Morgunblaðið - 14.11.2014, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2014
VIÐTAL
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Ég hef verið að þróa efni sem ég
kalla „Lærum og leikum með hljóðin“
í árafjölda og hefur þróast í starfi
með börnum og fjölskyldum á Ís-
landi. Um er að ræða aðferð sem sér-
staklega er sett fram þannig að auð-
velt er fyrir foreldra og fagfólk að
hjálpa öllum börnum að ná réttum
framburði og undirbúa rétta þætti
fyrir læsi. Auk kennslubókaefnis er
búið að setja efnið í smáforrit og verið
er að kynna námsefnið erlendis með
aðstoð bandarískra talmeinafræð-
inga,“ segir talmeinafræðingurinn
Bryndís Guðmundsdóttir en hún er á
leið til Bandaríkjanna til að taka þátt
í árlegri ráðstefnu heyrnar- og tal-
meinafræðinga í Bandaríkjunum. Þar
mun hún að auki kynna rannsókn á
árangri þess að nota aðferðafræði
„Lærum og leikum með hljóðin“ sem
sýndi að börn sem nýta þessa aðferð í
upphafi lestrarnámsins geta skilað
árangri talsvert umfram hefðbundari
kennsluaðferðir.
Góður árangur
Þetta eru niðurstöður mælinga
sem fram fóru á öllum 1. bekkjar
nemendum í fjórum skólum undir
Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar
árið 2012-13 og var úrvinnslu að
ljúka. Rannsóknin er hluti af sér-
stöku átaki sem Fræðsluskrifstofa
Reykjanesbæjar stóð fyrir, m.a. til að
jafna stöðu allra nemenda í sveitarfé-
laginu gagnvart læsi og náms-
framvindu síðar meir. Átakið var sér-
staklega sett upp fyrir hóp nemenda
sem voru í áhættu gagnvart lestr-
arörðugleikum í upphafi skólagöngu.
Mælingar leiddu í ljós að þegar
markvisst var unnið með hljóða-
vitund, umskráningu bókstafs og
hljóða, réttan framburð, hljóðgrein-
ingu og aðra hljóðkerfisþætti eftir
þjálfunaraðferðinni „Lærum og leik-
um með hljóðin“, í stað þess að nota
eingöngu hefðbundna stafainnlögn,
skilaði hópurinn sem stóð höllum fæti
í upphafi markvert betri árangri en
samanburðarhóparnir sem komu
mun betur undirbúnir í fyrsta bekk
skv. stöðluðu prófi, „Leið til læsis“,
sem var lagt fyrir alla nemendur. Í
prófun á hópunum sex mánuðum síð-
ar náði hópurinn sem stóð höllum
fæti í upphafi marktækt betri árangri
en allir viðmiðunarhóparnir þrír í
stöðluðu eftirfylgniprófi.
Umrædd aðferð nýtir m.a. sam-
nefnt íslensk smáforrit sem styður
aðferðina og gerir þjálfunina áhuga-
verðari og meira spennandi fyrir
börnin. Nú er verið að gefa út fleiri
smáforrit sem leggja enn meiri
áherslu á læsi fyrir öll börn; Froska-
leikina sem hafa m.a. verið forpróf-
aðir af nemendum í leik- og grunn-
skólum í Reykjanesbæ.
Íslenski markaðurinn lítill
„Fyrsta forritið kom út í fyrra. Ís-
lenski markaðurinn er hinsvegar
mjög lítill og ber ekki uppi þann þró-
unarkostnað sem liggur að baki svo
vönduðu verkefni svo ég freistaði
þess, meðal annars fyrir hvatningu
erlendra samstarfsaðila, að setja efn-
ið líka í enska útgáfu, sem ber nú
nafnið Kids Sound Lab. Það er gam-
an að segja frá því að Apple er að
gefa núna út á App Store Froskaleik-
ina svokölluðu sem taka einnig á
þáttum sem undirbúa læsi. Þessi for-
rit vinna mjög vel saman. Þar erum
við að tala um þrjá leiki fyrir barna-
fjölskyldur þar sem hægt er að æfa
og leika með stigvaxandi þyngd
hljóða. Svo verður sérstök skóla-
útgáfa,“ segir hún.
