Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Blaðsíða 47
hún fáist á milli kl. 8 og 4 og enn síð-
ur á öðrum tímum sólarhringsins.
Þegar til þessa fyrirbæris var stofn-
að, af sömu öflunum sem hömuðust
mest gegn fjölmiðlalögunum, sællar
minningar, líkti Samband ungra sjálf-
stæðismanna því við aðför að fjöl-
miðlum. Aðför er stórt orð, en má til
sanns vegar færa. Ekki er þó líklegt
að núverandi ríkisstjórn muni gera
nokkurn skapaðan hlut vegna þeirrar
meintu aðfarar, enda virðist hún telja
að ákvæði þjóðminjalaga um bráða-
vernd gildi um hvað eina sem grunur
leikur á að Steingrímur og Jóhanna
hafi tekið sér fyrir hendur. Ekki
verður því séð að sóun fjármuna í
fjölmiðlanefnd verði hætt, eins og
hverjum öðrum gagnslausum óþarfa.
Fjölmiðlar hafa ekki jafn mikið um-
leikis og þeir höfðu sumir áður, ef
Ríkisútvarpið er talið frá. Það fær
hins vegar aldrei nóg.
Tæknin hefur breytt stöðu þeirra
flestra, hvort sem áskriftarstöðvar
sjónvarps eða blöð eiga í hlut. Það er
ekki hægt að finna að því. Hin nýja
tækni er ekki til bölvunar þótt hún
kunni að gera tilteknum rekstri í
hefðbundnu formi erfitt fyrir. Ekki
hefðu menn viljað streitast gegn
framþróun í fjarskiptum til að halda
verndarhendi yfir jafn ágætri stétt og
loftskeytamenn voru. Hafi fjölmiðlar
hlutverk og vilja til að rækja það
fjargviðrast þeir ekki yfir þeim
breytingum sem verða, en leitast við
að laga rekstur sinn að þeim.
Hin galopna fjölmiðlun sem birst
hefur síðustu áratugina gefur marg-
vísleg færi. Ekki aðeins þeim, sem
sinnt hafa fjölmiðlum, heldur fjöl-
mörgum öðrum, stórum og smáum.
En hömlulítil víðátta netsins, með
sínum miklu kostum, er því miður
einnig síspýjandi ofurkraftur á göll-
uðu efni, rugli og rangfærslum, svo
óhróður og ógeð af margvíslegu tagi
séu ekki gerð að sérstöku umræðu-
efni. Opinberar eftirlitsnefndir eru
þar engin fyrirstaða. Þær geta ekki
annað en hengt sína tilveru á
„gömlu“ tegund fjölmiðlanna, þar
sem þörfin á aðhaldi var minnst. Þær
voru því orðnar úreltar nokkru áður
en til þeirra var stofnað. En rík-
isvaldið getur auðvitað haldið áfram
að nota þær til að sóa fé, sem það
slíka misnotkun til sín taka, enda er
hún sjálfsagt orðin venjuhelguð eftir
hálfan annan áratug af sambæri-
legum trakteringum.
Verri en Rússarnir?
Vegna framferðis Rússa í Úkraínu er
það ríki skotspónn margra. Ráða-
menn þar kölluðu slíkt sjálfir yfir sig.
Þess vegna er hvað eina sem þaðan
fréttist blásið upp sem enn eitt dæm-
ið um illskuna sem þar þrífst. Rúss-
neska þingið samþykkti nýverið, í
verulegum ágreiningi þó, skref sem
takmarkar rétt erlendra aðila til að
eiga hlut í rússneskum fjölmiðlum.
Er þar miðað við 20% sem hámark.
Margir hrópa að þetta sé dæmi um
það hvernig Pútín sé sífellt að herða
tök sín á rússneskum fjölmiðlum.
