Morgunblaðið - 14.11.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2014
Guðni Th. Jó-
hannesson sagn-
fræðingur segir að
allir þeir sem
áhuga hafi á sög-
unni fagni því þeg-
ar bætist í heim-
ildabunkann. Þetta
sagði Guðni þegar
Morgunblaðið leit-
aði álits hans á
frétt á forsíðu
blaðsins í gær, um upplýsingaöflun
Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi
ritstjóra Morgunblaðsins, úr röðum
sósíalista og kommúnista á kalda-
stríðsárunum 1961-1968.
„Styrmir á þakkir skildar fyrir að
halda áfram að segja sögu sína. Við
sagnfræðingar og raunar allir þeir
sem hafa áhuga á sögunni fagna því
þegar nýjar heimildir bætast í heim-
ildabunkann.
Nú veit ég ekki meira en það sem
kemur fram í forsíðufrétt Moggans í
morgun, en fréttin gefur það til
kynna að í bók Styrmis sé fróðlega
frásögn að finna frá tímum kalda
stríðsins, þannig að nú bíðum við bara
spennt eftir að bókin komi út,“ sagði
Guðni. agnes@mbl.is
Bíðum
bara
spennt
Segir Styrmi eiga
þakkir skildar
Guðni Th.
Jóhannesson
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Nokkur félög í eigu fjársterkra aðila
eru áberandi í uppbyggingu íbúða á
þéttingarreitum í miðborg Reykja-
víkur og hefur fjöldi eignar-
haldsfélaga verið stofnaður um þau
verk. Söluverðmæti íbúðanna hleyp-
ur á tugum milljarða króna.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
kynnti í fyrradag áform um upp-
byggingu þúsunda íbúða í Reykjavík
á næstu árum. Við þá kynningu
komu fram ítarlegri upplýsingar en
áður um þá aðila sem munu byggja
upp einstaka reiti.
Af því tilefni kannaði Morgunblað-
ið bakgrunn þessara félaga.
Fyrst má nefna að félagið Skuggi
3. ehf. stendur fyrir uppbyggingu 77
íbúða í Skuggahverfinu. Félagið er í
eigu Litluvalla ehf. (50%), Ursus Ma-
ritimus (25%), Péturs Stefánssonar
útgerðarmanns (12,5%) og B15
(12,5%). Litluvellir eru í eigu
Skuggabyggðar, sem er í eigu Krist-
jáns Gunnars Ríkarðssonar, og Kep-
ler ehf. sem er í eigu Hilmars
Ágústssonar. Ursus Maritimus er í
eigu Sigurðar Arngrímssonar fjár-
festis en B15 er í eigu Bjargar Hildar
Daðadóttur, sem er eiginkona Jak-
obs Valgeirs Flosasonar útgerðar-
manns.
Hundruð íbúða á þrem reitum
Í öðru lagi kemur Þingvangur að
nokkrum verkefnanna en hann er í
eigu Eignasamsteypunnar ehf. sem
er í 100% eigu Pálmars Harðarsonar
athafnamanns. Félagið hyggst
byggja 142 íbúðir á Grandavegi, 20
íbúðir og verslanir og skrifstofur á
Hljómalindarreit og 50-90 íbúðir á
Brynjureit. Þá hyggur félagið á upp-
byggingu á Vatnsstígsreitnum.
Í þriðja lagi undirbýr félagið
Blómaþing byggingu 68 íbúða á
Frakkastígsreitnum. Það er í eigu
Lögvits, sem er í eigu Tenor sem er í
eigu Stólpa. Falur fasteignir, Mo-
ment fjárfestingar og Ásvellir eiga
Stólpa. Gísli Steinar Gíslason á 100%
hlut í Fal og er jafnframt meðstjórn-
andi í Skerjabraut ehf. sem byggir
nú 23 íbúðir á Skerjabraut 1-3.
Marta Þórðardóttir á félagið Mo-
ment en hún er eiginkona Guðna
Rafns Eiríkssonar verðbréfamiðlara.
Ásvellir er í eigu hjónanna Hönnu
Maríu Siggeirsdóttur og Erlendar
Jónssonar. Hanna María er helst
þekkt fyrir rekstur apóteka. Í fjórða
lagi má nefna Lindarvatn ehf. sem
hyggst byggja 19 íbúðir við Ingólfs-
torg en Pétur Þór Sigurðsson, eig-
inmaður Jónínu Bjartmarz, fv. ráð-
herra, á félagið.
