Stígandi - 01.10.1947, Page 40
niörg séu þau glæsileg, einnig liið ytra, en koma iiyrst í ljós,
þegar inn er kornið fyrir liina háu miirveggi þeirra. Þau eru flest
byggð í ferhyrning og eru í miðju fagrir gras'fletir, rennisléttir
og iðgrænir. Þeir eru afburða vel hirtir, og Ameríkumaður einn
spurði mann, sem var að slá og valta slíkan völl, hvernig
farið væri að því að gera þá svo fallega. „Það er nú ekki annað
en að slá þá og slétta svona fjögur til f'imm hundruð ár,“ var
svarið. Fagrir trjá- og blómagarðar eru við hvert college og vafn-
ingsviður prýðir oft veggi þeirra. Þarna búa stúdentarnir. Það
er að segja einn þriðji þeirra, því að á þessunr síðustu og verstu
tímum er aðsóknin orðin það mikil, að ekki er rúm fyrir alla og
eru þá stúdentar livers háskólagarðs eða college, eitt ár í liá-
skólagarðinum, en hin tvö úti í bæ hjá fólki, sem lifir af því að
selja þeim fæði og húsnæði. Þótt stúdentar búi úti í bæ, eru þeir
þó í stöðugu sambandi við sinn háskólagarð, því að þar eiga þeir
aðgang að bókasafni, lestrarstofum og setustofum og þangað sækja
þeir oft tíma eða ráðgast við forstjórastofnunarinnar,semerþeirra
forsjón og liefir eftirlit með námi þeirra og högum. Stundum
eru þeir kallaðir þangað ifyrir vítavörð stofnunarinnar, sem oft
kallast the Dean, og krefst reikningsskapar á gjörðum manna. Til
hans þarf að fara, ef stúdent þarf að bregða sér úr bænum, því
að enginn má vera í burtu næturlangt án leyfis, hversu gamall
sem hann kann að vera, og sé hann yngri en 24 ára, verður stúd-
entinn að hafa vottorð frá húsráðanda, að hann liafi verið kominn
inn kl. 10 að kveldi. Stiidentar. mega aðeins koma á tiltekna
veitingastaði og ekki halda danssamkomur eða veizlur án leyfis,
ekki aka bifreið leyfislaust. Geri nokkur sig sekan um hneyksl-
anlegt athæfi, er honum vikið brott tafarlaust, en við minni brot-
um eru sektir, er renna í háskólasjóð. Háskólarnir í Englandi
eru sem sé ekki eingöngu fræðslustofnanir eins og á Norðurlönd-
um og víðar, heldur eru þeir uppeldisstofnanir fyrst og fremst og
stefna að alhliða þroska stúdentanna. Sérhver stúdent verður að
mæta að minnsta kosti þrisvar og helzt oftar til borðhalds í borð-
sölum háskólagarðs síns til þess að kynnast öðrum nreðlimum
samfélags þeirra allra og til þess að auka samheldni og vináttu
manna á milli. Fer slíkt borðhald hátíðlega fram. Stúdentar
skrýðast skikkjum sínunr, og þegar hringt er til borðlralds, skipa
þeir sér við matborðin og setjast þar. Á borðum eru fornar bjór-
kollur eða krúsir úr tini, því að vatn er í litlunr heiðri haft, þótt
óregla og drykkjuskapur séu einnig illa séð. Á veggjunr borð-
262 stígandi