Morgunblaðið - 10.10.2014, Side 44
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 283. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Íslensk stúlka í New York Times
2. Einn var með súrefnisgrímu
3. Fannst á lífi eftir 17 daga
4. 12 barnavagnar við Kaffihús …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Trommuhátíðin Trommarinn verður
haldin í sjötta sinn í sal FÍH á morgun
kl. 13-18 og munu nokkrir af fremstu
trommuleikurum landsins sýna listir
sínar. Að venju verður trommuleikara
veitt heiðursviðurkenning fyrir ævi-
starfið og hlýtur hana að þessu sinni
Ásgeir Óskarsson. Allt það nýjasta í
trommum og slagverki úr hljóð-
færaverslunum verður til sýnis og
nokkur sérvalin og söguleg trommu-
sett. Aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Ómar
Ásgeir heiðraður
Bandaríski leikstjórinn Josh Fox er
staddur hér á landi og er í föruneyti
Yoko Ono. Fox var tilnefndur til Ósk-
arsverðlauna árið 2011 fyrir heimild-
armynd sína Gasland og vinnur nú að
heimildarmynd um eyði-
leggingu ósonlagsins.
Hann mun sýna valin
brot úr þeirri mynd í
kvöld kl. 20 í Bíó Para-
dís og svara spurn-
ingum áhorfenda að
sýningu lokinni. Að-
gangur er ókeypis.
Fox situr fyrir svör-
um í Bíó Paradís
Hljómsveitin
My Bubba,
skipuð Guð-
björgu Tóm-
asdóttur og
My Larsdotter,
heldur tónleika
í dag kl. 12 í Mengi, Óðinsgötu 2 í
Reykjavík. My Bubba heldur svo í
tveggja mánaða tónleikaferðalag til
að kynna nýjustu plötu sína, Goes
Abroader, og mun m.a. hita upp fyrir
írska tónlistarmanninn Damien Rice
á þrennum tónleikum.
My Bubba í Mengi
Á laugardag Norðan 3-10 m/s. Dálítil él eða slydduél um landið
norðanvert, en bjartviðri vestanlands. Austlægari vindur á Suður-
og Suðausturlandi og líkur á rigningu. Hiti að 7 stigum syðst.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan og norðan 3-10 m/s. Léttskýjað
sunnan- og suðvestanlands, annars skýjað og lítilsháttar væta á N-
og A-landi. Hiti 2 til 10 stig, mildast suðaustanlands.
VEÐUR
Nýliðar Tindastóls unnu
fimm stiga sigur á Stjörn-
unni í Garðabæ, 85:80, í
gærkvöld, þrátt fyrir að
vera 16 stigum undir í hálf-
leik, þegar keppni í Dom-
inos-deild karla hófst með
fjórum leikjum. Íslands-
meistarar KR unnu Njarðvík
af öryggi, 92:78, Keflavík
vann Skallagrím í spennu-
leik í Borgarnesi, 70:65, og
Snæfell vann öruggan sig-
ur á Fjölni, 84:65. »2-3
Nýliðarnir sóttu
sigur í Garðabæ
Það er snúinn leikur
framundan hjá íslenska
karlalandsliðinu í
knattspyrnu þegar
það mættir Lettum
í öðrum leik sínum
í undankeppni
Evrópumótsins í
Riga í kvöld. Eftir
glæsilegan 3:0
sigur á móti Tyrkj-
um í síðasta mán-
uði hafa landsliðs-
þjálfararnir verið
duglegir að minna
leikmennina á síð-
ustu undankeppni.
Þá vann íslenska
liðið fyrsta leikinn
en tapaði öðrum í
framhaldinu fyrir
Kýpur. »4
Snúinn leikur
framundan í Riga
Afturelding heldur áfram að vinna
hvern leikinn á fætur öðrum í úrvals-
deild karla í handknattleik, Olís-
deildinni. Í gærkvöldi vann Aftureld-
ing ÍR-inga á útivelli, 25:23. ÍR er í
öðru sæti deildarinnar fjórum stigum
á eftir Aftureldingu. Valur tapaði í
gærkvöldi fyrir Haukum en FH vann
HK. Íslandsmeistarar ÍBV lögðu
Stjörnuna naumlega í Eyjum. »2
Ekkert lát er á sig-
urgöngu Aftureldingar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Ólína Helga Sverrisdóttir var níu
ára gömul þegar hún prófaði fyrst
að forrita. Síðan þá hefur hún meðal
annars verið aðstoðarkennari í for-
ritun fyrir krakka, lent í öðru sæti í
keppni um tæknistúlku Evrópu
2013 og stofnað sitt eigið tækni-
blogg.
