Morgunblaðið - 14.11.2014, Síða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2014
✝ Ása Haralds-dóttir fæddist í
Vestmannaeyjum
12. júlí 1928. Hún
lést á Landakoti 4.
nóvember 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Haraldur
Sigurðsson, ætt-
aður úr Fljótshlíð-
inni (frá Butru), og
Kristjana Ein-
arsdóttir, ættuð úr
Landeyjunum (frá Búðarhóli).
Hún var yngst fjögurra alsystk-
ina, en hálfsystkini hennar voru
átta talsins.
Árið 1948 giftist hún Þráni
Sigtryggssyni frá Breiðabóli á
Svalbarðsströnd. Foreldrar
hans voru Sigtryggur Frið-
riksson og Sigurbjörg Bene-
diktsdóttir. Börn Ásu og Þráins
eru: 1. Haraldur, f. 1949, hans
kona er Guðný Gunnarsdóttir,
f. 1953. Börn þeirra eru: Þrá-
inn, f. 19.2. 1981, d. 2.3. 1981.
Þráinn, f. 1984. Fyrir átti Har-
aldur dæturnar Guðrúnu Pál-
ínu, f. 1968, Ásu Sigurbjörgu, f.
1972, og Kristjönu Dröfn, f.
1974. Fyrir átti Guðný Björn
Steindórsson, f. 1970, og Bryn-
hildi Steindórsdóttur, f. 1974. 2.
Kristjana, f. 1953.
Hennar maður var
Helgi Hemmert
Sigurjónsson, f.
1951, d. 5.11. 2014.
Börn hennar og
Sveinbjörns
Bjarkasonar eru
Katrín Sjöfn, f.
1981, og Guðrún
Lára, f. 1983. 3.
Sigurbjörg, f. 1956.
Hennar maður er
Vignir Guðmundsson, f. 1956.
Börn þeirra eru Margrét, f.
1973, og Kristjana, f. 1980.
Barnabarnabörn Ásu og Þráins
eru 20 talsins, það yngsta fætt
6.11. 2014.
Ása ólst upp í Vest-
mannaeyjum og stundaði þar
verslunarstörf. Eftir að hún
giftist Þráni bjuggu þau í nokk-
ur ár á Akureyri en fluttu svo
til Reykjavíkur þar sem þau
bjuggu alla tíð síðan. Hún
stundaði verslunarstörf, fyrst í
Hringveri, svo í Parísarbúðinni
og síðast í Tékk-Kristal. Síðan
vann hún á Landspítalanum um
nokkurra ára skeið.
Útför Ásu fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 14. nóvember
2014, kl. 13.
Það er með sorg í hjarta en
þakklæti í huga sem ég rita þessi
minningarorð um elsku ömmu
mína.
Ég fylgdi með mömmu inn í
fjölskylduna, þriggja ára gömul,
þegar hún hóf sambúð með syni
þínum.
Þú tókst mér opnum örmum
og þú hefur ávallt litið á mig sem
eitt af barnabörnum þínum.
Þú varst alltaf svo hress og kát
og stutt í húmorinn. Heimsókn-
irnar á Kleppsveginn til ömmu og
afa voru alltaf skemmtilegar og
nú minnist ég þeirra dýrmætu
stunda sem við áttum saman.
Nú ertu kvödd í anda blíðum
af öllum þeim sem kynntust þér,
með ljúfa þökk frá liðnum tíðum,
sem lengi er vert að minnst sé hér,
og þó að gröfin hylji hold,
þitt hrós skal vaka yfir mold.
Við trúum því á himna hæðum
nú hólpinn lifi andi þinn,
og eigi völ á unaðsgæðum
sem ekki þekkir heimurinn.
Og allt sem gott hér gjörðir þú
hjá guði launað verði nú.
(Jón Þórðarson)
Þín verður sárt saknað, elsku
amma, og minningin um yndis-
lega konu lifir um ókomna tíð. Ég
bið góðan Guð að blessa ykkur
elsku afi, pabbi, Kittý og Bogga
ásamt fjölskyldum ykkar.
Brynhildur.
Sem barn var alltaf gaman að
koma í heimsókn til ömmu og afa.
Amma Ása átti alltaf góðar kök-
ur, gos og eitthvað skemmtilegt
að gera.
Amma kallaði sig oft ömmu
galdrakerlingu og sýndi galdra-
brögð. Ég minnist ekki sérstak-
lega í hverju þau fólust, en það
má þó með sanni segja að amma
hafi verið galdrakona en hennar
galdrar voru í raun einfaldir, en
með nærveru sinni, brosi og kær-
leika gat hún ávallt breytt fýlu-
svip í bros og gráti í hlátur.
Amma var ekki að setja sig í stell-
ingar til að kenna, en það er ótrú-
lega mikið sem ég hef lært af
henni. Á einfaldan hátt miðlaði
hún kærleika og gleði. Þannig
kenndi hún mér að meta lífið, líta
björtum augum á framtíðina og
nota það sem maður hefur til að
takast á við allar aðstæður.
Síðastliðin ár hefur Alzheimer-
sjúkdómurinn náð taki á ömmu,
en þrátt fyrir það var amma
sjálfri sér lík, gat gantast og grín-
ast og leikið við barnabarnabörn-
in og það fengu mín börn að upp-
lifa.
