Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 35
ferðaskrifstofum hér á landi frá
1987, en einkum hjá Íslenskum
fjallaleiðsögumönnum nú síðustu
sumrin. Þá hefur maður Grímu lengi
stundað akstur í leiðsöguferðum
hennar en um þessar mundir eru
þau einmitt að stofna eigið ferða-
þjónustufyrirtæki: „Það er svo gott
að hafa hann með í ferðum því hann
er snilldarkokkur,“ segir Gríma.
Gríma hefur spilað blak með
Laugdælum frá því elstu menn
muna og er enn að: „Aðalmótið hjá
okkur er öldungamótið sem er alltaf
jafnfjörugt. Annars höfum við hjónin
alltaf haft áhuga á hlaupum, hlupum
maraþon í París 2004, hlupum
Laugaveginn sama ár að ógleymdu
rauðvínsmaraþoninu – „Marathon
du Médoc“ við Bordeaux í Frakk-
landi árið 2011. Þar voru vínsmökk-
unarstaðir á tveggja kílómetra
fresti, en við komumst alla leið og
vorum bara rétt mátuleg þegar við
komum í mark.“
Þau skötuhjú standa fyrir vinsælu
utanvegahlaupi í kringum Laugar-
vatn, Gullsprettinum, sem fagnar tíu
ára afmæli næsta vor.
Fjölskylda
Maður Grímu er Sigurður Hall-
dórsson, f. 27.8. 1962, módelsmiður.
Foreldrar hans: Halldór Sigurjón
Sveinsson, f. 1.4. 1938, d. 21.9. 1986,
skipstjóri, og Kristveig Baldurs-
dóttir, f. 21.7. 1939, húsfreyja og
fyrrv. bankamaður.
Dætur Sigurðar frá því áður eru
Minney Sigurðardóttir, f. 21.10.
1986, jarðfræðingur á Svalbarða, og
Martha Sigurðardóttir, f. 11.5. 1991,
háskólanemi.
Börn Grímu og Sigurðar eru Vera,
f. 3.6. 1994, nýstúdent, og Emil, f.
7.8. 1996, menntaskólanemi.
Hálfsystir Grímu, sammæðra, er
Hrund Jónsdóttir, f. 23.5. 1984,
íþróttafræðingur.
Hálfsystir Grímu, samfeðra, er
Þórhildur, f. 8.1. 1972, bókari.
Foreldrar: Guðmundur Svavars-
son, f. 22.6. 1944, tæknifræðingur í
Hafnarfirði, og Ágústa Hrund Em-
ilsdóttir, f. 5.1. 1948, fyrrv. versl-
unarmaður í Grundarfirði og í
Reykjavík.
Í tilefni afmælisins verður Gríma
með grímuball í Héraðsskólanum á
Laugarvatni á afmælisdaginn.
Úr frændgarði Grímu Guðmundsdóttur
Gríma
Guðmundsdóttir
Jófíður Kristjánsdóttir
húsfr. á Furubrekku
Páll Þórðarson
b. á Furubrekkku í Staðarsveit
Þuríður Guðmundsdóttir
húsfreyja í Hveragerði
Ingibjörg Árnadóttir
húsfreyja á Höfða
Guðmundur Ólason
b. á Höfða, S-Múlasýslu
Ágústa Rós Árnadóttir
sagnfr.
Rósa Hrund
Guðmundsdóttir
fiðluleikari
Björt Baldvinsdóttir
alþjóðastjórnmálafr.
Emilía Guðmundsdóttir
sálfræðingur
Árni M. Emilsson
fyrrv. bankaútibússtjóri í
Garðabæ
Guðmundur Magnússon
fyrrv. fræðslustjóri
Austurlands
Sigurður Magnússon
fyrrv. formaður
Kaupmannasamtaka Íslands
Stefanía Magnúsdóttir
húsfr. í Rvík
Karl Th. Birgisson
blaðamaður
Aðalheiður Rósa Emilsdóttir
húsfr. í Garðabæ
Aagot Emilsdóttir
húsfreyja í Garðabæ
Emil Emilsson
rekstrarhagfr.
