Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.10. 2014
Wakefield veltir því fyrir sér
hvort við ættum frekar að
gera gys að íslamistaleiðtog-
um en að hneykslast á þeim.
Grimmd sé í þeirra augum
eins og hver önnur aðferð í
stríði. En við ættum að leggja
áherslu á fyrirgefninguna.
Hún minnir á að stríðsherr-
ann Blahyi fylltist að lokum
ógeði á drápunum og gerðist
síðar kristinn trúboði. Hann
hefur leitað uppi stráka sem
hann beitti heilaþvotti, snúið
þeim til trúar og vanið
þá af eiturlyfjum.
En vilji þeir
vera í söfn-
uðinum verða
þeir að
biðja fjöl-
skyldu sína
fyrirgefn-
ingar.
Óbreyttir borgarar eru tilallrar hamingju lítið fyrirþað að drepa annað fólk,
svona yfirleitt. Trú, siðferðisleg
gildi og lög mæla gegn slíku athæfi.
En hversu friðsamleg og miskunn-
söm erum við? Fræ grimmdarinnar
virðast blunda í okkur öllum. Í
frægri sálfræðitilraun Stanleys
Milgrams á sjöunda áratugnum sást
að hægt væri að fá a.m.k. þriðjung
þátttakenda í tilrauninni til að veita
fórnarlambi banvænan rafstraum.
Eina sem þurfti til að brjóta niður
siðmenningarmúrinn var að ábúð-
armikill maður í hvítum sloppi segði
þátttakendum fyrir verkum.
Margir yfirmenn herja hafa lengi
haft áhyggjur af því að liðsmenn í
fremstu víglínu væru ekki nógu
árásargjarnir. Þess vegna þyrfti að
innræta þeim meiri drápsfíkn í her-
þjálfuninni, berja „mömmustrákinn“
úr nýliðum. Með öðrum orðum, fá
þá til að slökkva á siðmenningar-
bjöllunum í hjarta og huga þegar út
á vígvöllinn væri komið. Þetta er nú
víða gert í herþjálfun.
Hernaður er eitt, hrottaskapur
Íslamska ríkisins, IS, á sér vart líka
og meðferð þeirra á óbreyttum
borgurum úr trúarfylkingum sem
IS líkar ekki við er ólýsanleg. Þús-
undir ungra karla (og allmargra
kvenna) hafa samt látið heillast af
grimmdinni, látið sannfærast um að
IS sé að berjast réttlátri baráttu
fyrir íslam.
Engin mótrök duga. Margt af
þessu fólki er að flestu leyti ofur
venjulegt ungt fólk. Það kemur úr
friðsömum vestrænum samfélögum
en gleypir samt við hatursáróðri
sem aðallega fer fram á netinu en
einnig í sumum moskum. Hvernig
er hægt að fá það til að fremja
þessi grimmdarverk?
Lítið er í reynd vitað um aðferð-
irnar sem yfirmenn IS í Sýrlandi og
Írak nota til að herða liðsmenn
sína, gera þá miskunnarlausa. En ef
til vill er hægt að fræðast af manni
sem áður var þekktur sem blóð-
þyrstur stríðsherra í Afríku, nánar
tiltekið í Líberíu. Joshua Milton
Blahyi, sem nú hefur iðrast og
reynir að bæta fyrir brot sín, var
snillingur í að breyta 8-12 ára
drengjum í ofbeldisseggi sem ekki
hikuðu við að pynta og drepa, jafnt
vopnað fólk sem aðra.
Breski blaðamaðurinn Mary
Wakefield hitti Blahyi og segir frá
samtalinu við hann í tímaritinu
Spectator. Hann lýsti „tækninni“ og
fullyrti að svipaðar aðferðir myndu
virka þótt um aðeins eldra fólk væri
að ræða, eins og ungmennin sem IS
notar.
„Fyrst í stað fylgdu þeir mér af
því að ég var valdamikill og sterkur
og þeir vildu verða mikilvægir eins
og ég,“ sagði Blahyi. Öllu skipti að
þeir kæmu sjálfviljugir. Þá var
hægt að fara að gera úr þeim
skrímsli. Þeir fengu að horfa á of-
beldiskvikmyndir, helst Hollywood-
myndir, til að sjá að dráp væri bara
leikur. Síðan var þeim leyft að leika
sér að byssum með púðurskotum,
þykjast drepa.
