Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Benedikta Br. Alexandersdóttir
benedikta@mbl.is
Hljómsveitin Samaris heldur út-
gáfutónleika vegna nýjustu plötu
sinnar, Silkidranga, í kvöld kl. 22, í
Þjóðleikhúskjallaranum. Platan
kom út í byrjun sumars og hefur
tríóið, Áslaug Rún Magnúsdóttir
(klarínett), Jófríður Ákadóttir
(söngur) og Þórður Kári Stein-
þórsson (forritun), verið á faralds-
fæti við að kynna plötuna erlendis.
Við kynningu á plötunni fór hljóm-
sveitin víða um Evrópu. Þá fóru
þau m.a. í tónleikaferð um Írland
og spiluðu á hinum ýmsu tónlist-
arhátíðum, þar á meðal Hróars-
keldu í Danmörku, Green Man í
Englandi, Southside og Hurricane í
Þýskalandi, Best kept Secret í Hol-
landi og Longitude á Írlandi.
Sköpuðu sér strax sérstöðu
Tríóið vakti fyrst athygli með
sigri á Músíktilraunum árið 2011
og skapaði sér strax sérstöðu með
einkennandi stíl en hljómsveitin
blandar saman framúrstefnulegum
töktum við reikulan klarínettuleik
og söng Jófríðar. Tónlistin er því
eins konar afbrigði tripp-hopps tí-
unda áratugarins með áhrifum dub
step og annarra nýrra stefna. Text-
ana sækja þau svo í klassísk ljóð en
textar Steingríms Thorsteinssonar
eru í uppáhaldi hljómsveitarinnar,
að sögn Áslaugar Rúnar Magn-
úsdóttur, eins meðlima Samaris.
Silkidrangar eru fyrsta breið-
skífa hljómsveitarinnar í fullri
lengd en hún er unnin í samvinnu
við upptökustjórann og raftónlist-
armanninn Oculus. Á plötunni er
að finna níu lög sem vinna saman
og mynda eina heild að sögn Ás-
laugar Rúnar.
„Við eyddum miklum tíma í smá-
atriði við gerð plötunnar og hugs-
uðum hana alveg í gegn til þess að
lögin pössuðu sem best saman og
mynduðu eina heild. Hún var því
talsvert langan tíma í undirbún-
ingi,“ segir Áslaug Rún en plötuna
voru þau um það bil ár að gera. Þá
segir hún að ferlið við að gera plöt-
una hafi verið erfitt en skemmti-
legt og einstaklega lærdómsríkt
fyrir meðlimi sveitarinnar.
Ljóð sem þarf ekki að skilja
Textar Silkidranga eru, líkt og
textar fyrri skífu sveitarinnar,
Samaris, úr klassískum ljóðum ís-
lenskra skálda. Á nýju plötunni er
mikið af andstæðum í textunum en
þeir fjalla margir um náttúruna og
yfirnáttúrulegar verur. Áslaug Rún
segir hljómsveitina velja fallega
texta sem þeim finnst hljóma vel.
„Við skiljum ekki alltaf textana
strax, stundum þurfum við að lesa
þá margoft til þess vita um hvað
ljóðin eru, en orðin hljóma stund-
um svo fallega að við þurfum ekki
að skilja þau,“ segir Áslaug Rún.
Tríóið er spennt fyrir útgáfu-
tónleikunum á morgun og eiga
áhorfendur von á sjónrænni upp-
lifun, að sögn Áslaugar Rúnar.
Næst kemur sveitin svo fram á
Airwaves-tónlistarhátíðinni sem
verður haldin 5.-9. nóvember. Þetta
verður í fjórða skipti sem hljóm-
sveitin kemur fram á Airwaves en
Áslaug Rún spilaði ekki með sveit-
inni í fyrra og er tilhlökkunin fyrir
hátíðinni því mikil hjá sveitinni í
ár.
Útgáfutónleikarnir fara fram
annað kvöld og verður húsið opnað
kl. 21, en hljómsveitin Gervisykur
sér um upphitun fyrir sveitina.
Miðasala fer fram á Midi.is.
„Skiljum ekki alltaf textana“
Samaris heldur upp á útgáfu breiðskífu sinnar Silkidranga með tónleikum í
kvöld Platan var lengi í undirbúningi, að sögn eins hljómsveitarmeðlims
Einstök Hljómsveitina skipa Áslaug Rún Magnúsdóttir, Jófríður Ákadóttir og Þórður Kári Steinþórsson.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta er miklu umfangsmeiri dag-
skrá en við höfum getað boðið upp á
áður,“ segir Tinna Ásgeirsdóttir,
verkefnastjóri Mýrarinnar, barna-
og unglingabókmenntahátíðar sem
stendur yfir í Norræna húsinu um
helgina.
„Við erum til að mynda með fimm
ókeypis málstofur sem rithöfundar
sitja en þær málstofur verða fræði-
legs eðlis. Svo verðum við líka með
heilt málþing, það fer heill dagur
undir það. Við verðum síðan með
upplestra og smiðjur fyrir börn og
fjölskyldur um helgina,“ segir hún.