Rósa Jónína Sigurðardóttir
húsfreyja á Reyðarfirði
Magnús
Guðmundsson
verslunarm. á
Reyðarfirði
Emil Jóhann Magnússon
kaupmaður í Grundarfirði
Ágústa Kristín Árnadóttir
húsfreyja í Grundarfirði
Ágústa Hrund Emilsdóttir
verslunarm. í Grundarfirði og Rvík
Aðalheiður
Sigurðardóttir
húsfreyja í
Vestmannaeyjum
Árni Finnbogason
skipstj. í Vestmannaeyjum
Monika Emilsdóttir
læknir
Una Emilsdóttir
læknanemi
Jóhannes Pálsson
uppfinningamaður í Hveragerði
Guðmundur Svavarsson
tæknifræðingur í Hafnarfirði
Gísli J. Gíslason
rafvirki í
Hveragerði
Ástríður
Jóhannesdóttir
læknir í Rvík
Lagt af stað í Rauðvínsmaraþon
Gríma og Sigurður.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014
Ludvig fæddist við Laufásveg-inn í Reykjavík fyrir einniöld og ólst upp í foreldra-
húsum. Foreldrar hans voru Hjálm-
týr Sigurðsson, kaupmaður í
Reykjavík, og k.h., Lucinde Fr.V.
Hansen húsfreyja.
Hjálmtýr var sonur Sigurðar Sig-
mundssonar, þurrabúðarmanns á
Stokkseyri, og Gyðríðar Hjaltadótt-
ur húsfreyju, en Lucinde var dóttir
Ludvigs Hansen, verslunarmanns í
Reykjavík, og Marie Vilhelmsdóttur
Bernhöft, bakara í Reykjavík Daní-
elssonar Bernhöft bakara.
Meðal systkina Ludvigs var
Hjálmtýr bankamaður, faðir söngv-
aranna Sigrúnar og Páls Óskars.
Eiginkona Ludvigs var Kristjana,
systir Halldórs teiknara og dóttir
Péturs Halldórssonar, alþm. og
borgarstjóra í Reykjavík, og k.h.,
Ólafar Björnsdóttur húsfreyju.
Börn Ludvigs og Kristjönu eru
Pétur barnalæknir í Reykjavík og
Erna María sem lést 2009.
Ludvig var í kvöldskóla VÍ og við
Héraðsskólann á Laugarvatni. Hann
var verslunarmaður í Reykjavík
1933-45, skrifstofumaður hjá Sjálf-
stæðisflokknum 1945-46, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðishússins í
Reykjavík 1946-63, formaður Ferða-
málaráðs 1964-76 og var fyrsti ferða-
málastjórinn 1976-84.
Ludvig var formaður Heimdallar
og Sambands veitinga- og gistihúsa-
eigenda um árabil, sat í stjórn VR og
Ferðamálafélags Reykjavíkur, var
forseti Nordisk Hotel og Restaurant
Forbund, sat í miðstjórn Inter-
national Hotel Association, var vara-
bæjarfulltrúi í Reykjavík 1946-50,
formaður skólanefndar Matsveina-
og veitingaþjónaskólans, sat í mats-
nefnd veitingahúsa, var fulltrúi Ís-
lands í ferðamálanefnd Norðurlanda
og sat í orðunefnd. Hann var sæmd-
ur riddarakrossi fálkaorðunnar
1962.
Ludvig ritaði kaflann um Ísland í
Reiseliv í Norden. Hann var afar
fróður um mannlíf og búsetusögu
Reykjavíkur og er viðmælandi Páls
Líndals í hinni bráðskemmtilegu
bók þeirra, Á götum Reykjavíkur.
Ludvig lést 24.6. 1990.
Merkir Íslendingar
Ludvig Hjálmtýsson
95 ára
Kristín Marsib.