Rússneska ríkið hefur þótt hafa meiri
áhrif á fjölmiðla eystra en hollt sé
lýðræðinu. En þessi síðasta ákvörðun
var þó ekki gott dæmi um það. Tak-
mörkun á heimildum útlendinga í
Bandaríkjunum er t.d. svipuð og
þarna var ákveðið. En þar sem þessi
lagasetning fær svona hörð viðbrögð
umheimsins, hvað yrði þá sagt ef
Pútín hefði reynt að fá lagaákvæði af
eftirfarandi tagi samþykkt í Rúss-
landi:
„Íslenska ríkið hefur lögsögu yfir
fjölmiðlaveitum“
„Ákvörðunum fjölmiðlanefndar
verður ekki skotið til annarra stjórn-
valda“
„Fjölmiðlanefnd skal fylgjast með
því að fjölmiðlaveitur fari að fyr-
irmælum laga þessara“
„Fjölmiðlanefnd getur lagt allt að
200.000 króna dagsekt fyrir hvern
byrjaðan dag á þann sem: (Svo talið
upp í 7 ýtarlegum stafliðum)“
„Fjölmiðlanefnd leggur á stjórn-
valdssektir sé brotið gegn eftirtöldum
stafliðum: (Svo talið upp í 18 staflið-
um)“
Í lögunum segir svo að stjórnvalds-
sektir megi nema 10 milljónum
króna!
Ekki er líklegt að Pútín forseti, í
sinni þröngu stöðu, hefði dirfst að
dúka sín borð með öðrum eins tilskip-
unum og þessum. Enda yrðu mann-
réttindafrömuðir þá lengi að ná sér,
miðað við hrópin vegna takmarkana á
eignarhaldi útlendinga í rússneskum
fjölmiðlum.
hefur gaman af, sama hverjir sitja í
stjórnarráðinu.
Leyfist allt
Allir sem fylgdust með farsa-
kenndum tilfæringum á yfirstjórn
365 miðla fyrir fáeinum vikum vissu
til hvers refirnir voru þar skornir.
Hvert barn mátti sjá að þær miðuðu
eingöngu að því að herða tök eigand-
ans á fjölmiðlasamsteypunni og vant-
aði þó lítið upp á undirgefnina fram
að því.
Allir, sem fylgst hafa með, vita
jafnframt með hvílíkum ósköpum sá
sami hefur notað sína fjölmiðla. Það
er að segja kannski allir nema fjöl-
miðlanefnd.
Mörgum þótti, þegar sama aflið
stýrði mesta einokunarhring sem
sést hefur til í íslenskri viðskiptasögu
og er þá SÍS ekki undanskilið, eins
og samkeppnisyfirvöld litu á sig sem
eina af deildum hringsins, og ekki þá
sem hafði mest vægi innan hans. Þótt
vöxturinn ykist hratt og sífellt lengra
væri seilst lyftu þau aldrei sínum
litla fingri, hvað þá lúkunni. Ekki
hefur, svo vitað sé farið fram nein at-
hugun á því hvernig slík ósköp máttu
gerast og væri þó ekki vanþörf á.
Umgengni gömlu deildarinnar er
með nákvæmlega sama hætti enn í
dag, við það sem enn lýtur sömu
stjórn.
Dagblað sem er gefið, troðið óum-
beðið inn um póstlúgur landsmanna,
með einn eiganda, er með öllu að-
haldslaust. Allt aðra sögu er að segja
af áskriftarblöðum.
Í gær var birt yfir þvera forsíðu
Fréttablaðsins lygafrétt með viðeig-
andi myndum um stofnun og raunar
einstakling sem öll fjölmiðlasam-
steypan hefur haft veiðileyfi á síðan
ítök núverandi eigenda hófust þar,
þótt um hríð væri logið til um eign-
arhaldið. Eitt símtal við viðkomandi,
stofnunina eða einstaklinginn hefði
tryggt að blaðið yrði ekki sér til
skammar með breiðsíðu sinni. Þegar
lygi blaðsins var afhjúpuð var þó
ekki beðist afsökunar. Nei, þá var
fréttastofa sjónvarps sama eiganda
látin seilast í gamlan texta, sem
Björn Valur Gíslason, af öllum mönn-
um, hafði soðið saman fyrir tveimur
árum, til að reyna að réttlæta lygina.
Rándýr fjölmiðlanefnd lætur ekki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
* Allir sem fylgdust með farsakenndumtilfæringum á yfirstjórn 365 miðla fyrir fáeinum vikum vissu til hvers refirnir voru þar
skornir. Hvert barn mátti sjá að þær miðuðu
eingöngu að því að herða tök eigandans á
fjölmiðlasamsteypunni og vantaði þó lítið
upp á undirgefnina fram að því.
Þyrluferð
við Gígjökul.
19.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47