Morgunblaðið - 17.10.2014, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 290. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Bjarna Ben-megrunarkúrinn í Nettó
2. Eyðir 135 þúsund í mat og drykk
3. Brúðkaupsveisla við Bæjarins bestu
4. Stefnir hún í að springa sjálf?
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Listasafn Íslands fagnar 130 ára
afmæli á þessu ári og heldur upp á
afmælið með sérstökum fjölskyldu-
degi í safninu við Fríkirkjuveg á laug-
ardaginn, 18. október, frá kl. 11.30. Kl.
13, að loknum afmælissöng, verður
gestum boðið upp á tertur frá Tertu-
galleríinu sem verða prýddar lista-
verkum eftir nokkra meistara ís-
lenskrar myndlistarsögu. Á myndinni
sést ein slík terta, prýdd verkinu
Átrúnaður eftir Guðmundu Andrés-
dóttur frá árinu 1971.
Boðið verður upp á leiðsögn um
safnið á fjölskyldudeginum, Ólafur
Ingi Jónsson forvörður og Dagný
Heiðdal, deildarstjóri listaverkadeild-
ar, sýna listaverkageymslur safnsins
og myndlistargetraun verður fyrir
unga sem aldna og hlýtur vinnings-
hafi vegleg verðlaun. Einnig verður
sýnt vídeóportrett sem myndlistar-
maðurinn Snorri Ásmundsson hefur
tekið af gestum safnsins. Hlíf Sigur-
jónsdóttir, dóttir Sigurjóns Ólafs-
sonar myndlistarmanns, hefur dag-
skrána með leiðsögn um sýninguna
Spor í sandi með æskuverkum Sigur-
jóns. Afmælisfagnaður safnsins hef-
ur staðið yfir í vikunni og er aðgang-
ur að því ókeypis fram til sunnudags,
19. október.
Boðið upp á tertur
prýddar listaverkum
Myndlistarkonan Ásdís Sif Gunnars-
dóttir sýnir í kvöld kl. 21 myndbönd og
myndir og les orð og ljóð úr dagbókum
og greinum sem hún hefur fundið í
menningarhúsinu Mengi.
„Þetta verður kvöld til að
líta um öxl, leggjast á
gólfið, horfa til himins
og íhuga hvað fegurð er
og hvernig við leitum
að henni,“ segir í til-
kynningu.
Litið um öxl með
Ásdísi Sif í Mengi
Á laugardag Norðaustan og austan 10-18 m/s, hvassast suð-
austanlands og á annesjum norðvestantil. Víða rigning og slydda
til fjalla, en úrkomulítið norðvestanlands. Hiti 2 til 10 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 5-10 m/s, en 10-15
syðst og við norðvesturströndina. Dálítil rigning eða slydda með
köflum, en yfirleitt þurrt suðvestantil. Hiti 0-10 stig, mildast syðst.
VEÐUR
Eftir sex sigurleiki í röð í
Olís-deild karla í handknatt-
leik kom að því að Aftureld-
ing tapaði stigi en það tap-
aði hinsvegar ekki leik.
Afturelding náði jafntefli
við Hauka á heimavelli í
æsilegum leik þar sem Mos-
fellingar voru fjórum mörk-
um undir skömmu fyrir
leikslok. ÍR vann HK og er í
öðru sæti. Fram komst úr
botnsætinu og FH vann
stórsigur á Akureyri. »2
Afturelding tap-
aði einu stigi
„Það voru miklar væntingar fyrir
tímabilið eftir að hafa lent í 2. sæti á
síðustu leiktíð. Menn vonuðust til að
nú næðum við efsta sætinu og færum
upp í efstu deild. En við vorum
óheppnir í byrjun móts og stjórnin
ákvað því að breyta til,“ segir Helgi
Kolviðsson, sem var rek-
inn frá Lustenau. »4
Ísland ekki inni í
myndinni hjá Helga
KR, Haukar og Tindastóll hafa
unnið tvo fyrstu leiki sína í Dom-
inos-deild karla í körfuknattleik en
fjórir leikir fóru fram í deildinni í
gærkvöld. KR hafði betur á móti
ÍR, Tindastóll skellti Þór Þorláks-
höfn á heimavelli sínum á Krókn-
um og Haukar gerðu góða ferð í
Stykkishólm þar sem þeir lögðu
Snæfell. »2-3
KR, Tindastóll og
Haukar á sigurbraut
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Þetta hefur verið eitt stórt ævin-
týri, alveg frá konsertfrumflutn-
ingnum í Skálholti í fyrra, sviðsetn-
ingu Íslensku óperunnar í vor og að
upptökunum núna, sem hafa gengið
mjög vel,“ segir Friðrik Erlingsson,
annar höfundur óperunnar Ragn-
heiðar ásamt Gunnari Þórðarsyni.
