim. í Rvík
Magdalena Árnadóttir
húsfreyja í Rvík
Ellert K. Schram
skipstj. í Rvík
Björgvin Schram
stórkaupm. og form. KSÍ,
í Rvík
Hallbjörg
Guðmundsdóttir
húsfr. í Innri-
Njarðvík
Kristján Schram
timbursmiður í Innri-Njarðvík
Lára Margrét
Ragnarsd.
alþm.
Gunnar G. Schram
lagaprófessor
Ásta K.
Ragnarsdóttir
framkv.stj.
Margrét G. Schram
kennari
Guðrún L
Magnúsd.
húsfr. á
Litlalandi
Magnús
Jónss.
b. í Lágum
í Ölfusi
Jón
Magnúss.
húsgagnasm.
Í Rvík
Kristjana
Jónsd.
húsfreyja
í Rvík
Garðar Cortes
óperu-
söngvari
og fyrrv.
óperustj.
Garðar
Thor
Cortes
óperu-
söngvari
Magnús Magnússon
b. í Litlalandi í Ölfusi, af Bergsætt, bróðursonur Jórunnar, langömmu
Steindórs bílakóngs, afa Geirs Haarde fyrrv. forsætisráðherra
Gunnar
Helgason
leikari
Hallgrímur
Helgason
rithöfundur
Út að ganga Ellert og Ágústa.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ,fæddist í Reykjavík 10.10.1928 og ólst þar upp. For-
eldrar hans voru Björn G. Jónsson,
kaupmaður í Reykjavík, og Ingi-
björg Sveinsdóttir húsfreyja.
Björn var sonur Jóns Björnssonar
skipasmiðs, bróðursonar Valgerðar,
ömmu Vals Gíslasonar leikara. Ingi-
björg var systir Hallgríms Sveins-
sonar á Hálsi í Eyrarsveit, föður
Sveins, skólastjóra Bændaskólans á
Hvanneyri. Annar bróðir Ingibjarg-
ar var Jón Sveinsson, afi Sigríðar
Dúnu Kristmundsdóttur prófessors.
Sveinn var bróðir Guðmundar
Inga Björnssonar forstjóra.
Fyrri kona Sveins var Áslaug
Jónsdóttir sem lést 1960, og eign-
uðust þau tvö börn, Björn Inga jarð-
skjálftaverkfræðing, og Margréti
Jónu, húsfreyju í Bandaríkjunum.
Seinni kona Sveins var Ragnheið-
ur Guðrún Thorsteinsson, versl-
unarmaður og aðalbókari sem lést
2002, og eru synir þeirra Geir, hand-
boltaþjálfari hjá Magdeburg í
Þýskalandi, og Sveinn sjúkraþjálfari
í Reykjavík.
Sveinn lauk prófi frá Samvinnu-
skólanum 1947, var framkvæmda-
stjóri Trípólíbíós 1946-54 og var síð-
an kaupmaður í Reykjavík frá 1954.
Sveinn sat í stjórn Tónlistar-
félagsins frá 1970, í stjórn Kaup-
mannasamtaka Íslands í áratug og
var formaður Skókaupmannafélags-
ins í 12 ár. Hann sat í aðalstjórn KR
í aldarfjórðung, var varaformaður
KR í fimmtán ár, og formaður hús-
stjórnar.
Sveinn var formaður Íþróttaráðs
Reykjavíkur í fjögur ár, sat í stjórn
íþróttanefndar ríkisins og Félags-
heimilasjóðs, sat í stjórn ÍSÍ frá
1962, var varaforseti 1970-80 og for-
seti ÍSÍ 1980-91.
Sveinn var auk þess varaformaður
Ólympíunefndar Íslands frá 1973 og
aðalfararstjóri á Ólympíuleikana í
Montreal 1976, Moskvu 1980, Los
Angeles 1984 og Seoul 1988. Þá sat
Sveinn í stjórn Landsmálafélagsins
Varðar í 20 ár, var þar formaður og
varaborgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík 1974-82.
Sveinn lést 16.9. 1991.
