Morgunblaðið - 28.10.2014, Síða 31

Morgunblaðið - 28.10.2014, Síða 31
Hafði hann af þeim töluverða ánægju og átti hann mikinn þátt í starfsemi Félags húsgagna- og innanhússarkitekta, bæði sem formaður og líka stjórnarmaður. Hann tók af fullum krafti þátt í stofnun félagsins Listiðnar og síðar Form Ísland, sem formað- ur um langt árabil. Stefán hafði mikinn faglegan metnað. Það háði honum eins og mörgum öðrum hve markaðurinn á Ís- landi er smár. Útflutningur eng- inn á húsgögnum. Stefán skrif- aði ágætar greinar í tímaritið Iðnaðarmál vegna inngöngu Ís- lands í EFTA í kringum 1970. Þetta voru þarfar og vel skrif- aðar greinar. Hann var fullur bjartsýni og sá fyrir sér aukinn útflutning og marga möguleika opnast við inngönguna. Því mið- ur hefur raunin ekki orðið sú og við glímum enn við sömu vanda- mál og þá, þar ber gjaldeyrismál hæst. Íslensk hönnun hefur samt á þessu tímabili á ýmsan hátt dafnað og eiga eldhugar eins og Stefán Snæbjörnsson sinn þátt í því. Hann var einn af upphafsmönnum þess að koma á fót Hönnunarsafni Íslands og var fyrsti formaður þeirrar stofnunar. Sá hann veg safnsins sem allra mestan. Þessi störf hans koma til með að halda minningu hans á lofti um ókom- in ár. Ég vona að Garðbæingar sjái á sinn hátt um að heiðra minningu Stefáns með traustum stuðningi við safnið. Stefán hætti að mestu rekstri eigin teiknistofu fyrir allnokkrum ár- um, en hóf þá störf í mennta- málaráðuneytinu þar sem hann lét ýmislegt gott af sér leiða í þágu hönnunar og fagurra lista. Síðustu ár höfum við verið í stöðugu sambandi. Átt skemmti- lega spjallfundi með nokkrum góðum kollegum með jöfnu millibili. Ég vona að hann hafi notið þess eins og ég. Við Brigitte sendum fjöl- skyldu Stefáns og ástvinum inni- legar samúðarkveðjur. Megi minningin um góðan dreng lifa. Pétur B. Lúthersson og Brigitte Lúthersson-Patt. Vináttubönd tókust með okk- ur Stefáni fyrir réttum sex árum þegar ég tók við starfi forstöðu- manns Hönnunarsafns Íslands. Þá hafði hann nýlokið störfum þar og mér varð ljóst að honum var í mun að við næðum saman. Hafi hann óttast að hann myndi missa tenginguna við Hönnunar- safnið með komu minni, en Stef- án hafði mörgum fremur unnið að stofnun safnsins, þá held ég að hann hafi fljótt fundið að við deildum sömu hugsjón. Við ræddum oft saman, Stefán hringdi iðulega og vildi fylgjast með og ræða um starfsemi safnsins. Við ferðuðumst saman nokkur skipti þar sem ég naut leiðsagnar hans og frásagna. Stefán var gagnrýninn á verk hönnuða okkar og listamanna. Sú gagnrýni byggði á góðri yf- irsýn og næmni sem hann hafði á gott handbragð og verklag. Hann miðlaði skoðunum sínum með sterkum rómi. Enginn þurfti að velkjast í vafa um hvað Stefáni fannst. Hann ritaði fjölda greina um hönnun og stjórnaði sýningum bæði innan- lands og utan á íslenskri hönnun og listhandverki. Hlutverk Stef- áns var stórt innan raða ís- lenskra hönnuða í félagsstörfum þeirra og Stefán var mjög virk- ur í framgangi þessarar stóru greinar sem telur fjölda fag- félaga í dag. Hann hafði góð tengsl við erlenda kollega sína og sat um árabil í dómnefnd norrænu Torsten och Wanja Sö- derbergspris þar sem hann hélt ávallt uppi merkjum íslenskrar hönnunar og var óþreytandi að upplýsa norræna kollega sína um stöðuna. Stefán var menntaður hús- gagna- og innanhússarkitekt frá Ósló. Hann var ötull í sínum verkefnum og eftir hann liggja ýmis verkefni. Hann hannaði meðal annars fjölda loftljósa sem voru framleidd á Íslandi og enn má finna í húsum, í friði fyr- ir endurbótum og endurgerðum á okkar tíma. Stefán var flinkur teiknari og tók sem dæmi að sér að teikna jólaskeiðarnar fyrir Gull- og silfursmiðjuna Ernu á 9. áratug síðustu aldar og teikn- aði ýmis veggspjöld fyrir hús- gagna- og listhönnunarsýningar sem hann vann að. Hann hann- aði stóla, borð og önnur húsgögn sem sjást varla í dag nema að kunnáttufólk