Morgunblaðið - 17.10.2014, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014
Yfir 22 þúsund manns fórust í náttúruhamförum á síð-
asta ári, flestir þegar fellibylurinn Haiyan gekk yfir Fil-
ippseyjar í nóvember, en nærri átta þúsund létu lífið
þegar flóðbylgja fór yfir borgina Tacloban og nærliggj-
andi samfélög í Leyte-héraði. Þá fórust sex þúsund
manns í monsúnflóðum á Indlandi í júnímánuði.
Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Alþjóðasamtaka
Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) um ham-
farir. Þar kemur einnig fram að fjöldi þeirra sem fórust í
náttúruhamförum á síðasta ári var töluvert undir með-
altali en á árunum 2004-2013 fórust að meðaltali 98 þús-
und á ári hverju í náttúruhamförum.
Sérfræðingar hafa varað við því að loftslagsbreytingar
hafi og muni leiða til tíðari ofsafenginna veðurviðburða.
Aðalhöfundur skýrslu IFRC, Terry Cannon, segir
stjórnvöld og hjálparsamtök þurfa að auka skilning sinn
á lífi fólks á hættusvæðum en meirihluti þess farist
hvorki né þjáist í hamförum, heldur þjáist það vegna
vandamála daglegs lífs: slæms veðurs, lélegrar næringar
og heilsuskorts. Þá segir hann blekkjandi að reyna að
meta tjón í peningum, víða verði það aðeins metið út frá
missi lífsviðurværis.
226.408
87.476
74.648
55.736
Heildarfjöldi látinna:
22.452
242.829
Heimild: Alþjóða Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn
Verstu náttúruhamfarir síðan 2004
Kasmír - jarðskjálfti
(Pakistan/Indland)
Sichuan, Kína -
jarðskjálfti
Búrma -
fellibylurinn
Nargis
Haítí - jarðskjálfti
Indlandshaf - flóðbylgja
2004
2004 2008
2008
2005
Rússland -
hitabylgja/eldar
2010
2010 2008
2010
2013
138.375
222.570
88.887
23.848
16.856
235.272
10.806
297.728
31.324
9.535
22.452 fórust í náttúruhamförum
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Nokkrir bandarískir þingmenn hafa
kallað eftir afsögn Thomas Friedens,
forstjóra bandarísku sóttvarnastofn-
unarinnar (CDC), en þarlend heil-
brigðisyfirvöld hafa verið harðlega
gagnrýnd vegna viðbragða, og við-
bragðsleysis, í kjölfar þess að heil-
brigðisstarfsmaður í Texas smitaðist
af ebólu. Þá hefur það vakið reiði og
ótta að öðrum heilbrigðisstarfs-
manni, sem einnig greindist með
ebólu, skuli hafa verið leyft að fljúga
með almenningsflugi, þrátt fyrir að
hafa mælst með hita.
Frieden mætti fyrir þingnefnd í
gær þar sem hann viðurkenndi að
enn væri ekki vitað hvernig heil-
brigðisstarfsmennirnir tveir hefðu
smitast. Hann ítrekaði þó að sótt-
varnastofnunin teldi að Bandaríkja-
mönnum stafaði ekki umtalsverð ógn
af ebólu. Viðbrögð þingmanna við
ummælum Friedens voru ólík, sumir
lögðu áherslu á að fólk væri óttasleg-
ið og að gera þyrfti viðbragðsáætlun,
en aðrir vöruðu við því að hvetja til
múgæsingar meðal almennings.
Herða aðgerðir
Sóttvarnastofnunin hefur nú til
skoðunar að banna heilbrigðisstarfs-
mönnum sem mögulega hafa komist
í tæri við ebólu að fljúga. Fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
tilkynnti í gær að hún myndi beita
sér fyrir því að kanna hvernig
skimun á samgöngumiðstöðvum í
Líberíu, Gíneu og Síerra Leóne væri
háttað og bæta hana ef nauðsyn
krefðist. Þá samþykktu heilbrigðis-
ráðherrar Evrópusambandsríkjanna
að samhæfa aðgerðir á landamærum
sambandsins en ákvörðun um skim-
anir verður þó á forræði hvers ríkis
fyrir sig.
Hjúkrunarfræðingur sem annað-
ist fyrsta ebólusjúklinginn í Frakk-
landi var fluttur á hersjúkrahús í
gær eftir að hún mældist með hita.
