Morgunblaðið - 17.10.2014, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.10.2014, Qupperneq 16
VI TINN 2014 Rafnars er studd þeirri trú að bestu formúlurnar á sviði skrokk- og kjöl- hönnunar hafi ekki enn verið upp- götvaðar,“ segja talsmenn fyr- irtækisins. Stofnandi félagsins er Össur Krist- insson og fjölskylda, stofnandi Össurar hf. Hafa stofnendur lagt félaginu til stofnfé og rekstrarfé meðan beð- ið er eftir því að til- raunaframleiðslan kom- ist á það stig að hægt sé að hefja markaðssetningu og sölu. „Ég vonast til þess að við náum þeim áfanga á fyrri hluta næsta árs,“ segir Björn Jónsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, í sam- tali við Morgunblaðið.„Við erum þróunar- og nýsköpunarfyrirtæki sem haft hefur takmarkaðar tekjur af meginstarfseminni,“ segir hann. Starfsemin er hins vegar kostnaðarsöm. Fyrirtækið þarf stórt húsnæði, öfl- ugan vélbúnað og fjölda starfsmanna. „Eigand- inn hefur lagt starf- seminni til fé til að hægt sé að ljúka þróun og hönnun, enda höfum við öll mikla trú á fram- leiðslunni. Við erum sann- færð um að við séum að skapa eitthvað sérstakt,“ segir hann. Björn segir að þær tekjur sem Rafnar fái núna séu einkum komnar til af því að það hafi spurst út til fyr- irtækja hér á landi að Rafnar hefði Lofar góðu Tilraunir Landhelgisgæslunnar með aðgerðaslöngubátinn Leiftur frá Rafnari hafa gefist mjög vel. Með alveg nýja teg- und af bátsskrokki  Tilraunir með skrokk- og kjölhönnun Rafnars lofa góðu VITINN 20214 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Í Vesturvör í Kópavogi er starfrækt lítil skipasmíðastöð sem frekar hljótt hefur verið um, þótt þar sé unnið merkilegt starf. Á þessum 28 manna vinnustað eru hannaðar og stund- aðar prófanir á skrokkmódelum og tilraunabátum í fullri stærð. Mark- miðið er að framleiða óhefðbundinn bátsskrokk sem hefur mikinn stöðugleika og mýkri hreyfingar en hefðbundnir skrokkar. Á þessi nýi skrokkur að gera bátunum kleift að ráða betur við válynd veður. Auk þess á hann að hafa góða eiginleika við allar aðstæður á sjó. „Nýjungin í hugsun stofnanda MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 2014 Á FERÐ UM ÍSLAND  Skátafélagið Mosverjar í Mos- fellsbæ leggur sitt af mörkum í nær- samfélagi sínu eins og mörg önnur félög skáta. Fyrir utan klassískt skátastarf eins og útilegur, fundi og ýmsar dagsferðir tekur félagið þátt í bæjarhátíðum og fleiri viðburðum, að sögn Ævars Aðalsteinssonar, félags- foringja Mosverja. Mosfellsbær er góður staður fyrir skátastarfið enda stutt að sækja í náttúruna. „Við höfum stundum tal- að um það að skátastarf er eiginlega alveg upplagt í Mosfellsbæ því við er- um svona í útjaðri höfuðborgarinnar. Við gerum mikið út á náttúruna og þessi opnu svæði sem eru við bæjar- dyrnar,“ segir Ævar. Nefnir hann til dæmis að félagið sé með siglinga- aðstöðu við Hafravatn. Mosverji býður upp á tómstunda- starf fyrir börn og ungmenni á aldr- inum 8-22 ára. Félagið er um það bil hálfrar aldar gamalt og segir Ævar að því hafi tekist að halda þátttakenda- fjölda nokkuð stöðugum þrátt fyrir að afþreyingarkostum ungmenna fjölgi sífellt. „Það má segja að síð- ustu fimmtán árin séum við búin að vera í nokkuð góðri sókn. Þátttak- endafjöldinn hefur verið svona rúm- lega hundrað krakkar. Það er ágætis útkoma miðað við stærð bæjarfélags- ins,“ segir hann. Stuðningur bæjarins hefur skipt félagið sköpum en hann lét Mosverja í té félagsheimili í gömlu símstöð- inni. „Starfið var lengi á hrakhólum. Það var í kennslustofum, félags- heimilum og heima hjá fólki í gamla daga. Skátaheimilið gjörbreytti stemningunni,“ segir Ævar. Heimilið sé þó farið að verða of lítið fyrir starfsemina og standist ekki kröfur sem gerðar eru til slíkra húsa. kjartan@mbl.is Ljósmynd/Mosverjar Á árabát Mosverjar eru meðal annars með siglingaaðstöðu við Hafravatn. Upplagt að stunda skátastarf í útjaðri höfuðborgarinnar Klifur Skátastarfið er fjölbreytt. Ung- ur skáti sýnir fimi sína á klifurvegg. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Þegar Hildur Guðný Guðlaugs- dóttir eignaðist sitt fyrsta barn fyr- ir fjórum árum átti hún í erfið- leikum með að finna brjósta- gjafapúða sem hentaði henni. Úr varð að hún og móðir hennar, Sig- ríður Þorsteinsdóttir, hönnuðu einn slíkan. Orðstír púðans barst út, fljótlega voru þær farnar að sauma fyrir vini og kunningja og í dag er púðagerðin orðin nánast full vinna mæðgnanna. Púðann kalla þær Knús og um er að ræða alíslenska hönnun og framleiðslu sem fer fram í bílskúr á Seltjarnarnesi. „Við vildum nafn sem táknaði eitthvað hlýtt og gott, eitthvað sem faðmaði barnið að sér. Eins og barnið sé umvafið knúsi,“ segir Hildur, spurð um nafngiftina. Hildur er viðskiptafræðingur og segist alla tíð hafa haft brenn- andi áhuga á vöruþróun og nýsköp- un. Hún hefur starfað við innkaup fyrir nokkur fyrirtæki og þekkir því vel til framleiðslu- og smá- söluferils. Sigríður er leikskóla- kennari og mikil handavinnukona. Verkaskipting mæðgnanna er á þann veg að Hildur sér um þró- un og markaðsmál og Sigríður um vöruhönnun og að mestu um saumaskap púðanna, sem eru handsaumaðir. Eilífðareign Mæðgurnar hafa lítið auglýst Knús- púðann, Hildur segir ekki hafa staðið til að setja hann á markað, en mikil eftirspurn hafi breytt þeim fyrirætlunum og nú fæst hann í nokkrum barnavöruverslunum og hjá mæðgunum. Púðinn er tvöfaldur og inni í innri púðanum eru litlar frauð- Knúsið dafnar í bíl- skúr á Seltjarnarnesi  Brjóstagjafapúðinn Knús varð til af nauðsyn  Samhentar mæðgur sauma Samhentar Hildur og Sigríður hanna og sauma púðann Knús.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.