„Það er mikil þörf á svona forritum
hér á landi. Það eru engin önnur ís-
lensk smáforrit sem kenna hljóðin
eða læsi með þann bakgrunn sem tal-
meinafræðiþekkingin hefur upp á að
bjóða. Þetta er nýsköpunar- og frum-
kvöðlaverkefni hvað það varðar,“
segir Bryndís ennfremur.
Fær þakkir daglega
Bryndís hefur verið í samstarfi við
erlenda fræðimenn, sem eru leiðandi
sérfræðingar í heiminum á sviði
hljóðkerfisvitundar að hennar sögn,
og því sé meðal annars vel hugað að
öllum þáttum aðferðafræðinnar.
„Það er mjög hvetjandi að fá daglega
þakkir frá foreldrum og kennurum
sem ná góðum árangri með smáfor-
ritið og „Lærum og leikum með
hljóðin“. Ég hef sjálf gert eftirfylgni-
athuganir á mínum skjólstæðingum
og veit að skipulögð og stigvaxandi
vinna með hljóð á réttan hátt und-
irbýr alla nauðsynlega þætti fyrir
læsi um leið.
Góðu fréttirnar koma alls staðar
að og nú nýlega fékk ég einstaklega
góðar fréttir frá foreldrum drengs
sem ég vann mjög náið með í mark-
vissri heyrnar- og talþjálfun eftir að-
ferðafræði „Lærum og leikum með
hljóðin“ í samstarfi við foreldra, leik-
skólann Sólborg og HTÍ,“ segir
Bryndís og bætir við:
„Ég skynja það alltaf sterkar og
sterkar hversu mikilvægt það er í
þessum tæknisamfélögum sem við og
börnin okkar erum að stíga inn í, að
við bjóðum upp á gott íslenskt efni
sem byggist á faglegum grunni. Þar
er ég að leggja mitt lóð á vogaskál-
arnar.“
Talmeinafræði komin í útrás
Kennsluefni og aðferðir Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings vekja athygli erlendis
Stórbætir árangur nemenda í framburði og lestri Smáforrit Bryndísar gefið út á App Store
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kennsluefni Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur (t.h.), ásamt dóttur sinni Védísi Hervöru Árnadóttur, við
námsefni sem hjálpar börnum með framburð og lestur. Kennsluefni Bryndísar er farið að vekja athygli erlendis.
„Það er ein-
staklega
ánægjulegt
að hér sé bú-
ið að þróa
svo sterka
aðferð sem
styður alla
grunnþætti
sem vinna
þarf með til
að stuðla að
læsi,“ segir Gylfi Jón Gylfason,
fræðslustjóri í Reykjanesbæ,
um kennsluefni Bryndísar tal-
meinafræðings.
„Hér hafa yngri stigin náð
eftirtektarverðum árangri, m.a.
í íslensku. Við höfum sett okkur
skýra framtíðarsýn og vinnum
markvisst að henni. Við leitum
allra leiða til að skapa öllum
börnum jöfn tækifæri. Öflugir
leikskólar og góðar samþættar
kennsluaðferðir skila ótvírætt
þessum árangri.“
Styður alla
grunnþætti
FRÆÐSLUSTJÓRI
Gylfi Jón Gylfason
Forrit Skjámyndir af Froska-
leiknum svonefnda sem Apple er að
gefa út á Apple Store.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Rauði krossinn á Íslandi undirbýr
átaksverkefni til að „sporna gegn
vaxandi fordómum gegn innflytjend-
um í íslensku samfélagi“. Ætlunin er
að ýta verkefnunum úr vör á nýju
ári. Hundruð sjálfboðaliða og starfs-
manna Rauða krossins munu koma
að þessu starfi um allt land.