í íslenskri hönnun- arsögu beri kennsl á, því lítið hefur verið kortlagt um íslenska hönnunarsögu í dag. Við horfum fram á betri tíma með Hönn- unarsafnið í því verkefni, sem Stefán lagði svo mikla áherslu á að fengi að komast á legg. Við snæddum saman í sumar og þar viðruðum við ýmsar hug- myndir um leiðir í verkefnum framundan eins og við gerðum oft. Við enduðum hádegisverð- inn í safninu. Verið var að ljós- mynda safnmuni og flokka. Ég fann að Stefán var sáttur þar sem hann gekk inn í annríki dagsins og varð vitni að því að ýmsum verkefnum væri sinnt, slík vinna kemur ekki almennum safngestum fyrir sjónir. Þennan hluta senunnar þekkti Stefán mæta vel. Við í Hönnunarsafn- inu munum sakna reglulegra heimsókna Stefáns, hann kom jafnan í aðdraganda sýninga þegar hamagangur var mikill og gekk í hægðum sínum við staf eftir salnum, íbygginn á svip og leit yfir. Fjölskyldu Stefáns sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Ég kveð góðan félaga og samherja. Blessuð sé minn- ing Stefáns. Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands. Mætur drengur er nú horfinn yfir móðuna miklu. Stefán Jón Snæbjörnsson var einn af stofn- endum Félags áhugamanna um skjaldfræði. Arkitektinn, smið- urinn og hönnuðurinn, Stefán Snæbjörnsson, var öllum kost- um búinn til að skilja þessa kon- unglegu íþrótt, skjaldfræðina, betur en flestir. Nú er sann- arlega skarð fyrir skildi í þessu fámenna félagi. Við félagar kveðjum góðan og dyggan fé- laga og vottum fjölskyldu Stef- áns innilega samúð. Fyrir hönd Hins íslenska skjaldfræðafélags, Halldór Baldursson. Gunnarsstofnun á Skriðu- klaustri hefur átt því láni að fagna að hafa öfluga stjórnar- menn allt frá því hún varð til ár- ið 1997. Það er ekki síst þeim að þakka að staðurinn er nú þjóð- arsómi. Einn þessara stjórnar- manna var Stefán Snæbjörns- son, húsgagna- og innanhúsarkitekt, sem nú hefur kvatt þessa jarðvist. Stefán sat í stjórn Gunnarsstofnunar frá ársbyrjun 2000 til vors 2007, skipaður af menntamálaráð- herra sem fulltrúi ráðuneytisins. Jafnframt sat hann í sérfræð- ingahópi, ásamt Franziscu Gunnarsdóttur og arkitektunum Birni Kristleifssyni og Þóru Guðmundsdóttur, hópi sem var forstöðumanni til halds og trausts fyrstu árin við að skipu- leggja endurbætur á Skriðu- klaustri og innkaup á húsbúnaði og innréttingum. Sérfræðiþekking Stefáns var ómetanleg enda var hann fag- maður fram í fingurgóma þegar kom að því að velja viðeigandi búnað í hús skáldsins. Þá var gott fyrir ungan forstöðumann að hafa styrk í stjórnarmanni og sérfræðingi sem allir virtust þekkja og bera virðingu fyrir, hvort sem komið var til hús- gagnaframleiðanda eða í verslun með ljósabúnað. Þær voru ófáar stundirnar sem við Stefán áttum saman við spekúlasjónir út af Skriðuklaustri og hann lagði svo sannarlega sitt lóð á vogarskál- arnar við endurreisn staðarins. Hann var ráðagóður, traustur og framsýnn og ekki spillti fyrir gráglettið skopskyn sem oft vakti hlátur á góðum stundum. Þekking Stefáns var víðtæk og hann var listhneigður fagurkeri sem nýttist vel þegar stjórnar- menn voru settir í það að velja gesti til dvalar í gestaíbúðinni á Klaustri. Fyrir hönd Gunnarsstofnun- ar, stjórnarmanna og starfsfólks á Skriðuklaustri kveð ég Stefán Snæbjörnsson með söknuði og þökk fyrir frábært samstarf. Minning um góðan dreng lifir hjá okkur sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast honum. Á Skriðuklaustri sér verka hans stað um ókomin ár. Í anddyri Gunnarshúss tekur á móti gestum líkan unnið í tré af herragarði skáldsins eins og hann átti að verða með öllum útihúsum samkvæmt teikning- um arkitektsins þýska. Þetta líkan vann Stefán með sinni ein- stöku natni og nákvæmni með aðstoð frá syni sínum. Fjöl- skyldu Stefáns færi ég hug- heilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunn- arsstofnunar. