Morgunblaðið - 10.10.2014, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Tvennir tónleikar verða haldnir í Salnum, í
kvöld og annað kvöld kl. 20, og eru þeir hluti af
Jazz- og blúshátíð Kópavogs. Í kvöld kemur Gu-
itar Islancio fram í fyrsta skipti opinberlega í sex
ár. Tríóið Guitar Islancio hefur gert garðinn
frægan um allan heim, meðal annars með
skemmtilegum útsetningum sínum á íslenskum
þjóðlögum, segir í tilkynningu. Á tónleikunum
fara gítarleikararnir Gunnar Þórðarson og
Björn Thoroddsen og Jón Rafnsson kontrabassa-
leikari yfir farsælan feril tríósins. Á morgun
leikur Icelandic All Star Jazzband í fyrsta sinn.
Hljómsveitin leikur þekkta djassstandarda frá
gullaldarárum djassins. Hljómsveitin er skipuð
Sigurði Flosasyni á saxófón, Tómasi R. Ein-
arssyni á kontrabassa, Einari Val Scheving á
trommur, Kjartani Valdemarssyni á píanó og
Birni Thoroddsen á gítar.
Morgunblaðið/Ásdís
Fingrafimir Félagarnir í Guitar Islancio á tónleikum árið 2003.
Gítarleikur og djass
Litli tónsproti“ s.l. laug-ardags til ágóða fyrir(vonandi sem flesta) verð-andi fastagesti SÍ var um
leið þörf áminning um öflun hljóð-
færaleikara framtíðar. Eða hvaðan
eiga þeir að koma ef ekki er hlúð að
nýjabruminu í tæka tíð?
Það er nefnilega ekki sjálfgefið.
Því þó að taki uppundir jafnlangan
tíma að fullmennta sinfóníuspilara
og skurðlækni, þá eru launakjör
stéttanna varla sambærileg. Að vísu
hafa fyrrnefndir mér vitandi ekki
beitt verkfallsvopni í háa herrans tíð
– og reyndar óvíst hverju það myndi
gegna í ljósi ólíkrar aðstöðu. Líf og
dauði er eitt, lífsfylling annað. Og
þar bætir klassísk tónlist fleira en
nyt úr kúm. Hún er ekki sízt ómiss-
andi gæðamælistika gagnvart
mörgu hjómi og hismi neyzlumenn-
ingar í skyndihöftum staðar og
stundar. Má með hliðsjón af núver-
andi markaðsframboði með sanni
segja að hafi fyrr verið þörf, þá er nú
nauðsyn!
Ungsveit SÍ var stofnuð árið 2009,
að sögn til þess að gefa lengra komn-
um tónlistarnemum tækifæri til að
starfa í umhverfi atvinnutónlist-
armanna. En þótt megi sem stendur
hafa rökstuddar áhyggjur af við-
komu klassískra áheyrenda fram-
tíðar, þá virtust þær við þessi fyrstu
kynni manns af Ungsveitinni öllu
minni hvað heyranlegu útkomuna of-
an af hljómsveitarpalli varðar, enda
var sú, miðað við ungan aldur og litla
reynslu, frómt frá sagt frábær.
Hvorttveggja verk dagskrár var
sem kjörið fyrir hópinn. Þar gat að
heyra úrvalsgóðar og afburðalitríkar
tónsmíðar er höfðuðu til allra aldurs-
hópa. Og þó að flygju örfáar finkur í
t.d. viðkvæmustu innkomum málm-
blásara, var heildin merkilega góð
og samtaka, þar á meðal glettilega
snörp hópspilamennska í strengjum
sem eflaust má þakka sérlegu strok-
næmi Petris Sakari, er ásamt Osmo
landa sínum Vänskä yppti myrru-
deild SÍ skörum ofar á sínum tíma en
áður hafði verið. Sem sagt: Braviss-
imo!
Eftir stóð aðeins ein vangavelta:
Er klassísk spilamennska að verða
kvennagrein – og kominn tími á
kynjakvóta handa strákum? Alltjent
sýndi einföld tölfræði úr tónleika-
skrá að af 80 spilurum voru hvorki
fleiri né færri en 50 stúlkur!
Kjörið „Hvorttveggja verk dagskrár var sem kjörið fyrir hópinn,“ segir
m.a. í gagnrýni um tónleika Ungsveitar SÍ sem Petri Sakari stýrði.
Magnaðir krakkar
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikar bbbmn
Tsjækovskíj: Rómeo Júlía. Mussorgskíj/
Ravel: Myndir á sýningu. Ungsveit SÍ.
Stjórnandi: Petri Sakari. Sunnudaginn
5. október kl. 17.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl.
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 11/10 kl. 13:00 13.k. Sun 26/10 kl. 13:00 19.k. Lau 22/11 kl. 13:00 23.k.
Sun 12/10 kl. 13:00 14.k. Sun 26/10 kl. 16:30 Aukas. Sun 23/11 kl. 13:00 24.k.