„Stinga aftur og aftur“
„Við létum þá hafa hnífa til að
stinga í lík. Í fyrstu finnst þeim það
erfitt, þeir eru hræddir. Seinna
stinga þeir aftur og aftur í líkin …
Aftur og aftur. Eftir þetta eru þeir
orðnir illmenni. Þeim finnst gott að
drepa.“
Hlutverki stjórnandans var samt
ekki lokið, að sögn Blahyis, menn
mættu aldrei slaka á. Stöðugt yrði
að auka ofbeldið og gefa strákunum
eiturlyf, amfetamín og fleira. Þegar
búið væri að kenna þeim að drepa
yrðu þeir að læra að nauðga, pynta,
afhöfða fólk. Gera yrði þá ónæma
fyrir þjáningum annarra, tryggja að
þeir væru hræddir við yfirmann
sinn en líka hlýðnir. Og sumt sem
þeir gerðu var að sögn Wakefield
svo viðbjóðslegt að hún vildi ekki
hafa það eftir Blahyi.
En hann bætti við: „Ef óvinir
okkar halda að við séum brjálaðir
sigrum við jafnvel áður en sjálfur
bardaginn byrjar.“
Vitað er að fyrir 800 árum tókst
lítilli þjóð í Mið-Asíu, Mongólum, á
fáeinum áratugum að leggja undir
sig sig nær alla Asíu og Rússland,
lönd með nokkur hundruð sinnum
fleiri íbúa en Mongólía. Gengis
Khan og afkomendur hans hikuðu
ekki við að láta drepa hvert manns-
barn í sumum borgum Kína, þannig
sýndu þeir að engum yrði þyrmt ef
mótspyrnu yrði vart.
Lýsingarnar á ofbeldinu og
myndir af aftökum sem IS-menn
senda öðru hverju frá sér gegna
vafalaust sama hlutverki: að hræða
menn frá því að reyna að berjast
gegn þeim. Á undan liði IS fer ann-
ar her, sveitir ofsahræðslu við
menn sem virðast hafa yfirgefið
mannkynið.
Að breyta
strákum í
skrímsli
HVERNIG VAR HÆGT AÐ FÁ MENN TIL AÐ STARFA Í
AUSCHWITZ, HVERNIG ER HÆGT AÐ FÁ UNGMENNI TIL AÐ
TAKA ÞÁTT Í OFBELDI IS? FYRRVERANDI STRÍÐSHERRA Í LÍB-
ERÍU LÝSTI ÞVÍ HVERNIG HANN STÓÐ FYRIR HEILAÞVOTTI.
IÐRUN OG YFIRBÓT
Sigrihrósandi IS-liðar í Írak en þar hafa þeir unnið marga sigra. Á innfelldu
myndinni er Reyaad Khan, tvítugur Breti sem gekk til liðs við IS.
AP
* Allah hefur af náð sinni veitt [IS] sigur og yfirráð …til að ná takmarkinu. Abu Bakr Al-Baghdadi, leiðtogi IS. AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
HEIMURINN
ND
DLON erra, forsætisr
dsinspusambBretlan
um vegtil að lát
ðebólu, þjó i
ú
nga Eurostar-lestanna seskimað á Heathrow-fl
ð Argus leggur senn af sErmarsundsgöngin. Br
Síerra Leó narfólks auk annarrane með tey
hjálparstar liðlega 200 herme
Um 4500 m ær allir íVnum, n
SÝR
slamska r
nn sína til að fljúgabyrjað að þjálfa liðsme
sem IS náði afþremur orrustuþotum
andi, að sögn Sýrlenskustjórnarhernum í Sýrl
nnar, SOHR, sem fylgistmannréttindavaktari
yrt er að íraskir flugmenn, smeð átökunum. Full oru í flugher
Saddams Husseins í Írak, stýri þjálfuninni. Írask tjórnarherinn hefur hafið
endurheimta yfirráðineyna aðsókn til að r t sem er á valdi
um svæðrIS en samtökin ráða nú yfir stó rak.
VENES
CARACA e
tengdir he morðið á
þingmanninum Ro í Venesúela
segir aðfyrir skömmu. Serra
lífvörður Serra m morhafi v
m að„öfga-hægrimenn“ íV
sem öllu ræður íVe
ÍN
KONG í HonLögreglan
ngaíggirðiunni tjöld og v
finu Mong
mur orðið á samg
u vikur vegna mó
m lögregluópar mótmælend
ægðiyrra reynt að stöð
keið áog bggir
erðumma