„Við fáum inn miklu fleiri höfunda
í ár og við ákváðum að gera barna-
og unglingabókmenntaverðlaunum
Norðurlandaráðs hátt undir höfði.
Þau voru veitt í fyrsta sinn í fyrra og
við vildum gera eitthvað til að vekja
athygli á þeim og gleðjast yfir þess-
um nýju verðlaunum. Við buðum því
öllum sem eru tilnefndir 2014 á há-
tíðina. Við verðum því með úrvalslið
höfunda frá Norðurlöndunum í ár,“
segir hún.
Mikið af erlendum gestum
„Á laugardaginn erum við líka
með málstofu sem heitir Tabú og tíð-
arandi þar sem farið verður í mis-
munandi tabú innan barnabók-
mennta á ýmsum tímum. Á sama
tíma verðum við einnig með mál-
stofu sem heitir Um dauðann í
barnabókum, sem kemur náttúrlega
aðeins inn á sama svið, en þar er
lögð áhersla á dauðann. Svo verður
hin danska Dorte Karrebæk með
smiðju á sunnudaginn klukkan tólf.
Hún er einn alfremsti myndskreytir
Dana í dag. Það er einstakt tækifæri
fyrir foreldra til að koma með
krakkana sína í vinnusmiðju hjá
myndhöfundi sem börn og foreldrar
geta tekið þátt í saman. Svo er einn-
ig stór sýning í Norræna húsinu sem
var opnuð um síðustu helgi og stend-
ur í sjö vikur. Hún hefur verið mjög
fjölsótt,“ segir hún. Í dag er auk
þess málþing sem ber nafnið Fram-
tíðin í barnabókmenntum þar sem
Nina Goga og Anette Öster koma
meðal annars fram.
„Það koma yfir þrjátíu erlendir
gestir á hátíðina, til að mynda blaða-
menn og fræðimenn þótt megnið sé
rithöfundar og myndlistarmenn. Það
er mjög gaman að geta fengið þetta
fólk til landsins. Þetta er fólk sem er
í fremstu röð á sínu sviði,“ segir
Tinna að lokum.
Tekist á við tabú
Bókmenntahátíð
í Norræna húsinu
Morgunblaðið/Eva Björk Ægisdóttir
Hátíð Tinna Ásgeirsdóttir er verkefnastjóri Mýrarinnar, barna- og ung-
lingabókmenntahátíðar sem stendur yfir í Norræna húsinu um helgina.
Tónleikarnir
Syngdu mig
heim verða
haldnir í Lang-
holtskirkju í
Reykjavík í
kvöld kl. 20, í til-
efni þess að á
þessu ári eru 100
ár liðin frá fæð-
ingu skáldsins og
söngvarans þjóðkunna Jóns frá
Ljárskógum. Jón var einn vinsæl-
asti tónlistarmaður landsins í sinni
tíð, en auk þess þótti hann fært
skáld og eftir hann liggja tvær
ljóðabækur og eitt söngljóðasafn.
Að tónleikunum stendur einvala lið
tónlistarmanna sem flytja mörg
þekktustu laga Jóns, þ. á m. nokkur
lög sem MA-kvartettinn gerði fræg
og heyrast nú í upprunalegri út-
sendingu kvartettsins í fyrsta skipti
í 70 ár. Á tónleikunum gefst áhorf-
endum því færi á að upplifa þá
miklu sönggleði og sönggrósku sem
ríkti á Íslandi, árin fyrir seinna stíð,
líkt og segir í tilkynningu. Flytj-
endur á tónleikunum eru Una Dóra
Þorbjörnsdóttir, Unnur Birna
Björnsdóttir, Guðmundur Dav-
íðsson, Sigurður Helgi Oddsson,
Kvartettinn Emma og Karlakór
Reykjavíkur.
Sönggleði og
sönggróska
Jón frá Ljárskógum
Hádegistónleikaröð Laugarnes-
kirkju, Á ljúfum nótum, heldur
áfram en á morgun, föstudag, stíga
Þórunn Harðardóttir víóluleikari,
og Jane Ade píanóleikari á svið og
flytja Sónötu nr. 1 í f-moll eftir
þýska tónskáldið Jóhannes Brahms.
Tónleikarnir hefjast klukkan 12 og
taka um hálfa klukkustund.
Flytja ljúfa tóna í
Laugarneskirkju
Ljúft Þórunn Harðardóttir og Jane
Ade flytja sónötu eftir Brahms.
Morgunblaðið
gefur út sérblað
Vertu viðbúin
vetrinum
föstudaginn
17. október
Vertu viðbúinn vetrinum
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 13. október.
SÉRBLAÐ
Vetrarklæðnaður • Snyrtivörur • Ferðalög erlendis
Vetrarferðir innanlands • Skemmtilegar bækur
Námskeið og tómstundir • Hreyfing og heilsurækt
Bíllinn • Leikhús, tónleikar. • Skíðasvæðin hérlendis
Mataruppskriftir • Ásamt fullt af öðru spennandi efni!