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2014 Við andlát Ingu Rósu Þórðardóttur, langt um aldur fram, er ástæða til að minnast mikilla og góðra starfa hennar á Austurlandi. Ber þar fyrst að nefna uppbyggingu Svæðisútvarps Austurlands en þar átti hún drýgstan þátt. Svæðisútvarpið gegndi miklu hlutverki á Austurlandi undir hennar stjórn. Nú hafa misvitrir menn fyrir „sunnan“ lagt það niður, illu heilli, að sögn í sparn- aðarskyni. Inga Rósa starfaði mikið að ferðamálum, fyrst í stað á Austurlandi. Að hennar frum- kvæði hóf Ferðafélag Fljótsdals- héraðs byggingu gistiskála á Inga Rósa Þórðardóttir ✝ Inga RósaÞórðardóttir fæddist 2. desem- ber 1954. Hún lést 16. október 2014. Útför Ingu Rósu fór fram 23. októ- ber 2014. Víknaslóðum. Þegar hún fékk til liðs við sig menn eins og Þórhall Þorsteins- son og Hermann Eiríksson ásamt Völundi Jóhannes- syni og fleirum var hafist handa af miklum krafti; fyrsti gistiskálinn reis í Breiðuvík árið 1998 og síðan fylgdu skálar í Húsavík og Loðmund- arfirði í kjölfarið ásamt snyrting- um og skálavarðahúsum. Um 100 gistirými eru í skálum þessum. Víknaslóðir eru nú orðnar einar af fjölfarnari gönguleiðum á Ís- landi, þökk sé byggingu gistis- kálanna. Það einstaka framtak verður seint fullþakkað. Austfirðingar mega vera Ingu Rósu þakklátir fyrir veru hennar á Austurlandi. Samúðarkveðjur til fjölskyldu Ingu Rósu. Magnús í Höfn. Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 ALLAR SKREYTINGAR UNNAR AF FAGMÖNNUM Lokað Skrifstofa Landssambands íslenskra útvegsmanna verður lokuð í dag, þriðjudaginn 28. október, vegna útfarar Kristínar Möller. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN EINAR HJARTARSON, Læk, Ölfusi, lést föstudaginn 24. október á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi. Útförin verður auglýst síðar. Sigurhanna Gunnarsdóttir, Elín Björg Jónsdóttir, Davíð Ó. Davíðsson, Hjörtur Bergmann Jónsson, Hrönn Guðmundsdóttir, Gunnar Hrafn Jónsson, Berglind Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGA JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR, lést á Landspítala Háskólasjúkrahúsi laugardaginn 20. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Gunnhildur Ragnarsdóttir, Eygló Ragnarsdóttir, Eiður Skarphéðinsson, Guðrún Sigursteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, LÓRELEI HARALDSDÓTTIR sjúkraliði, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ að morgni fimmtudagsins 23. október. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 31. október kl. 13.00. Haraldur Sigþórsson, Esther Hlíðar Jensen, Inga María Árnadóttir og Sigþór Haraldsson. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands laugardaginn 25. október, verður jarðsungin frá Þorlákskirkju föstudaginn 31. október kl. 13.30. Sigurður Ólafsson, Guðrún Sigríks Sigurðardóttir, Karl Sigmar Karlsson, Margrét Sigurðardóttir, Gunnar Daníel Magnússon, Rut Sigurðardóttir, Jón Davíð Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ MARK BELL tónlistarmaður andaðist miðvikudaginn 8. október. Útför hans fer fram frá Wakefield Chapel í Yorkshire á Englandi fimmtudaginn 30. október kl. 11. Þökkum hlýhug og stuðning. Adam Marksson Bell, Daníel Marksson Bell, Móeiður Anna Sigurðardóttir, Tony Bell, Susan Bell, Helen Bell, Ásdís Skúladóttir, Skúli Á. Sigurðsson, Sigurður G. Lúðvígsson. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og langamma, NÍNA SOFFÍA HANNESDÓTTIR, lést föstudaginn 17. október. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 30. október kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Karítas og Ljósið. Jón Gunnarsson, Gunnar Jónsson, Anna Lilja Karlsdóttir, Soffía Karen Önnudóttir, Unnur Karen Karlsdóttir, Ásgeir Ólafsson, Stefanía Ösp Guðmundsdóttir, Einar Sigurðsson, Matthías Árni Einarsson, Sigríður Björg Árnadóttir, Karl Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.