Nina Pham, annar hjúkrunarfræð-
inganna sem smituðust af ebólu í
Texas, var í gær flutt frá Dallas á
sjúkrahús í Bethesda í Maryland.
Nokkrir skólar lokaðir
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin til-
kynnti í gær að hún hygðist herða
aðgerðir sínar til að aðstoða 15 Afr-
íkuríki við að verja sig gegn út-
breiðslu ebóluveirunnar.
Á sunnudag höfðu 4.493 dáið af
völdum veirunnar og 8.997 tilfelli
verið greind, samkvæmt stofnun-
inni. Hún hefur varað við því að í
byrjun desember gæti útbreiðsla
veirunnar verið orðin slík að allt að
10 þúsund manns smituðust í hverri
viku.
Nokkrum skólum í Ohio og Texas
var lokað í gær af ótta við að nem-
endur eða kennarar hefðu komist í
návígi við hjúkrunarfræðinginn
sem ferðaðist í flugi skömmu áður
en hún greindist með ebólu. Skóla-
yfirvöld sögðu að lokanirnar væru
varúðarráðstöfun en skólabygging-
arnar yrðu vandlega þrifnar.
Heilbrigðisyfirvöld
sæta harðri gagnrýni
Kalla eftir afsögn forstjóra CDC Heilbrigðisstarfsfólki bannað að fljúga?
AFP
Gagnrýni Fulltrúar bandarískra heilbrigðisstofnana voru kallaðir fyrir eft-
irlitsnefnd í gær. Thomas Frieden er lengst til vinstri á myndinni.
Evrópuþingflokkurinn Europe of
Freedom and Direct Democracy
(EFDD) hefur verið leystur upp eft-
ir að lettneski þingmaðurinn Iveta
Grigule sagði sig úr flokknum, en
hann uppfyllir ekki lengur það skil-
yrði að samanstanda af þingmönn-
um frá a.m.k. sjö löndum.
Upplausn flokksins er mikið áfall
fyrir Nigel Farage, leiðtoga Breska
sjálfstæðisflokksins (UKIP), en
hann hafði myndað bandalag með
Fimm stjörnu hreyfingu ítalska
popúlistans Beppes Grillos um sam-
starf á Evrópuþinginu.
Farage sakaði í gær Martin
Schulz, forseta þingsins, um að
hafa haft hönd í bagga með því að
Grigule hætti, en hann hefði tjáð
henni að hún þyrfti að segja skilið
við EFDD til að ná kjöri sem for-
maður þingnefndar um Kasakstan.
AFPÁfall UKIP verður nú af talsverðum
fjármunum sem veitt er til þingflokka.
Evrópuþingflokkur
Nigels Farage heyrir
sögunni til
EVRÓPUÞINGIÐ
Björgunarmenn á þyrlum börðust
við mittisháan snjó í Himalajafjöll-
um í gær og björguðu 154 heima-
og ferðamönnum, en að minnsta
kosti 30 fórust þegar gríðarlegur
snjóbylur gekk yfir Manang- og
Mustanghéruð í Nepal á þriðju-
dag. Staðaryfirvöld sögðu að 23 lík
hefðu fundist á vinsælli gönguleið
á Annapurna-svæðinu, en fimm
fjallgöngumenn, sem voru í grunn-
búðum þegar snjóflóð féll, voru
einnig taldir af.
Meðal látinna voru ferðamenn
frá Kanada, Ísrael og Indlandi.
Þúsundir heimsækja Annapurna-
svæðið í októbermánuði ár hvert,
þegar veðurskilyrði eru oftar en
ekki hagstæð, en 168 erlendir
ferðamenn höfðu tilkynnt að þeir
hygðust ganga á svæðinu í þessari
viku.
Bandarískur ferðamaður sem
lenti í stórhríðinni sagði í samtali
við AFP í gær að sá sem hefði um-
sjón með veðurtilkynningum til
fjallgöngufólks hefði sýnt af sér al-
varlega vanrækslu. Varaforseti
samtaka nepalskra ferðafélaga
sagði hins vegar að fjallaþjóðin
hefði ekkert slíkt viðvörunarkerfi
til að grípa til.
Mikið snjófall hefur verið á
svæðinu vegna fellibylsins Hud-
hud, sem gekk yfir austurströnd
Indlands síðastliðna helgi.
154 bjargað í
Himalajafjöllum
30 fórust í stórhríð og snjóflóðum
AFP
Hjálp Björgunarmenn voru að störf-
um í gær og notuðu m.a. þyrlur.