Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014 Opnun nýrrar verslanamiðstöðvar í borginni Tartus í Sýrlandi hefur verið gagnrýnd af stuðnings- mönnum Bashars al-Assads, for- seta Sýrlands, en innan hennar má m.a. finna sjö veitingastaði og verslanir. Miðstöðin er talin hafa kostað um 50 milljónir Bandaríkja- dala, en þrátt fyrir að verkefnið sé einkaframkvæmd nýtur það stuðn- ings stjórnarinnar. Einn stuðningsmaður forsetans sagði á Facebook að 60% íbúa Tartus hefðu ekki efni á því að versla í miðstöðinni en þá þykir verkefnið sérstaklega hneyksl- anlegt í ljósi þess að flestir þeirra hermanna sem látið hafa lífið í átökunum í Sýrlandi eru frá Tar- tus. Til stendur að ráðast í enn fleiri „túrismatengd verkefni“ á svæðinu á næstunni en meira að segja starfsmönnum í ferðaþjónustu þyk- ir nóg um. Verkefnin „hunsi tilfinn- ingar fjölskyldna fjölda hermanna frá þessu svæði sem hafa látið líf- ið“, eins og einn komst að orði. Verslanamiðstöð veldur hneykslan AFP Lúxus Jafnvel stuðningsmenn forsetans gagnrýna byggingu versl- anamiðstöðvarinnar. Myndin tengist fréttinni ekki beint. John Kerry, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, mátti gera sér að góðu að ferðast heim frá Vín í al- menningsflugi í gær eftir að flug- vél hans bilaði í fjórða sinn á þessu ári. Frá því Kerry tók við embætti í febrúar 2013 hefur hann flogið yfir 900.000 kílómetra og heimsótt 55 lönd, en það hefur ekki gengið áfallalaust. Snemma á þessu ári þurfti að fljúga með varahluti í vél ráðherrans frá Bandaríkjunum til Sviss, í mars bil- aði vélin í Lundúnum og í ágúst sl. neyddust ráðherrann og fylgdarlið til að fljúga heim frá Havaí í al- menningsflugi eftir að rafkerfið í vélinni brást. Í Vín átti Kerry m.a. fundi með Catherine Ashton, utanríkismála- stýru Evrópusambandsins, og Mo- hammad Javad Zarif, utanrík- isráðherra Írans. Þegar Zarif heyrði af hrakföllum Kerrys hló hann að sögn fréttasíðunnar al- Monitor og sagði: „Þetta eru þá ekki bara flugvélarnar okkar.“ BANDARÍKIN Flugvél utanríkis- ráðherrans bilar í fjórða sinn John Kerry Franskur dóm- stóll hafnaði í gær beiðni belg- íska svæf- ingalæknisins Helgu Wauters um að vera sleppt úr haldi gegn tryggingu. Mál Wauters hef- ur vakið mikla athygli í Frakklandi en hún hefur viðurkennt að hafa aðstoðað við keisaraskurð undir áhrifum áfeng- is. Móðirin lést en læknum tókst að bjarga barninu. Atvikið átti sér stað 26. septem- ber sl. en þá gaf Wauters konunni, 28 ára, mænurótardeyfingu áður en hún fór og fékk sér í glas með vinum sínum. Fæðingin gekk ekki sem skyldi og var Wauters kölluð til þegar ljóst varð að konan þyrfti að gangast undir keisaraskurð. Wauters lyktaði af áfengi og hegð- aði sér „skringilega“ að sögn við- staddra. Þegar hún gerði tilraun til að tengja konuna við öndunarvél rak hún slönguna ofan í vélinda konunnar í stað þess að barka- þræða hana. Konan lést fjórum dögum síðar. Að sögn rannsakenda málsins drakk Wauters hálfan lítra af vodka blönduðu út í vatn umrætt kvöld en heima hjá henni fundust 17 tómar vodkaflöskur. Hún hefur viðurkennt að hún eigi við áfengis- vanda að stríða. FRAKKLAND Aðstoðaði við keisaraskurð undir áhrifum áfengis Helga Wauters Dómstóll í Pakistan hefur staðfest dauðadóm yfir kristinni konu sem var fundin sek um guðlast fyrir fjórum árum. Asia Bibi, fimm barna móðir, var dæmd til dauða 2010 fyr- ir að hafa látið falla niðrandi um- mæli um Múhameð spámann þegar hún reifst við múslimska konu. Lögmaður Bibi hefur heitið því að hann muni áfrýja dómnum en guðlast er litið afar alvarlegum augum í Pakistan, þar sem 97% íbúa eru múslimar. Tveir stjórn- málamenn voru myrtir 2011 eftir að þeir kölluðu eftir því að lögum um guðlast yrði breytt. PAKISTAN Staðfesti dauðadóm fyrir guðlast Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu. Snjallara heyrnartæki Beltone First™ Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.