Eftir standa minningar um
bjarta og glæsilega konu og um-
fram allt góða ömmu.
Ég er þakklátur fyrir allt það
sem amma hefur gefið mér og
miðlað.
Þráinn Haraldsson.
Ása Haraldsdóttir
Smáauglýsingar 569 1100
Bækur
Bókasprengja
hjá Þorvaldi í Kolaportinu
laugardag og sunnudag
50% afsláttur
af öllum bókum
Ath! Aðeins þessa einu helgi
Dýrahald
Tilvalin jólagjöf
French Bulldog hvolpar til sölu
S. 566-8417 www.dalsmynni.is
Bjóðum raðgreiðslur Visa og Master-
card í allt að 36 mánuði Facebook
Dalsmynni Hundagallerí ehf
Hljóðfæri
Klassískur gítar
kr. 19.900. Full stærð, poki, auka-
strengir og stillitæki.
Gítarinn ehf., Stórhöfða 27,
s. 552 2125.
www.gitarinn.is,
gitarinn@gitarinn.is
Húsgögn
Til sölu mjög vel með farið
ítalskt sófasett frá Cassina
fyrirtækinu og keypt í Casa í kringum
1977. 3 sæta sófinn er L 224xB90
xH70, 2 sæta sófinn ( ekki á mynd)
L160xB82xH70, 2 stólar L85xB75
xH70, borð L150xB75xH39,
3 innskotsborð L70xB51xH55,
L55xB45xH45, L50xB56xH50.
Upplýsingar í síma 663 7149
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
Ódýr blekhylki og tónerar
Verslun í Hagkaup, Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði
Blekhylki.is, sími 517 0150
TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ
Flottir dömuskór úr leðri, skinn-
fóðraðir. Stakar stærðir.
TILBOÐSVERÐ: 8.500
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
BREYTINGARTILBOÐ - 20% AF
DAGANA 13.-15. NÓVEMBER
Teg 11001 - stærðir 80-95 C,D,E á
kr. 5.800 - mínus 20%
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ, Bústaðavegi
Nýkomnir skór
Sími 588 8050.
- vertu vinur
VANDAÐIR VETRARSKÓR Í
ÚRVALI!
Teg. 619413 Vandaðir dömu vetrar-
skór úr leðri(nubuk), fóðraðir og á
góðum sóla. Stærðir: 36-41.
Verð: 19.985.-
Teg. 619412 Vandaðir dömu vetrar-
skór úr leðri, fóðraðir og á góðum
sóla. Stærðir: 36-41. Verð: 19.985
Teg. 5528 Vandaðir dömu vetrarskór
úr leðri, fóðraðir og á góðum sóla.
Stærðir: 36-42. Verð: 17.785
Teg. 7294 Vandaðir dömu vetrarskór
úr leðri, fóðraðir og á góðum sóla.
Stærðir: 36-42. Verð: 17.785
Teg. 804 Vandaðir dömu vetrarskór
úr leðri, skinnfóðraðir og á góðum
sóla. Stærðir: 36-42. Verð: 15.985
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Kaupum bíla
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú
getur þar með fengið staðgreiðslu-
afslátt af nýja bílnum. Sendu okkur
upplýsingar í gegnum www.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.
Hjólbarðar
Vantar tvö góð
vetrardekk.
Ekki nagla. Stærð 245x75x16.
Sími 898 9475
Húsviðhald
Húsasmiður
Lærður húsasmiður / smiðir getur
bætt við sig verkefnum, utan sem
innanhúss. Góð þjónusta og gott
verð. Áratuga reynsla.
Sími 863 6095, Ioan Calin.
Þjónustuauglýsingar 569 1100
Fallinn er frá
góður drengur, Kári
Elíasson. Kári var hávaxinn,
grannur, spengilegur með karl-
mannlega andlitsdrætti, hlýtt
bros, yfirvegun og glaðværð í
framkomu. Kára kynntist ég sem
unglingur þegar ég var að stíga
mín fyrstu skref í golfi á golfvell-
inum í Grafarholti. Hann var
minn fyrsti eiginlegi golfkennari
og gaf mér mörg farsæl ráð sem
ég reyndar hefði mátt hafa betur
Kári Elíasson
✝ Kári Elíassonfæddist 7. júní
1925. Hann lést á
Hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni
31. október 2014.
Útför Kára fór
fram frá Laugar-
neskirkju 7. nóv-
ember 2014.
í huga við iðkun
þeirrar erfiðu
íþróttar. Þrátt fyrir
að nemandinn hafi
ekki verið efnilegur
breytti það engu hjá
Kára, hann var
óþreytandi við
kennsluna enda þol-
inmæðin einstök.
En Kára var
fleira til lista lagt en
að spila golf; sem
rakari gat hann sér orð sem ein-
stakur fagmaður í hæsta gæða-
flokki. Átti hann stóran hóp við-
skiptavina sem héldu tryggð við
hann í áratugi. Að auki var hann
prófdómari við útskrift hárskera
við Iðnskólann.
Ég sendi fjölskyldunni innileg-
ar samúðarkveðjur. Blessuð sé
minningin um Kára Elíasson.
Ólafur Haukur Johnson.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).