Aðalbjörnsdóttir
90 ára
Ellý Kristjánsson
Kristinn Sveinsson
85 ára
Sigríður
Guðmundsdóttir
80 ára
Erla Eymundsdóttir
Kári Sigurbergsson
75 ára
Alda Aradóttir
Áslaug B. Ólafsdóttir
Guðmundur J. Sveinsson
Gunnar Björn Jónsson
Gunnar Þórir Karlsson
Hermann Jónsson
Hlöðver Þórarinsson
Kolbrún Leifsdóttir
Ólafur Ólafsson
Þórir Sigurðsson
70 ára
Bárður Árnason
Brynja Árnadóttir
Hákon Ólafur Ísaksson
Jóhanna Friðgeirsdóttir
Kjartan Þorbergsson
60 ára
Anna Soffía Þorsteinsdóttir
Birgir Guðmundsson
Björg Guðmundsdóttir
Björn Hrafnsson
Chalieo Raijanthuek
Elísabet B. Þórisdóttir
Fjóla Sigurðardóttir
Hallfríður F. Sigurðardóttir
Henryka Biala
Ona Ziziuniené
Rosenda Rut Guerrero
Sigfús Ægir Árnason
50 ára
Arndís Auður
Halldórsdóttir
Brynja Eyþórsdóttir
Dieter Roth
Guðrún Björnsdóttir
Guðrún Ingadóttir
Ingibjörg Blöndal
María Sigurjónsdóttir
Óttar Möller
Páll Þór Júlíusson
Smári Hreiðarsson
Steinunn Ósk Stefánsdóttir
Svava Guðmannsdóttir
Theodóra Björk
Heimisdóttir
Þorvaldur E. Þorvaldsson
40 ára
Ásrún Helga
Kristinsdóttir
Erna Rós Aðalsteinsdóttir
Fríða Birna Þráinsdóttir
Magnfreð Ingi Jensson
Ómar Awad Green
Piotr Kowalonek
Sigurður Ingi
Friðleifsson
Sigurrós Óskarsdóttir
Þóra Björg
Hilmarsdóttir
30 ára
Andrea Ösp Pálsdóttir
Anna Helga Björnsdóttir
Axel Örn
Sveinbjörnsson
Brynja Elín Birkisdóttir
Elva Dögg Tórshamar
Eva Maren
Guðmundsdóttir
Marta Sienda
Pawel Jastrzebski
Sölvi Davíðsson
Þóra Björk Gísladóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Ólöf Anna ólst
upp í Reykjavík, býr þar
og er að ljúka BA-prófi í
ritlist og þjóðfræði frá HÍ.
Maki: Ómar Karlsson, f.
1976, flugumsjónar-
maður.
Dóttir: Valgerður Lilja
Ómarsdóttir, f. 2011.
Foreldrar: Jóhann Berg
Þorgeirsson, f. 1960, bíla-
sali, og Stefanía Björk
Reynisdóttir, f. 1961, skrif-
stofumaður. Þau búa í
Kópavogi.
Ólöf Anna
Jóhannsdóttir
30 ára Eydís ólst upp á
Vestri-Sámsstöðum I,
lauk MS-prófi í líf- og
læknavísindum og er
náttúrufr. við LSH.
Maki: Ingibjörn Guð-
jónsson, f. 1982, líffræð-
ingur hjá Heilbrigðis-
eftirlitinu í Reykjavík.
Börn: Baltasar Jón, f.
2012.
Foreldrar: Erla Hlöðvers-
dóttir, f. 1958, og Guð-
mundur Jónsson, f. 1958,
bændur á Sámsstöðum.
Eydís Þórunn
Guðmundsdóttir
30 ára Eyrún ólst upp á
Vestur-Sámsstöðum I í
Fljótshlíð og er bóndi þar.
Maki: Gunnar Már Eyland
Gestsson, f. 1982, sjó-
maður.
Dætur: Katrín Eyland, f.
2007, Þórunn Eyland, f.
2010, og Bergrún Eyland,
f. 2012.
Foreldrar: Erla Hlöðvers-
dóttir, f. 1958, bóndi, og
Guðmundur Jónsson, f.
1958, bóndi. Þau búa á
Vestur-Sámsstöðum.
Eyrún María
Guðmundsdóttir
FRAKKAR – KÁPUR – ÚLPUR
Við hreinsum
yfirhöfnina
fyrir veturinn
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380