Morgunblaðið - 14.11.2014, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2014
Sjöfn Sveinsdóttir, ferðaþjónustubóndi með meiru, ólst upp íHafnarfirði þar sem hún gekk í skóla. Hún fór síðan íKvennaskólann á Laugum í Eyjafirði og lærði þar þær listir
sem þóttu nauðsynlegar ungum stúlkum á þeim tíma. Námið kom
líka að góðum notum því ung að árum stofnaði hún heimili í
Grindavík en þangað hafði hún flutt með foreldrum sínum á ung-
lingsaldri. Sjöfn býr í Borgargerði í Ölfusi þar sem hún rekur og
starfar við hestaleiguna Sólhesta ásamt eiginmanni sínum, Sól-
mundi Sigurðssyni.
Sjöfn er margt til list lagt, hún er listfeng og hefur í mörg ár
málað postulín og myndir sér til skemmtunar. Hún hefur líka gam-
an af hestum og hefur á síðari árum farið í hestaferðir á hverju
sumri. Hún hefur líka sérstaka ánægju af heimilishaldi og að snú-
ast í kringum sinn eiginmann.
Það er oft margt um manninn í Borgargerði þegar fjölskyldan
kemur í heimsókn, en Sólmundur á fjóra syni og ellefu barnabörn
og Sjöfn á tvö börn og sex barnabörn. Svo það má segja að hús-
mæðramenntunin gamla komi að góðum notum.
Sjöfn dvelur á Tenerife á Kanaríeyjum á afmælisdaginn ásamt
eiginmanni sínum.
Sjöfn Sveinsdóttir er sextug í dag
Afmælisbarnið Sjöfn á brúðkaupsdegi sínum og Sólmundar 30.
ágúst 2008, en þau voru gefin saman í Kotstrandarkirkju í Ölfusi.
Ferðaþjónustu-
bóndi í Ölfusi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hjónin Elsa J. Elíasdótt-
ir og Guðmundur Tóm-
asson eiga í dag, 14.
nóvember, 50 ára hjú-
skaparafmæli. Hjónin
áttu Hótel Mælifell í 30
ár. Þau eru búsett á
Sauðárkróki. Þau eiga
fjóra syni og ellefu
barnabörn.
Gullbrúðkaup
B
rynja fæddist á Akra-
nesi 14.11. 1974, en bjó
fyrstu æviárin í Lundi í
Svíþjóð þar sem for-
eldrar hennar voru við
nám. Fimm ára flutti hún með þeim
aftur til Íslands og þá í Kópavoginn.
Hún fór í Álftanesskóla þar sem
móðir hennar var kennari og í kjöl-
farið byggðu foreldrar hennar hús á
Álftanesi. Þá voru systurnar orðnar
tvær, en Þóra Margrét fæddist í
febrúar 1980: „Heldur var ólíkt um
að litast á Álftanesinu þá, kúa- og
fjárbúskapur stundaður á nokkrum
býlum, víðáttumikil tún og malar-
vegir. Tvö sumur var ég í sveit á
Syðstu-Fossum í Andakíl hjá Sigríði
Guðjónsdóttur og Snorra Hjálm-
arssyni, en Sigríður og fjölskylda
hennar voru vinafólk og nágrannar
föðurforeldra minna, Magnúsar og
Ingibjargar, sem bjuggu lengi í
Andakílsárvirkjun þar sem Magnús
var vélstjóri.
Á Syðstu-Fossum kviknaði áhugi
á hrossum sem síðar átti eftir að
Brynja Þorgeirsdóttir, dagskrárgerðarmaður á RÚV – 40 ára
Náð í jólatré Brynja og synirnir, Jökull Breki og Þorgeir Nói, búin að ná sér í jólatré í Hólaskógi í Hvalfirði.
Konan með Orðbragðið
Á hestbaki Brynja hefur gert tvær sjónvarpsþáttaraðir um hestamennsku.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Þú hringir ekki
í miðil þegar
tölvukerfið hrynur
Hádegismóum 4, 110 Reykjavík | Sími 547 0000 | premis.is
• Traustur rekstur
tölvukerfa
• Örugg hýsing gagna
•Vandað
verkbókhaldskerfi
• Sérsniðnar
forritunarlausnir