„Mamma mín var að rannsaka
hvort krakkar á aldrinum 5-9 ára
gætu byrjað að forrita þannig að ég
byrjaði fyrir hana. Síðan fannst mér
þetta rosaskemmtilegt svo ég ákvað
að halda áfram að forrita. Það sem
mér fannst mest spennandi er að þú
getur gert nokkurn veginn hvað
sem er í þessu ef þú reynir á þig og
vilt komast áfram,“ segir Ólína
Helga, sem er fjórtán ára núna, en
móðir hennar er Rakel Sölvadóttir,
stofnandi Skema (reKode) sem hef-
ur haldið fjölda forritunarnám-
skeiða fyrir börn og kennara.
Forritun fyrir nörda
Til að byrja með notaði Ólína
Helga 3D-umhverfi sem nefnist
Alice til þess að búa til ýmsa leiki. Í
seinni tíð segist hún fikta við forrit-
unarmálin C++, Java og Java-
script.
Stelpur í vinahópi Ólínu Helgu
pæla ekki mikið í forritun að hennar
sögn, það eru mest strákarnir. „Ég
held að þetta sé stereótýpan af
nördum. Nördar forrita og það er
bara fyrir stráka. Ég held að stelpur
hugsi að þetta sé ekki fyrir þær og
þær fara bara í dans eða eitthvað
þannig af því að það er meira
stelpulegt,“ segir hún spurð
að því hvers vegna stelp-
ur sæki síður í forritun.
Á þessu ári byrjaði
Ólína Helga, sem býr
í Redmond í Wash-
ington-ríki Banda-
ríkjanna, með sitt eigið tækniblogg
sem nefnist techolina.com.
„Ástæðan fyrir að ég bjó það til
er að ég vil hvetja stelpur til að
byrja að forrita eða gera eitthvað
sem tengist tækni. Til dæmis að
teikna í tölvu ef þér finnst gaman að
teikna, prófa eitthvað nýtt,“ segir
hún.
Bæti tækninni ofan á
Sjálf segist hún ekki byrjuð að
hugsa út í hvað hún vill gera í fram-
tíðinni enda sé hún enn bara krakki
í efri bekk grunnskóla. Það verði þó
eitthvað sem tengist tækni.
„Bara eitthvað sem ég hef áhuga
á og bæta tækni og tölvum ofan á
það,“ segir Ólína Helga um framtíð-
arstarfið.
Allt er mögulegt með forritun
Hvetur stelpur
til að forrita
Á eigin tækni-
bloggsíðu
Forritari Ólína Helga Sverrisdóttir með Daníel Breka, bróðir sínum, Rakel Sölvadóttur, móður þeirra, og Megan
Smith, sem var hjá Google og er núna yfir tæknimálunum hjá Hvíta Húsinu í Bandaríkjunum.
Evrópska forritunarvikan hefst á morgun en hún er átak á
vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem hefur
það markmið að auka áhuga og skilning á forritun, sér-
staklega hjá börnum, foreldrum og kennurum. Sérstök
áhersla er lögð á áhuga kvenna á forritun í ár. Skólar,
stofnanir, stjórnvöld, fyrirtæki og einstaklingar eru hvattir
til að skipuleggja viðburði í tengslum við vikuna.
Vikan var haldin í fyrsta skipti í fyrra. Þá voru um þrjú
hundruð viðburðir í boði í 26 Evrópulöndum sem yfir tíu þús-
und manns tóku þátt í, að því er kemur fram á vefsíðu
Skema sem er tengiliður vikunnar hér á
landi.
Áhersla á þekkingu kvenna
FORRITUNARVIKA HALDIN Í ANNAÐ SKIPTI