Merkir Íslendingar
Sveinn
Björnsson
95 ára
Guðrún Helgadóttir
90 ára
Hjalti Kristjánsson
85 ára
Steinar Haraldsson
80 ára
Arnfríður Stefánsdóttir
Berta Snorradóttir
Hanna Júlía Hannesdóttir
Hilmar Magnússon
Jóna Hjaltadóttir
Katla Kristín Ólafsdóttir
75 ára
Birgir Ágústsson
Edda Flygenring
Ellert Schram
Jónína Garðarsdóttir
Steindór Einarsson
Zofia Barbara Tutaj
70 ára
Auðbjörg Árnadóttir
Erlinda Ramil Opina
Guðrún Númadóttir
Jóhann Peter Andersen
Magnea Grímsdóttir
Þórunn Ólafsdóttir
60 ára
Baldvin Stefánsson
Haraldur Friðbergsson
Helga María Arnarsdóttir
Jóhann Elí Guðjónsson
Páll Guðjón Valdimarsson
Rannveig S.
Vernharðsdóttir
Sighvatur Arnarsson
Sigrún Júdit
Guðlaugsdóttir
Snjólaug Soffía
Óskarsdóttir
Zibgniew Karczwicz
50 ára
Anna Björg Ketilsdóttir
Bjarney Ingimunda
Bjarnadóttir
Björg Kristinsdóttir
Jónas Jónatansson
Kolbeinn Jósepsson
Sigtryggur Sigtryggsson
Svanbjörg H.
Einarsdóttir
Van Nhang Nguyen
40 ára
Atli Hörður Bjarnason
Ásbjörg Magnúsdóttir
Eva Guðbrandsdóttir
Eysteinn Skarphéðinsson
Hulddís H. Guðbrandsdóttir
María Björg Tamimi
Ragnheiður Jónsdóttir
Sigrún Þorvaldsdóttir
Steingrímur Þór Ólafsson
Vaidas Gudinas
Örn Steinar Arnarson
30 ára
Agnar Guðni
Guðmundsson
Árni Gísli Brynleifsson
Árni Tómas Árnason
Dagný Gylfadóttir
Daníel Ingi Þórisson
Emilia Teresa Orlita
Jónas Randver
Haraldsson
Juliana Dias Coelho
Kristín Hrund
Kjartansdóttir
Sandra Cristina Canico
Canico
Signý Höskuldsdóttir
Sigríður Ásta Z.
Friðriksdóttir
Stefán Pedro Cabrera
Svavar Freyr Ástvaldsson
Þóra Katrín
Kristinsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Þóra Katrín ólst
upp í Kópavogi og býr þar,
lauk BS-prófum í fjár-
málaverkfræði og efna-
fræði og stundar nú fram-
haldsnám í efnafræði við
HÍ.
Maki: Jón Guðfinnsson, f.
1972, vörustjóri hjá ACT.
Dætur: Laufey Rós, f.
2009; Lilja Karen, f. 2012.
Foreldrar: Kristinn Guð-
jónsson, f. 1947, og Guð-
rún Ólöf Sveinsdóttir, f.
1951.
Þóra Katrín
Kristinsdóttir
30 ára Árni Gísli ólst upp
í Dalsmynni í Hjaltadal,
býr í Reykjanesbæ, er
húsasmiður og starfar hjá
Bílaleigu Akureyrar.
Maki: Heiða Björk Jó-
hannsdóttir, f. 1988,
hjúkrunarfræðingur.
Börn: Louisa Lind, f.
2006, og Ingólfur Snær, f.
2013.
Foreldrar: Brynleifur Sig-
laugsson, f. 1953, og
Anna Árnína Stef-
ánsdóttir, f. 1953.
Árni Gísli
Brynleifsson
30 ára Kristín Hrund ólst
upp á Akureyri, býr þar og
stundar nám í líftækni við
HA.
Maki: Leifur Sigurðsson,
f. 1978, pípulagninga-
maður.
Bróðir: Guðmundur Árni
Kjartansson, f. 1981.
Foreldrar: Kjartan Guð-
mundsson, f. 1956, húsa-
smiður og verslunar-
maður hjá BYKO, og
Guðfinna Ásgrímsdóttir, f.
1955, skólaliði.
Kristín Hrund
Kjartansdóttir
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
www. .is
Velkomin á nýjan vef
Bakarameistarans
Nú getur þú pantað
Tertur, Brauðmeti og bakkelsi
Veislu og fundarpakka
og margt fleira í vefverslunni okkar
. ..
. ..
. ..