Hljóðritun óperunnar lauk í gær í
Norðurljósasal Hörpu, með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og Óperu-
kórnum ásamt níu einsöngvurum
undir stjórn Petris Sakaris hljóm-
sveitarstjóra. Síðar í vetur kemur út
vegleg þriggja diska CD-útgáfa
ásamt bók með texta óperunnar á ís-
lensku og ensku. Heildarkostnaður
við hljóðritun og framleiðslu er áætl-
aður um 13 milljónir króna.
„Eftir tvær vikur opnum við fyrir
hópfjármögnun á vef Karolina Fund.
Þetta er afar dýr framkvæmd og því
leitum við eftir stuðningi almennings
með því að forselja hluta upplagsins,
enda voru það ekki síst hin frábæru
viðbrögð almennings sem hvöttu
okkur til að hljóðrita verkið og skila
því frá okkur í bestu mögulegu gæð-
um. Þrátt fyrir góðan styrk frá ríkis-
stjórninni og örfáum einkaaðilum
vantar okkur enn herslumuninn. Við
biðlum því til almennings og aðdá-
enda Ragnheiðar,“ segir Friðrik.
Vongóðir að ná fjármögnun
Þeir félagar setja markið á 25 þús-
und evrur, tæpar fjórar milljónir ís-
lenskra króna. „Við höfum fulla trú á
þeirri leið sem Karolina Fund hefur
lagt til og erum vongóðir um að ná
þessu marki,“ bætir Friðrik við.
Hljóðblöndun og öll eftirvinnsla
fer fram hérlendis og er undir stjórn
Sveins Kjartanssonar hjá Stúdíó
Sýrlandi.
Friðrik segir að þeir Gunnar hafi
verið djúpt snortnir yfir þeim við-
brögðum sem óperan fékk hér á
landi og spenntir fyrir þeim áhuga
sem orðið hefur vart erlendis.
Breskt óperutímarit, Opera Now, og
þýskt, Opernwelt, fóru lofsamlegum
orðum um verkið og líkur eru á að
óperan verði sett upp erlendis
haustið 2015, en Friðrik getur ekki
gefið meira uppi um það að svo
stöddu.
Vinna saman að næstu óperu
En ætla þeir félagar að halda
samstarfinu áfram?
„Við Gunnar erum að skoða hug-
myndir að næsta verki, en getum þó
ekki einbeitt okkur að því fyllilega
fyrr en við höfum kvatt hana Ragn-
heiði okkar formlega, gengið frá
upptökum og sent hana frá okkur í
bestu mögulegu gæðum.“
Eitt er víst að næsta ópera mun
byggjast á atburðum úr sögu lands
og þjóðar. Friðrik segir þá báða hafa
verið ástfangna af sögu Ragnheiðar.
„Svona verk verður ekki unnið nema
með hjartanu, svo efni nýrrar óperu
verður valið út frá því.“
Upplifun að sjá verkið blómstra
Friðrik segir að óperutexti, libr-
etto, sé í raun langt söguljóð. En
með tónlistinni og síðan túlkun
söngvaranna við flutning verksins
komi allt saman til að skapa hina
voldugu töfrandi heild sem óperu-
formið er.
„Og það er stórbrotið ferli og mik-
il upplifun að sjá verkið svo blómstra
og taka flugið í höndum slíkra lista-
manna sem Petri Sakari og hljóð-
færaleikara Sinfóníunnar, meðlima
Óperukórsins og okkar stórfenglegu
einsöngvara. Það er auðvelt að verða
háður þeim töfrum og vilja halda
áfram,“ segir Friðrik að lokum.
Háður töfrum óperunnar
Hljóðritun á óperunni Ragnheiði hópfjármögnuð á vefsíðu Karolina Fund
Morgunblaðið/Golli
Hljóðritun óperunnar Ragnheiðar Jóhann Smári Sævarsson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Björn I. Jónsson, Þóra Einarsdóttir, Friðrik Erlingsson, Petri
Sakari, Gunnar Þórðarson, Elmar Gilbertsson, Viðar Gunnarsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands á bak við hópinn.