Morgunblaðið - 17.10.2014, Qupperneq 12
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Bygging nýs frjálsíþróttavallar gæti
kostað um 560 milljónir króna og
tvær stúkur við norður- og suður-
enda Laugardalsvallar gætu kostað
um 700 milljónir króna. Kostnaður
við að hita upp völlinn og setja nýtt
gras yrði um 60 milljónir króna.
Þetta er meðal
þess sem kemur
fram í skýrslu
starfshóps sem
þáverandi borg-
arstjóri, Jón
Gnarr, skipaði til
að fjalla um fram-
tíð frjálsíþrótta-
aðstöðu í Reykja-
vík og uppbygg-
ingu Laugardals-
vallar. Skýrslunni var skilað í mars sl.
en í henni áttu sæti m.a. fulltrúar
KSÍ og Frjálsíþróttasambands Ís-
lands, FRÍ. Tekið skal fram að áður-
nefndar kostnaðartölur eiga ekki við
um áform KSÍ um þjóðarleikvang
sem greint var frá í Morgunblaðinu í
gær. Áætlaður kostnaður við þær
framkvæmdir fæst ekki gefinn upp.
Þrengt að frjálsum íþróttum
Jónas Egilsson, framkvæmdastjóri
og fyrrverandi formaður FRÍ, segir
frjálsar íþróttir hafa smám saman
vikið af Laugardalsvelli eftir að borg-
in gerði samning við KSÍ um rekstur
vallarins fyrir um tuttugu árum.
„KSÍ hefur forgangsraðað og sett
frjálsum íþróttum þrengri skorður á
vellinum en áður var. Það leiddi með-
al annars til þess að Frjálsíþróttaráð
Reykjavíkur ályktaði árið 2011 að við
þyrftum að fá annan völl. Á grund-
velli þeirrar ályktunar og tæknilegra
breytinga komu tillögur um að þjóð-
arleikvangar þessara tveggja íþrótta-
greina yrðu skildir að. Þetta var rétt
fyrir kosningar og síðan hefur lítið
gerst í þessum málum, nema hvað að
KSÍ hefur haldið áfram sinni hug-
myndavinnu. Við höfum ekki fengið
neinar yfirlýsingar frá borginni, um-
fram það sem sagt var við vinnnslu
skýrslu starfshópsins að borgin vildi
fá ríkisvaldið að borðinu þar sem um
þjóðarleikvang væri að ræða,“ segir
Jónas.
Ein af tillögum starfshópsins var
að byggja frjálsíþróttavöll norðan
Suðurlandsbrautar og austan við ný-
byggingu Laugardalshallar þar sem
inniaðstaða fyrir frjálsar íþróttir var
byggð upp. Var bent á möguleika á
samnýtingu vallarins með þessari að-
stöðu. „Það hefur ekki farið fram nein
ítarleg skoðun á þessum mögu-
leikum, umfram það sem gert var í
skýrslunni,“ segir Jónas.
Hann segir stefnu FRÍ ganga út á
að byggja upp völl sem stenst allar al-
þjóðlegar kröfur og Laugardalurinn
henti best fyrir slíka aðstöðu vegna
nálægðar við önnur íþróttamann-
virki. Auk svæðisins við Laugardals-
höll komi einnig til greina að byggja
upp aðstöðu á gamla Valbjarnarvell-
inum. „Ef kostnaður við nýjan völl
norðan Suðurlandsbrautar yrði met-
inn of mikill væri hægt að taka
Valbjarnarvöll í notkun að nýju. Þar
norðan við er æfingasvæði sem mætti
einnig nota til upphitunar ef haldin
eru stór alþjóðleg mót,“ segir Jónas.
Hann bendir jafnframt á að þegar
Fram flyst úr Laugardalnum í Úlf-
arsárdal með sína leiki þá minnki
þörfin fyrir knattspyrnu á Laugar-
dalsvelli.
„Þá gæti komið upp sú spurning
hvort borgin vilji fara í kostnað við að
byggja sérstakan frjálsíþróttavöll
eða vill hún samnýta þetta áfram?“
spyr hann. „Við sjáum það í Berlín,
París, Róm og víðar að þar geta
knattspyrna og frjálsar íþróttir farið
fram á sama vellinum. Þetta er
möguleiki sem ekki er hægt að úti-
loka. Við þurfum að hafa eitthvað í
hendi ef ákveðið verður að fara með
frjálsar íþróttir af Laugardalsvelli.
Við höfum enga aðra aðstöðu í
Reykjavík á meðan það eru að
minnsta kosti níu knattspyrnuvellir.
Formaður KSÍ hefur lýst sig sam-
mála því að við verðum fyrst að leysa
þetta með frjálsar íþróttir áður en að-
staðan verður tekin burt á Laugar-
dalsvelli. FRÍ hefur lagt á það mesta
áherslu allan tímann. Við höfum ekki
í önnur hús að venda í Reykjavík.“
Kominn tími á aðgerðir
Jónas segir borgina ekki enn hafa
gefið skýr svör um sína sýn í málinu.
