Morgunblaðið - 14.11.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2014
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þessi frumraun gekk rosalega vel,“
segir Arndís Halla Ásgeirsdóttir óp-
erusöngkona um Íslandskynningu
þeirra Emils Þórs Sigurðssonar ljós-
myndara í Þýskalandi, þar sem þau
fléttuðu saman myndum og tónlist
fyrir fullu húsi í Berlín og Köln.
Tvímenningarnir hafa verið með
svipaðar Íslandskynningar fyrir er-
lenda fararstjóra og ferðamenn á Ís-
landi, sem hafa sýnt þeim mikinn
áhuga. Arndís Halla segir það eðli-
legt enda fólkið á Íslandi til þess að
upplifa land og þjóð.
„Það var hins vegar spennandi að
sjá hvernig þessi sýning kæmi út í
Þýskalandi, þar sem fólkið er ekki á
ferð um Ísland, og það gekk mjög vel,
var mjög gaman.“ Bætir við að byrjað
sé að undirbúa frekari sýningar ytra.
Samspil mynda, sögu og söngs
Í sögustundinni byrjar Arndís
Halla á því að segja frá Íslandi á létt-
an og skemmtilegan hátt samfara
myndasýningu á tjaldi. Undir mis-
munandi þemum er leikin viðeigandi
tónlist. Síðan sýnir Emil Þór eld-
fjallamynd, útskýrir hana, tökurnar
og fleira. Að loknum upplýsingakafl-
anum snúa þau sér að menningunni.
Arndís Halla talar til dæmis um álfa-
trú, jólasiði og jólasveina. Svo út-
skýrir hún íslenska tónlist og syngur
nokkur lög í lokin. „Þá heillar hún
gestina upp úr skónum og bræðir þá
algjörlega,“ segir Emil.
Eins og fuglinn fljúgandi
„Þetta er nýsköpun,“ segir Arndís
Halla. „Við gefum fólki markvisst
breiða innsýn í land og þjóð eins og
hægt er á einum og hálfum tíma.“
Hún bjó í Þýskalandi í 18 ár, lærði
óperusöng í Berlín og var díva í sýn-
ingunni Apassionata í mörg ár eða
þar til hún fékk nóg og flutti til Ís-
lands 2012. Hún segir skemmtunina
nú hafa verið allt aðra upplifun.
„Þegar ég var í þessari stóru sýn-
ingu þvældist ég um alla Evrópu og
bjó í ferðatösku í mörg ár. Það var
rosalega gaman en ég átti ekkert
einkalíf,“ rifjar hún upp. Bætir við
að hún hafi fengið nóg af því og vilj-
að gera eitthvað annað. Hún hafi
gerst leiðsögumaður og hægt og ró-
lega fundið ánægjuna í söngnum á
ný. Samstarfið við Emil Þór, sem
byrjaði 2009, hafi meðal annars leitt
af sér metsölubókina Fagurt er
frelsið 2011 og það sé spennandi
verkefni að setja saman mynd og
tónlist. „Áður leið mér eins og ég
væri söngfugl í búri án frelsis. Nú
kom ég eins og fuglinn fljúgandi frá
Íslandi og það var allt annað. Allir
skemmtu sér saman. Nálægðin var
mikil, nokkurs konar fjölskyldu-
stemning.“
Emil Þór og Arndís Halla hafa
verið með sýningar á Viking-
hótelinu í Hafnarfirði og halda því
áfram. Nýlega gáfu þau út geisla-
disk með íslensku efni, þar sem þau
tengja gamla tíma við nútímann með
rímum og ballöðum og bók með efn-
inu er væntanleg.
Sýning Arndís Halla Ásgeirsdóttir og Emil Þór Sigurðsson slógu í gegn með sýningunni í Þýskalandi.
Nýsköpun og frelsi
Arndís Halla og Emil Þór með fullt hús á Íslandskynn-
ingum í Berlín og Köln og hyggja á frekari landkynningu
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Já, þegar fólk flettir Bæjarins besta
held ég að það fái alveg þokkalega
skýra mynd af því hvað er í deiglunni
hér vestra á hverjum tíma. Í blaðinu
og eins á netinu erum við með stuttar
og snarpar fréttir af þessum helstu
málum, en stefnan í útgáfunni hefur
annars verið sú að auka vægi mann-
legs efnis. Koma með viðtöl eða
skemmtilegar frásagnir af því sem
fólk er að bjástra við. Sú áhersla hef-
ur mælst vel fyrir meðal lesenda,“
segir Sigurjón J. Sigurðsson, ritstjóri
á Ísafirði.