Umsvifamikill lyfjafræðingur
Lyfjafræðingurinn Ingi Guðjóns-
son kemur á beinan og óbeinan hátt
að nokkrum fasteignaverkefnum.
Fyrst má nefna að hann er með-
stjórnandi í Rauðsvík sem undirbýr
mikla uppbyggingu á svonefndum
Barónsreit, á horni Hverfisgötu og
Barónsstígs. Rauðsvík er í 100% eigu
Landeyjar. Hluthafaupplýsingar um
það félag eru ekki til í gagnagrunni
Creditinfo. Hins vegar á Arion banki
100% hlut í eignarhaldsfélaginu
Landey sem er með sama heimilis-
fang og Landey. Stjórnarformaður
Rauðsvíkur er Þorvaldur H. Gissur-
arson, framkvæmdastjóri ÞG Verks.
Í annan stað keypti félagið Stakk-
holt-miðbær 48 íbúðir í Stakkholti 2a.
Ingi er í stjórn félagsins ásamt Jóni
Á. Ágústssyni. ÞG Verk byggir
Stakkholt 2-4, alls 139 íbúðir.
L28 ehf. sameinar þrjár lóðir
Í þriðja lagi er Ingi tengdur félag-
inu L28 ehf. sem samkvæmt fund-
argerð umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjavíkur í fyrravor óskaði eftir
því að lóðir við Lindargötu 28, 30 og
32 yrðu sameinaðar í eina. Á lóðinni
er að rísa 20 íbúða fjölbýlishús og er
Mannverk verktakinn. Íbúðirnar
voru auglýstar sl. sumar en voru síð-
an fjarlægðar af vef Mannverks. Ingi
á fjórðungshlut í L28 ehf. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Sýslumann-
inum í Reykjavík er félagið Lauga-
depla ehf. nú skráður eigandi hinnar
sameinuðu lóðar. Það félag er í eigu
Comis ehf. og Laxamýrar ehf. Síðar-
nefnda félagið er í eigu Hjalta Gylfa-
sonar, forstjóra Mannverks.
Í kynningu borgarinnar sagði hins
vegar að Skuggi 3 muni byggja íbúð-
irnar á Lindargötu. Í fjórða lagi
hyggst ÞG Verk byggja 245 íbúðir í
Bryggjuhverfinu en framkvæmda-
stjóri félagsins, Þorvaldur H. Giss-
urarson, er sem fyrr segir viðskipta-
félagi Inga Guðjónssonar.
Þá hyggst Upphaf slhf. byggja 60
íbúðir við Hverfisgötu 96 en félagið
byggir nú 20 íbúðir í Skipholti 11-13.
Upphaf hefur sama heimilisfang og
fjárfestingafélagið GAMMA. Lýður
Þ. Þorgeirsson, hluthafi í GAMMA,
er varamaður stjórnarmanns í S11-
13 ehf., dótturfélagi Upphafs.
Tölvuteikning/Út Inni arkitektar
Nýframkvæmdir Fyrirhugað útlit íbúða á horni Frakkastígs og Hverfisgötu má sjá á myndinni til vinstri. Á hægri myndinni má sjá Mánatúnsreitinn.
Auðmenn byggja íbúðir
Efnafólk stofnar fjölda eignarhaldsfélaga um uppbyggingu í Reykjavík
Byggja hundruð íbúða á þéttingarreitum Söluverðmætið er tugir milljarða
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á
fundi sínum í gær tillögu Dags B.
Eggertssonar borgarstjóra um að
samþykkja tillögur starfshóps á veg-
um mannréttindaskrifstofu Reykja-
víkur um aðgerðir sem miða að því
að draga úr heimilisofbeldi. Skipan
starfshópsins var liður í sérstöku
átaki gegn heimilisofbeldi sem unnið
er í samvinnu sveitarfélaga og lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Fólst í tillögu borgarstjóra að til-
lögur starfshópsins yrðu sam-
þykktar með þeim fyrirvara að að-
gerð nr. 13, sem snýr að
árveknisátaki gegn heimilisofbeldi
verði unnin á vegum upplýs-
ingadeildar og mannréttinda-
skrifstofu þegar meiri reynsla er
komin á verklag og verkefnið, og þá
með sérstakri fjárveitingu ef þarf.