Taki í taumana
Nína Helgadóttir, verkefnisstjóri
fyrir málsvarastarf innanlands hjá
Rauða krossinum, segir aðspurð
mikilvægt að taka í taumana til að Ís-
land falli ekki „í sama pytt“ og mörg
nágrannalönd okkar í innflytjenda-
málum.
Fyrsta kynslóð innflytjenda láti
ýmislegt yfir sig ganga. Nú sé hins
vegar önnur kynslóð að vaxa úr grasi
sem geri meiri kröfur.
Láta sér þetta ekki lynda
„Fyrsta kynslóðin rís ekki upp
þótt henni líki ekki fordómarnir.
Henni líður illa undan þeim. En önn-
ur og þriðja kynslóðin mun ekki láta
sér þetta lynda. Ef við bætum ekki
úr og verðum með skýrari stefnu-
mótun um það hvers konar fjölmenn-
ingarsamfélagi við viljum lifa í og
hvað við ætlum að gera til að koma til
móts við það fólk sem velur að koma
hingað – og auðga þar með okkar
samfélag – getum við lent í sama
pytti og lönd í kringum okkur sem
hafa miklu lengri sögu af innflytj-
endum. Það er gullið tækifæri núna.“
– Hvernig verður átaksverkefnið?
„Við ætlum að
auka málsvara-
störf, þróa ný og
bæta núverandi
félagsleg verkefni
sem mæta þörf-
um þessara hópa.
Með málsvara-
störfum er átt við
að við ætlum að
tala máli þessara
hópa og vekja um
leið athygli almennings og stjórn-
valda á högum innflytjenda. Það
skiptir miklu máli að þessi verkefni
séu unnin í samráði við þá sem málið
varðar. Þá munum við hvetja stjórn-
völd til að bæta stefnumótun og laga-
umhverfi í því sem snýr að innflytj-
endum, þannig að þeim sé ekki
mismunað.“
– Hvernig er þeim mismunað?
„Það er mjög víða. Innflytjendur
fá miklu síður vinnu þótt þeir séu
jafnhæfir Íslendingum. Þeir fá síður
leigt húsnæði og þurfa jafnvel að
borga tryggingar fyrirfram sem þeir
fá kannski ekki einu sinni til baka,
þegar þeir yfirgefa húsnæðið.“
Fordómar á vinnustöðum
„Síðan eru margir sem ekki tala
íslensku. Það er ekki sjálfgefið að
túlkar séu til staðar og stundum
verða börnin að túlka fyrir foreldra
sína. Þannig að þeir verða fyrir mis-
munun á ýmsan hátt. Ýmsar sam-
bærilegar rannsóknir, sem styðja við
könnun okkar, leiða m.a. í ljós for-
dóma á vinnumarkaði, að innflytj-
endur finni fyrir mestum fordómum
á vinnustöðum sínum.“
Óttast andúð á innflytjendum
Verkefnisstjóri hjá Rauða krossinum varar við að Ísland falli í „sama pytt“ og hinar Norðurlandaþjóðirnar
Önnur kynslóð innflytjenda sætti sig ekki við fordóma Rauði krossinn undirbýr átak gegn fordómum
Nína
Helgadóttir
Spurð um þau ummæli Árna
Páls Árnasonar, form. Samfylk-
ingar, nýverið að hingað flytjist
„útlendingar með litla skóla-
göngu“ en að Íslendingar með
„meiri menntun“ flytji burt seg-
ir Nína að „allir sem hér búa
leggi sitt af mörkum, hvort sem
það er hámenntað fólk eða fólk
með grunnmenntun“. „Það eru
allir jafn mikilvægir.“
„Allir jafn
mikilvægir“
UMDEILD UMMÆLI