„Borgin hefur verið að vísa þessu yfir
á ríkisvaldið, sem er að sumu leyti
skiljanlegt. KSÍ hefur sagt að fara
þurfi í framkvæmdir eftir að undan-
keppni EM lýkur næsta haust og
okkur finnst einnig að það sé kominn
tími til aðgerða í þessu máli. Þetta
hefur verið að velkjast á milli manna í
kerfinu og á meðan bíðum við með lé-
legan frjálsíþróttavöll.“
„Ekki í önnur hús að venda“
FRÍ bíður eftir svörum frá borginni um aðstöðu í Laugardal Nýr völlur
undir frjálsar gæti kostað 560 milljónir Svæði við Suðurlandsbraut í skoðun
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Laugardalsvöllur Vaskir hlaupagarpar á Bikarmóti FRÍ á Laugardalsvelli, eina frjálsíþróttavellinum í Reykjavík.
Leikir Íslands
í undankeppni EM
9. sept. ‘14
10. okt. ‘14
13. okt. ‘14
16. nóv. ‘14
28. mar. ’15
12. jún. ‘15
3. sept. ‘15
6. sept. ‘15
10. okt. ‘15
13. okt. ‘15
Ísland - Tyrkland
Lettland - Ísland
Ísland - Holland
Tékkland - Ísland
Kasakstan - Ísland
Ísland - Tékkland
Holland - Ísland
Ísland - Kasakstan
Ísland - Lettland
Tyrkland - Ísland
3-0
0-3
2-0
-
-
-
-
-
-
-
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014
Stjórn Prýðifélagsins Skjaldar, íbúa-
samtaka Skerjafjarðar, mótmælir
deiliskipulagi Hlíðarendasvæðis og
bendir á að aðflug neyðarbrautar
Reykjavíkurflugvallar gangi ekki upp
verði skipulagið
samþykkt.
Ívar Pálsson
segir að sam-
kvæmt deiliskipu-
laginu verði
brautarendinn við
fyrirhugaðar
byggingar. „Það
verður engin flug-
lína með blokkir
við braut-
arendann,“ segir hann. Ívar bætir við
að erfitt hafi reynst að fá að sjá skipu-
lagið og leyndarhyggjan haldi áfram.
„Látið er eins og úrskurður Rögnu-
nefndarinnar hafi með þetta að gera
en í raun verður búið að staðfesta og
stimpla þetta og framkvæmdaraðilar
geta byrjað eftir viku.“
Aðalfundur Prýðifélagsins Skjald-
ar var haldinn í fyrrakvöld og ný
stjórn var kosin. Í aðalstjórn eru Ívar
Pálsson, Ragnhildur Björg Guðjóns-
dóttir, Efemía Guðmundsdóttir, Sig-
valdi Kaldalóns og Reynir Guð-
mundsson. Í varastjórn eru Ottó
Guðjónsson og Yngvar Vilhjálmsson.
Ályktun félagsins er eftirfarandi:
„Aðalfundur Prýðifélagsins Skjald-
ar, íbúasamtaka Skerjafjarðar sunn-
an flugvallar, 15. október 2014, mót-
mælir harðlega fyrirhuguðu
deiliskipulagi á Hlíðarendasvæði,
sem mun hafa þær afleiðingar að
neyðarflugbraut NA-SV-Reykjavík-
urflugvallar verður ónothæf um alla
framtíð. Hvatt er til þess að borgar-
yfirvöld og forsvarsmenn Hlíðar-
endasvæðisins breyti skipulags-
tillögum sínum strax í þá átt að
neyðarflugbrautin haldist í notkun til
þess að tryggja öryggi allra lands-
manna. Þannig verði flugvöllurinn í
Vatnsmýrinni í óbreyttri mynd.“
steinthor@mbl.is
Íbúar mótmæla
deiliskipulagi
Morgunblaðið/Golli
Skerjafjörður Íbúasamtök ósátt.
Skipulag Hlíðarendasvæðis umdeilt
Ívar Pálsson
Þó að byrjunin hjá íslenska lands-
liðinu í undankeppni EM í knatt-
spyrnu hafi verið frábær eru enn
sjö leikir eftir, þar af fjórir erfiðir
útileikir. Næsti leikur er gegn
Tékkum í borginni Plzen, um 100
km vestan við Prag.
Leikurinn fer fram sunnudags-
kvöldið 16. nóvember kl. 20.45 að
staðartíma, eða 19.45 að íslensk-
um tíma. Eingöngu er hægt að
kaupa miða á sjálfan leikinn gegn-
um skrifstofu KSÍ, sem fékk 700
miðum úthlutað. Miðaverðið er
6.000 kr. og þarf að panta og
greiða fyrir 28. október nk. Nán-
ari upplýsingar um söluna eru á
vef KSÍ.
Ferðaskrifstofur eru byrjaðar
að selja pakkaferðir til Tékklands,
þar sem flogið verður til Prag. Á
vegum VITA-ferða fer vél frá Ice-
landair út að morgni laugardags-
ins 15. nóvember og heim að
kvöldi þess 17. Gist á hóteli í
Prag. ÍT-ferðir hafa útvegað
leiguflugvél til að fara til Prag á
laugardagsmorgni og heim eftir
leik á sunnudagskvöldi.
Þá eru Gaman-ferðir í samstarfi
við stuðningsmannasveitina Tólf-
una um dagsferð á leikdegi, þar
sem flogið er með vél frá WOW-
air, farið að morgni sunnudags og
komið heim nóttina eftir leik.
Sala hafin
á miðum á
Tékkaleik
Jónas Egilsson