Heildarkostnaður verkefnisins nam
tæpum 47 m.kr og er vísað til fjár-
hagsáætlunar 2015. sgs@mbl.is
Borgarráð
gegn heim-
ilisofbeldi
Félagsmenn úr umhverfisverndar-
samtökunum Landvernd voru áber-
andi á kynningu Landsnets og Vega-
gerðarinnar um mat á áhrifum
háspennulínu og vegar á milli Norð-
ur- og Suðurlands, um Sprengisand.
Sá hluti gestanna var ekki kominn til
að kynna sér málið, hafði mótað sín-
ar skoðanir fyrirfram, að sögn Gísla
Gíslasonar landslagsarkitekts sem
er verkefnisstjóri mats á umhverfis-
áhrifum Sprengisandslínu, og lét
þær í ljós í samræðum við starfsfólk.
Landvernd auglýsti opna húsið,
meðal annars með útvarpsauglýs-
ingum. Á Facebook-síðu samtak-
anna kom fram að þarna myndu
Landsnet og Vegagerðin kynna
hvernig þau ætluðu að eyðileggja
Sprengisand fyrir útivistar- og
ferðafólki og var fólk hvatt til að fjöl-
menna. Gísli áætlaði að um 100
manns hefði komið á kynninguna,
litlu fleiri en komu á samskonar
kynningu á Hellu á dögunum. Hann
sagðist hafa búist við fleirum, miðað
við þá kynningu sem atburðurinn
fékk, en tók fram að alltaf væri gott
að fá sem flest fólk á slíkar kynn-
ingar.
Fundur á Akureyri
Áður hafa áformin verið kynnt á
Hellu og í Ljósvetningabúð í Þing-
eyjarsýslu. Síðasta kynningin verð-
ur á Akureyri á þriðjudaginn í næstu
viku.
Frestur til að gera athugasemdir
við drög að tillögu að matsáætlun
vegna Sprengisandslínu og Sprengi-
sandsleiðar rennur út 20. nóvember.
Gísli sagði að eftir þann tíma yrði
farið yfir athugasemdir og tillagan
lögð fyrir Skipulagsstofnun. Þá hæf-
ist væntanlega formlegt umhverfis-
matsferli. helgi@mbl.is
Lýstu andstöðu við Sprengisandsleið
Landsnet og Vegagerðin ánægð með
góða mætingu á kynningarfund
Morgunblaðið/Golli
Samtal Umhverfisverndar- og útivistarfólk lá ekki á skoðunum sínum við starfsfólk Vegagerðar og Landsnets.
Í Mánatúni er verið að byggja 90
íbúðir af allt að 175 á svo-
nefndum Bílanaustsreit. Mána-
tún hf. er í eigu Arks ehf., sem er
ásamt Tryggingamiðstöðinni
stærsti hluthafinn; bæði félög
með 13,9% hlut. Steinunn Jóns-
dóttir, fjárfestir og meðstjórn-
andi í Byko, á Ark, en faðir henn-
ar er Jón Helgi Guðmundsson,
forstjóri Norvik. Steinunn á
2,56% hlut í MP Banka sem á
11,5% hlut í Mánatúni hf. Þá hef-
ur Morgunblaðið greint frá því að
félagið MýrInVest hafi keypt 31
íbúð af 68 í nýju húsi á Mýrar-
götu 26. Skráðir eigendur fé-
lagins eru Riverside Capital ehf.
og Guðmundur Ingi Jónsson.
Undantekningin frá því að fjár-
festar séu í forystu einka-
framkvæmda er að vinahópur
bauð hæst í lóðina Tryggvagata
13, við hlið Borgarbókasafnsins,
undir merkjum arkitektastof-
unnar Hús og skipulag. Arcus
ehf., félag sem er í eigu Þorvaldar
H. Gissurarsonar, hjá ÞG Verk,
bauð 355 milljónir í lóðina, 5
millj. minna en hópurinn.
Setur fé í Mánatúnsíbúðir
MEÐSTJÓRNANDI BYKO KEMUR AÐ BYGGINGU STÓRHÝSA
Mýrargata 26 Fjárfestar keyptu 31
íbúð af 68 í þessu fjölbýlishúsi.
Tölvuteikning/Kanon arkitektar