Sun 12/10 kl. 16:30 Aukas. Lau 1/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 29/11 kl. 13:00 25.k.
Lau 18/10 kl. 13:00 15.k. Sun 2/11 kl. 13:00 20.k. Sun 30/11 kl. 13:00 26.k.
Lau 18/10 kl. 16:30 Aukas. Lau 8/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 6/12 kl. 13:00 27.k.
Sun 19/10 kl. 13:00 16.k. Lau 8/11 kl. 16:00 Aukas. Sun 7/12 kl. 13:00 28.k.
Sun 19/10 kl. 16:30 Aukas. Sun 9/11 kl. 13:00 21.k. Lau 13/12 kl. 13:00 29.k.
Lau 25/10 kl. 13:00 17.k. Lau 15/11 kl. 13:00 22.k. Sun 14/12 kl. 13:00 30.k.
Lau 25/10 kl. 16:30 18.k. Sun 16/11 kl. 13:00 Aukas.
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Bláskjár (Litla sviðið)
Sun 12/10 kl. 20:00 6.k. Sun 9/11 kl. 20:30 8.k.
Sun 19/10 kl. 20:00 7.k. Mið 12/11 kl. 20:30 9.k.
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson. Aðeins þessar sýningar!
Gullna hliðið (Stóra sviðið)
Fös 10/10 kl. 20:00 7.k. Fös 17/10 kl. 20:00 9.k.
Fim 16/10 kl. 20:00 8.k. Fös 24/10 kl. 20:00 10.k.
Vinsæl verðlaunasýning frá Leikfélagi Akureyrar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 10/10 kl. 20:00 10.k. Fim 30/10 kl. 20:00 15.k. Fös 14/11 kl. 20:00 22.k.
Mið 22/10 kl. 20:00 aukas. Fös 31/10 kl. 20:00 16.k. Lau 15/11 kl. 20:00 23.k.
Fim 23/10 kl. 20:00 11.k. Lau 1/11 kl. 20:00 17.k. Fös 21/11 kl. 20:00
Fös 24/10 kl. 20:00 12.k. Fim 6/11 kl. 20:00 18.k. Lau 22/11 kl. 20:00
Lau 25/10 kl. 20:00 13.k. Fös 7/11 kl. 20:00 19.k. Sun 23/11 kl. 20:00
Sun 26/10 kl. 20:00 14.k. Lau 8/11 kl. 20:00 20.k. Lau 29/11 kl. 20:00
Mið 29/10 kl. 20:00 Aukas. Fim 13/11 kl. 20:00 21.k.
Sýningar í Hofi Akureyri 17. október kl. 19 22
Skálmöld: Baldur (Stóra sviðið)
Lau 11/10 kl. 20:00 2.k.
Epískir tónleikar með leikhúsívafi. Aðeins þessar sýningar!
Gaukar (Nýja sviðið)
Fös 10/10 kl. 20:00 5.k. Sun 26/10 kl. 20:00 10.k. Fös 14/11 kl. 20:00 14.k.
Sun 12/10 kl. 20:00 6.k. Fös 31/10 kl. 20:00 11.k. Fim 20/11 kl. 20:00
Fös 17/10 kl. 20:00 7.k. Lau 1/11 kl. 20:00 12.k. Sun 30/11 kl. 20:00
Lau 18/10 kl. 20:00 8.k. Fim 6/11 kl. 20:00
Fim 23/10 kl. 20:00 9.k. Sun 9/11 kl. 20:00 13.k.
Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Róðarí (Aðalsalur)
Sun 12/10 kl. 20:00 Fös 17/10 kl. 20:00 Lau 25/10 kl. 20:00
Eldklerkurinn (Aðalsalur)
Sun 19/10 kl. 20:00
Trúðleikur (Aðalsalur)
Sun 12/10 kl. 14:00
Lífið (Aðalsalur)
Lau 18/10 kl. 14:00 Sun 26/10 kl. 13:00 Lau 8/11 kl. 14:00
Sun 19/10 kl. 14:00 Sun 2/11 kl. 13:00 Sun 9/11 kl. 13:00
Strengir (8 ólík rými Tjarnarbíós)
Fim 23/10 kl. 19:00 Fös 31/10 kl. 19:00
Fös 24/10 kl. 19:00 Lau 1/11 kl. 19:00
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Hugljúf saga um ferða-
lag lítils drengs, hryssu
og hunds, um veröld
þeirra sem er full af lífi.
Helgi skoðar heiminn, hin ástsæla
barnabók frá 1976 eftir mynd-
listarmanninn Halldór Pétursson
og Njörð P. Njarðvík rithöfund,
hefur verið endurútgefin á íslensku,
ensku og dönsku og kemur
einnig út í fyrsta sinn á þýsku.
nbforlag.com
Helgi skoðar heiminn
á íslensku, ensku, þýsku og dönsku