Er í kviku samfélagsins
Í vikunni var 30 ára útgáfuafmæli
blaðsins fagnað, með 64 síðna af-
mælisblaði. Fjölmargir lögðu efni til
blaðsins, svo sem fyrrverandi blaða-
menn, fulltrúar í sveitarstjórnum,
þingmenn og fjölmiðlafólk. Í tímans
rás hafa fjölmargir komið að útgáf-
unni, en stofnendurnir, Sigurjón og
Halldór Sveinbjörnsson, hafa þó jafn-
an verið í aðalhlutverki. Halldór hvarf
til annarra starfa nú í sumar en
Sigurjón heldur ótrauður áfram.
„Útgáfustarfið er skemmtilegt. Er
í kviku samfélagsins og kynnist fjölda
fólks og ýmsum málefnum,“ segir
Sigurjón sem auk þess að mynda og
skrifa, sér um umbrot blaðsins og all-
an daglegan rekstur. Gengið er frá
blaðinu á þriðjudögum og það síðan
sent í prentun hjá Litrófi í Reykjavík.
Upplagið kemur svo vestur með póst-
inum næsta dag og er síðan dreift
ókeypis inn á hvert heimili á helstu
stöðum á norðanverðum Vest-
fjörðum. Tvö ár eru síðan horfið var
frá því að selja blaðið, sem að jafnaði
er 16 blaðsíður, í áskrift. Það segir
Sigurjón hafa þurft að gera til að
mæta nýjum aðstæðum.
Tuttugu fréttir á dag
„Við höfum staðið ýmsa keppi-
nauta af okkur og öflug fréttaveita á
netinu hefur eflt starfsemina. Dag-
lega eru skrifaðar hér tuttugu fréttir
sem fara í ýmsum útgáfum jafnt í
blaðið og á netið, miðla sem ég tel
styrkja hvor annan,“ segir Sigurjón
sem í liði sínu hefur tvo blaðamenn,
þau Smára Karlsson og Sæbjörgu
Freyju Gísladóttur. Sigurjón segir
enga launung á því að útgáfa héraðs-
fréttablaðs sé þrotlaus vinna og
fréttamenn séu alltaf á vaktinni.
„Snjóflóðin árið 1995 voru tími sem
tók talsvert á, þá var maður í návígi
við hrikalega atburði sem auðvitað
þurfti að segja frá. Síðan hafa komið
önnur tímabil sem hafa verið ansi
töff, til dæmis þegar við gáfum út tvö
þykk blöð í viku á árunum 1986 til
1987. En þá voru líka aðrir tímar hér
fyrir vestan, þá var Ísafjörður ein
stærsta verstöð landsins og fjöldi
fyrirtækja hér sem þurftu að auglýsa
á stórum markaði. Í dag er þetta tals-
vert breytt – og nú sé ég ýmis merki
þess að ný sókn sé að hefjast hér á
norðanverðum Vestfjörðum. Og með
því eflist útgáfan, því fréttir verða
alltaf til þar sem fólk er.“
Fá skýra mynd af Vestfjörðunum
Ísafjörður Sæbjörg Freyja Gísladóttir er blaðamaður á Bæjarins besta og Sigurjón J. Sigurðsson ritstjórinn.
Ísafjarðarblaðið Bæjarins besta varð 30 ára í vikunni Myndarlegt afmælisblað sem endur-
speglar sögu blaðsins og efni þess sem jafnan er fjölbreytt Blað og fréttavefur spila vel saman
Tryggir fullkomna mælingu á margskiptu gleri
Skjár sem sýnir þér nýju gleraugun frá öllum hliðum
Fljótlegt og einfalt ferli
Skilar þér fullkomnu gleri fyrir þína sjón
BYLTINGARKENND NÝJUNG
í mælingum á margskiptum glerjum
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200
OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18 LAUGARDAGA 11:00- 14:00
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í 18 ÁR
Við kaup á nýjum
Essilor glerjum*
færðu önnur frítt með.
*Á við um öll venjuleg og margskipt gler. Gildir til 20. desember.