Stígandi - 01.10.1947, Page 10

Stígandi - 01.10.1947, Page 10
frændi minn reiður, ef ég læt þetta út úr mér? Það var gott, að liann gat ekki lesið hugsanir mínar, sá, sem hjálpaði upp á mig við húsbygginguna í hitteðfyrra! Fæst orð hafa minnsta ábyrgð. Þess vegna segja blöðin líka, að það þurfi að laga ástandið, og von- andi finni alþingismennirnir lausnina, sem allir verði ánægðir með. Og það megi ekki dragast, það þoli enga bið! Og kom svo ekki lausnin fyrir jólin? En hver er meginorsök verðbólgunnar? Eg svara og svara hik- laust: Ol' mikil kaupgeta meðal fólksins í landinu, kaupgeta, sem er sköpuð við óarðgæfa starfsemi, einkum verzlun, ýmiss konar iðnað, opinberar framkvæmdir, ríkiseftirlit og alls konar opin- bera þjónustu, ferðalög, veitingastarfsemi og skemmtanir. Þeir, sem nú stunda undirstöðuframleiðsluna, eru of lítill hluti þjóðar- innar. Sú skoðun er nokkuð útbreidd í bæjum landsins, að land- búnaðurinn sé lítils virði fyrir þjóðina, jafnvel að sumu leyti til byrði. Það hefir verið ríkjandi háskalegur misskilningur á því, hvaðan lífsþarfir þjóðarinnar koma. Menn sjá blöðin og blóma- skrúðið, en gleyma rótinni. Landbúnaður og sjávarútvegur, og iðnaður að talsverðu leyti, eru rótin, sem gefur blómum og blöð- um lífsnæringu. Ef við höldum líkingunni áfram, þá má segja, að blöðin og blómin séu eins og hin opinbera þjónusta, skólar og menntamál, listir og vísindi, verzlun, samgöngur, ríkisstjórn, dómsvald, lögregla o. fl. — Og svo kannast allir ræktunarmenn við sníkjudýrin, sem sjúga lífsnæringu frá rót og blöðum. Sk'l 'li Ég tel stefnt í ófæru í skólamálum landsins. Nú á að setja öll börn og unglinga í skóla frá því að þau lara að vitkast og fram til 16—17 ára aldurs, og fjöldi þeirra á svo að halda lengra. Ég hygg, að afleiðingin verði allt of oft: lítill árangur í námi, og það, sem verst er, algjört fráhvarf frá líkam- legri vinnu. En það er mesta ógæfa, sem þjóðina getur hent, að tapa löngun til líkamlegrar vinnu og trú á nauðsyn hennar, — gildi hennar fyrir hag og heilbrigði. Nám er nauðsyn, en vinnan, starfið, er enn meiri nauðsyn. Eftir barnaskólanámið ætti oftast að vera hlé á hjá meginhluta unglinga. Þeir, sem löngun hafa, fara svo í framhaldsskóla 2—3 vetur, þegar þeir hafa öðlazt meiri þroska. Meginhluti æskulýðsins er nú í bæjurn landsins og eink- um Reykjavík 7—8 mánuði ársins. Margt á.að heita við nám, rnargt nytsamlegt og gott. en margt líka aðeins að nafninu. Sí- fellt færri hendur stunda landbúnaðinn, og sjávarútveginn skortir menn. ’ . 932 stígandi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.